Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 39
Ókeypis krakkaklúbbur www.myndform.is, krakkaklubbur@myndform.is Sýnd kl. 4, 8 og 10.15. Sýnd kl. 4 Ísl tal ATH! VERÐ KR. 500 J A M I E F O X X Sýnd kl. 6 og 9. B.i 12 ára. WWW.LAUGARASBIO.IS  J.H.H kvikmyndir.com Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna jamie kennedyj i Alan cummingl i Sýnd með íslensku tali kl. 4 og 6. Með ensku kl. 6.15, 8 og 10. Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna jamie kennedyi Alan cummingl i jamie kennedyj i Alan cummingl i    Kvikmyndir.is.  S.V. Mbl.   "Fullkomlega ómissandi mynd." SV MBL "Ein snjallasta mynd ársins...Ógleymanleg... ljúf kvikmyndaperla." SV MBL Í REGNBOGANUM Gildir á fyrstu sýningar dagsins í öllum sölum, merktar með rauðu! E R Ó S K A R S V E R Ð L A U N A B Í Ó I Ð Julia Roberts • Natalie Portman • Jude Law • Clive Owen Ef þú trúir á ást við fyrstu sýn, hættir þú aldrei að horfa Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. Sýnd kl. 10.20. Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 6. Ísl. tal Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna i ll l l Fr r rí y fyrir l fj lskyl u ATH! GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNA T ! TI L I TT  Besti leikari í aðalhlutverki Jamie foxx Fráb r grín ynd fyrir alla fjölskylduna VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 39 ÞRÁTT fyrir að hafa lagt mikið í að reyna að auka áhuga almennings á Óskarnum, m.a. með því að fá yngri og að talið var vinsælli kynni, Chris Rock, tókst skipuleggjendum, sjón- varpsstöðinni ABC, ekki að auka áhorfið á beinu útsendinguna. Þvert á móti horfðu tveimur millj- ónum færri á hátíðina á ár en hátíð- ina 2004. Mælingar sýna að 41,5 milljónir hafi fylgst með útsending- unni, sem er 5% áhorfssamdráttur frá fyrra ári. Fjölmiðlarýnar kenna flestir um þeim myndum sem tilnefndar voru og þeirri staðreynd að þær hafa ekki notið sérlega mikilla vinsælda meðal almennings, ólíkt t.d. í fyrra þegar sigurmyndin, Hringadrótt- inssaga: Hilmir snýr heim, var jafn- framt vinsælasta mynd ársins. Þetta virðist enda haldast í hendur, vinsældir myndanna sem tilnefndar eru og áhorf á Óskarshátíðina. Áhorfið í fyrra, þegar Hringadrótt- inssaga þótti sigurstranglegust og fór enda með sigur af hólmi, var það mesta í fjögur ár og aldrei hefur áhorf á beina útsendingu frá Ósk- arsverðlaunahátíð verið meira í Bandaríkjunum en árið 1998 þegar vinsælasta kvikmynd sögunnar, Titanic, sópaði að sér 11 Ósk- arsverðlaunum. Áhorfið hefur hinsvegar aldrei orðið minna en 2003, 33 milljónir, en svo óheppilega vildi til að hátíðin fór fram um svipað leyti og blásið var til orustu í Írak. Þrátt fyrir minnkandi áhorf, er útsending frá Óskarshátíðinni ennþá sá viðburður úr heimi dæg- urmenningarinnar sem flestir horfa á. Til samanburðar horfðu 16,8 milljónir á Golden Globe-verðlaunin og 18,8 milljónir á Grammy- verðlaunin. Mikið þykir mæða á kynninum þegar áhorf er annars vegar. Óvíst þykir hvort Chris Rock verði boðið að vera kynnir aftur en hann hefur fengið blendna dóma fyrir frammi- stöðu sína, og telja margir fjöl- miðlarýnar að honum hafi ekki tek- ist að standa undir þeim miklu væntingum sem til hans voru gerð- ar. Sagði Tom Shales hjá Wash- ington Post m.a. að framganga Rock hafi verið „undarlega mátt- laus og illa innrætt“, en Caryn James hjá New York Times segir að þær fáu tilraunir sem Rock gerði til að hrista upp í samkomunni hefðu misheppnast. Minni áhugi á Óskarnum AP Skiptar skoðanir eru um frammistöðu kynnis kvöldsins, Chris Rock, en hann skaut nokkrum föstum skotum að þeim „næstfrægustu “ á borð við Jude Law, Colin Farrell og sig sjálfan. ROBERT Evans, sem framleiddi m.a. myndina Chinatown á sínum tíma, hef- ur samið við Stan Lee, höf- und Köngulóar- mannsins, um að gera mynd um nýja ofur- hetju. Hún mun heita Eilífð- armaðurinn, eða „Foreverman“. Eilífðarmaðurinn mun að sjálf- sögðu þurfa að bjarga heiminum, en að auki mun hann þurfa að fást við örðugleika hins daglega lífs. Peter Briggs, handritshöfundur Hellboy, hefur verið ráðinn til að skrifa handritið, í samvinnu við Lee. Reuters Stan Lee, sem bjó Köngulóarmanninn til, hefur nú skapað Eilífðarmanninn. Ný ofurhetja frá höfundi Köngulóar- mannsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.