Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ ÁLFABAKKI kl. 3.45, 6, 8.15 og 10.30 GOLDEN GLOBE VERÐLAUN Besti leikari - Jamie Foxxti l i i i J A M I E F O X X Sýnd kl. 7.45 og 10.30. B.i. 12 ára. VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI  Kvikmyndir.is.  S.V. Mbl.  J.H.H. Kvikmyndir .com KEFLAVÍK kl. 8 og 10.10. HELVÍTI VILL HANN, HIMNARÍKI VILL HANN EKKI, JÖRÐIN ÞARFNAST HANS Magnaður spennutryllir með Keanu Reeves og Rachel Weisz í aðalhlutverki. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 5.30, 8 og 10.30. B.i 16. SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5.30, 8 OG 10.30. Sýnd kl. 6, 8 og 10. KÓRINNI Sýnd kl. 5.30. E. tal.  Mbl.  DV 2 T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A• BESTA ERLENDA MYNDIN • BESTA LAGIÐ S.V. MBL. Besti Leikari - Jamie Foxx Besta hljóðblöndun Kvikmyndir.is H.L. Mbl. LEONARDO DiCAPRIO Sýnd kl. 6 og 9.10. Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun Kvikmyndir.is Besta mynd ársins Besti Leikstjóri - Clint Eastwood Besta Leikkona - Hillary Swank Besti Leikari í aukahlutverki - Morgan Freeman Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. DV Forsýning kl 8. Tilnefnd til 3 Óskarsverðlauna Bubbi Morthens er ótrúleg-ur maður. Nýjasta útspilhans, að selja Sjóvá og Íslandsbanka réttinn að lög- unum sínum, hefur ábyggilega fengið marga til að gapa en um leið hafa margir alveg ábyggi- lega yppt öxlum. Svona lagað er nefnilega nákvæmlega það sem hefði mátt búast við frá Bubba Morthens – eða ekki. Maðurinn er algjörlega óútreiknanlegur. Á mánudaginn var undirrit- aður samningur þess efnis að Sjóvá, fyrir tilstilli Íslands- banka, kaupir hugverkasjóð Bubba sem þýðir á mannamáli að lög Bubba og allar þær tekjur sem þeim fylgja renna nú til Sjóvár. Bubbi fékk greidda nokkra tugi milljóna fyrir pakk- ann, en nákvæm fjárhæð liggur ekki fyrir.    Í þessum pistli verður ekkistigið fram með rassvasa- kommúnisma og galað um það að þetta séu svik við alþýðuna og hina sönnu listsköpun. Hvað þá að tengsl viðskipta og lista verði dásömuð og að við stönd- um frammi fyrir nýjum veru- leika þar sem bisnessmenn og listamenn ganga góðglaðir sam- an hönd í hönd. Fyrir sumum var Bubbi einfaldlega að selja djöflinum sálu sína en fyrir öðr- um er Bubbi skynsemdarmaður sem var með þessu að treysta afkomu sína, enda hefur hann lifað af tónlist sinni svo til ein- vörðungu síðastliðin tuttugu og fimm ár og ætti að vita best sjálfur hvað þarf að gera til að halda sér á floti. Myndin sem fylgir þessari grein gæti eins verið úr einhverjum farsa. Spillti en fyrrum hjartahreini listamaðurinn að selja glottandi hákarli hluti sem eru ómet- anlegir eðlis síns vegna. Hlutirnir eru auðvitað ekki svona einfaldir en þessi atburð- ur vekur óneitanlega spurn- ingar. Hvað þýðir það að fyr- irtæki leggi út í svona fjárfestingar? Kannski fara listamenn að haga listsköpun sinni í auknum mæli á þann veg, að hún hugnist einhverju stórfyrirtækinu. Eða getur ver- ið að svona samningar treysti starfsgrundvöll listamanna og tryggi áframhaldandi sköpun? Aukaafurð af þessari sölu var kostulegur Kastljóssþáttur sem sendur var út á mánudags- kvöldið. Þorgils Óttar Mathie- sen, línumaðurinn snjalli sem gerði garðinn frægan með FH og íslenska landsliðinu og nú- verandi forstjóri Sjóvár, var mættur og viðhafði orð eins og „fjármagnsflæði“ og „eigna- trygging“ og fleiri tækniorð og var fremur þurr á manninn. Bubbi sat brattur við hliðina á honum og fór á kostum eins og venjulega. Sagði að samning- urinn þýddi að nú gæti hann borgað skuldirnar án þess að svitna, benti á að Michaelangelo hefði verið gerður út af auð- mönnum og að þetta málið rokkaði fyrst og síðast feitt. Bubbi var stórkostlega kok- hraustur og sjarmerandi um leið, eins og hann á vanda til. Þessir tveir menn voru jafn- ólíkir og svart og hvítt. Það sem rokkar mest við þetta mál er að Bubba gæti ekki verið meira sama um hvað öðr- um finnst. Hann gerir það sem honum sýnist og glottir við tönn. Þetta er eins og þegar Kurt heitinn Cobain, sem var glúrnari en margir halda, var spurður af einhverjum blaða- manninum af hverju hann væri farinn að spila tónlist sína á íþróttaleikvöngum. Cobain hafði lýst því yfir snemma á ferlinum að slíkt myndi hann aldrei gera, áleit slíkt athæfi vera tákn um að hann væri þá búinn að selja sig, vera svokallað „sell out“. En af hverju var hann farinn að spila á íþróttaleikvöngum allt í einu? „Tja ... ég skipti um skoðun,“ var svarið, klárt og kvitt.    Sjálfur er ég löngu orðinnsannfærður um að Bubbi Morthens sé snillingur og er annað hægt en að dást að ein- urð þessa manns, hann segir eitt og gerir svo eitthvað allt annað daginn eftir en virðist ávallt jafnheill engu að síður. Og hver ætlar að dæma Bubba Morthens? Það er minnisstætt atriði í poppsögunni þegar kall- að var „Júdas“ að Bob Dylan á tónleikum, fyrir það eitt að skipta úr kassagítar í rafmagns- gítar. Margir sjá Bubba enn í hyllingum sem verkalýðshetju en Bubbi hefur fyrir löngu sýnt og sannað að það er ekki hægt að koma honum fyrir í ein- hverri þægilegri rétt. „Ég hef lengi verið að bíða eftir því að íslenskt fyrirtæki hefji framleiðslu á hnífum og göfflum,“ sagði Bubbi í Kast- ljósinu, eða eitthvað á þá leið, eitt af mörgum gullkornum hans þar. „Þá gæti ég selt þeim „Stál og hníf“!“ Fékk einhver í magann við að heyra þetta? Bubbi byggir ’Bubbi hefur fyrirlöngu sýnt og sannað að það er ekki hægt að koma honum fyrir í einhverri þægilegri rétt.‘ AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell „Hvernig gat þetta gerst?“ spyrja gömlu gúanórokkararnir sig líklega. LEONARDO DiCaprio hefur löngum staðið frekari vörð um einkalíf sitt en mörg önnur Hollywood-stjarnan og ætíð gert allt sem í valdi hans stendur til að halda ástarlífi sínu leyndu. Það vakti því þeim mun meiri at- hygli er hann mætti með unga þokka- dís uppá arminn á Óskarsverð- launahátíðina á sunnudag. Staðfestist þar með orðrómur sem verið hafði á kreiki í langan tíma, að honum hefði tekist að halda leyndu alvarlegu sam- bandi sínu og brasilísku fyrirsæt- unnar Gisele Bundchen í heil fjögur ár. Þetta var nefnilega í fyrsta sinn sem þau stíga saman fram í sviðsljósið og það sem meira var þá töldu þeir blaðamenn, ljósmyndarar og aðdá- endur sem fylgdust grannt með stjörnunum á rauða dreglinum sig greina netta bumbu undir víðum hvít- um Empire Line kjólnum sem Bundchen klæddist. DiCaprio, sem tilnefndur var til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í The Aviator, lét sér heldur ekki nægja að afhjúpa loksins kærustuna á Ósk- arshátíðinni heldur tók hann einnig móður sína Irmalin DiCaprio með og var leikarinn vinsæli sýnilega stoltur af mikilvægustu konunum í lífi sínu. Fregnir götublaðanna í Bretlandi herma reyndar að Leonardo hefði næstum því misst af hátíðinni vegna óhapps sem á að hafa hent hann á veit- ingastað sem hann og fylgdarkonur hans snæddu á fyrir hátíðina. Segir í Daily Star að gulrót hafi staðið staðið föst í hálsi hans og hann blánað í fram- an. Hafi móðir hans því þurft að beita hann Heimlich-björgunaraðferðinni, til að ná gulrótinni uppúr hálsinum og koma í veg fyrir að hann kafnaði. Fólk | DiCaprio er með brasilískri fyrirsætu Mætti með Gisele og mömmu á Óskarinn Reuters Leikarinn Leonardo DiCaprio og unnusta hans til fjögurra ára Gisele Bundchen. MORRISSEY, gamli Smiths- söngvarinn, sem sneri aftur í fyrra með sína sterkustu plötu í mörg ár, You Are The Quarry, lætur ekki deigan síga og ætlar að gefa út aðra plötu í ár. Verður það tónleikaplata sem hljóðrituð var á nýafstaðinni tón- leikaferð hans um Bretland. Platan mun heita því gegnsæja nafni Morr- issey Live At Earl’s Court, einfald- lega vegna þess að hljóðritunin var gerð á tónleikum söngvarans í Earl’s Court-tónleikasalnum í Lundúnum í desembermánuði sl. Það lá víst sérstaklega vel á karlin- um á umræddum tónleikum og tók hann gömul Smiths-lög, lögin „How Soon is Now“, „Bigmouth Strikes Again“, „There is a Light That Never Goes Out“, „Last Night I Dreamt Somebody Loved Me“ og „Shoplifters of the World Unite“, sem öll verða á plötunni, og nokkur af sínum ágætu b-hliðarlögum sem hann hafði aldrei áður tekið á tónleikum. Alls verða átján lög á plötunni og kemur hún út 4. apríl. Tónlist | Morrissey gefur út tónleikaplötu Smiths-lög og b-hliðar Reuters Morrissey er í hörkuformi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.