Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 41 Disneyhetjurnar Bangsímon, Grísli, Tígri og félagar lenda í stórkostlegu nýju ævintýri! J A M I E F O X X  HELVÍTI VILL HANN, HIMNARÍKI VILL HANN EKKI, JÖRÐIN ÞARFNAST HANS Magnaður spennutryllir með Keanu Reeves og Rachel Weisz í aðalhlutverki. HELVÍTI VILL HANN, HIMNARÍKI VILL HANN EKKI, JÖRÐIN ÞARFNAST HANS Magnaður spennutryllir með Keanu Reeves og Rachel Weisz í aðalhlutverki. ÁLFABAKKI kl. 3.45 og 6.30. Ísl tal KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.20. KRINGLAN Sýnd kl. 5.30, 8, 9.15 og 10.30. B.i. 16. KRINGLAN kl. 5.30. Í.t./ kl. 7. E.t. Yfirnáttúrulegur spennutryllir af bestu gerð sem vakið hefur gríðarleg viðbrögð og slegið rækilega í gegn í USA og víðar. Varúð: Ykkur á eftir að bregða. B.i 16 ára ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45 og 6. m. ísl. tali. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15 og 10.30. KRINGLAN kl. 6, 8.15 og 10.30. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10.20.  Kvikmyndir.is  Mbl.  DV  Mbl.  DV T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45 og 6. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15 og 10.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15. Hljómsveitirnar sem taka þátt í ár. Sigurvegari síðustu tilrauna - Mammút. Rætt við upphafsmenn keppninnar. Fyrstu sporin á Músíktilraunum - hljómsveitir og tónlistarmenn sem allir þekkja. Skrýtin nöfn hljómsveita. Sérblað um Músíktilraunir 2005 fylgir Morgunblaðinu 7. mars næstkomandi. Hljómsveitakeppnin Músíktilraunir hefur verið ein helsta uppákoma í tónlistarlífinu í rúma tvo áratugi. Hundruð hljómsveita hafa tekið þátt í gegnum árin, en að þessu sinni keppa fimmtíu hljómsveitir með hátt í þrjú hundruð ungum tónlistarmönnum af öllu landinu. Umsjónarmaður: Árni Matthíasson - 569 1145 Umsjón auglýsinga: Katrín Theódórsdóttir - 568 1139 Panta þarf auglýsingar fyrir kl. 16 miðvikudaginn 2. mars auglýsingar 569 1111 músíktilraunir NÝJASTA útgáfan í einhverri vin- sælustu tölvuleikjaröð sögunnar, knattspyrnustjóraleiknum Champ- ionship Manager 5, kemur út fyrir PC 18. mars. Nýrrar útgáfu af þessum vinsæla og ávanabindandi leik er jafnan beðið með gífurlegri óþreyju enda ekki einasta að búið sé að uppfæra stöðu mála í heimi knattspyrnunnar heldur innihalda nýjar útgáfur jafnan nýja eig- inleika, meiri snerpu og betra við- mót. PS2 og XBOX-útgáfur verða svo gefnar út í vor. Leikurinn er gerður af Beautiful Game Studios (BGS), sem er í London. Championship Manager var fyrst gefinn út árið 1992 og hefur þessi tölvuleikjaröð nú selst alls í meira en 5 milljónum eintaka. Championship Manager 5 gengur eins og fyrri útgáfur út á að leikmenn velja sér lið til að stjórna en hægt er orðið að stýra nær öllum félagsliðum í hinum vestræna heimi, hvort sem er í ensku úrvals- deildinni eða hollensku þriðju deildinni. Sjá þarf um kaup og sölu á leikmönnum, þjálfun, samskipti við fjöl- miðla og setja upp leikkerfi. Fullyrt er í tilkynningu frá framleiðendum að Champ- ionship Manager 5 verði sá besti og fullkomnasti hingað til, sá leikur þar sem leik- menn komast næst því að stýra alvöruknattspyrnuliði. Nýja útgáfan á leiknum er sögð vera talsvert breytt – til hins betra væntanlega. Notuð er glæný „leikjavél“ sem ku innihalda miklar breytingar á hvernig leik- irnir spilast, hvernig sett eru upp leikkerfi og þjálfun. CM5 mun innihalda sömu dýpt og smáatriði sem áður, en er þó með hraðari spilun, auk þess sem styttri tíma tekur að hlaða honum inn. Gögn um leikmenn eru fengin með ýmsum hætti – frá aðdáendum liða, frá sérstökum rannsóknarmönnum og einnig frá fyrirtækjum, sem sjá um öflun gagna um knattspyrnulið, á borð við OptaTM – en þetta er gert til að tryggja réttari gögn og raun- verulegri. Svo raunverulegur þykir þessi leikur reyndar orðinn að sjálfir knattspyrnustjórar stóru liðanna hafa látið hafa eftir sér að þeir laumist í hann. Meðal þeirra er t.d. hinn gamalreynd Harry Redknapp, stjóri Southampton, en hann hefur viðurkennt að vera háður þessum leikjum. Haft er eftir John Webb, vöru- stjóra Championship Manager hjá Eidos: „Championship Manager 5 er risastórt skref fyrir seríuna. Við hlustuðum á raddir þeirra sem hafa spilað leikina í gegnum tíðina og höfum lagað leikinn að því sem aðdáendur CM vilja. Mikil áhersla var lögð á að gera leikinn hraðari og aðgengilegri.“ Að sögn Ólafs Þórs Jóelssonar, vörustjóra Skífunnar, sem sér um dreifingu á leikjunum hér á landi, hafa selst í kringum 20 þúsund ein- tök af Championship Manager- leikjunum hérlendis. Þegar síðasta útgáfan, Championship Manager ¾, kom út var miðnæturopnun í verslunum Skífunnar og BT og mynduðust langar raðir af hörð- ustu aðdáendunum. Má því búast fastlega við því að mið- næturopnun verði einnig 18. mars. Nú hefur verið sett á lagg- irnar netútgáfa af Champ- ionship Manager. Það þýðir að hægt er að spila leikinn á Netinu, einn eða við aðra netverja. Leikinn er að finna á www.cm-online.com og þarf að greiða áskrift að hon- um. Championship Manager Online er sjálfstæð útgáfa í þessari vinsælu leikjaröð þar sem fjöldi leikmanna getur spilað saman í einu á Netinu. Hægt er að spila í stærri og smærri deildum, þ.e. einn gegn félögum sínum í smærri deildum eða í stærri deildum við fjölda manns víða um heim, sem maður veit engin önnur deili á en þau að þeir eru eins gagn- teknir af fótboltastjóradell- unni alræmdu. Champion- ship Manager Online er hannaður af netleikjafyr- irtækinu Jadestone í sam- starfi við Beautiful Game Studios, framleiðanda PC-útgáfu Championship Manager. Geta leikmenn valið að stýra einu liði frá einu af sex Evr- ópulöndum. Gefið hefur verið lof- orð um að leikurinn verði upp- færður reglulega í takt við almenna þróun í knattspyrnuheim- inum, auk þess sem til stendur að bæta við löndum, deildum og leik- mönnum. Þá verður hægt að nota farsímann til að fylgjast með gengi liðs síns með sms-skilaboðakerfinu. Tölvuleikir | Knattspyrnustjóraleikurinn Championship Manager 5 Flautað til leiks 18. mars            !" # # # !" $ % &  #  % & '(&$) %* )+, #+,- #+,- .%&#/+) 0 .%&$) #+,- '(&$) .%&$)                  !" #   $$%&$$'  (     #   )& *               ! "# Búast má við því að æstustu knattspyrnustjórar tölvuheimanna leggi á sig að bíða í röð eftir CM5. www.championshipmanager.com Netleikurinn: www.cm-online.com skarpi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.