Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Metnaði þínum eru engin takmörk
sett í dag. Gættu þess að stíga ekki
óvarlega til jarðar í viðleitni þinni til
þess að ná árangri. Ekkert er þess
virði að traðka á náunganum fyrir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur fullan hug á því að gera
ferðaáætlanir og leggja land undir
fót í dag. Einnig má vera að þér komi
til hugar að setjast aftur á skólabekk.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn er rausnarlegur í garð
barna sinna og ástvina í dag. Einnig
gæti hann tekið upp á því að styðja
við listiðkun af einhverju tagi. Það er
góðra gjalda vert, en ekki fara yfir
strikið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Einhver kýs að vera stór í sniðum
varðandi eitthvað sem tengist heim-
ilinu. Kannski er það krabbinn sjálf-
ur eða annar fjölskyldumeðlimur.
Njóttu þess að lyfta þér upp, en ekki
setjast ölvaður bakvið stýri.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér tekst að koma gríðarlega miklu í
verk í vinnunni í dag. Þú ert til í að
leggja allt þitt af mörkum. Þú vinnur
baki brotnu og finnur til gleði yfir
góðu dagsverki.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þig langar mest til þess að lyfta þér
upp í dag. Allt sem tengist ást, róm-
antík, gleðskap, afþreyingu og listum
fær byr undir báða vængi á næst-
unni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú fyllist metnaði og framkvæmda-
gleði heima fyrir í dag. Gættu þess að
fara ekki yfir strikið og eyða of miklu
í fjölskyldumeðlim eða heimilið. Nú
er auðvelt að vera of stór í sniðum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er afar kraftmikill í
dag en verður að gæta þess að haga
sér ekki gáleysislega. Hugsaðu þig
tvisvar um áður en þú talar. Ekki
gefa of fögur fyrirheit.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Skildu peningana þína eftir heima í
dag og farðu gætilega ef þú þarft að
fara í verslunarferð. Þú ert svo sann-
arlega til í að spreða núna.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Drífðu þig út og njóttu þess að hreyfa
þig. Þú ert að springa úr fjöri í dag.
Þig langar kannski til þess að sann-
færa einhvern um eitthvað. Það
tekst.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú kemur miklu í verk með því að
vinna í einrúmi í dag. Þú fyllist krafti
og ert næstum því óstöðvandi. Sam-
ræður við einhvern hinum megin á
hnettinum gleðja þig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Notaðu daginn til þess að eyða tím-
anum með vinum og félögum. Þú nýt-
ur þess að vera innan um aðra núna.
Aðrir sækjast eftir þínum félagsskap
líka.
Stjörnuspá
Frances Drake
Fiskar
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert einstaklega athugul persóna
og bæði staðföst og varkár að eðlisfari.
Tryggð við fjölskyldu og vini er þér
mikilvæg. Þú óttast ekki að skera þig
úr fjöldanum og leggur mikið á þig
í því sem þú fæst við.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Café Rosenberg | Svavar Kristinsson leik-
ur á gítar og syngur eigin lög í bland við
valin tökulög kl. 22–01.
Hafnarborg | Sesselja Kristjánsdóttir
mezzósópran syngur á hádegistónleikum
Hafnarborgar í dag kl. 12, við undirleik
Antoníu Hevesi, en hún er einnig listrænn
stjórnandi tónleikaraðarinnar. Tónleikarnir
eru í boði Hafnarborgar og aðgangur er
ókeypis.
Myndlist
Gallerí Sævars Karls | Ættarmót fyrir
hálfri öld. Sigurður Örlygsson sýnir olíu-
málverk – 100 andlit úr fjölskyldu sinni.
Gallerí Tukt | Erna Þorbjörg Einarsdóttir
– Verk unnin með blandaðri tækni.
Hrafnista Hafnarfirði | Steinlaug Sig-
urjónsdóttir sýnir olíu- og vatnslitamyndir
í Menningarsalnum á fyrstu hæð.
Kaffi Sólon | Óli G. Jóhannsson sýnir
óhlutlæg verk.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist
1930–1945 og Rúrí – Archive– end-
angered waters.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Blaða-
ljósmyndarafélag Íslands – Mynd ársins
2004 á efri hæð. Ragnar Axelsson –
Framandi heimur á neðri hæð.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í vest-
ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur
Örn Friðriksson – Markmið XI Samvinnu-
verkefni í miðrými. Yfirlitssýning á verk-
um Kjarvals í austursal.
Nýlistasafnið | Jean B. Koeman – Socles
de Monde. Samsýningin Tvívíddvídd.
Grams – Sýning á vídeóverkum úr eigu
safnsins.
Thorvaldsen Bar | Ásta Ólafsdóttir –
Hugarheimur Ástu.
Listasýning
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Handritin, Þjóð-
minjasafnið – Svona var það, Heimastjórn-
in 1904. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
(1895–1964) er skáld mánaðarins en í ár
eru 110 ár liðin frá fæðingu hans. Á sýn-
ingunni eru ljóð Davíðs, skáldverk og leik-
rit. Einnig handrit að verkum og munir úr
hans eigu. Blaðaumfjöllun um Davíð og
ljósmyndir frá ævi hans prýða sýninguna.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til –menn-
ing og samfélag í 1200 ár. Ómur Landið
og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljós-
myndasýningarnar Hér stóð bær og Átján
vóru synir mínir í álfheimum... Opið frá kl
11–17.
Mannfagnaður
Maður lifandi | Hláturæfing kl. 17.30 og
síðan taka þátttakendur lagið saman.
Ásta Valdimarsdóttir og Kristján Helga-
son stjórna æfingunni.
Fundir
GSA á Íslandi | Fundir fimmtudögum kl.
20.30 Tjarnargötu 20. GSA er hópur
fólks sem hefur leyst vandamál sín tengd
mat.
Iðnó | Ný þverpólitísk samtök ungs fólks
verða stofnuð í dag kl. 12. Gestir fund-
arins verða nokkrir af þeim ungu þing-
mönnum sem standa að frumvarpi um
lækkun áfengisgjalds og afnám einkasölu
á bjór og léttvíni. Allir velkomnir.
ITC–Fífa | Ræðukeppni kl. 20.15, í sal
Safnaðarheimilis Hjallakirkju í Álfaheiði 17,
Kópavogi. Allir velkomnir. Uppl. www.sim-
net.is/itc itcfifa@isl.is og Guðrún í síma
6980144.
ITC Korpa | Fundur kl. 20 í Safn-
aðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3,
Mosfellsbæ. Gunnjóna Una Guðmunds-
dóttir félagsráðgjafi segir frá niðurstöðum
rannsókna á áfrifamætti bænarinnar.
Krabbameinsfélagið | Stuðningshópur um
krabbamein í blöðruhálskirtli verður með
rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélags-
ins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík í dag kl. 17.
Gunnjóna Una Guðmundsdóttir verk-
efnastjóri hjá Krabbameinsfélaginu fjallar
um rannsóknir á áhrifamætti bænarinnar.
Fyrirlestrar
Háskólinn á Akureyri | Á Félagsvís-
indatorgi fjallar Sæunn Kjartansdóttir sál-
greinir um sálgreiningu sem meðferð-
arform, hvað greinir hana frá annarri
viðtalsmeðferð og í hverju notagildi henn-
ar felst. Erindið verður flutt kl. 12 í stofu
L201 á Sólborg.
Kennaraháskóli Íslands | Friðrik Diego
flytur erindið, Um tengireglu í algebru í
Skriðu, Kennaraháskóla Íslands kl. 16.15.
Fjallað er stuttlega um tengireglu sem
grundvallaratriði í grunnskólareikningi.
Síðan er greint frá niðurstöðum stærð-
fræðilegrar rannsóknar tveggja stærð-
fræðikennara við skólann.
Landbúnaðarháskóli Íslands | Dr. Carlo
Leifert prófessor í vistfræðilegum land-
búnaði við Newcastle-háskóla flytur fyr-
irlestur um umhverfis- og heilsufarsáhrif
lífrænna ræktunaraðferða í Landbún-
aðarháskólanum á Hvanneyri kl. 13.15.
Fundarstjóri er Stefán Gíslason verkefn-
isstjóri.
Náttúrufræðistofnun Íslands | Ólafur
Eggertsson, jarðfræðingur á Rann-
sóknastöðinni Mógilsá, flytur erindið:
Fornskógur í Fljótshlíð, varð hann Kötlu
að bráð?, kl. 12.15, í sal Möguleikhússins á
Hlemmi. Hrafnaþing eru öllum opin. Nán-
ari upplýinsgar á: www.ni.is.
Námskeið
www.ljosmyndari.is | 3 daga ljósmynd-
anámskeið fyrir stafrænar myndavélar.
Fyrri hópur 7., 9. og 10. mars og seinni
hópur 14., 16. og 17. mars. Verð kr. 14.
900. Nánari uppl. og skráning á www.ljos-
myndari.is.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun í dag kl. 14–17 á Sól-
vallagötu 48. Svarað í síma 5514349 þri.–
fim. kl 11–16. Tekið við vörum og gjöfum
þri.–mið. kl.11–16 netfang mnefnd@mi.is.
Tungumálamiðstöð HÍ | Alþjóðlega
þýskuprófið TestDaF verður haldið í
Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands 12.
apríl. Prófgjaldið er 10.000 kr. og skráning
fer fram í Tungumálamiðstöð HÍ til 10.
mars. Nánari upplýsingar: Tungumála-
miðstöð HÍ, Nýja Garði: 525 4593,
ems@hi.is og www.testdaf.de.
80 ÁRA afmæli. Í dag, 2. mars, eráttræður Sveinn Kristinsson,
blaðamaður og skákmeistari, Þóru-
felli 16, Reykjavík. Hann er að heiman
ásamt eiginkonu sinni, Jóhönnu Jóns-
dóttur, skrifstofumanni og húsmóður.
Þau hjón óska öllum vinum velfarn-
aðar.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
ÖLLUM er hollt að hlæja, enda eru það forn sannindi að sú athöfn lengir lífið. Færri vita
þó að hægt er að æfa sig í hlátri og stunda hann með góðu fólki. Í því skyni verður haldin
hláturæfing kl. 17.30 í dag í heilsumiðstöðinni Maður lifandi að Borgartúni 24. Æfingin
stendur í um hálfa klukkustund, en síðan taka þátttakendur lagið saman.
Það eru þau Ásta Valdimarsdóttir og Kristján Helgason sem stjórna æfingunni að
þessu sinni og bjóða þau alla sem vilja æfa sig í hlátrinum velkomna.
Hláturæfing í Maður lifandi
Morgunblaðið/ÞÖK
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 hélt, 4 skip, 7
kindurnar, 8 lagarmál, 9
hófdýr, 11 hjara, 13 veit,
14 nær í, 15 kyrtil, 17
haka, 20 burt, 22 maskar,
23 heysætum, 24 dýrið, 25
stjórnar.
Lóðrétt | 1 mjög gott, 2
eykst, 3 grassvörður, 4
skemmtun, 5 sjúga, 6 yf-
irbygging á skipi, 10 nún-
ingshljóð, 12 nóa, 13
knæpa, 15 samtala, 16
munntóbak, 18 sett, 19
sár, 20 Ísland, 21 hæðir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 himbrimar, 8 spurð, 9 lygna, 10 una, 11 Agnar,
13 nenna, 15 flóðs, 18 hnoss, 21 Týr, 22 flana, 23 örmum, 24
skapanorn.
Lóðrétt | 2 Iðunn, 3 býður, 4 illan, 5 angan, 6 espa, 7 hata,
12 arð, 14 enn, 15 fífl, 16 ómark, 17 stamp, 18 hrönn, 19
ormur, 20 sumt.
60 ÁRA afmæli. Í dag, 2. mars, ersextugur Þorsteinn Ólafsson,
viðskiptafræðingur og fyrrverandi
forstjóri Norræna verkefnaútflutn-
ingssjóðsins (NOPEF), Vatnsholti 10,
Reykjavík. Þorsteinn er að heiman í
dag.
1. c4 c6 2. e4 d5 3. cxd5 cxd5 4. exd5 Rf6
5. Da4+ Rbd7 6. Rc3 g6 7. Rf3 Bg7 8.
Bc4 0–0 9. d3 a6 10. Da3 b6 11. 0–0 Bb7
12. He1 He8 13. Rg5 b5 14. Bb3 Rb6 15.
d6 e6 16. Rge4 Rbd7 17. Rxf6+ Rxf6 18.
Db4 Bc6 19. Bg5 h6 20. Bh4 g5 21. Bg3
Db6 22. Re4 Rh5 23. Hac1 Rxg3 24.
Rxg3 Hed8 25. h4 Be8 26. hxg5 hxg5 27.
Dg4 Hxd6 28. Dxg5 Dd8 29. Dg4 Kf8 30.
Rh5 Bxb2 31. Hc5 Db6 32. Hg5 Dd4 33.
Rf4 e5 34. Hg8+ Ke7
Staðan kom upp á sterku skákmóti
sem lauk fyrir nokkru í Bermúda. Pent-
ula Harikrishna (2.632) hafði hvítt gegn
Lenier Dominguez (2.661). 35. Bxf7!
Bxf7 svartur hefði orðið mát eftir 35. …
Kxf7 36. Dg7#. 36. Hxa8 Hf6 37. He4
Db6 38. Dg7 Kd7 39. Ha7+! Hvíta stað-
an er nú léttunnin enda svarti kóng-
urinn kominn á hrakhóla og biskupapar
svarts nýtur sín ekki. 39. … Dxa7 40.
Dxf6 Kc8 41. Re6 Dd7 42. Rc5 Dd5 43.
Dxa6+ Kd8 44. Dxb5 Bd4 45. Db8+
Ke7 46. Dc7+ og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Í FRÉTT blaðsins um fyrirtækið
TM Software sl. sunnudag sagði að
fyrirtækið hefði hafið innleiðingu á
Theriak-hugbúnaði. Hið rétta er að 6
sjúkrastofnanir í Þýskalandi hafa
hafið innleiðingu á hugbúnaðinum.
Um er að ræða sérhæfða hugbún-
aðarlausn fyrir heilbrigðissvið. Beð-
ist er velvirðingar á þessu.
Sex stofnanir
nota búnaðinn
LEIÐRÉTT