Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Hella | Kynntar hafa verið tillögur að breytingu á Suðurlandsvegi í gegn um Hellu á Rangárvöllum. Vegurinn verður færður aðeins til og sett á hann hringtorg hvort við sinn enda þorpsins. Skipulagsmál líðandi stundar var yfirskrift kynningarfundar um skipulagsmál sem Rangárþing ytra efndi til á Hellu um helgina. Þar var meðal annars kynnt tillaga að deili- skipulagi miðbæjar Hellu sem felur í sér breytingu á legu Suðurlands- vegar. Of hraður akstur Að sögn Ólafs E. Júlíussonar, skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings ytra, er allt of hröð um- ferð í gegn um Hellu og tilheyrandi slysahætta. Hann segir að Vegagerð- in telji öruggast að ná hraðanum nið- ur með því að setja upp hringtorg. Flest slysin hafa orðið á fyrstu gatnamótunum á Hellu, sem komið er að þegar ekið er austur yfir brúna á Ytri-Rangá. Gert er ráð fyrir að þau færist heldur fjær ánni og aðeins suður fyrir núverandi veg. Þar komi hringtorg. Vegurinn á síðan að liggja samsíða núverandi þjóðvegi í gegn um þorpið og að öðru hringtorgi við iðnaðarhverfið í austurhluta þorps- ins. Eigendur þjónustufyrirtækja hafa áhyggjur af verri tengingu við þjóð- veginn, meðal annars vegna færslu gatnamótanna fjær brúnni. Ólafur byggingarfulltrúi segir að Vegagerð- in telji nauðsynlegt vegna öryggis vegfarenda að færa gatnamótin fjær brúnni, einungis þannig hafi öku- menn tíma til að hægja á sér áður en í hringtorgið er komið. Nýtt hesthúsa- og íbúðarhverfi Á kynningarfundinum kom fram sú tillaga að hringtorgið yrði fært vestur fyrir brúna, á gatnamót Þykkvabæjarvegar og að gatnamót Árbæjarvegar yrðu einnig tengd því hringtorgi. Ólafur segir að þessi hug- mynd sé allrar athygli verð og geti vel komið til greina í framtíðinni. Hann segir þó að haldið verði áfram með skipulagsferlið. Tillagan verði kynnt eins og hún er núna og óskað eftir athugasemdum. Segir Ólafur að nú liggi fyrir fjárveiting sem hann áætlar að muni duga til að gera annað hringtorgið og telur hann skynsamlegt að byrja á eystra torg- inu. Það myndi drepa niður hraða umferðarinnar að austan, áður en bílarnir koma inn í þorpið, enda telur Ólafur að hraðinn á bílunum að aust- an sé meiri en að vestan. Telur hann unnt að ráðast í bráðabirgðaaðgerð- ir, svo sem blikkandi ljós eða hraða- hindrun til að nota þar til vestara hringtorgið kemur. Á fundinum um helgina voru einn- ig kynntar hugmyndir um nýtt hest- húsahverfi á Hellu, skammt frá mótssvæði hestamanna á Gadd- staðaflötum. Þar er gert ráð fyrir húsum fyrir 1.400 til 1.500 hesta og stækkunarmöguleikum í framtíðinni. Ólafur segir að staðurinn sé afar hentugur, meðal annars vegna ná- lægðar við Aldamótaskóginn, og skemmtilegar reiðleiðir séu út frá svæðinu. Þá var kynnt deiliskipulag nýjasta íbúðarhverfisins á Hellu en það er nefnt Öldur II. Í því verða lóðir fyrir 27 íbúðir í einbýlis-, par- og rað- húsum. Ólafur segir að á næstunni verði lóðirnar auglýstar en þær verði byggingarhæfar fyrir sumarið. Tvö hringtorg á Suðurlandsveg Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Kynning Íbúar skoðuðu kort og teikningar sem lágu frammi á kynning- arfundi um skipulagsmál á Hellu. (; 0' 7 7        !  <   73 7 LANDIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ NÝ og fullkomin stóla- og kláfalyfta verður tekin í notkun í Bláfjöllum næstkomandi sunnudag. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun ræsa lyftuna laust eftir kl. 11. Stjórn skíðasvæðanna tók ákvörð- un um kaup á lyftunni sl. sumar og var strax ráðist í framkvæmdir og hefur hópur starfsmanna, erlendra sem innlendra, unnið að uppsetn- ingu lyftunnar. Lyftan er sögð vera sú fullkomnasta sem sett hefur verið upp hér á landi og biðraðir því heyra sögunni til fyrir skíða- og brettafólk á Bláfjallasvæðinu en lyftan flytur um 2.400 manns á klukkustund og tekur hver ferð um 2,5 mínútur í stað 5 mínútna nú. Í tilefni af opnun verður frítt í lyftur í Bláfjöllum á opnunardaginn, 6. mars, og fjöl- breytt dagskrá í boði, m.a verða flutt ávörp, leiktæki verða fyrir börnin við alla skíðaskála, ókeypis skíðakennsla, skíðakynning í Ár- mannsskála í Suðurgili og stórsvigs- braut fyrir almenning í Eldborg- argili á vegum skíðadeildar Fram. Ný lyfta tekin í notkun í Bláfjöllum Morgunblaðið/Golli Getur flutt 2.400 manns á klukkustund HÓPBÍLAR í Hafnarfirði hlutu nýlega hvatningarverð- laun ferðaþjónustunnar í Hafn- arfirði sem voru veitt í tíunda skipti. Tilnefnd fyrir góða frammistöðu árið 2004 voru: Fjörukráin, Horft í hamarinn, Hópbílar, Leikfélag Hafnar- fjarðar og Sveinshús í Krýsu- vík. Með verðlaununum vill nefndin hvetja ferðaþjónustu- fyrirtæki til dáða og vekja at- hygli á ferðaþjónustu í Hafnar- firði. Hlutu hvatn- ingarverðlaun Undir málflutning borgarstjóra tók Björk Vilhelmsdóttir, borgar- fulltrúi Vinstri-grænna í R-listan- um, og þakkaði Steinunni Valdísi kærlega fyrir að vinna vinnuna sína í samræmi við samþykkt borgarráðs. Hrædd við atkvæðagreiðslu „Ef borgarstjóri sagði að hún hefði haft fullt umboð til þessara verka þá hlýtur að vera hægt að greiða atkvæði um þetta hér í borgarstjórninni,“ sagði Guðlaug- ur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Síðar í um- ræðunum bætti hann við: „Hér þora menn ekki að greiða atkvæði um þessa tillögu. Það liggur alveg hreint og klárt fyrir.“ Hanna Birna Kristjánsdóttir, einnig borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, sagði að borgarfulltrúar og borgarbúar hlytu að krefja borgarfulltrúa Vinstri-grænna svara um það af hverju allt þetta upphlaup hefði verið innan þeirra herbúða. „Hvað hafa Vinstri-græn- ir verið að gagnrýna? Ég veit ekki betur en að stjórn Vinstri-grænna [í Reykjavík] hafi sagt að þeir leggist eindregið gegn fyrirhug- aðri sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun,“ sagði hún og að síðan stæði Björk Vilhelmsdóttir upp og þakkaði borgarstjóra kær- lega fyrir að hafa borið málið svona fram. BORGARFULLTRÚAR Sjálf- stæðisflokksins sögðu á borgar- stjórnarfundi í gær að Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, treysti ekki borgarstjórn til að taka afstöðu til viljayfirlýsingar, sem hún undirritaði, um sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Sjálfstæðismenn lögðu til að viljayfirlýsingin yrði borin undir atkvæði í borgarstjórn svo að formleg afstaða borgarfulltrúa væri ljós. Málið hefði ekki komið til afgreiðslu í borgarstjórn eftir að hafa átt sér langan aðdraganda. Þetta væri stórt og mikilvægt mál sem varðaði hagsmuni borgarbúa. Var tillagan tekin til meðferðar en vísað frá að tillögu borgarfulltrúa R-listans. Ótvírætt umboð Steinunn Valdís sagði að umboð sitt til að undirrita viljayfirlýs- inguna hefði legið klárt fyrir og verið samþykkt á fundi borgar- ráðs. Það þyrfti því ekki sérstakt umboð borgarstjórnar. „Það væri í hæsta máta hlægileg vinnubrögð ef það ætti að fara að bera hér upp í hvert skipti sér- staka tillögu um það að borgar- stjóri nyti trausts í störfum sínum. Ef borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins eru þeirrar skoðunar að borgarstjóri hafi ekki haft þetta umboð þá flytja þeir að sjálfsögðu hér vantrauststillögu á borgar- stjóra,“ sagði Steinunn Valdís. Hanna Birna minnti á að í yf- irlýsingu borgarstjóra hefði komið fram að það væri ekki á verksviði borgarinnar að hafa áhyggjur af því hvað eigendur Landsvirkjunar gerðu við fyrirtækið eftir að Reykjavíkurborg losaði um eign- arhlut sinn. Standa með borgarstjóra Björk sagði að sterk viðbrögð Vinstri-grænna hefðu aðallega komið fram í kjölfar yfirlýsingar iðnaðarráðherra um hugsanlega sölu Landsvirkjunar, sem væri grunnþjónusta og ætti að vera í opinberri eigu. Einhverjir hefðu sagt að stoppa ætti ferlið en borg- arfulltrúar R-listans stæðu með þeirri samþykkt sem gerð var í borgarráði og veitti borgarstjóra umboð til undirritunar. Steinunn Valdís sagði að efn- isleg afstaða sjálfstæðismanna hefði ekki komið fram í þessum umræðum. Þeir skiluðu auðu og hefðu ekkert til málanna að leggja. Það ætti að gera þá kröfu til borg- arfulltrúa að þeir ræddu málið á efnislegum forsendum. Ólafur F. Magnússon, borgar- fulltrúi F-listans, ítrekaði að sinn flokkur hefði aldrei samþykkt ábyrgðir Reykjavíkurborgar vegna Kárahnjúkavirkjunar ólíkt borgar- fulltrúum Vinstri-grænna. For- senda fyrir sölu á hlut borgarinnar væri að losa hana undan þessum ábyrgðum. Sögðu borgarstjóra ekki treysta borgarstjórn Ræddu sölu Landsvirkjunar á fundi borgarstjórnar í gær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.