Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 9
FRÉTTIR
SENDINEFND á vegum íslenskra
stuðningsmanna skákmeistarans
Bobbys Fischers fór til Japans í
gær, að ósk Fischers og stuðnings-
manna hans þar. Erindi nefndar-
innar er m.a. að leita fundar með
japönskum ráðuneytum dómsmála
og utanríkismála síðar í vikunni, að
því er segir í fréttatilkynningu.
Verði skákmeistarinn enn í haldi í
byrjun næstu viku hefur nefndin
verið beðin um að koma fram á al-
þjóðlegum fréttamannafundi í Tók-
ýó næstkomandi mánudag og gera
þar meðal annars grein fyrir mik-
ilvægum upplýsingum sem ekki
hafa áður birst opinberlega.
Einn nefndarmanna, Sæmundur
Pálsson, er þegar kominn til Jap-
ans. Í gær fóru þeir Garðar Sverr-
isson, fyrrverandi formaður Ör-
yrkjabandalags Íslands, og tveir
fyrrverandi forsetar Skáksam-
bands Íslands, þeir Guðmundur G.
Þórarinsson, verkfræðingur, og
Einar S. Einarsson, fyrrverandi
forstjóri VISA. Sendinefndin flaug
til Kaupmannahafnar í gær og gisti
þar í nótt. Í dag verður förinni hald-
ið áfram til Tókýó en flugið þangað
tekur meira en hálfan sólarhring.
Ferð nefndarinnar og allur
kostnaður er greiddur af fjölmörg-
um íslenskum aðilum sem sýnt hafa
málstað Fischers velvilja.
Málið vekur mikla athygli
Að sögn Guðmundar G. Þórarins-
sonar er mikill áhugi á máli Fisch-
ers erlendis. Í gærmorgun hringdi
t.d. BBC til að afla frétta af málinu.
Verði af blaðamannafundi með
nefndarmönnum í Japan um mál
Fischers sé ljóst að alþjóðlegar
sjónvarpsstöðvar á borð við CNN
og BBC, auk annarra fjölmiðla,
muni mæta þar. Guðmundur segir
það talið sýna alvöru málsins að frá
Íslandi komi tvær sendinefndir í
kjölfar frumkvæðis Davíðs Odds-
sonar, sem vakið hafi heimsathygli.
„Allt málið er þannig vaxið, telja
lögfræðingar Fischers, að bæði
stjórnvöldum í Japan og Bandaríkj-
unum muni ekki þykja mjög þægi-
legt að mikil athygli sé vakin á því.“
Guðmundur taldi ekki að för
sendinefndarinnar til Japans dræg-
ist á langinn. John Bosnitch, stuðn-
ingsmaður Fischers í Japan, hefði
sagt að þeir byndu miklar vonir við
að Fischer yrði leystur úr haldi fyr-
ir 9. mars, sem er afmælisdagur
hans.
Einskonar Jón Hreggviðsson
Garðar Sverrisson sagðist vona
að ekki þyrfti að halda blaðamanna-
fund um mál Fischers í Japan næst-
komandi mánudag. Þeir byndu von-
ir við að Fischer yrði sleppt úr haldi
fyrir þann tíma. En ef til blaða-
mannafundar kæmi mundu stuðn-
ingsmenn Fischers tala hreint út og
opinbera upplýsingar sem hefðu
hingað til legið í þagnargildi. Garð-
ar vildi ekki tilgreina hverjar þær
upplýsingar væru. „Við gerum ráð
fyrir að Fischer verði kominn með
íslenskt vegabréf í hendur, þegar
við komum til Japans.“
Garðar hefur verið í sambandi við
Fischer símleiðis og sagði að hann
bæri sig vel eftir aðstæðum – væri
eins konar Jón Hreggviðsson. „Það
er baráttuhugur í honum. Hann er
auðvitað orðinn gríðarlega þreyttur
eftir þessa ómannúðlegu og órétt-
mætu meðferð, sem við lítum á sem
brot á mannréttindum. Hann er í
reynd, þrátt fyrir öll formsatriði,
ekkert annað en fórnarlamb og
fangi skoðana sem ekki teljast vera
pólitískt réttar hér og nú.“
Einar S. Einarsson sagði að í dag
yrði haldinn blaðamannafundur í
Tókýó með Sæmundi Pálssyni og
John Bosnitch. Sá fundur ætti að
verða á ljúfum nótum í tilefni af
endurfundum gamalla vina sem
væru að hittast eftir 33 ára aðskiln-
að. Einar sagðist binda vonir við að
Sæmundur fengi, hugsanlega í
fylgd einhvers úr sendiráðinu, að
færa Fischer vegabréfið í fangelsið.
Einar minnti á að þótt Fischer
fengi vegabréfið væri hann ekki þar
með sjálfkrafa laus úr prísundinni.
Japönsk stjórnvöld þyrftu að
sleppa honum úr haldi. „Vonandi
vinnum við skákina í ferðinni,“
sagði Einar S. Einarsson.
Sendinefnd stuðningsmanna
Fischers farin til Japans
Morgunblaðið/Jim Smart
Einar S. Einarsson, Guðmundur G. Þórarinsson og Garðar Sverrisson
eru farnir til Japans að vinna að lausn Bobbys Fischers skákmeistara.
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Flottir frakkar og úlpur
Nýjar dragtir
og stuttkápur
ÞAÐ TÓKST! John Milton Fogg á Íslandi
Okkur tókst að fá þig til að snúa blaðinu við!
Okkur tókst líka að fá John Milton Fogg, einn
fremsta sérfræðing heimsins á sviði netvensla-
viðskipta (network marketing), til að koma og
halda hnitmiðaða ráðstefnu til að lýsa starfs-
umhverfi, fjölþættum möguleikum, gefa góð
ráð og innsýn í hvað framundan er á þessu sviði
- sem margir telja að sé með framsæknustu
viðskiptaleiðum sem í boði eru í heiminum í dag.
Þetta er tækifæri sem þú mátt ekki missa af!
Og verðið ætti ekki fæla þig frá, því það kostar
aðeins kr. 5.000 inn á þessa ráðstefnu.
Skráðu þig strax!
Slóðin er: http://radstefna.questnet.is
Ráðstefnan með John Milton Fogg er á
Grand Hótel Reykjavík núna á laugardaginn
5. mars kl. 13.00.
Frekari upplýsingar, ef svo ber undir, eru veittar
í síma 898 0125 eða e-mail gislirr@simnet.is
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð
á síðustu sætunum til Prag
þann 15. mars. Nú getur þú
kynnst þessari fegurstu borg
Evrópu á einstökum kjörum.
Þú getur valið um úrval góðra
hótela í hjarta Prag og að
sjálfsögðu nýtur þú traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða
í Prag allan tímann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 19.990
Flugsæti með sköttum til Prag,
2 fyrir 1 tilboð, út 15. mars,
heim 18. mars. Netbókun.
Verð kr. 9.990
Flugsæti aðra leið með sköttum
Út 15. mars, heim 18. mars.
Netbókun.
Gisting frá kr. 3.700
Verð á mann í tvíbýli á Hotel ILF, pr.
nótt með morgunmat. Netbókun.
Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.-
Fegursta borg Evrópu
Prag
15. mars
frá kr. 9.990
Hittir Bobby Fischer í dag
SÆMUNDUR Pálsson, vinur og stuðnings-
maður skákmeistarans Bobbys Fischer, ætlar að
fara í íslenska sendiráðið í Tókýó í dag og einn-
ig að heimsækja Bobby Fischer. Sæmundur kom
til Japans í gærmorgun ásamt ferðafélögum sín-
um, þeim Friðrik Guðmundssyni og Kristni
Hrafnssyni. Ferðalagið frá Reykjavík til Tókýó
tók þá tæpa tvo sólarhringa. Miyoko Watai, unn-
usta Fischers og forseti japanska skák-
sambandsins, tók á móti þeim félögum í Tókýó.
Sæmundur lét vel af sér þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gærmorgun, en þá var komið
kvöld að japönskum tíma. Sæmundur sagðist
stefna að því að byrja daginn í dag á því að fara í
íslenska sendiráðið. Eftir það ætlaði hann í inn-
flytjendabúðirnar þar sem Fischer er í haldi.
Hann bjóst við að fá að sjá Fischer í gegnum
gler, líkt og unnusta Fischers hefur orðið að láta
sér nægja.
„Hún hefur aldrei fengið að hitta hann öðru-
vísi í sjö og hálfan mánuð,“ sagði Sæmundur.
„Hún hefur aldrei fengið að snerta hendur hans
eða neitt. Þetta er strangara en mörg fangelsi
hjá okkur.“
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
FRÉTTIR
mbl.is
Sæmundur
Pálsson