Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 15 ERLENT Nýbýlavegi 14, Kópavogi. Sími 554 4443. rafport@rafport.is www.rafport.isAu gl . Þó rh ild ar 13 90 .4 2 Fljótvirkasti miðaprentarinn QL-550 • Miðar á bréf, pakka o.fl. • Prentar miða úr Office • Prentar merkiborða • Allt að 62mm breidd • 50 miðar á mínútu • USB tenging • Windows hugbúnaður • Sjálfvirk klipping • Heilar lengjur eða staðlaðar • Ámiða úr plasti fyrir CD/DVD STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum eru að kanna hvernig þau geta stutt tilraunir Evrópuríkjanna til að fá Írani til að hætta við hugs- anlegar áætlanir um að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Scott McClellan, talsmaður Hvíta hússins, sagði í fyrrakvöld, að George W. Bush forseti væri nú að skoða ýmsar tillögur, sem hann hefði haft með sér heim úr Evrópuferðinni. Eru fréttaskýr- endur sammála um, að taki Bandaríkjastjórn upp beinan stuðning við Evrópuríkin í þessu máli, jafngildi það meiriháttar stefnubreytingu. Ekki hefur verið gefið upp í hverju tillögurnar eru fólgnar en McClellan sagði þó, að hugsanleg aðild Írans að Heimsviðskipta- stofnuninni, WTO, væri ein þeirra. Washington Post sagði einnig frá því á mánudag, að hugsanlega yrði Írönum boðnir varahlutir og að- stoð við að endurnýja flugvélaflot- ann, farþegavélar, sem flestar eru orðnar gamlar og beinlínis hættu- legar. Rice ræðir við Evrópumenn McClellan lagði áherslu á, að enn hefðu engar ákvarðanir verið teknar og sagði, að líklega myndi Condoleezza Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, eiga viðræð- ur um þessi mál við evrópska koll- ega sína í London en þar sat hún í gær ráðstefnuna um Mið-Austur- lönd. Hún lýsti sig fylgjandi frum- kvæði Evrópuríkjanna, sagði að enn væri hægt að leysa málin með diplómatískum aðferðum. Adam Ereli, talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, opn- aði einnig fyrir möguleika á, að teknar yrðu upp beinar viðræður milli Írans og Bandaríkjanna en ríkin hafa engin samskipti haft frá því í gíslatökunni í Teheran árið 1979. Samskiptin við Íran sett í annan farveg? Washington. AFP. DAGBLÖÐ í flestum ríkjum Mið-Austurlanda túlkuðu í gær afsögn líbönsku stjórnarinnar sem sigur fólksins og lexíu fyrir ríkisstjórnir í öðrum löndum á þessum slóðum. Fjölmiðlar í Ísrael gerðu mikið úr afsögn rík- isstjórnar Omars Karamis, forsætisráðherra Líbanons, og sögðu hana sigur fyrir lýðræðið og sýna, að Sýrlandsstjórn væri að missa þau tök, sem hún hefði haft á nágrannaríkinu. Í Jórdaníu sagði óháða dagblaðið Al Arab Al Yawn, að um væri að ræða lexíu, sem rík- isstjórnir í arabalöndum ættu að draga réttan lærdóm af. Í Líbanon fögnuðu langflestir fjölmiðlar af- sögninni sem sigri fyrir fólkið en létu um leið í ljós nokkurn ótta við framvinduna á næstunni. Í Sýrlandi ríkti aftur á móti þögnin ein að því undanteknu, að sagt var, að afsögn líbönsku ríkisstjórnarinnar, sem var höll undir Sýrlend- inga, væri aðeins „líbanskt innanríkismál“. „Í fyrsta sinn í sögunni hefur samtakamáttur almennings hrakið frá völdum ríkisstjórn í arabaríki,“ sagði ísraelska dagblaðið Yediot Ah- aronot og í leiðara blaðsins sagði, að atburð- irnir í Líbanon væru vissulega fagnaðarefni fyrir Ísraela en þar fyrir utan gætu þeir orðið vísir að raunverulegri lýðræðisþróun í Mið- Austurlöndum. Ísraelska blaðið Haaretz sagði, að yfirráð Sýrlendinga í Líbanon væru að fjara út. „Vilji fólksins hefur unnið áfangasigur og nú ríður á, að það haldi sínum friðsamlegu mót- mælum áfram. Framhaldið mun ráðast af póli- tískum þroska þjóðarinnar,“ sagði Jordan Tim- es, blað, sem er gefið út á ensku í Jórdaníu, en það varaði einnig við afskiptum vestrænna ríkja, einkum Bandaríkjanna, af líbönskum málefnum. „Allur þessi heimshluti stendur á öndinni. Eins og Írak er til vitnis um, er ekki hægt troða lýðræði upp á einn eða neinn.“ Umskiptunum fagnað Afsögn líbönsku stjórn- arinnar kölluð sigur fólksins og lexía fyrir aðra ráðamenn Beirut. AFP. AP Líbanskir stjórnarandstæðingar lesa fréttir blaðanna um afsögn stjórnarinnar. Víðast hvar í Mið- Austurlöndum var henni fagnað sem hugsanlegum vísi að lýðræðisþróun í þeim heimshluta. MYNDBANDI af frönsku blaðakon- unni Florence Aubenas, sem hvarf í Írak í byrjun janúar, var komið til al- þjóðlegra fréttastofa í Bagdad í gær. Á myndbandinu biður Aubenas um hjálp og segist ekki vera heilsu- hraust. Aubenas er 43 ára og starfar við dagblaðið Liberation. Hún og íraskur túlkur hennar hurfu 5. janúar í Bagd- ad og hefur ekkert spurst til þeirra síðan fyrr en myndbandið fannst í gærmorgun. Ekki er ljóst hvenær myndin var tekin upp. Á myndbandinu sést Aubenas ein. Hún er afar þreytuleg og tekin, segir heilsu sína lélega og að hún líði einn- ig sálrænar kvalir. Hún biður um hjálp og beinir orð- um sínum sérstaklega til franska þingmannsins Didier Julia en hann reyndi án árangurs í fyrra að fá tvo franska blaðamenn leysta úr haldi í Írak. „Þetta er áríðandi. Þú verður að hjálpa mér. Þetta er áríðandi herra Julia. Hjálpaðu mér!“ segir Aubenas m.a. Aubenas hefur mikla reynslu af fréttamennsku á viðsjárverðum svæðum. Hún hefur áður skrifað fréttir fyrir Liberation frá Kosovo, Alsír, Rúanda og Afganistan. Gísl í Írak biður um hjálp Reuters Florence Aubenas á myndbandinu. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.