Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 28
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, LILJU HALLDÓRSDÓTTUR, Hlíf 1, Ísafirði. Anna Gunnlaugsdóttir, Hákon Guðmundsson, Ingigerður Traustadóttir, Katrín Guðmundsdóttir, Kristján Ragnarsson og fjölskyldur þeirra. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, HERDÍSAR JÓNU GUÐNADÓTTUR. Guðni Erlendsson, Steinunn Skúladóttir, barnabörn og langömmubörn. 28 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Katrín Krist-jánsdóttir fædd- ist í Eyvík á Tjör- nesi 16. janúar 1907. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri sunnudaginn 20. febrúar síðastliðinn. Foreldrar Katrínar voru hjónin Kristján Sigfússon bóndi, f. 20. september 1865, d. 26. febrúar 1921 og Jakobína Jósías- dóttir, f. 11. október 1868, d. 10. desem- ber 1948. Systkini hennar voru Karl, lengi alþingismaður, f. 10. maí 1895, d. 1978, Rannveig, f. 1900, d. 2000 og Sigfús, f. 1902, d. 1936. Katrín giftist 24. október 1935 Erlingi Davíðssyni frá Stóru-Hámundarstöðum á Ár- skógsströnd, f. 11. apríl 1912, d. 17. júlí 1990. Foreldrar hans voru Davíð Sigurðsson bóndi og hreppstjóri, f. 26. okt. 1872, d. 1951 og kona hans María Jóns- dóttir, f. 3. maí 1872, d. 1950. Katrín og Erlingur eignuðust fjóra syni, þeir eru: 1) Davíð, f. 23. ágúst 1936. 2) Jak- ob Kristján, f. 10. september 1939; maki Valgerður Jónsdóttir, f. í Dals- húsum á Egilsstöð- um 29. júní 1941 (þau slitu samvist- ir). Börn þeirra eru Erlingur, f. 7. maí 1962, Katrín, f. 17. mars 1966 og Jón Ríkhard, f. 4. júní 1967. 3) Sigfús Karl (tvíburi Kristjáns), f. 10. september 1939, maki Soili Hellman-Erlingsson, f. í Helsinki í Finnlandi 19. mars 1945. Dætur þeirra eru Jana Kristín, f. 2. nóvember 1967, og Andrea Kristín, f. 26. ágúst 1974. 4) Bergur, f. 21. júlí 1943, maki Gunnhildur Gunnarsdóttir, f. á Akureyri 4. febrúar 1945. Dóttir þeirra er Hildur, f. 5. ágúst 1978. Barnabarnabörnin eru nú tíu. Katrín verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Sem barn naut ég þeirrar bless- unar að búa nálægt ömmu minni og afa og trítlaði ég því ófáar ferð- irnar í Lögbergsgötuna til þeirra. Þar var ég alltaf aufúsugestur og á þaðan ótal ljúfar minningar. Þótt afi minn væri í augum lítillar hnátu sennilega stórfenglegasti og voldugasti maður veraldar fór þó ekki milli mála að eldhúsið var ríki ömmu og þar réð hún lögum og lofum. Ósjaldan hreiðraði ég um mig í horninu í borðkróknum um- vafin kleinuilm og lét móðan mása um heima og geima. Alltaf hafði amma nægan tíma til að hlusta á vangaveltur lítillar tátu. Ekki spillti fyrir að það var á vísan að róa að fá eitthvað góðgæti og mjólkurglas hjá ömmu. Amma Katrín átti líka matjurtagarð sem var í mínum augum risavaxinn og feikimerkilegur. Uppskerutími rabbabarans var mikið tilhlökkun- arefni en þá brettum við amma upp ermarnar og slitum upp af miklum móð. Amma var svo óspör á þakkirnar að ég þóttist þess full- viss að ég hefði unnið þrekvirki og velti jafnvel fyrir mér að gera rabbabaratínslu að ævistarfi mínu þar sem ég væri sérdeilis hæfi- leikarík á þessu sviði. Er ég eltist lærðist mér að hæfileikarnir lágu hjá ömmu og afa sem lögðu sig fram við að leyfa mér að upplifa heiminn á eigin forsendum og deila með mér gleðinni yfir þeim töfrum sem því fylgdu. Ég kveð þig nú, kæra amma Katrín, með hlýhug og þakklæti. Hvíl í friði. Hildur. Elsku amma. Þegar farið er að rifja upp kem- ur í ljós að síðustu 10–15 árin dvaldir þú á heimili fyrir aldraða. Alltaf varstu líkamlega mjög vel á þig komin og hljópst upp og niður stiga eins og unglamb. Hins vegar bilaði heyrnin og svo minnið og því má segja að þú hafir verið fangi í eigin hrausta líkama. Loksins færðu nú hvíldina sem þú beiðst svo lengi eftir. Þú varst alla tíð sívinnandi við að halda gott heimili og við minn- umst öll með hlýju áranna í Lög- bergsgötunni þar sem þið afi bjugguð alla okkar barnæsku. Eins og flestra kvenna af þinni kynslóð var eldhúsið að miklu leyti þinn vinnustaður. Mikill gesta- gangur var hjá ykkur afa og því var oftast nóg að gera hjá þér. Það var alltaf gaman að koma til ykkar í heimsókn og spjalla um daginn og veginn og þiggja eitt- hvað gott heimabakað s.s. kleinur, kanelsnúða, ömmubollur eða vín- arbrauð. Að sitja á tröppunni í horninu eða á sokkabekknum, við vegginn, undir klukkunni og hlusta á ykkur ræða við gesti, eða skrafa við þig og afa var okkur öllum góð reynsla. Þú varst falleg kona, lágvaxin, með hár niður á mjóbak, sem allt- af var nýtt í hnút á hnakkanum. Þú varst ekki alltaf að faðma okk- ur og kjassa því slíkt tíðkaðist ekki innan fjölskyldunnar, en þú tókst okkur alltaf vel og varst góð við okkur. Við minnumst þín sér- staklega í sambandi við allar sam- komur innan fjölskyldunnar á há- tíðis- og tyllidögum. Einnig voru þær ófáar ferðirnar sem við fórum með nesti til að tína ber eða til að njóta útivistar. Hin síðari ár heimsóttum við þig á stofnun og þú varst alltaf glöð og ánægð með heimsóknirnar og eftir að við, ömmubörnin þín, eignuðumst börn og þú varðst langamma fannst þér alltaf jafn- sniðugt að segja: „Ég get ekki verið orðin langamma því ég er svo stutt.“ Við kveðjum þig með þökk fyrir samverustundirnar og vonum að þín bíði góðar stundir annars staðar. Erlingur, Katrín og Jón Ríkharð. Lipur og létt á sér, með silf- urhvítt hár í langri fléttu vafið í hnút í hnakkanum, gleraugun fremst á nefinu og prjónana á flugi, svona minnumst við ömmu. Lopapeysur, fallega mynstraðar, vettlingar og leistar, ótal flíkur sem ylja okkur enn, urðu til í höndunum á henni. Í eldhúsinu, niðri í þvottahúsi, úti í garði, á leið til kaupmannsins með tösku á hjólum, eða í stólnum sínum í stof- unni með prjónana á lofti, amma hafði alltaf eitthvað fyrir stafni. Það var notalegt að heimsækja ömmu og afa á Lögbergsgötunni, sofa á bekknum í vinnuherberginu hans afa innan um bækurnar hans, vakna við stofuklukkuna, sitja á tröppunni í eldhúsinu við hliðina á frystikistunni, borða ömmu-kleinur (bestu kleinurnar), fylgjast með ömmu laga matinn og hlusta á frásagnir hennar um pabba og bræður hans þegar þeir voru litlir. Í garðinum voru tínd ber og rabarbari sem amma bjó til sæta sultu úr. Amma las fyrir okkur krakkana um ræningjana í Kardemommubænum, og þegar KATRÍN KRISTJÁNSDÓTTIR Fjarðarás 25, 110 Reykjavík • utfarir@utfarir.is Sími 567 9110 • 893 8638 • Fax 567 2754 • www.utfarir.is Útfararþjónustan Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Útför bróður okkar, INGÓLFS HALLDÓRSSONAR frá Syðri-Steinsmýri í Meðallandi, er lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum fimmtudaginn 24. febrúar, verður gerð frá Prestbakkakirkju á Síðu, föstudaginn 4. mars kl. 14.00. Sætaferðir verða frá BSÍ sama dag kl. 10 árdegis. Fyrir hönd ættingja og vina, Systkini hins látna. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR BJÖRN SVEINSSON, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju fimmtu- daginn 3. mars kl. 13. Ólöf Ólafsdóttir, Guðlaug Björnsdóttir, Þór Magnússon, Guðjón Björnsson, Friðrika Sigvaldadóttir og barnabörn. Ástkær faðir okkar, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÁRNI ÓLAFSSON THORLACIUS, sem lést föstudaginn 18. febrúar, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstu- daginn 4. mars kl. 15. Sigríður Thorlacius, Guðmundur Thorlacius, Anný Dóra Hálfdánardóttir, Dagný G. Thorlacius, Ragnhildur Ragnarsdóttir, Jón Yngvi Gylfason, Guðríður Thorlacius, Hannes Árnason, Guðmundur Árni Hannesson. Okkar elskulega, SOFFÍA ÞURÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR frá Túngarði á Fellsströnd, Drápuhlíð 41, Reykjavík sem lést á líknardeild Landspítala Landakoti aðfaranótt mánudagsins 28. febrúar, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. mars kl. 15.00. Fyrir hönd ættingja og vina, Guðfinna Ragnarsdóttir. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblað- ið í fliparöndinni – þá birtist valkost- urinn „Senda inn minningar/af- mæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Undirskrift Minningargreinahöf- undar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.