Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
GRÉTAR Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir ljóst
að kostnaður ríkisins við samning BHM sé
nokkru meiri en samið hafi verið um á almenn-
um vinnumarkaði. Hann segir að ASÍ eigi eftir
að fara yfir samninginn og kveðst ekki vilja
bregðast við honum að öðru leyti að sinni.
ASÍ og Samtök atvinnulífsins munu meta for-
sendur kjarasamninga, sem gerðir voru á síð-
asta ári, í haust. Verður þá bæði horft til verð-
bólgu og launaþróunar í landinu.
Grétar sagði að viðbrögð ASÍ í haust réðust
ekki síður af verðbólguþróun. „Verðlagsþróun
er komin í allt annan farveg en menn sáu fyrir
þegar samningarnar voru gerðir. Við erum
núna í 4,5% verðbólgu og ætli láti ekki nærri að
verðbólga þyrfti að vera í kringum núll til að
þetta náist inn fyrir þau mörk sem var miðað við
í kjarasamningum.“
Viss ávinningur fyrir ríkið
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði
ljóst að 20% kostnaðarhækkun á þremur og
hálfu ári væri við mörk þess sem lagt hefði verið
til grundvallar þegar kjarasamningar voru
gerðir á almennum markaði á síðasta ári.
Hins vegar yrði að horfa til þess að með þess-
um samningi hefði náðst fram viss ávinningur
fyrir ríkið. Það hefði verið nauðsynlegt að koma
gerð stofnanasamninga hjá ríkinu í skilvirkari
farveg. Eins væri jákvætt að ná fram sam-
ræmdri launatöflu fyrir félögin. Þetta ætti að
auðvelda samningsaðilum að ná fram markmið-
um í jafnréttismálum.
Kostnaður vegna BHM
meiri en ASÍ samdi um
Lágmarkslaun meinatækna/6
„VIÐ höfum tapað einni orrustu
en það þýðir ekki að við höfum
tapað stríðinu,“ sagði Ragnar
Stefánsson, íbúi í Svarfaðardal,
að loknum fundi bæjarstjórnar
Dalvíkurbyggðar síðdegis í gær,
en á fundinum var samþykkt með
fimm atkvæðum gegn fjórum til-
laga þess efnis að allir skólar í
Dalvíkurbyggð verði sameinaðir í
tvo kennslustaði, á Dalvík og í Ár-
skógsskóla, þannig að frá og með
næsta hausti verður Húsabakka-
skóli í Svarfaðardal lagður niður.
Íbúar í Svarfaðardal mótmæltu
kröftuglega, óku á dráttarvélum,
með aftanívagna og mykjudreif-
ara þar sem komið hafði verið
fyrir slagorðum, horn voru þeytt
af kappi og við safnaðarheimili
Dalvíkurbyggðar, þar sem bæj-
arstjórnarfundurinn fór fram, var
sungið og menn hrópuðu í kór:
„Lifi Húsabakkaskóli“ þegar bæj-
arfulltrúar gengu til fundar.
Ragnar Stefánsson, sem hafði
orð fyrir Svarfdælingum, sagði
nær að efla skólastarf í Dalvík-
urbyggð, gott skólastarf í Húsa-
bakkaskóla væri lífæð samfélags-
ins og hefði áhrif á allt
byggðarlagið. „Með þessum mót-
mælum reynum við að koma í veg
fyrir lokun skólans, en þar er
skólahald til mikillar fyr-
irmyndar. Við vonum að tekið
verði í útrétta sáttahönd okkar.“
Upp úr samstarfi meiri-
hlutaflokkanna í bæjarstjórn
slitnaði vegna Húsabakkamálsins
fyrr í vetur, en þeir náðu saman á
ný. Tillagan sem samþykkt var á
fundi bæjarstjórnar í gær gerir
ráð fyrir að í stað þess að reka
þrjá grunnskóla verði haustið
2006 einn nýr sameinaður grunn-
skóli í Dalvíkurbyggð. Leiðin að
því marki verður tekin í áföngum,
fyrst nú næsta haust þegar
kennsla barna í Húsabakkaskóla
verður flutt í Dalvíkurskóla og þá
verður skólastjórum í Dalvíkur-
og Árskógsskóla sagt upp störf-
um þannig að þeir ljúki störfum 1.
ágúst á næsta ári og einn skóla-
stjóri ráðinn auk tveggja aðstoð-
arskólastjóra. Leitað verður eftir
samstarfi við skólastjóra um að
þeir annist undirbúning og ráð-
gjöf við flutning barnanna og þá
munu kennarar í Húsabakkaskóla
að jafnaði eiga forgang í auglýst
störf á vegum sveitarfélagsins.
„Ég hef verið í stjórnmálum
lengi og veit að ekki er alltaf
hægt að gera öllum til geðs, en
það er skylda okkar að reyna að
ná fram sem bestri sátt í hverju
máli,“ sagði Svanhildur Árnadótt-
ir, forseti bæjarstjórnar Dalvík-
urbyggðar. „Heildarhagsmunum
sveitarfélagsins til framtíðar er
betur borgið með því að sameina
skólana,“ sagði Svanhildur, en
kvaðst vel geta sett sig í spor
þeirra íbúa Svarfaðardals sem nú
sæju á bak skólanum, um mikið
tilfinningamál væri að ræða.
„Breytingar eru alltaf kvíðvæn-
legar, en þeirra er oft þörf.“
Svarfdælingar mótmæltu flutningi skólahalds frá Húsabakka til Dalvíkur
Svanhildur Árnadóttir, forseti bæjarstjórnar, kemur til bæjarstjórnarfundar þar sem Svarfdælingar mótmæltu vegna lokunar Húsabakkaskóla.
Höfum tapað
einni orrustu
en ekki stríðinu
Morgunblaðið/Kristján
Sævar Freyr Ingason, lögreglumaður í Dalvíkurbyggð, tekur á móti
bændum úr Svarfaðardal, sem mættu til bæjarins á dráttarvélum.
OLÍUFÉLÖGIN Esso, Skeljungur og
Olís hafa síðustu daga öll hækkað elds-
neytisverð hjá sér. Atlantsolía ætlar,
að sögn
Huga Hreið-
arssonar
markaðs-
stjóra, að
meta stöð-
una í dag en
öll efni séu
þó til hækk-
unar vegna þróunar á heimsmarkaði.
Félögin þrjú hækkuðu lítrann af
bensíni um 1,5 til 3 krónur og lítrann af
dísilolíu um 3 krónur.
Esso hækkaði fyrst verð á eldsneyti
á mánudag, bensínlítrann um 1,50
krónur, lítrann af dísil- og flotaolíu um
2,50 krónur og svartolíulítrann um
eina krónu. Í gær hækkaði félagið
verðið aftur, bensín um krónu á lítra
og sömuleiðis flotaolíu og svartolíu um
krónu. Skeljungur og Olís hækkuðu
svo einnig eldsneytisverð í gær svipað
og Esso.
Eftir þessar breytingar er viðmið-
unarverð á 95 oktana bensíni almennt
101,70 krónur í sjálfsafgreiðslu og lítr-
inn af dísilolíu 49,20 krónur.
Þrjú olíufé-
lög hækk-
uðu elds-
neytisverð
MIKILL áhugi er á lóðum á Völlum í Hafn-
arfirði. 1.309 umsóknir bárust um þær 60
einbýlis- og raðhúsalóðir sem Hafn-
arfjarðarbær auglýsti fyrir skömmu laus-
ar til umsóknar en umsóknarfrestur vegna
lóðanna rann út í fyrradag.
Samkvæmt upplýsingum bæjarins verð-
ur 46 lóðum úthlutað til einstaklinga og
barst 1.151 umsókn um þær lóðir. Þá verð-
ur fimm lóðareiningum úthlutað til lög-
aðila en 158 verktakar skiluðu inn um-
sóknum.
Mikil fólksfjölgun hefur verið í Hafn-
arfirði undanfarin ár og samkvæmt upp-
lýsingum Hafnarfjarðarbæjar er reiknað
með að bæjarbúum fjölgi um 3–4 % á árinu
2005.
Mikill áhugi á
lóðum á Völlum
í Hafnarfirði
VERÐ á mjólkurkvóta hefur hækkað um
rúmlega 100 krónur lítrinn á hálfu ári. Þetta
er tæplega 40% hækkun.
Byrjað var að skrá opinberlega verð á
mjólkurkvóta 1. september sl. Þá var með-
alverðið 263 kr/ltr. Síðan hefur verðið
hækkað nær stöðugt og í gær var það komið
í 366 kr. Viðskipti það sem af er verðlags-
árinu eru tæplega 3 milljónir lítra, en það
eru um 2,7% heildarmjólkurkvótans.
Mjólkurkvóti
hækkar um 40%
á hálfu ári