Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 37 MENNING              ! " # $  ! % $ $& '  ()  !! # *   + ,!$ $&  " #  -" . /    0)    1$  " $2 3 )   +  "4   #   $ 5 $2 #$  $   "4  $ )    " 6  78   # 9 /" :; + ! < =(> 9 /"  # 5  64 #  ?"  @9 AB ?C ! " # 9 /"  % D+   ! 9 4  #E ' )    , ÞAÐ ER svolítið skondið að fara á sýningu í Banananas, en þar þarf að mæla sér mót við við listamanninn sem opnar fyrir manni inn í sýn- irýmið, sem þó er úti undir berum himni á horni Laugavegar og Bar- ónsstígs. Listamaðurinn Steingrímur Eyfjörð byrjar á því að rétta við mál- verkin á veggjunum sem höfðu fokið aðeins til, býður veitingar og tekur til við að útskýra verkin. Grunnur sýningarinnar byggist á þremur eldri teikningum sem hann sýndi á Nýlistasafninu fyrir nokkrum árum og nýjum verkum sem eru „eins konar generasjón eða kópía af þeim í annarri útfærslu“. Eldri verk- in sýna svartan texta á appels- ínugulum grunni, bæði handskrif- aðan af listamanninum en aðallega gerðan með tilbúnum fonti (old engl.) sem líkist því letri sem við þekkjum úr gömlu skinnhandritunum. Inn- setningin samanstendur af þessum teikningum ásamt málverkum þar sem textabrot úr þeim eru stækkuð upp á striga, litlu lauflausu linditré, áprentuðum auglýsingabolum frá áfengisfyrirtæki með viðbótarþrykki frá listamanninum og skjámynd sem varpað var á stærsta tjaldið á opn- uninni. Þá var sýndur kafli úr Sieg- fried eftir Fritz Lange þar sem Sig- urður Fáfnisbani drepur drekann og baðar sig í blóði hans til að engin vopn bíti á hann. Laufblað af lindi- trénu fellur hins vegar á bak hans og skapar þar veikan blett, en linditré mun hafa verið tákn ástarinnar í gömlu Evrópu. Samkvæmt viðtali við listamanninn sem Haraldur Jónsson tók, og dreift var til áhorfenda á einblöðungum, fjallar sýningin m.a. um goðsöguna og er eins konar fornleifauppgröftur á þjóðararfinum.Um leið fjallar hún um „ameríkaníseríngu“ og aðrar inn- fluttar menningarafurðir, ásamt markaðsvæðingu listarinnar í formi mjög sýnilegrar kostunar frá áfeng- isinnflytjanda sem býður upp á Mart- iny Dry og Vodka til að skála í minn- ingu Kalda stríðsins, tíma sem listamaðurinn álítur að hafi verið mjög skapandi í mannkynssögunni. Steingrímur Eyfjörð er einn þeirra íslensku listamanna sem fjalla um fé- lagsleg og menningarleg málefni í myndlist sinni, þar sem hann beitir persónulegu sjónarhorni og mynd- máli. Verk hans í Banananas koma sjónrænt vel út í rýminu, en inni- haldslega er sýningin fullflókin og brotakennd til að virka sem heild- stætt verk. Hið hráa og (eðlilega) kalda sýningarrými ýtir undir þá til- finningu að hér sé um utangarðslist að ræða og ljær sýningunni róm- antískt andrúmsloft andófs og upp- reisnar. Steingrímur hoppar fimlega fram og til baka yfir þá ímynduðu línu sem skilur að utangarðs- listamenn og þá vel þekktu og við- urkenndu, og vekur þannig athygli á að flestir „viðurkenndir“ myndlist- armenn þjóðarinnar eru þrátt fyrir allt svo til óþekktir meðal þjóðarinnar og utangarðs í menningarapparatinu. Titill sýningarinnar, Undir lindi- trénu, er írónískur og kómískur í senn vegna þess að trjásprotinn á sýningunni er pínulítill og staðsettur undir sýningartjaldinu. Hins vegar mun tréð vera ósvikið linditré, sem á líklega bæði eftir að stækka og bera ríkuleg lauf. MYNDLIST Gallerí Banananas Sýningunni er lokið. Steingrímur Eyfjörð Þóra Þórisdóttir Undir linditrénu „Verk Steingríms Eyfjörð í Banananas koma sjónrænt vel út í rýminu, en innihaldslega er sýningin fullflókin og brotakennd til að virka sem heild- stætt verk,“ segir Þóra Þórisdóttir meðal annars í umsögn sinni. Morgunblaðið/Golli laun (15 hópar, 108 mánuðir): Annað svið, 4 mánuðir, Deconstructive Dance Company, 4 mánuðir, Fimb- ulvetur, 8 mánuðir, Frú Emilía, 10 mánuðir, Hið lifandi leikhús, 7 mán- uðir, Hlutafélag sf., 5 mánuðir, Ís- media ehf., 10 mánuðir, Kómedíuleik- húsið, 4 mánuðir, Kvenfélagið Garpur, 5 mánuðir, Landnámssetur Íslands, 14 mánuðir, Leikfélagið Regína, 5 mánuðir, Möguleikhúsið, 6 mánuðir, Nútímadanshátíð í Reykja- vík, 16 mánuðir, Sokkabandið, 8 mán- uðir, Stoppleikhópurinn, 2 mánuðir. 60 ára og eldri Listasjóður veitti einnig sérstök framlög til eftirtalinna listamanna sem fengu listamannalaun áður fyrr og voru 60 ára eða eldri við gildistöku laganna um listamannalaun, sbr. 9. gr. laga nr. 35/1991 og ekki fengu starfslaun. Styrkurinn jafngildir starfslaunum í einn mánuð: Agnar Þórðarson, Benedikt Gunnarsson, Bragi Ásgeirsson, Einar Bragi Sig- urðsson, Eiríkur Smith, Elías B. Halldórsson, Gísli J. Ástþórsson, Gísli Sigurðsson, Guðmundur Jóns- son, Gunnar Dal, Hjörleifur Sigurðs- son, Hörður Ágústsson, Jón Ásgeirs- son, Kjartan Guðjónsson, Ólöf Pálsdóttir, Sigurður Hallmarsson, Sigurður A. Magnússon. Úthlutunarnefndir voru að þessu sinni skipaðar sem hér segir: Úthlut- unarnefnd Launasjóðs rithöfunda: Kristín Ástgeirsdóttir, formaður, Ástáður Eysteinsson og Kristín Við- arsdóttir. Úthlutunarnefnd Launa- sjóðs myndlistarmanna: Kristinn G. Harðarson, formaður, Olga S. Berg- mann og Benedikt Kristþórsson. Út- hlutunarnefnd Tónskáldasjóðs: Árni Harðarson, formaður, Karólína Ei- ríksdóttir og Guðmundur Óli Gunn- arsson. Í desember 2003 skipaði mennta- málaráðherra í stjórn listamanna- launa. Skipunin gildir frá 1. janúar 2004 til 14. nóvember 2006. Stjórnina skipa Guðrún Nordal, formaður, til- nefnd af Bandalagi íslenskra lista- manna, Baldur Símonarson, varafor- maður, skipaður án tilnefningar, og Mist Þorkelsdóttir, tilnefnd af Listaháskóla Íslands. Varamenn eru: Guðbjörg Arnardóttir, tilnefnd af Bandalagi íslenskra listamanna, Katrín Fjeldsted, skipuð án tilnefn- ingar, og Ragnheiður Skúladóttir, til- nefnd af Listaháskóla Íslands. Stjórn listamannalauna hefur yfirumsjón með sjóðunum og úthlutar fé úr Listasjóði. Listasjóður er almennur sjóður en sinnir einkum öðrum list- greinum en þeim sem falla undir sér- greindu sjóðina þrjá sem fyrst eru taldir. Allir sjóðirnir veita starfslaun, svo og náms- og ferðastyrki. Umsóknarfrestur færður fram Vakin skal athygli á því að ákveðið hefur verið að færa skilafrest um- sókna til starfslauna listamanna fram um einn mánuð á hausti komanda, til að unnt verði að tilkynna fyrr nið- urstöður. Skilafrestur fyrir starfs- laun listamanna verður því 15. októ- ber nk. ÓALGENGT er að áhugaleikfélög frumflytji erlend leikverk á Ís- landi. Leikfélag Húsavíkur hefur verið einna iðnast við þessa iðju og varð til að mynda fyrst til að kynna íslenskum leik- húsgestum bæði Gaukshreiðrið og Halta Billa þó þær frumsýningar hafi ekki farið jafnhátt og hinar sem fylgdu í kjölfarið í heldri hús- um. Það er alltaf áhætta fyrir leikfélag að grípa efnivið sem lítt eða ekki er kynnt- ur enda kjósa flestir að róa á öruggari mið. Húsvíkingar hafa iðu- lega hitt í mark með þessum sýningum sín- um og víst má telja að svo verði einnig að þessu sinni. Sambýlingar eftir Tom Griffin er raunsæisleg smámynd af fjórum einstaklingum sem ekki geta séð um sig sjálfir af mismunandi ástæðum og búa í vernduðu um- hverfi sambýlis undir leiðsögn um- sjónarmanns. Líf þeirra er hvers- dagslegt, enda eru hversdagslegustu hlutir gjarnan illleysanleg verkefni fyrir félagana. Fyrir vikið gerist ýmislegt í verk- inu frá sjónarhóli þeirra þó fléttan sé af fátæklegasta tagi. Reyndar held ég að höfundurinn hefði getað leyft sér örlítið svipmeiri átök án þess að missa sig yfir í melódrama. Sú litla togstreita sem vistmenn- irnir lenda í við umheiminn og hver annan leysist allajafnan á óþarflega áreynslulausan hátt. En kostir verksins eru líka umtals- verðir: skýrt teiknaðar og nær- færnar myndir af aðalpersónunum þar sem raunsæi og skop vega spennandi salt. Verkið er frábær efniviður fyrir góða leikara til að fara á kostum. Leikfélag Húsavík- ur teflir fram firnasterku liði í helstu hlutverkum og allir eiga góðan dag. Það sem gerir samt út- slagið um áhrifin er að hópnum og Oddi Bjarna, leikstjóra sýning- arinnar, hefur tekist að halda hár- réttu jafnvægi milli skopgervingar persónanna og virðingar fyrir þeim. Samkvæmt leikskrá sóttu þau sér mikla hjálp frá sérfræð- ingum og aðstandendum þroska- heftra og skilar sú nálgun, að við- bættum hæfileikum og leikgleði, alveg óvenju sterkum heildarsvip. Og vegna þess hve jafnvægið er gott þá leika þau sér við að þeyta áhorfendunum um allan tilfinn- ingaskalann, frá stjórnlausum hlátri yfir í nístandi þögn og aftur til baka. Fötlun persónanna er aldrei misnotuð til að vekja hlátur, heldur eru þær mótaðar af slíkri natni að það er jafnsjálfsagt að hlæja að þeim og hverjum öðrum persónum sem er lýst á sannferð- ugan hátt. Sigurður Illugason dregur upp nákvæma og úthugsaða mynd af þráhyggjusjúklingnum Arnold. Þorkell Björnsson er frábær- lega skýr sem Lucien, sem aftur er talsvert langt frá því að vera skýr, og Gunnar Jó- hannsson heillar alla sem hin elskulega fitu- bolla Norman, ekki bara hana Sheilu, sem Guðný Þorgeirsdóttir léði yndislega heið- ríkju. Hjálmar Bogi Hafliðason fer næmlega með krefj- andi hlutverk geðklofans Barrys, hefur minni tök á að búa til skop- takta en félagarnir en kemst inn í kvikuna í átakamestu senu verks- ins þegar hann tekur á móti föður sínum sem Hörður Þór Benón- ýsson lýsti miskunnarlaust. Yfir fé- lögunum vakir hinn dálítið lífsleiði Jack sem Kristján Halldórsson lýsti með fallegri næmi. Í smærri hlutverkum voru Sigurjón Ár- mannsson, Hilda Kristjánsdóttir, Katrín Ragnarsdóttir og Guðrún Kristín Jóhannsdóttir og stóðu sig öll með prýði. Sviðsetning Sambýlinga hefur tekist verulega vel. Verkið gerist að mestu á heimili fjórmenning- anna, en einnig bregður fyrir stuttum senum frá öðrum stöðum og einnig eiga persónurnar það til að rjúfa fjórða vegginn og ávarpa áhorfendur beint. Oddi Bjarna hef- ur tekist að láta þessa þætti flæða mjúklega, vel studdur af verulega snjallri leikmyndalausn Vigfúsar Sigurðssonar þar sem hliðaveggir við sviðsbrún taka á sig hinar ólík- ustu myndir án þess að trufla raunsæið í meginhluta rýmisins. Sambýlingar sýnir Leikfélag Húsavíkur í sínu besta formi. Af- burðagóður leikur, metnaðarfull umgjörð og vönduð leikstjórn skila sýningu sem snertir hjartað og tryllir hláturtaugarnar. Hlý, heið- arleg og fyndin. LEIKLIST Leikfélag Húsavíkur Höfundur: Tom Griffin, þýðandi og leik- stjóri: Oddur Bjarni Þorkelsson. Sam- komuhúsinu á Húsavík 27. febrúar 2005. Sambýlingar Þorgeir Tryggvason Oddur Bjarni Þorkelsson Hlý, heiðarleg og fyndin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.