Morgunblaðið - 02.03.2005, Side 10

Morgunblaðið - 02.03.2005, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stærstir í heiminum  Frá Arnarflugs- þotunni til Avion Group á morgun „ÉG tel að ég standi fyrir mál- efnum sem munu breikka flokkinn út á við og ýta honum yfir á rétta stefnu,“ segir Gunnar Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, inntur eftir því hvers vegna hann gefi kost á sér til varaformennsku í Frjálslynda flokknum á landsþingi flokksins næstu helgi. Magnús Þór Hafsteinsson, sitjandi varafor- maður, gefur kost á sér til endur- kjörs. Gunnar segir að mörgum finnist sem flokkurinn hafi hneigst of mik- ið til vinstri á þeim tveimur árum sem liðin eru frá síðustu alþing- iskosningum. Flokkurinn þurfi að fá á sig frjálslyndan alþýðlegan hægri glampa. „Ég tel flokkinn eiga það mikið erindi í pólitík að ég er bjartsýnn á 10 til 15 prósenta fylgi ef honum verður rétt stýrt í framtíðinni.“ Gunnar segist aðspurður ekki vera að kasta rýrð á störf Magn- úsar með því að bjóða sig fram á móti honum. „Nei, síður en svo,“ segir hann. „Magnús hefur verið mjög duglegur og er mörgum góð- um kostum búinn. Hann hefur þó verið meira yfir á vinstri vængn- um, eins og ég nefndi áðan. Þar hafa sóknarfærin ekki legið að mínu mati.“ Of mikið á einn mann lagt Inntur eftir því hvernig honum finnist flokkurinn hafi fært sig yfir til vinstri segir Gunnar: „Hann hef- ur verið fullslappur í því að elta mál Vinstri grænna og Samfylking- arinnar svo til að öllu leyti það sem af er vetri. Ég hef aftur á móti tek- ið af skarið, til að mynda í mál- efnum á borð við Íbúðalánasjóð. Ég tel að sjóðurinn eigi að fara af samkeppnismarkaði.“ Gunnar telur að sjóðurinn eigi þó að sinna sínu félagslega hlutverki á landsbyggð- inni. „Þar tók ég af skarið í mínum flokki og náði fram samþykki flokksmanna fyrir þessu. Ég mun halda áfram að vinna á þessari braut verði ég kosinn varaformað- ur.“ Gunnar nefnir þó fleiri ástæður fyrir framboði sínu. Meðal annars persónulegan metnað í pólitík og þrýsting frá fjölmörgum stuðn- ingsmönnum hans og kjósendum flokksins. „Ég get líka nefnt það að mér þykir óeðlilegt að einn maður sé bæði varaformaður flokksins, þingflokksformaður flokksins, um- sjónarmaður málsgagns flokksins, sem er heimasíðan og jafnframt þingmaður í vinsælasta kjördæmi landsins. Ég tel þarna of mikið á einn mann lagt. En ég er ekki með þessu að kasta rýrð á störf Magn- úsar eða Guðjóns [A. Kristjánsson- ar, formann flokksins].“ Gunnar Örlygsson gefur kost á sér í varaformannsembætti Vill sveigja Frjálslynda flokkinn til hægri MAGNÚS Þór Hafsteinsson, vara- formaður Frjálslynda flokksins, segir það fagnaðarefni að Gunnar Örlygsson þingmaður skuli bjóða sig fram í embætti varaformanns. Hann sé þar með að leggja sjálfan sig í dóm landsþingsfulltrúa flokksins. Landsþing flokksins fer fram um næstu helgi og gefur Magnús Þór kost á sér til endurkjörs í varaformannsembættið. „Við vitum meira um hann [Gunnar] og hans feril nú heldur en við vissum fyrir alþingiskosn- ingarnar árið 2003,“ segir Magnús. „Eftir þær komu í ljós ýmsir hlutir, sem ég var væg- ast sagt afar óhress með og það hefur ekk- ert breyst. En nú leggur hann sjálfan sig í dóm landsþingsfulltrúa Frjálslynda flokksins og það verður að reyna á það.“ Leggur sjálfan sig í dóm þingfulltrúa Magnús Þór Hafsteinsson Gunnar Örlygsson BRAUTSKRÁNING kandídata frá Háskóla Íslands fór fram laug- ardaginn 26. febrúar sl. í Há- skólabíói. Að þessu sinni braut- skráðust 287 kandídatar. Kynnir athafnarinnar var Þor- gerður Einarsdóttir lektor. Nem- endur úr Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar léku og Háskólakór- inn söng undir stjórn Hákons Leifs- sonar. Lýst var kjöri heiðursdokt- ors úr raunvísindadeild, og hlaut Gunnar Hoppe nafnbótina fyrir öt- ult starf, í meira en hálfa öld, við að efla samstarf Norðurlandaþjóða í vísinda- og menningarmálum. Morgunblaðið/Kristinn Anía Mist var við brautskráningu kandídata en móðir hennar brautskráðist með próf í sálfræði um síðustu helgi. 287 kandídatar brautskráðir frá HÍ  Meira á mbl.is/itarefni ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sá ástæðu til að breyta pistli á vefsíðu sinni sem hann skrifaði í kjölfar ákvörðunar Bryndís- ar Hlöðversdóttur um að láta af þing- mennsku og taka að sér starf forseta lagadeildar Viðskiptaháskólans á Bif- röst. Pistillinn er dagsettur í gær en var breytt eftir að hann var fyrst birt- ur, og búið er að fjarlægja kafla þar sem Össur tiltekur Samfylkingarfólk, sem starfi á Bifröst og nefnir sérstak- lega Ingibjörgu Þorsteinsdóttur, frá- farandi deildarforseta. „Ástæðan fyrir því að ég breytti þessu, var að mér var bent á að ég nefndi þarna einungis fólk sem tengd- ist Samfylkingunni, og það gæti litið út eins og hjá þessum skóla ynni ein- ungis fólk sem starfaði hjá þessum stjórnmálaflokki, en svo er auðvitað ekki því að þar er fólk með alls konar viðhorf,“ segir Össur. Aðspurður segir hann að því sé víðsfjarri að hann hafi á nokkurn hátt með skrifunum gefið í skyn að það væru samantekin ráð Samfylkingar- fólks á Bifröst að rýma fyrir Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur með brotthvarfi Bryndísar. Í pistlinum á heimasíðu Össurar segir hann í lokin: „Ég sá að varafor- maður Samfylkingarinnar [Ingibjörg Sólrún] taldi að brotthvarf Bryndísar myndi styrkja stöðu hennar í for- mannskapphlaupinu af því þá kæmist hún inn á þing. Ég óska svilkonu minni til hamingju með það. Hún verður góður þingmaður. Ég vil þó ekki vega þennan atburð á slíkum vogarskálum. Á þessum tímamótum er mér það eitt efst í huga að Bryndís var góður félagi sem ég mun sakna, og vona um leið að lífið færi henni alla þá hamingju sem hún á skilið.“ Breytti pistli á vefsíðu sinni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.