Morgunblaðið - 02.03.2005, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
UM síðustu helgi voru tuttugu ár lið-
in frá því skrifstofa Ferðamálaráðs í
Evrópu var opnuð. Í tilkynningu frá
Ferðamálaráði segir að nær fjórföld-
un hafi orðið í umfangi ferðaþjón-
ustu hér á landi frá markaðssvæði
skrifstofunnar.
Skrifstofan er í Frankfurt í Þýska-
landi en markaðssvæði hennar tekur
til allrar Mið-Evrópu.
Magnús Oddsson, ferðamálastjóri,
segir í tilkynningunni að á árinu 1984
hafi verið mikil umræða innan
stjórnar ráðsins um nauðsyn þess að
efla allt kynningar- og markaðsstarf
í Evrópu, en hann átti þá sæti í fram-
kvæmdastjórn Ferðamálaráðs.
„Niðurstaða þeirra viðræðna var sú
að hefja starfsemi með opnun skrif-
stofu í Frankfurt í samstarfi við aðra
hagsmunaaðila í ferðaþjónustu.
Þetta var í reynd fyrsta „krónu á
móti krónu“ samstarfið þar sem
Ferðamálaráð greiddi helming
kostnaðar og Flugleiðir, Arnarflug,
Samband veitinga- og gistihúsa, Fé-
lag íslenskra ferðaskrifstofa og
Ferðaskrifstofa ríkisins greiddu
hinn helminginn á móti. Við fórum
síðan út og opnuðum skrifstofuna
með viðhöfn 27. febrúar 1985,“ segir
Magnús Oddsson.
Fyrsti forstöðumaður skrifstofu
Ferðamálaráðs í Frankfurt var Óm-
ar Benediktsson. Því næst tók Diet-
er Wendler við starfinu en núverandi
forstöðumaður er Haukur Birgisson.
Á skrifstofunni starfa nú fjórir
starfsmenn. Segir í tilkynningunni
að þeir svari miklum fjölda fyrir-
spurna, taki þátt í tugum ferðasýn-
inga í Evrópu árlega, dreifi hundr-
uðum þúsunda bæklinga og annars
kynningarefnis, aðstoði söluaðila Ís-
landsferða og leiti nýrra. Þá séu
samskipti við fjölmiðlafólk og aðstoð
við það mikilvægur þáttur í starf-
semi skrifstofunnar.
Ferðamálaráð með skrif-
stofu í Evrópu í tuttugu ár
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ísland vinsælt Ferðamönnum sem sækja Ísland heim fjölgar frá ári til árs .
● Hagnaður Íslandspósts á árinu
2004 nam 356 milljónum króna eftir
skatta, sem er 10% aukning frá fyrra
ári. Segir í tilkynningu að afkoman sé
framar væntingum.
Heildartekjur Íslandspósts á síð-
asta ári námu 4,6 milljörðum og juk-
ust um 4,5% frá fyrra ári. Kostnaður
jókst hins vegar um 3% milli ára. Eig-
ið fé í árslok 2004 var 2,3 milljarðar.
Íslandspóstur greiddi á síðasta ári
500 milljóna króna arð til ríkissjóðs
vegna fyrra árs.
Aukinn hagnaður
Íslandspósts
● Heildarvelta í Kauphöll Íslands í
gær var ríflega 5,7 milljarðar króna.
Þar af voru viðskipti með hlutabréf
fyrir rúmlega 2,5 milljarða. Mest voru
viðskipti með bréf KB banka.
Mest hækkun varð á bréfum Líf-
tæknisjóðsins (25%) en mest lækk-
un varð á bréfum Atorku (-2,1%).
Úrvalsvísitala aðallista hækkaði
um 0,27% og er nú 3.780 stig.
Mest viðskipti
með KB banka
● Lífeyrissjóður verslunarmanna (LV)
hefur selt allan hlut sinn í Nýherja. Í til-
kynningu til Kauphallar Íslands segir
að sjóðurinn hafi selt
5,10% hlut sinn í Ný-
herja, sem er liðlega
12,1 milljón hluta.
Verð á hlut í viðskiptum með hlutabréf
í Nýherja í Kauphöllinni í gær var 12,0
krónur. Því má ætla að söluverð þess
hlutar sem Lífeyrissjóður versl-
unarmanna seldi í félaginu sé um 145
milljónir króna.
Einnig var greint frá því í gær að tvö
félög sem Árni Vilhjálmsson, stjórn-
armaður í Nýherja, á sæti í, Vogun og
Venus, hafi hvort um sig keypt tæp-
lega 2,4 milljónir hluta í Nýherja. Hvort
félag keypti um 1% hlut í Nýherja.
LV selur í Nýherja
!
"
#
!"$
%
! "# $
%#%!
& %"' ("
) ("
)#"
*"' (" & %"'
+!%
+!'
! %#
,#
-./!
-. ! "#($
0
. & %"'
1 "'
1. "
1 2 $ 34 / " 5
6("
*7 8" 4 ""
9:/!
-&
-% ;%# -%"'
-%. / 2 /$
<2## "#. "
= "" % "
3.4 .. 5-8(!#
!
(
!%' >2
*"' 7. & %"'
<8 8
"#
$%
?@>A
-7
$!
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
!2 "#
2 $!
5 5 5
5
5 5
5 5
5
5
5
5
5 5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
B 5CD
B CD
B CD
B 5 CD
B 5 CD
B CD
5
B CD
B
CD
B 5CD
5
B CD
B 5CD
B CD
B CD
5
5
5
5
B CD
B CD
5
B 5CD
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
1! %'
'# "
< %( 7 % '# E
) -%
$
$ $ $
$ $ $ $ $ $ $ $ $ $
$
5
$
$ 5
$
$ $ 5
5
$ 5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
= 7 FG $ $
<1$ H /#"% %'
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
<1$5 I . ./%'"' % /% $ <1$5 -2%' % %!## . 2 %( /! " $
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
„HLUTABRÉF sænska trygginga-
félagsins Skandia hækka á nýjan leik
þrátt fyrir milljarðatap, hugsanlega
vegna
áhuga Ís-
lendinga á
að kaupa
félagið að því er sænskir verðbréfa-
miðlarar telja,“ segir í frétt á vef
Berlingske Tidende.
Bent er á að tap Skandia á fjórða
árafjórðungi hafi slagað upp í níu
milljarða íslenskra króna, einkum
vegna þriðjungs niðurfærslu á
breska verðbréfafyrirtækinu Bank-
hall sem Skandia keypti á þrjá millj-
arða sænskra króna. Þrátt fyrir
þessi tíðindi hefur gengi bréfa í
Skandia hækkað í 38 sænskar krón-
ur í upphafi vikunnar og hefur raun-
ar ekki verið hærra í tvö ár eða frá
því að upp komst um mikla kaupauka
og hlunnindi stjórnenda félagsins.
„Menn hafa orðið varir við að það
eru einn eða tveir stórir kaupendur á
markaðnum. Það geta hugsanlega
verið Íslendingar sem eru að kaupa
bréf,“ er haft eftir sænskum verð-
bréfamiðlara í fréttinni en jafnframt
tekið fram að aðrir hafi bent á að ró
sé að komast á í kringum félagið. Þá
hafi bankastarfsemi Skandia í Dan-
mörku skilað hagnaði í fyrra. „Það er
m.a. annars vegna þess að bankinn,
sem auglýsir að hann innheimti ekki
þjónustugjöld, fékk hátt í 270 millj-
ónir í þjónustugjöld af viðskiptavin-
um sínum,“ segir í frétt Berlingske
Tidende.
Orðrómur um
að Íslending-
ar kaupi bréf
í Skandia BERNHARD ehf., innflytjandi
Peugeot á Íslandi, hefur gengið til
samstarfs við dreifingaraðila Peug-
eot í Danmörku og Svíþjóð, K.W.
Bruun.
Í tilkynningu
frá Bernhard
segir að sam-
starfið skapi
grundvöll fyrir
samvirkni sem
styrki fyrirtæk-
ið. Þá segir að samstarfsaðilarnir séu
sammála um að þetta eigi eftir að
skila sér í verulegum ávinningi fyrir
Peugeoteigendur á Íslandi, bæði nú-
verandi sem og framtíðareigendur.
„Hugmyndafræðin að baki þessa
nýja fyrirkomulags er einföld: Að sjá
dreifingarkeðju Peugeot á Íslandi
fyrir sem ákjósanlegustu umhverfi
er tryggi hraðan vöxt – með tækni og
markaðslegum stuðningi sem sam-
starfsaðilar Bernhard ehf. hafa yfir
að ráða sem leiðandi innflutnings-
aðili á Peugeot á Norðurlöndunum,“
er haft eftir Ulrik Lundsfryd, fram-
kvæmdastjóra K.W. Bruun Import
A/S.
Norræn
samvinna
um Peugeot
milljónir, en 55
milljónir króna árið
áður. Fjármagns-
gjöld umfram fjár-
munatekjur voru
svipuð í fyrra og ár-
ið áður, eða 33 millj-
ónir samanborið við
32 milljónir árið 2003. Söluhagnaður
af hlutabréfum nam 53 milljónum á
síðasta ári en var enginn árið áður.
HAGNAÐUR samstæðu Slátur-
félags Suðurlands á árinu 2004 var
101 milljón eftir skatta. Árið áður
var 37 milljóna króna tap á rekstri
félagsins. Velta samstæðunnar jókst
um 27% milli ára, og er aukningin að
stórum hluta tilkomin vegna inn-
komu dótturfélagsins Reykjagarðs í
samstæðuuppgjörið.
Rekstrarhagnaður án fjármuna-
tekna og fjármagnsgjalda var 99
Í árslok 2004 voru heildareignir
samstæðu Sláturfélags Suðurlands
3.689 milljónir og höfðu aukist um
844 milljónir frá áramótum, aðallega
vegna innkomu dótturfélagsins í
samstæðuuppgjörið.
Í tilkynningu segir að kjötmark-
aðurinn sé farinn að færast í átt að
auknu jafnvægi eftir mikið umrót,
sem eigi að leiða til betri afkomu í
rekstri félagsins.
Bætt afkoma Sláturfélags
Suðurlands á síðasta ári
UMSVIF Opinna kerfa hafa vaxið
hratt í Danmörku en Kerfi Dan-
mark hefur keypt dönsku fyr-
irtækin Datarex, Delta Teamco og
Delta Consulting. Velta Kerfi Dan-
mark jókst um 92% milli áranna
2003 og 2004 og fór í 110 milljónir
danskra króna eða í tæpa 1,2
milljarða íslenskra króna að því er
segir í frétt á danska fréttavefn-
um CRN undir fyrirsögninni „Ís-
lendingar sækja fram í Dan-
mörku“.
Heildarvelta Opinna kerfa jókst
úr 10,7 milljörðum íslenskra króna
árið 2003 í 14,8 milljarða í fyrra.
Félagið er með starfsemi í Svíþjóð,
Noregi og Danmörku auk Íslands
og hjá því starfa um 600 manns,
þar af um helmingurinn í Svíþjóð.
Íslendingar sækja
fram í Danmörku
SAMRÆMD vísitala neysluverðs í
EES-ríkjunum lækkaði um 0,5% milli
desember og janúar. Á sama tíma
hækkaði vísitalan fyrir Ísland um
0,4% frá fyrra mánuði. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá Hagstofu Ís-
lands.
Frá janúar 2004 til jafnlengdar árið
2005 var verðbólgan, mæld með sam-
ræmdri vísitölu neysluverðs, 2,0% að
meðaltali í ríkjum EES, 1,9% á evru-
svæðinu en 2,7% á Íslandi. Mesta
verðbólga á Evrópska efnahagssvæð-
inu á þessu tólf mánaða tímabili var
6,7% í Lettlandi. Næst mest var verð-
bólgan í Grikklandi og Eistlandi, eða
4,2%. Minnst var verðbólgan í Sví-
þjóð, 0,5%, en í Finnlandi var hins
vegar 0,2% verðhjöðnun.
Samræmd vísitala
lækkar í EES-ríkj-
um en hækkar hér
&' $
&'( )*'(
'
$ ,
$
(
%)*+,
+-
%
(
./
, )0'
1
234
2 45
2 46
2 47
274
274
2 48
2 4
9 4
:
:
:
:
:
:
:
:
:
& >>- 7. ! .$$ .8.' !4 "!2 %! 5
7 % !" 7 "'7". "!2 %! 7 %$
● Kristján Þorbergsson hefur verið
ráðinn fjármálastjóri P. Samúelsson
en fyrirtækið hefur verið án fjármála-
stjóra síðan margir lykilstjórnendur
sögðu af sér fyrir nokkru.
Kristján hefur áður starfað hjá KB
banka og Skeljungi.
Nýr fjármálastjóri
P. Samúelsson
9 'J
-KL C
C
<->
MN
C
C
@@ ,+N
C
C
)N
9 !
C
C
?@>N MO 6"!
C
C