Morgunblaðið - 02.03.2005, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
STJÓRNENDUR Baugs Group
eru mjög nálægt því að tryggja sér
fjármögnun til þess að geta lagt
fram formlegt yfirtökutilboð í
Somerfield og hafa sagst hafa
áhuga á því að gera það þrátt fyrir
að stjórn Somerfield hafi hafnað
tilboði þeirra upp á 190 pens á
hlut, segir í frétt The Daily Tele-
graph í gær.
Fjallað var um hugsanlegt yf-
irtökutilboð Baugs í Somerfield í
öllum helstu dagblöðum Bretlands
í gær, s.s. The Guardian, Daily
Mail, Financial Times, The In-
dependent og Daily Express.
Samkvæmt heimildarmönnum
The Daily Telegraph er Baugur
um það bil að ljúka samningum við
alla helstu fjárhagslega bakhjarla
sína um fjármögnun kaupanna
sem nemi um 120 milljörðum ís-
lenskra króna en það séu sömu að-
ilar og fjármögnuðu kaup Baugs
og BigFood. Þetta séu KB banki,
Björgólfur Thor Björgólfsson og
Burðarás og Talden, fjárfesting-
arfélag Pálma Haraldssonar.
„Ekki hefur verið greint frá neinu
enn en það er aðeins dagaspurs-
mál hvenær þetta verður í höfn
hjá Baugi,“ hefur The Daily Tele-
graph eftir íslenskum heimildar-
manni sínum.
Gengi bréfa í Somerfield hækk-
aði í 188 pens á mörkuðum í gær
og sérfræðingur breska fjárfest-
ingarbankans Numis sagði við The
Guardian að hlutafjáreigendur í
Somerfield ættu að nýta sér sterka
söluaðstöðu sína.
Gengi bréfa í tískuvörukeðjunni
French Connection hækkaði um
2,6% í gær eða í 315 pens í kjölfar
frétta um að Baugur hygðist
kaupa 3% hlut í félaginu.
Fjármögnun sögð
svo gott sem í höfn
Breskir fjölmiðlar fjalla um Baug
OLÍUSJÓÐUR Norðmanna er í
fyrsta skipti kominn yfir eitt þúsund
milljarða norskra króna. Það svarar
til um tíu þúsund milljarða íslenskra
króna. Á síðasta ári var 8,9% ávöxt-
un á sjóðnum, en í hann rennur
hagnaður af olíuvinnslu Norðmanna
og afgangur af ríkissjóði.
Samkvæmt frétt á vefmiðli norska
blaðsins Dagens Næringsliv var höf-
uðstóll olíusjóðsins 1.016 milljarðar
norskra króna á síðustu áramótum.
Nam hækkun sjóðsins á árinu 2004
samtals 171 milljarði norskra króna.
Þar af voru 138 milljarðar afgangur
af ríkissjóði Noregs. Sjóðurinn er
ávaxtaður með fjárfestingum erlend-
is og er þannig ætlað að valda ekki
þenslu í norsku efnahagslífi.
Norðmenn eru þriðja mesta út-
flutningsríki heims á eftir Sádí-Ar-
abíu og Rússlandi.
Það var á árinu 1996 sem norsk
stjórnvöld byrjuðu að leggja gróða
af olíuframleiðslunni í sérstakan
sjóð. Er honum ætlað að standa und-
ir auknum lífeyrisgreiðslum og
kostnaði við rekstur heilbrigðiskerf-
isins.
Norðmenn eru samtals um 4,6
milljónir talsins. Því eru nú liðlega
200 þúsund norskar krónur í olíu-
sjóði Noregs á hvern Norðmann, eða
liðlega tvær milljónir íslenskra
króna.
Olíusjóður Norðmanna 1.016
milljarðar norskar krónur
ÞYRPING hf. hefur látið endur-
hanna merki félagsins en það á að
endurspegla nýjan tilgang og
áherslur félags-
ins. Í tilkynningu
félagsins segir að
það hafi áður ver-
ið fasteignafélag
en sé nú orðið
framsækið þró-
unarfélag á sviði skipulagsmála og
mannvirkjagerðar sem vinni að þró-
un og uppbyggingu einstakra svæða.
Jafnframt hafi vefsíða fyrirtækisins
fengið nýtt útlit. „Þyrping hefur
tengst helstu nýsköpunarverkefnum
á sviði skipulags- og byggingamála á
undanförnum árum og hefur mikla
sérþekkingu í þeim efnum. Á meðal
verkefna sem Þyrping vinnur að er
uppbygging í miðbæ Reykjavíkur í
101 Skuggahverfi, einnig stendur fé-
lagið að þróun og uppbyggingu
verslunar- og skrifstofuhúsnæðis í
Borgartúni, verslunar- og þjónustu-
húsnæði í Borgarnesi og verslunar-
miðstöðvar á Egilsstöðum.“
Þyrping fær
nýtt merki
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
74
90
02
/2
00
2
Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til handa stjórn félagsins
til að kaupa hluti í félaginu samkvæmt 55. gr.
hlutafélagalaga nr. 2/1995.
3. Önnur mál sem eru löglega borin fram.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur
félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda, verða
hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins viku
fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir
á fundarstað.
Stjórn Og fjarskipta hf.
Aðalfundur
Og Vodafone
Aðalfundur Og Vodafone (Og fjarskipta hf.)
verður haldinn á Hótel Sögu, í Sunnusal,
fimmtudaginn 3. mars 2005, og hefst kl. 12:00.
410 4000 | landsbanki.is
Banki allra landsmanna
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
75
03
0
3/
20
05
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
75
03
0
3/
20
05
Landsbanki Íslands hf.
Skráningarlýsing og önnur gögn sem vitnað er til í lýsingunni er hægt að nálgast hjá Landsbanka Íslands hf,
Austurstræti 11, 155 Reykjavík. www.landsbanki.is
Skráning víxla í Kauphöll Íslands hf.
Kauphöll Íslands hf. hefur samþykkt að skrá víxla Landsbanka Íslands hf. við útgáfu hvers flokks
enda uppfylli þeir skilyrði skráningar. Flokkar LAIS 05 0405, LAIS 05 0517 og LAIS 05 0606 verða
skráðir hinn 7. mars 2005. Víxlarnir eru vaxtalausir og óverðtryggðir. Útgáfa víxlanna verður tilkynnt
Kauphöll Íslands hf. hverju sinni en þeir eru rafrænt skráðir hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf.
Auðkenni Útgáfudagur Gjalddagi
LAIS 05 0405 01.03. 2005 05.04. 2005
LAIS 05 0517 01.03. 2005 17.05. 2005
LAIS 05 0606 01.03. 2005 06.06. 2005
LAIS 05 0715 01.04. 2005 15.07. 2005
LAIS 05 0805 12.05. 2005 05.08. 2005
LAIS 05 0915 02.06. 2005 15.09. 2005
LAIS 05 1005 13.07. 2005 05.10. 2005
LAIS 05 1115 03.08. 2005 15.11. 2005
LAIS 05 1205 13.09. 2005 05.12. 2005
LAIS 06 0116 03.10. 2005 16.01. 2006
LAIS 06 0207 11.11. 2005 07.02. 2006
LAIS 06 0315 01.12. 2005 15.03. 2006
LAIS 06 0407 12.01. 2006 07.04. 2006
LAIS 06 0515 03.02. 2006 15.05. 2006