Morgunblaðið - 02.03.2005, Síða 16

Morgunblaðið - 02.03.2005, Síða 16
Vík | Á góðviðrisdögum er fátt betra en að bregða sér í góðan göngutúr og þá er ekki úr vegi að skoða það sem fyrir ber í náttúrunni. Ragnhildur Jóns- dóttir í Vík í Mýrdal sameinaði þetta tvennt; naut veðurblíð- unnar og skoðaði í leiðinni stein- boga yfir Bolabás á Dyrhólaey, en í fjarska má sjá hina tign- arlegu Reynisdranga. Ekki amalegt að vera þarna á ferð. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Skoðaði steinbogann Tignarlegt Höfuðborgin | Akureyri | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Stofna þristavinafélag | Stofnað verður áhugamannafélag um varðveislu land- græðsluflugvélarinnar Páls Sveinssonar, Douglas DC-3, á næstu dögum; þristavina- félagið. Flugvélin á sér einstaka sögu í ís- lenskum samgöngumálum og landgræðslu- starfi. Verkefni hennar í þágu landgræðslu hafa flest verið færð til bænda og á vef Land- græðslunnar segir að það besta sem gert sé til að tryggja varðveislu þessa 62 ára gamla dýrgrips sé að fljúga henni miklu meira en Landgræðslan geti séð um og annast. Fram kemur að Norðurlöndin eiga hvert um sig eina Douglas DC-3 og eru þær reknar af áhugamannafélögum og í vörslu þeirra. Nú verði fetað í fótspor þeirra og stofnað þrista- vinafélag. Undirbúningsnefnd skipuð land- græðslustjóra og nokkrum flugmönnum hef- ur boðað til stofnfundar félagsins fimmtudaginn 3. mars nk. og verður hann í ráðstefnusal Hótels Loftleiða og hefst kl. 17:15. Eitt brýnasta verkefni hins nýja félags er að tryggja fjárhagslegan rekstrargrundvöll til að takast á við mörg ögrandi verkefni í sum- ar. Þar á meðal að taka þátt í hátíðahöldum þegar minnst verður þeirra tímamóta að 60 ár verða liðin frá því að farþegaflug hófst héðan til annarra landa. Í framhaldi af stofn- un félagsins er gert ráð fyrir að Land- græðslan semji við félagið um varðveislu beggja Douglas-flugvéla Landgræðslunnar, en þær verða áfram í eigu stofnunarinnar. Hinni vélinni, sömu tegundar, TF-ISB, hefur ekki verið flogið í mörg ár, en það væri verð- ugt verkefni hins nýja félags að koma henni í loftið á ný, segir á vef Landgræðslunnar. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Hollvinafélag um Þórð | Ákveðið hefur verið að stofna Hollvinafélag Þórðar Hall- dórssonar frá Dagverðará á Snæfellsnesi, sem m.a. var þekktur sem sjómaður, nátt- úruunnandi, refaskytta, listmálari, hagyrð- ingur, sagnamaður og heilsufrömuður. Þórður hefði orðið 100 ára 25. nóvember næstkomandi en hann lést árið 2003. Hópur fólks ræddi hugmyndir um að heiðra minn- ingu hans með stofnun hollvinafélags sem hefði það meðal annars að markmiði að gefa út minningarrit og gera heimildarkvikmynd um Þórð. Stofnfundurinn verður haldinn næstkomandi laugardag kl. 14 í Lýsuhóls- skóla í Snæfellsbæ. Settur hefur verið upp vefur, www.refaskytta.is, þar sem upplýs- ingar eru um Þórð og verkefni félagsins. Rætt var um end-urskipulagninguhafna í Vest- urbyggð á fundi hafn- arstjórnar á dögunum þar sem hafnarstjóri kynnti til- lögur að breytingum í starfsemi hafnanna. Farið var yfir tillögurnar og fylgigögn, m.a. sam- anburðartölur frá nokkr- um sambærilegum höfn- um á landinu þar sem bornir eru saman þættir eins og tekjur og rekstr- arkostnaður, þ.m.t. launa- kostnaður, starfs- mannahald, afgreiðslutími og vinnufyrirkomulag al- mennt. „Ljóst er að hafnir landsins hafast ólíkt að við skipulagningu sinna mála,“ segir í bókun hafn- arstjórnar. Hafnarstjóra var falið að móta tillög- urnar nánar út frá um- ræðum á fundinum og leggja fyrir stjórnina á næsta fundi hennar sem boðað yrði til í næstu viku. Endurskipu- lagning Búðardalur | Lögreglan í Búðardal hefur tekið í notkun nýjan tækjabúnað sem settur hefur verið í lögreglu- bifreiðina. Tæki þessi samanstanda af Golden Eagle- radartæki og Eyewitness-upptökubúnaði og kosta rúma milljón króna. Búnaður þessi auðveldar alla vinnu lögreglunnar úti á vettvangi þar sem nú er hægt að taka upp, bæði í mynd og hljóði, samskipti lögregl- unnar við vegfarendur. Ekki er bundið við að upptökubúnaðurinn sé ein- göngu notaður við hraðamælingar heldur er hægt að nota hann við mörg önnur verkefni lögreglunnar. Þar sem Dalasýsla er eina embættið á landinu þar sem aðeins einn lögreglumaður er starfandi þá kemur þessi tækjabúnaður sér sérstaklega vel. Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir Jóhannes B. Björgvinsson lögregluvarðstjóri í lög- reglubifreiðinni, sjá má sjónvarpsskjáinn fyrir ofan baksýnisspegilinn en hann er hluti af búnaðinum. Nýr tækjabúnaður Pétur Jónsson fráHallgilsstöðum ortiá sínum tíma: Gamall bý við bágan hag og baks á kvennafundum. Læt mér nægja að lesa Dag þó leiðist mér það stundum. Hjálmar Freysteinsson slær á létta strengi þegar vísa Péturs heitins rifjast upp fyrir honum: Ekkert bætir okkar hag sem eftir megum þreyja, verra er að lesa Vikudag verð ég nú að segja. Kristján Eiríksson fylgdist með þingi fram- sóknarmanna og yrkir: Orðnir af lestri alveg snar, ógleðin seint mun þverra. En horfa á flokksþing framsóknar, fátt trúi ég sé verra. Hvolpinum Basil fursta varð ekki um sel er hann las um sprungusveiminn undir Kárahnjúkavirkjun. Hann orti af því tilefni og landsfundi Framsóknar: Kvölda tekur, sest er sól senn hjá flokki ljótum þeim sem heillum firrtur heims um ból hellir fé í sprungusveim. Lestur og baks pebl@mbl.is LJÓSMYNDASAFN Reykjavíkur og Ljós- myndasafn Akraness hafa gert með sér samkomulag um að opna fyrir rafrænan að- gang á milli myndavefja safnanna. Einungis þarf að fara inn á annan hvorn myndavef safnanna, þ.e. ljosmyndasafn- reykjavikur.is eða akranes.is/ljosmynda- safn, til að skoða myndir eftir Ólaf Árnason, ljósmyndara frá Akranesi. Af þessu tilefni hefur Ljósmyndasafn Reykjavíkur nú sett um 100 myndir inn á vefinn og mun á næstu mánuðum bæta enn meira efni við. Ljósmyndasafn Reykjavíkur varðveitir myndasafn Ólafs Árnasonar (1919–1997) ljósmyndara frá Akranesi, en hann starfaði sem ljósmyndari á Akranesi í tæp 50 ár. Alls eru um 30 þúsund myndir eftir hann varð- veittar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, þar af um 23.000 mannamyndir af ljósmynda- stofu Ólafs og um 7.000 mannlífsmyndir frá Akranesi. Helst eru þetta myndir af útgerð, iðnaði, s.s. frá byggingu Sementsverksmiðj- unnar, skipasmíði og atburðum eins og t.d. myndir frá sjómannadeginum, leikfélaginu, skólaskemmtunum o.fl. Á myndavef Ljósmyndasafns Akraness eru nú um 1.200 myndir eftir Ólaf Árnason. Rafrænn að- gangur milli myndavefja Akranes | Starfsmenn Akraneskaupstað- ar tóku í janúarmánuði síðastliðnum þátt í könnun en markmið hennar var að fá fram viðhorf þeirra til sveitarfélagsins, m.a. til upplýsingamiðlunar, starfsánægju og að- búnaðar á vinnustað. Alls tóku 265 starfsmenn þátt í könn- uninni en upphaflegt úrtak var 304 sem gefur 87,2% svarhlutfall. Niðurstöður voru í heildina litið jákvæðar. Starfsmenn meta stjórnun, liðsanda og upplýsingamiðlun á vinnustað jafnhátt eða hærra en í öðrum sambærilegum könnunum. Fram kemur óánægja með laun sem er einnig í takt við sambærilegar kannanir til að mynda ríkisstarfsmannakönnun sem framkvæmd var árið 1999. Mikilvægt er, segir í frétt á vef Akranes- kaupstaðar, að niðurstöður verði skoðaðar á hverjum vinnustað og gripið til aðgerða sé þess þörf. Starfsmenn ánægðir ♦♦♦    ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali SUNDABORG 533 4200 eða 892 0667 TIL LEIGU mjög gott lager- og skrifstofuhúsnæði. Lagerhúsn. á jarðhæð 280 fm m. stórri innkeyrsluhurð, lofthæð ca 3,5 m. Á 2. hæð, skrifstofur ca 280 fm, sem skiptast í nokkrar skrifstofur, 2 minni sali, snyrtingar og kaffistofur. Auðvelt að breyta innra skipulagi. Getur leigst í einu eða tvennu lagi. Laust strax. Góð bílastæði og gámapláss.Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 Óskum eftir 4ra-5 herbergja íbúð í Lindahverfi í Kópa- vogi í skiptum fyrir 220 fm parhús með 5 svefnherbergj- um í sama hverfi. Óskum eftir sumarhúsi í nágrenni Norðurár/Bifrastar- svæðisins. Óskum eftir 2ja íbúða húsi í Kópavogi, þar sem minni íbúðin er samþykkt. Óskum eftir 5-6 herbergja sérbýli í vesturbæ Kópavogs í skiptum fyrir minna sérbýli á einni hæð í sama hverfi. Heimili fyrir þig - alhliða eignaumsýsla sími 530 6500 Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Allar nánari upplýsingar veitir Bogi Pétursson, löggiltur fasteignasali, á skrifstofu Heimilis eða í síma 699 3444.. Óskum eftir eignum til kaups/makaskipta fyrir ákveðna kaupendur: Bogi Pétursson, lögg. fasteignasali.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.