Morgunblaðið - 02.03.2005, Qupperneq 17
smáauglýsingar
mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 17
MINNSTAÐUR
Gullöldin | Gunnar Karlsson pró-
fessor segir frá nýjum rannsókn-
arniðurstöðum um íslenska goða-
veldið í erindi sem hann nefndir: „Úr
hverju var gullöldin okkar eig-
inlega? “ Fyrirlesturinn verður á
Amtsbókasafninu á Akureyri á
fimmtudag, 3. mars kl. 17. Í nýrri
bók Gunnars Karlssonar, Goða-
menning. Staða og áhrif goðorðs-
manna í þjóðveldi Íslendinga, er leit-
ast við að draga upp nýja yfirvegaða
mynd af íslenska goðaveldinu.
Minjasafnið á Akureyri og Sagn-
fræðingafélagið á Akureyri standa
fyrir þessum fyrirlestri.
LEIKFÉLÖGIN í framhaldsskól-
unum á Akureyri, MA og VMA, stóðu
fyrir áheitasöfnun í Ketilhúsinu, en
markmið var að bjóða upp á fjöl-
breytilega listviðburði í 36 klukku-
stundir. Meðal annars komu fram
hljómsveitir, máluð voru málverk,
„málað á manneskju“, kennsla fór
fram í vöfflubakstri, sýnd stuttmynd,
sett var upp leikrit, leikið á hljóðfæri
og sungið, boðið upp á danskennslu,
eftirhermur, uppistand, ljóða- og
leiklestur og kór VMA söng nokkur
lög.
Með þessu söfnuðu krakkarnir um
400 þúsund krónum, en leikfélög
framhaldsskólanna tveggja ætla nú í
fyrsta sinn að sameina krafta sína og
bjóða upp á sameiginlega leiksýningu
þegar Rígurinn, sannsögulegur rokk-
söngleikur, verður frumsýndur í apríl
næstkomandi. Hann er eftir Andra
Má Sigurðsson og Ævar Þór Bene-
diktsson, leikstjóri er Þorleifur Örn
Arnarsson en Michael Jón Clarke út-
setur tónlist. Söngleikurinn fjallar
um „ást, hatur, frið, von og trú ásamt
þeirri geðveiki og vandræðagangi
sem fylgir því að vera í framhalds-
skóla,“ segir í frétt frá leikfélögunum.
Söfnuðu áheitum
vegna sýningar
Málað á manneskju Leikfélög framhaldsskólanna stóðu fyrir fjöl-
breyttum listviðburðum til að afla fjár fyrir sameiginlega sýningu.
VÍFILFELL er með umfangsmikla starfsemi á
Akureyri, sem hefur aukist mikið á undanförnum
árum. Verksmiðjan hefur verið stækkuð töluvert
og árið 2003 var framleiðslan komin í hámark,
miðað við þann búnað sem þá var fyrir hendi. Á
síðasta ári var tekin í notkun stækkun á gerjunar-
kjallara og þar með jókst afkastagetan um 30%.
Húsakosturinn býður jafnframt upp á enn frekari
stækkun, með fjölgun tanka og þá aukinni fram-
leiðslugetu.
Að sögn Unnsteins Jónssonar, verksmiðju-
stjóra á Akureyri, fer öll bjórframleiðsla fyrirtæk-
isins fram þar, auk þess öll átöppun á gos í gler-
flöskur. Þá flytur fyrirtækið inn léttöl og tappar
því á dósir í verksmiðjunni á Akureyri. Vífilfell
framleiðir nokkrar tegundir af bjór og einnig lét-
töl og maltöl. Að sögn Unnsteins voru framleiddir
rúmlega 8,6 milljónir lítra á Akureyri á síðasta ári
og jókst framleiðslan um 6,5% á milli ára. Í ár er
ráðgert að framleiða rúmlega 10 milljónir lítra.
„Við erum með 45–46% hlutdeild af öllum bjór-
markaðnum í landinu og er Víking gylltur vinsæl-
asti bjórinn. Um 75% af sölunni fara í gegnum
ÁTVR og um 25% til veitingahúsa.“
Unnsteinn sagði að verðlækkun á bjór og víni
hefði mikil áhrif á söluna. „Sala á ódýrari bjór
jókst í verslunum ÁTVR á síðasta ári og þar jókst
bjórsala almennt um 8,3%. Við viljum fá að aug-
lýsa okkar bjór en þar vantar reglur sem hægt er
að fara eftir. Kannanir sýna að þegar verið er að
byggja upp vörumerki í tegund, er jafnframt verið
að halda uppi verði á því. Þarna er verið að horfa á
framleiðnina en ekki lítramagnið, það er ekki verið
að auka magnið heldur flytja á milli tegunda.“
Á Akureyri eru starfsmenn 34 og þaðan fer öll
dreifing á þeim vörum sem Vífilfell selur á Norð-
ur- og Austurlandi. „Vífilfell er eingöngu í
drykkjarvörum og fyrir utan okkar framleiðslu er-
um við að flytja inn íþróttadrykki, orkudrykki,
soyamjólk, bjór og vín,“ sagði Unnsteinn. Á Ak-
ureyri framleiðir Vífilfell Víking gylltan, Thule,
Carlsberg, Víking lite, Víking Lager, Víking
sterkan, Jólabjór um jólin og einnig léttöl, Thule,
Víking, Carlsberg og maltöl.
Starfsemi Vífilfells á Akureyri hefur aukist mikið undanfarin ár
Stefnt að framleiðslu á yfir
10 milljónum lítra í ár
Morgunblaðið/Kristján
Drykkur Unnsteinn Jónsson, verksmiðjustjóri
Vífilfells á Akureyri, með vinsælasta bjórinn á
markaðnum, Víking gylltan.
Félagsvísindatorg | Sæunn Kjart-
ansdóttir flytur fyrirlestur á fé-
lagsvísindatorgi í dag, miðvikudag-
inn 2. mars, kl. 12. í stofu L201 þar
sem hún fjallar um notagildi sál-
greiningar og hvað greinir hana frá
annarri viðtalsmeðferð.
Sæunn Kjartansdóttir lauk rétt-
indaprófi í sálgreiningu frá Arbours
Association í London 1992.
ANTARES VE kom með fullfermi af
loðnu í Krossanes í gærmorgun, um
1.000 tonn, og er þetta fyrsta loðnan
sem berst til Akureyrar undanfarinn
hálfan mánuð. Áður höfðu borist
14.600 tonn á land í Krossanesi á vetr-
arvertíðinni. Júpíter ÞH kom með full-
fermi í Krossanes í gærkvöld, 1.200–
1.300 tonn. Þar með hafa borist um
17.000 tonn af loðnu í Krossanes en
undanfarin ár hafa borist þangað um
20.000 tonn á vetrarvertíð. Skipin voru
að fá afla sinn út af Vestfjörðum og
gerir Hilmar Steinarsson, verksmiðju-
stjóri í Krossanesi, sér vonir um að ver-
tíðin eigi eftir að standa eitthvað leng-
ur fram á veturinn.
Loksins
loðna í
Krossanes
Morgunblaðið/Kristján
Löndun Antares VE kom með fullfermi af loðnu í Krossanes í gærmorgun, alls um 1.000 tonn.
AKUREYRI
Aðalskipulag | Á fundi umhverf-
isráðs var tekið fyrir erindi frá
Herði Blöndal hafnarstjóra, f.h.
Hafnasamlags Norðurlands, þar
sem hann telur að tvö markmið Að-
alskipulags Akureyrar 1998–2018
fyrir Akureyrarhöfn stangist á og
annað markmiðið verði að víkja fyrir
hinu. Annað markmiðið snertir at-
vinnuuppbyggingu á Akureyri. Hitt
snertir varðveislu svæðis, óljóst í
hvaða tilgangi en sennilega til úti-
vistar, þrátt fyrir mikla annmarka
bæði hvað varðar aðgengi að svæð-
inu og eins vegna „mengunar“ frá
holræsakerfi bæjarins og fyrri starf-
semi. Óskar hafnarstjóri eftir skýrri
niðurstöðu umhverfisráðs í þessu
máli og að Aðalskipulagi fyrir Ak-
ureyri 1998–2018 verði breytt til
samræmis við þá niðurstöðu.
Auglýst eftir styrkjum úr
Menningar- og viðurkenningasjóði KEA svf.
Kaupfélag Eyfirðinga svf. auglýsir eftir styrkumsóknum úr Menningar- og
viðurkenningasjóði félagsins. Styrkúthlutun verður kynnt á aðalfundi fé-
lagsins 30. apríl 2005. Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til þriggja þátta:
a) Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á fé-
lagssvæði KEA. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista
og íþrótta og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri
merkingu.
b) Ungra afreksmanna á sviði mennta, lista og íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök af-
rek t.d. á sviði björgunarmála. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára
og búsettir á félagssvæði KEA.
c) Þátttökuverkefna á sviði menningarmála á félagssvæði KEA.
Sérstök athygli skal vakin á því að styrkir til þátttökuverkefna eru einungis veittir einu
sinni á ári og eru þeir ætlaðir til stærri verkefna á félagssvæði KEA.
Styrkir eru veittir tvisvar á ári úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA svf.
Fagráð fjallar um umsóknir eða fyrirliggjandi hugmyndir samstarfsaðila og gerir tillögur til stjórn-
ar um val á verkefnum.
Að auki stendur til að KEA veiti sérstaklega nokkra styrki til íþróttamála. Íþróttafélög og foreldra-
félög eru hvött til þess að koma á framfæri umsóknum um styrki sem geta fallið utan við þær
skilgreiningar sem Menningar- og viðurkenningasjóður úthlutar eftir.
Umsóknir um styrki og framlög úr sjóðnum skulu berast skrifstofu KEA í Hafnarstræti 91-95 á
Akureyri á sérstökum eyðublöðum, sem þar eru til afhendingar. Einnig er unnt að nálgast um-
sóknareyðublað og fá allar upplýsingar um Menningar- og viðurkenningasjóð KEA svf. á heima-
síðu KEA - www.kea.is
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2005.