Morgunblaðið - 02.03.2005, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 02.03.2005, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 21 UMRÆÐAN NOKKRAR umræður hafa orðið um styttingu náms til stúdentsprófs. Ýmsir rektorar og skólameistarar í framhaldsskólum létu í ljós í Morg- unblaðinu 26. jan. sl. miklar efasemd- ir um fyrirhugaða styttingu námsins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra svaraði þeim í blaðinu 27. jan. Morgunblaðið hvatti til þess næsta dag, að tekið yrði mark á gagnrýni skólamann- anna. Þung ábyrgð hvílir á þeim, sem eiga að marka stefnu í mennta- málum þjóðarinnar. Menn geta ekki leyft sér pólitískan boltaleik í þeim efnum, þar sem menn skiptast í tvo hópa. Málefni þetta er miklu brýnna en svo. Hafa ber hér í huga, að sagan mun dæma menn af ákvörðunum sínum í svo mik- ilvægum málum. Menningar- og uppeldishlutverk skóla skiptir sköpum um framtíð- arhag okkar. Það mun skera úr um, hvernig okkur Íslendingum mun farnast í sífellt harðnandi alþjóðlegri samkeppni. Skólar eru reknir vegna framtíðarhagsmuna þjóðarinnar, ekki vegna kennaranna, þótt nauð- synlegt sé, að þeir séu vel menntaðir. Skilningur á þessu hefur því miður oft verið heldur daufur. Mikilvægt er, að stefna í mennta- málum sé menningarleg og að menn setji sér háleit markmið. Þetta var gert í tíð Björns Bjarnasonar, fyrrv. menntamálráðherra. Stefna ráðu- neytisins, eins og hún var þá, kemur skýrt fram í ritinu Enn betri skóli (1998) og Aðalnámskrá framhalds- skóla (1999), bæði í almenna hlut- anum og í heftum fyrir einstakar greinar. Þessi rit eru aðgengileg á Netinu. Menntamálaráðuneytið hefur m.a. gefið út þrjú rit um fyrrnefnda stytt- ingu, en þau eru: Skýrsla um stytt- ingu námstíma til stúdentsprófs, ágúst 2003, Áfangaskýrsla um sama efni, desember 2003, og Breytt námsskipan til stúdentsprófs, – auk- in samfella í skólastarfi, ágúst 2004. Hið síðastnefnda rit er þeirra efn- ismest, og það verður hér eftir nefnt: Breytt námsskipan. Þessi rit eru einnig aðgengileg á Netinu. Þeir sem hafa áhuga á skólamálum ættu að bera saman stefnu í menningar- og menntamálum í Enn betri skóla og Breyttri námsskipan. Og ef menn láta sig móð- urmálskennslu ein- hverju varða, er fróð- legt að bera saman stefnuna í Enn betri skóla, 30.–32. bls. og í Breyttri námsskipan, 24. bls. Í Enn betri skóla segir m.a.: „Móð- urmálið einkennir stór- an hluta menningar- arfsins. Því telst þekking á móðurmálinu, eðli þess, sögu og sérkennum, nauðsynlegur þáttur í almennri menntun. … Fjallað er um þau menningarlegu verðmæti sem felast í móðurmálinu og þeim bókmenntum sem hafa verið skrifaðar á því. … Mikilvægt er að nemendur öðlist skilning á sögulegu, menningarlegu og félagslegu gildi máls og bókmennta.“ Stefnan er allt önnur í Breyttri námsskipan. Þar er hvergi minnst á menningararf, menningarleg verð- mæti eða menningu yfirleitt. Hins vegar eru boðaðar nýjar áherslur: „Breyta þarf áherslum í íslensku þannig að aukin áhersla verði lögð á ritun og leikni nemenda í málinu, s.s. málfar og munnlega færni. Aukna áherslu þarf að leggja á þátt ritunar og tjáningar en minni á bókmennta- sögu. … Markmiðið með áherslu- breytingunum er að auka málvitund nemenda, bæta stafsetningu og hæfni í að tjá sig í ræðu og riti. … Haft verði að leiðarljósi að farið verði yfir fleiri bókmenntaverk en nú er gert, bókmenntir kynntar en minni áhersla lögð á bókmenntafræði.“ – Menn geta kannað þetta í heild á Netinu. Mikil breyting er fyrirhuguð á ís- lenskukennslu, og margt er þar óskynsamlegt. Hér yrði að mörgu leyti illa farið með tímann, og þetta gæti valdið ómannúðlegri meðferð á ungmennum. Nánar verður vikið að þessu síðar, ef ég fæ tóm til. – Það yrði alvarlegt slys í menntamálum, ef menn hætta að leggja áherslu á menningar- og bókmenntasögu þjóð- arinnar. Þá ætti að leggja minni áherslu á eddukvæði og Egil, forn- sögur, Hallgrím, Fjölnismenn og Verðandimenn. – Undirstöðuatriði í bókmenntafræði eru og ómissandi, ef fjallað er um bókmenntir á sæmilega vitrænan hátt. En þess verður kannski ekki þörf í framtíðinni! Ég gagnrýndi í greinum í Morg- unblaðinu 16. og 17. jan. 2004 þau rök, sem ráðuneytið hafði þá fært fyrir styttingu námsins, og ég gerði einnig athugasemdir við sumt í fyrstu skýrslunni. – Hér verða tekin fyrir þau rök, sem síðar hafa verið færð fyrir styttingu námsins. Sýnt verður, hvað kemur fram um þetta í gögnum málsins, en lesendur geta svo sjálfir myndað sér skoðun um það. Um þetta verður fjallað í nokkr- um greinum, sem ég hef beðið Morg- unblaðið að birta. Snorri Sturluson segir um Óðin í Ynglingasögu í Heimskringlu: „Gaf hann … sumum sigur, en sumum bauð hann til sín. Þótti hvortveggi kostur góður.“ – Nú eru dökkar horf- ur í framhaldsskólum. Sumir kenn- arar verða látnir hætta, en aðrir fá að starfa eftir Breyttri námsskipan. Vart er hægt að segja, að þar sé hvor tveggja kosturinn góður! – Og kannski verður það fljótlega talið úr- elt og gamaldags að vitna til Snorra, því að nú á að leggja minni áherslu í skólum á bókmenntasögu og bók- menntafræði. Yfirlýst markmið er einkum það að auka málvitund nem- enda! Hér má með sanni segja: Ekki er öll vitleysan eins! Breytt námsskipan Ólafur Oddsson fjallar um nám ’Mikilvægt er, að stefnaí menntamálum sé menningarleg og að menn setji sér háleit markmið. ‘ Ólafur Oddsson Höfundur er kennari og íslenskufræðingur. MIKIÐ er núna rætt og ritað um hvernig fjármagnið vegna sölu Símans væri best nýtt. Hvaða fjárfesting myndi skila þjóðinni mestum arði? Ég tel að stytting þjóðvegarins á milli Norður- og Suðurlands væri ein hagkvæmasta fjárfesting sem unnt er að fara í. Stytting um 82 kílómetra á milli Akureyrar og Reykjavíkur er svo þjóðhagslega hagkvæm að það er í raun alveg furðulegt að hún skuli ekki vera komin á dagskrá í meiri mæli en raun er á. Nokkrir þingmenn, með Halldór Blöndal í fararbroddi, hafa kynnt svipaðar til- lögur og í farvatninu er stofnun einka- hlutafélags sem byggði og ræki slíkan veg. Kostnaðurinn við fullbúinn veg með brúarmannvirkjum og öllu tilheyrandi er u.þ.b. 6 milljarðar króna. Ársumferðin á milli landshlutanna er u.þ.b. 330 þúsund bifreiðir. Fjárfestingin sem einkarekinn hálend- isvegur er hagkvæm eins og kemur fram í fylgiskjali með þings- ályktunartillögu Halldórs Blöndal og fleiri um Norðurveg. Þjóðhagslegan sparnað mætti einnig reikna út frá spör- uðum mínútum margfaldað með áætluðum farþega- fjölda og setja það í samhengi við verga landsframleiðslu (VLF) á mann til þess að sjá hvað tímasparnaðurinn er fljótur að borga upp fjárfestinguna. Ef við áætlum tvo farþega að meðaltali í hverri bifreið kemur í ljós að VLF vegna tímasparnaðarins eingöngu borgar veginn upp á sex árum og níu mánuðum. Úrtölumenn segja að vegurinn yrði ekki fær nema nokkra mánuði á ári og því myndi þetta vera arfa- vitlaust dæmi. Það er ekki svo. Umferðarmagnið sem tekið er til útreikninga hér að framan er árs- umferð og raunin með hana er sú að u.þ.b. 80% af ársumferðinni fer fram þá átta mánuði ársins sem allir vegir landsins eru færir. Þannig að jafnvel þótt loka yrði þessum vegi snjóþyngstu mánuði ársins þá borgaði hann sig upp á rúmum átta árum. Slíkar fjárfest- ingar í samgöngumannvirkjum eru vandfundnar. Þeir uppbyggðu há- lendisvegir sem Landsvirkjun hef- ur byggt á undanförnum árum sanna einnig að hægt væri að halda þessum vegi opnum allt árið án mikils tilkostnaðar. Það er auðvitað miklu fleira sem myndi vinnast með lagningu þessa hálendisvegar. Tökum t.d. hug- myndina um að tvöfalda göngin undir Hvalfjörð sem að óbreyttu væri þörf á vegna umferðaraukn- ingar næstu árin. Þessi hálend- isvegur gerði þá fjárfestingu, sem áætluð er um 3 milljarðar, óþarfa eða myndi a.m.k. fresta henni um tuttugu ár miðað við spár um um- ferðaraukningu næstu árin. Mannvirki sem hugmyndir eru uppi um að þurfi að byggja vegna umferðar norður og vestur um land út úr Reykjavík myndu að sama skapi frestast um tugi ára. Þar eru gríðarmikil og kostn- aðarsöm mannvirki eins og þverun Kollafjarðar og tengi- og umferð- armannvirki upp á tugi milljarða króna. Sparnaðurinn við frestun á framantöldum umferðarmann- virkjum, miðað við 3,5% vexti, væri fyrsta árið hátt í 700 millj- ónir króna. Frestun á byggingu þessara mannvirkja myndi því greiða upp hálendisveginn á 8–9 árum. Flutningar vöru og þjónustu á milli landshluta yrðu ódýrari. Ferðaþjónustan nyti góðs af. Uppsveitir Borgarfjarðar yrðu innan við klukku- stundarakstur frá Reykjavík með nýjum vegatengingum við þennan hálendisveg. Nýir möguleikar til útivistar opnast. Um- ferðarslysum myndi fækka og þannig mætti áfram telja. Náttúruvernd- arsinnar hafa sumir haft uppi efasemdir um að þarna væri ver- ið að rjúfa öræfa- kyrrðina og eyðileggja ásýnd landsins. Rétt er að vegurinn liggur um ósnortið og fallegt land ofan Borg- arfjarðar og um sunn- anverða Arnarvatns- heiði sem og um þjóðargersemi okkar Þingvelli. Ég er hins vegar ekki í nokkrum vafa um að unnt væri að leggja þennan veg á þann hátt að sem minnst röskun væri að. Vegagerðin hefur sýnt að henni er treystandi fyrir því að leggja veg um fallega náttúru svo vel fari þar sem er Vatnaleiðin á Snæfells- nesi. Á meðfylgjandi mynd er hugs- anleg lega vegarins sýnd. Tveir möguleikar eru varðandi upphaf hans frá Suðurlandi; annars vegar upp frá Þingvöllum og hins vegar, ef menn vilja hlífa Þingvallasvæð- inu fyrir svo mikilli umferð, að fara frá gatnamótum Kjós- arskarðsvegar og Þingvallavegar yfir hálendið um Gagnheiði vestan Ármannsfells og síðan sem leið liggur á Uxahryggi og Kaldadal, þaðan austur fyrir Strút og yfir Norðlingafljót á nýrri brú, og austur yfir sunnanverða Arn- arvatnsheiði og áfram austur yfir Stórasand, fyrir sunnan Blöndulón á nýrri brú yfir Blöndu og um Gil- hagadal yfir Eystri-Jökulsá fyrir neðan Villinganes á nýrri brú og kemur inn á nýjan veg á hringveg- inum fyrir neðan Kjálka í Aust- urdal, á móts við Silfrastaðafjall í Skagafirði. Hálendisvegur er skynsamleg fjárfesting Geir Thorsteinsson telur að fjármagnið sem fæst vegna sölu Símans væri best nýtt í hálendisvegi Geir Thorsteinsson ’Stytting um 82kílómetra á milli Akureyrar og Reykjavíkur er svo þjóðhags- lega hagkvæm að það er í raun alveg furðulegt að hún skuli ekki vera komin á dagskrá í meiri mæli en raun er á. ‘ Höfundur er viðskiptafræðingur. Guðmundur Hafsteinsson: „Langbesti kosturinn í stöð- unni er að láta TR ganga inn í LHÍ og þar verði höfuðstaður framhalds- og háskólanáms í tónlist í landinu.“ Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég er ein af þeim sem heyrðu ekki bankið þegar vágesturinn kom í heimsókn.“ Vilhjálmur Eyþórsson: „For- ystumennirnir eru undantekn- ingarlítið menntamenn og af góðu fólki komnir eins og allir þeir, sem gerast fjöldamorð- ingjar af hugsjón. Afleiðingar þessarar auglýsingar gætu því komið á óvart.“ Jakob Björnsson: „Mann- kynið þarf fremur á leiðsögn að halda í þeirri list að þola góða daga en á helvítisprédikunum á valdi óttans eins og á galdra- brennuöldinni.“ Jakob Björnsson: „Það á að fella niður með öllu aðkomu forsetans að löggjafarstarfi.“ Ólafur F. Magnússon: „Ljóst er að án þeirrar hörðu rimmu og víðtæku umræðu í þjóð- félaginu sem varð kringum undirskriftasöfnun Umhverf- isvina hefði Eyjabökkum verið sökkt.“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir: „Viljum við að áherslan sé á „gömlu og góðu“ kennsluað- ferðirnar? Eða viljum við að námið reyni á og þjálfi sjálf- stæð vinnubrögð og sjálfstæða hugsun?“ Bergþór Gunnlaugsson: „Ég hvet alla sjómenn og útgerð- armenn til að lesa sjó- mannalögin, vinnulöggjöfina og kjarasamningana.“ Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar NÝLEGA sá ég gamla franska kvikmynd sem fjallar um tvö börn í litlu þorpi þar sem hver dagurinn er öðrum líkur. Það sem helst verður til að rjúfa ögn hversdag- inn hjá krökkunum eru heimilis- erjur, vaknandi náttúra unglinga og – jarðarfarir. Ekki síst þetta síðastnefnda, þegar nær allir í þorpinu fara í sparifötin og safn- ast saman í vel hirtum kirkjugarð- inum. Fátt þótti börnunum áhuga- verðari afþreying Í okkar menningarkima eru jarðarfarir almennt ekki séð til af- þreyingar eða skemmtunar, þó að kannski kunni að koma fyrir að einhverjum sé léttara undir niðri yfir því að karlsauðurinn – eða kerlingarhrotan – skuli loksins hafa geispað golunni. Sem betur fer er það þó frekar undantekning en regla. Þó má finna einn ljósan punkt við flestar jarðarfarir. Það er vinafagnaðurinn sem tíðkast að snúa sér að þegar rekunum hefur verið kastað, oftast kallaður erfidrykkja. Þar hittast gjarnan gamlir kunningjar og/eða frændfólk sem hefur ekki sést árum saman, jafnvel ekki síðan við síðustu jarðarför einhvers úr sameiginlega kunningjahópnum eða frændgarðinum. Þó hinn látni/a hefði sjálfsagt viljað hitta þennan prúðbúna hóp kunningja og vina í lifanda lífi má ganga að því nokkuð vísu að hon- um/henni þyki af sínum sjónarhóli handan heima ánægjulegt að vita af öllu þessu fólki njóta samfunda af þessu gefna tilefni. Hitt er annað mál að veitingar við þetta tækifæri eru komnar langt út í öfgar. Gegndarlaus íburður í kræsingum af öllu tagi, sem sífellt verður meiri og meiri, virðist vera orðinn meginregla. Megatertur og kúfskreytt brauð, jafnvel heitir réttir! Brottför hins látna hlýtur að hafa verið orðin mjög aðkallandi ef ástæða er til að fagna henni með þvílíkri orgíu! Höldum endilega áfram að hitt- ast og heilsast og eiga stund sam- an þegar við fylgjum gengnum vini til grafar. Samfundirnir sem slíkir eru verðugt markmið. En er ekki kominn tími til að hafa máta á veitingunum? Erum við ekki alveg jafnsæl, og er horfnum vini ekki alveg jafnmikill sómi sýndur, þó að við nörtum bara í vínarbrauð eða snúð með kaffinu í erfidrykkju hans? Eftir Sigurð Hreiðar Hreiðarsson Gegndarlaus íburð- ur í erfidrykkjum Höfundur er blaðamaður. flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.