Morgunblaðið - 02.03.2005, Page 29

Morgunblaðið - 02.03.2005, Page 29
enginn var að leika við dró hún fram spilin og við spiluðum hverja lönguvitleysuna á fætur annarri. Þegar amma lét klippa fléttuna fengu liðirnir í hárinu að njóta sín. Hún varð langamma barna okkar, eða langa eins og hún kallaði sig og hafði gaman af, því hún var ekki hávaxin. Amma tók ávallt vel á móti okkur þegar við litum inn til hennar, það var hellt upp á kaffi, borið fram brauð og spjall- að. Það er komið að kveðjustund, en minningarnar og lopapeysurn- ar ylja okkur enn, innilegar þakk- ir amma. Andrea og Jana. Föðursystir mín Katrín Krist- jánsdóttir lézt fyrir nokkrum dög- um, 98 ára að aldri. Hún hafði bú- ið á Akureyri í meira en hálfa öld, en var fædd í Eyvík á Tjörnesi og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Fjórtán ára missti Katrín föður sinn og eftir það bjuggu hún, systkini hennar og móðir í skjóli foreldra minna. Hér man ég fyrst eftir henni, fallegri ungri stúlku glaðværri og sístarfandi. Sú mynd hvarf mér aldrei. Ekki er fráleitt að mér fyndist hún vera eldri systir mín, þó að aldursmunurinn væri allmikill. Þessi bróðurtilfinn- ing mín kom til af því, að hún lét sér annt um tilveru mína, þó að hún gerði sér ekki mannamun og kæmi eins fram við smáa og stóra. Hún var blátt áfram í viðmóti, hreinskilin og réttlát. Þannig áttu systur að vera við yngri bræður og ekki öðruvísi. Katrín var þá þegar orðin eins og hún var alla ævi. Hún var eftirlæti fjölskyld- unnar nær og fjær fyrir mann- kosti sína og framkomu. Á þessum árum var hún eitt- hvað að heiman til að sjá sig um og kynnast annarra háttum. En um eða rétt fyrir 1930 gerðist hún ráðskona við Héraðsskólann að Laugum í Reykjadal og var þar mörg ár. Þar var ég aftur um tíma undir verndarvæng hennar smá- strákur, að læra að synda, og það voru mikil forréttindi. Bæði Arnór Sigurjónsson sagn- fræðingur og Leifur Ásgeirsson stærðfræðingur, sem voru skóla- stjórar Laugaskóla á þeim árum, þegar Katrín var þar, hafa lýst því fyrir mér óaðspurðir hvílík starfs- kona hún var: grandvör, röggsöm, hreinskiptin, samvinnuþýð og vin- sæl af námsfólkinu. Það þurfti reyndar ekki að segja neinum sem þekkti hana. Katrín var viðkvæm kona, maður fann alltaf vilja henn- ar að skilja aðra, þegar maður átti tal við hana, en líka festu hennar og ákveðnar skoðanir. Árið 1935 giftist Katrín Erlingi Davíðssyni búfræðingi, síðar rit- stjóra og rithöfundi. Frá 1939 ráku þau ræktunarstöð í Klauf og Brúnalaug í Eyjafirði í mörg ár. Þar fékk ég enn athvarf hjá frænku minni, í þetta sinn til að lesa undir stúdentspróf, allfjarri glaumi Akureyrar. Líkt og ég hafði forðum verið leikbróðir Katrínar, var leikbróðir minn nú í hléum frá lestrinum elzti sonur hennar Davíð – Davíð Erlingsson dósent. Katrín Kristjánsdóttir var fal- leg kona, kvik og ungleg í hreyf- ingum fram á efstu ár, viðmót hennar glaðvært og heillandi, per- sónuleiki hennar einkennilega tær. Ef ég ætti að nefna það sem mér var hugstæðast við hana voru það heilindi hennar. Ein vinkona hennar sagði einu sinni við mig: Katrín hefur svo mikinn stíl. Vissulega hafði hún stíl, því að hún var svo samkvæm sjálfri sér, en það var ekki þjálfaður stíll. Stíll hennar var sá stíll sem kem- ur að innan og heitir ekki neitt og verður ekki lærður. Áður fyrr, að minnsta kosti, var talað með virðingu um það ef fólk „lézt í hárri elli“. Ég skal ekki reyna að skilgreina nákvæmlega þá merkingu sem lögð var í þetta orðalag. En Katrín Kristjánsdótt- ir var persónuleiki sem átti mikla virðingu skilið. Kristján Karlsson. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 29 MINNINGAR Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐNÝ MÁLFRÍÐUR PÁLSDÓTTIR húsmóðir, Kópavogi, sem andaðist á heimili sínu fimmtudaginn 17. febrúar, verður jarðsungin frá Digranes- kirkju í dag, miðvikudaginn 2. mars, kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast hinnar látnu, vinsamlegast láti líknarstofnanir njóta þess. Páll Hjaltason, Sigríður Björg Sigurjónsdóttir, Pjetur G. Hjaltason, Ella Þórhallsdóttir, Sigurður Elías Hjaltason, Ingrid Nesbitt, Eiríkur Hjaltason, Elín Sigríður Jónsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HERSTEINN PÁLSSON fv. ritstjóri, Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi, sem lést á heimili sínu mánudaginn 21. febrú- ar, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 3. mars kl. 15.00. Margrét Ásgeirsdóttir, Inga Hersteinsdóttir, Páll Hersteinsson, Ástríður Pálsdóttir, Anna Margrét Kornelíusdóttir, Sigmundur Kornelíusson, Hersteinn Pálsson, Páll Ragnar Pálsson. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, LILJU KOLBRÚNAR STEINDÓRSDÓTTUR, Varmalandi, Laugarbakka. Trausti Björnsson, Dóra Kristín Traustadóttir, Björn Líndal Traustason, Guðrún Elín Benónýsdóttir, Björn Líndal Traustason, Ásdís Írena Sigurðardóttir, Gestur Benediktsson, Steinar Trausti Jónsson, Steinar Hrafn Björnsson, Benóný Þór Björnsson, Kolbrún Arna Björnsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, PÁLÍNA BIRNA GUÐVARÐARDÓTTIR frá Syðri-Brekkum í Skagafirði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardagskvöldið 26. febrúar, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 4. mars kl. 13. Gunnar Halldórsson, Jónas G. Halldórsson, Magnea S. Jónsdóttir, Guðvarður B. Halldórsson, Stefanía Ása Ásgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, sonur, tengdasonur, afi og bróðir, GESTUR ÞÓRARINSSON, Urðarbraut 4, Blönduósi, sem lést laugardaginn 19. febrúar, verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju laugardaginn 5. mars kl. 14:00. Ragnhildur Helgadóttir, Helgi Sigurður Gestsson, Kristjana Björk Gestsdóttir, Steingrímur Kristinsson, Þórarinn Almar Gestsson, Helga Kristín Gestsdóttir, Hlynur Guðmundsson, Þórarinn Þorleifsson, Helga Sigríður Lárusdóttir, afabörn og systkini hins látna. Þökkum innilega samúð, vinarhug og góðar kveðjur vegna andláts og útfarar móður okkar, STEINUNNAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs í Hafnarfirði fyrir frábæra umönnun og vináttu. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Guðmundur Magnús Guðmundsson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRARINN BRYNJÓLFSSON vélstjóri, Þverbrekku 4, Kópavogi, verður jarðsunginn föstudaginn 4. mars kl. 13:00. Athöfnin fer fram í Fossvogskirkju. Sigurdís Þóra Þórarinsdóttir, Karl Einarsson, Guðrún Þórarna Þórarinsdóttir, Eva Þórarinsdóttir, Hafliði Magnússon, Ásta Þórarinsdóttir, Eiríkur Jensson, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku Sindri Snær. Nú er komið að kveðjustund. Eins og kveðjustundir eru yfirleitt erfiðar þá er þessi kveðjustund sú erfiðasta sem við hér á Bergstaðastrætinu höf- um þurft að upplifa. Það snertir alla sem af heyra þegar manneskjur hverfa skyndilega af sjónarsviðinu þegar lífshlaupið er rétt að hefjast. En hjörtu okkar eru harmi slegin þegar lífið býður okkur að kynnast slíkum persónuleika sem þú geymir og að skilja síðan við hann eft- ir stutt viðkynni. Við hittumst aldrei öðruvísi en svo að þú værir kátur og brosandi. Og ef svo vildi til að brosið véki af vörum þínum í augnablik þá var það ekkert mál að framkalla það á nýjan leik. Örlæti á bros er stórkost- lega vanmetið og þú hefur veitt þeim sem þér kynntust eitthvað ómetan- legt. Eitthvað vorum við að hugsa um það að okkur auðnaðist ekki að smella af þér nóg af myndum á þessum stutta tíma sem við áttum saman. En eitt er víst að við geymum myndir í huga okkar af öllum þeim skiptum sem við hittumst á jörðinni, skýrar og greinilegar af þér brosandi og hlæj- andi, skríðandi, gangandi og borðandi og að sjálfsögðu gefandi af þér. Foreldrar þínir eru lánsöm þrátt fyrir allt að hafa kynnst þér best. Þeim óska ég á þessari stundu að þau haldi áfram að sýna þann styrk sem er þeirra einkenni og öll munum við saman halda minningu þinni á lofti um ókomna tíð, kæri Sindri Snær. Albert og Jórunn. Elsku Steini og Hördís. Það var í janúar sem þið komuð í sunnudagskaffi til okkar. Sindri Snær fór hér um á tveimur jafnfljótum, ánægður með að geta loksins hlaupið um og tekið þátt í leikjum „stóru SINDRI SNÆR ÞORSTEINSSON ✝ Sindri Snær Þor-steinsson fæddist á Hvidovre Hospital í Kaupmannahöfn 27. janúar 2004 og flutt- ist til Íslands rúm- lega mánaðar gam- all. Hann lést á heimili sínu, Rauða- læk 52 í Reykjavík, 30. janúar síðastlið- inn og var jarðsung- inn frá Laugarnes- kirkju 10. febrúar. strákanna“. Hann skildi að vísu ekki alveg hvernig reglurnar voru í „barnabíóinu“ sem sett var af stað þegar ærslin höfðu náð hámarki og varð mjög sáttur við að komast í öruggan faðm mömmu sinnar. Hún sat líka við kaffiborðið, Sindra Snæ til mikillar ánægju. Elsku Hjördís og Steini, þetta sunnu- dagskaffi með ykkur er nú meðal kærustu minninga okkar. Guð verði með ykkur og fjölskyldum ykkar í sorginni. Með einlægum samúðarkveðjum, Elmar Freyr, Karin Erna og Tómas Geir. Ég minnist þess að rumska á morgnana við hjólagrindina þína sem þú þeyttist í fram og til baka á efri hæðinni. Þá fannst mér auðvelt að rífa mig fram úr rúminu því ég vissi að þú varst mættur í pössun til ömmu. Svo þegar ég kom upp þurfti ekki að spyrja að því að þú varst skælbros- andi og alltaf jafn ánægður að sjá mann. Fallega brosið þitt varð til þess að ég brosti á móti og leið vel, sama hvað var í gangi í mínu lífi. Þú varst reyndar ekki lengi að losa þig við þessa hjólagrind og varst farinn að hlaupa út um allt. Þá varstu meira að segja farinn að opna og loka dyrum, en þó kannski aðallega loka þeim þar sem þú náðir nú ekki alveg upp í hurð- arhúninn til að opna þær aftur. Stundum sátum við líka saman á gólf- inu í rólegheitunum og flettum bókum eins og bókinni um hann Snúð sem var í miklu uppáhaldi hjá þér. Ég er svo þakklátur fyrir þær stundir sem við áttum saman meðan þú varst hér hjá okkur. Það var ótrúlegt hvað þér tókst alltaf að lýsa upp þennan gráa hvers- dagsleika með nærveru þinni. Þótt þú sért nú farinn af þessum stað tekst þér ennþá að gleðja mig með minn- ingunni um þig sem gleymist aldrei. Það er oft sárt að minnast þín en ég brosi líka í gegnum tárin og í öllum minningum mínum brosir þú á móti. Ég veit að þú heldur áfram að skína og gleðja alla í kringum þig á nýja staðnum. Níels frændi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.