Morgunblaðið - 02.03.2005, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 33
DAGBÓK
Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins ogMiðstöð heilsuverndar barna standaað námstefnu um skimun og snemm-greiningu einhverfu sem haldin verður
í Gullteigi á Grand hóteli föstudaginn 4. mars kl.
9–16. Námstefnan fer fram á ensku og íslensku
og stendur túlkaþjónusta gestum til boða. Aðal-
fyrirlesari verður dr. Tony Charman, sérfræð-
ingur í þroska barna og einhverfu, frá Institute
of Cognitive Neuroscience í London. Hópur sér-
fræðinga í Bretlandi hefur síðastliðin tíu ár unn-
ið að rannsóknum á því hvort mögulegt sé að
greina einhverfu fyrir tveggja ára aldur og
hversu áreiðanleg slík greining reynist. Dr.
Charman fjallar um þessar rannsóknir, fyrstu
merki um einhverfu hjá ungum börnum sem og
þær miklu framfarir sem orðið hafa í greiningu
á einhverfu barna á aldrinum 18–24 mánaða.
Evald Sæmundsen, sviðstjóri fagsviðs ein-
hverfu á Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins,
segir frá fjölgun greindra tilfella einhverfu á Ís-
landi og tengir fjölgunina við greiningaraldur.
„Árið 1992 greindust þrjú börn með einhverfu
og skyldar raskanir, en árið 2004 voru þau 37. Í
dag megum við búast við um 25 börnum í ár-
gangi í stað eins til tveggja fyrir 1990. Aldur við
greiningu segir eitthvað til um hvernig gengur
að finna börnin. Þannig voru um 20% barnanna í
árgöngunum 1994–1998 á grunnskólaaldri þegar
þau greindust. Það hlutfall lítur ekki illa út við
fyrstu sýn, þar sem þá er verið að bregðast til-
tölulega snemma við fötluninni hjá stærstum
hluta hópsins. Vondu fréttirnar eru hins vegar
þær að í þessum sömu árgöngum eru 38 börn á
grunnskólaaldri á biðlista hjá Greiningarstöð.
Það er því ennþá allt of stór hópur sem upp-
götvast ekki fyrr en á grunnskólaárunum eða
eldri. Þessi vitneskja þarf að vera okkur hvatn-
ing til að gera mun betur.“
Dr. Gyða Haraldsdóttir, sérfræðingur í fötl-
unum barna, heldur einnig tölu á námstefnunni
og fjallar um uppruna tilvísana vegna gruns um
einhverfu til Miðstöðvar heilsuverndar barna
síðastliðin sex ár.
„Rannsóknirnar sem dr. Charman mun fjalla
um hafa sýnt fram á að greining einhverfu hjá
börnum á aldrinum 2–3 ára er býsna stöðug og
það réttlætir meðal annars tilraunir til skimunar
á unga aldri. Dr. Charman veltir þó fyrir sér
hversu álitleg slík skimun er í ljósi þess hve erf-
itt sé að finn væg tilfelli einhverfu á þessum
aldri. Það er vísbending um að frekari rann-
sóknir og þróun þessara tækja sé nauðsynleg,“
segir Evald.
Námstefna | Skimun og snemmgreining einhverfu
Hægt að greina einhverfu fyrr
Evald Sæmundsen er
fæddur á Blönduósi árið
1948. Hann er sálfræð-
ingur og sérfræðingur í
fötlunum barna en
menntun sína fékk
hann á Íslandi, í Frakk-
landi og Hollandi þar
sem hann nam tauga-
sálfræði barna. Evald
hefur starfað á Grein-
ingar- og ráðgjafastöð
ríkisins frá 1986 en þar er hann sviðsstjóri
fagsviðs einhverfu og málhamlana. Hann var
ráðgefandi sérfræðingur við barnadeild
Landakotsspítala á annan áratug og kenndi
klíníska barnasálfræði við HÍ í tvo áratugi.
Evald er giftur Sigríði Hauksdóttur, kerf-
isfræðingi hjá Libra, og þau eiga saman tvo
drengi.
Prentsverta, Laugavegur
og Þjóðleikhús
ÉG vil koma á framfæri fyrirspurn til
Morgunblaðisns hvort ekki hægt sé
að bæta prentsvertuna í Morg-
unblaðinu sem virðist þorna seint og
illa. Maður verður kolsvartur á hönd-
unum um leið og farið er að hand-
fjatla blaðið. Finnst mér þetta hvim-
leitt og vil ekki þurfa að hætta að
kaupa blaðið vegna þessa en ég hef
verið áskrifandi alla tíð.
Eins langar mig að minnast á
Laugaveginn, en ég er alfarið á móti
því að húsin á Laugaveginum séu rif-
in, ég vil að þau séu gerð upp. Svona
aðgerðir eru ekki aftur teknar. Mér
finnst þetta helgast af peningagræðgi
en það er ekki víst að það verði meira
verslað þarna þó að húsin verði
stærri.
Að lokum vil ég koma því á fram-
færi að mér finnst mjög óskyn-
samlegt af Tinnu þjóðleikhússtjóra að
segja upp leikurunum. Finnst að hún
þurfi að hugsa sinn gang. Varð fyrir
vonbrigðum með hana þegar ég
heyrði þetta.
Bryndís Jónasdóttir.
Aftur stendur Morgunblaðið
ÉG sá bréf og mynd um daginn þar
sem sagði og sýndi frá því að Morg-
unblaðið stæði vel. Varð ég því nokk-
uð undrandi þegar blaðið barst mér
nýlega og tók ég þá meðfylgjandi
mynd.
Datt mér þá í hug að þetta væri
kanski ný útburðartækni hjá blaðber-
um blaðsins.
Lifið heil.
Heiða Erlendsdóttir.
Jörundur hunda-
dagakonungur
ER einhver sem veit hvar hægt er að
fá einhverja bæklinga eða bækur um
Jörund hundadagakonung á erlendu
tungumáli, t.d. ensku. Þeir sem gætu
gefið mér upplýsingar vinsamlega
hafi samband við Helgu í síma
661 7949.
Svört handtaska
týndist á Ellefunni
HANDTASKA úr leðri týndist á Ell-
efunni við Smiðjustíg sl. laugardags-
nótt. Í töskunni voru seðlaveski, gsm-
sími, lyklar, jakki, loðkragi, húfa, leð-
urhanskar og smádót. Skilvís
finnandi vinsamlega hafi samband í
síma 863-3499. Fundarlaun í boði.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
NÝTT þverpólitískt
félag ungs fólks um
bætta áfengismenn-
ingu verður stofnað í
Iðnó í dag kl. 12, en að
því stendur fjöldi fólks
úr öllum áttum ís-
lenskra stjórnmála.
Nokkrir af þeim ungu
þingmönnum sem
standa að frumvarpi
um lækkun áfeng-
isgjalds og afnám
einkasölu á bjór og
léttu víni munu
ávarpa fundinn og
skýra afstöðu sína.
„Við viljum sýna
fram á nýjar hliðar á
málinu sem ekki hafa verið dregnar
fram áður,“ segir Helga Kristín
Auðunsdóttir, talsmaður félagsins.
„Við erum ekki öfgahópur, heldur
viljum við sýna fram á hvað ástand
mála er fáránlegt eins og sölunni er
háttað í dag. Fólk hefur haldið því
fram að neysla áfengis muni aukast
verði sala á léttvíni og
bjór gefin frjáls, en
það er aðeins hluti
sannleikans. Við bend-
um á að eftir að sala
bjórs var gefin frjáls
jókst sala á léttu víni
og bjór á kostnað
sterks áfengis. Salan
er alltaf metin í heild-
armagni áfengis, en
það er aldrei talað um
að neysluvenjurnar
séu að breytast. Það er
mjög gott að Íslend-
ingar neyti léttvíns í
stað sterks, því sterkt
vín hefur fleiri vanda-
mál í för með sér en
létt vín í hóflegu magni.
Það er komin reynsla á það þegar
ríkissala á áfengi var afnumin á
Nýja-Sjálandi og í Iowa-ríki í
Bandaríkjunum. Áhrifin voru ekki
þau að neysla ykist, heldur minnk-
aði hún, og sérstaklega minnkaði
neysla á sterku víni.“
Stofnfundur félags um bætta áfengismenningu
Helga Kristín
Auðunsdóttir
NÝ sýning var opnuð í Suðs-
uðvestri, sýningarými sam-
tímalista á Suðurnesjum, um síð-
ustu helgi. Að þessu sinni sýna
átta nemendur úr myndlistadeild
Listaháskóla Íslands undir leið-
sögn Ingólfs Arnarssonar prófess-
ors. Sýningin ber nafnið „Suðs-
uðsuð again,“ og eru verkin
unnin í ólíka miðla m.a. mynd-
bandsverk, ljósmyndir, útsaumur,
teikningar og fl.
Sýnendur eru: Alexandra
Litaker, Arnar Halldórsson,
Berglind Jóna Hlynsdóttir, Klara
Þórhallsdóttir, Kristjana Rós
Oddsdóttir, Lars Skjelbreia, Ólöf
Dómhildur Jóhannsdóttir og
Soffía Jóhannsdóttir.
Listanemar sýna í Suðsuðvestur
Rýmið er opið fimmtudaga og
föstudaga frá kl. 16–18 og um helg-
ar frá kl. 14–17. Sýningin stendur
til 13. mars. Suðsuðvestur hefur
einnig aðsetur á vefnum á
www.sudsudvestur.is.
Víkurfréttir/Héðinn
Helness og Helgemo í ham.
Norður
♠ÁKG9
♥DG97 S/NS
♦DG106
♣Á
Vestur Austur
♠D43 ♠85
♥Á104 ♥K532
♦7 ♦K4
♣KG8732 ♣D10954
Suður
♠10762
♥86
♦Á98532
♣6
Norðmennirnir Helness og Helgemo
sýndu skemmtilega takta í vörninni í
þessu spili, sem er frá Cap Gemini-
boðsmótinu í Haag í fyrra. Mótherjar
þeirra voru Hollendingarnir Wester-
hof og Jansen:
Vestur Norður Austur Suður
Helgemo Jansen Helness Westerhof
– – – Pass
1 lauf Dobl 1 hjarta 2 tíglar
Dobl * Redobl 3 lauf 3 tíglar
4 lauf 5 tíglar Allir pass
Eftir langdregnar sagnir varð West-
erhof í suður sagnhafi í hörðu geimi –
fimm tíglum. Eins og sjá má liggur
spilið til sagnhafa og fimm tíglar eiga
að vinnast með því að svína fyrir tíg-
ulkóng og spaðadrottningu. Sem ætti
að vera sjálfgefin spilamennska, ekki
síst eftir sagnir.
En nú er að huga að vörninni. Dobl
Helgemos á tveimur tíglum var svo-
kallað „stuðningsdobl“, en það sýnir í
þessari stöðu þríspila-stuðning við
svarlit makkers. Helgemo þóttist vita
að Helness ætti aðeins fjórlit í hjarta
úr því hann breytti í þrjú lauf, en þá
var líklegt að hjörtu mótherjanna
skiptust fjögur í borði og tvö hjá sagn-
hafa. Með hliðsjón af þessu valdi Helg-
emo að spila út LITLU hjarta undan
ásnum.
Sagnhafi stakk upp gosa blinds og
Helness átti slaginn á kóng. Blindur
var ekki sérlega aðlaðandi, svo Helness
ákvað að spila trompfjarkanum í öðr-
um slag. Westerhof lagðist nú undir
feld til að telja punkta. Hann reiknaði
með að austur ætti ÁK í hjarta, en þá
var útilokað að vestur ætti opnunar-
styrk án þess að vera með tígulkóng-
inn. Westerhof stakk því upp tromp-
ásnum í þeirri von að kóngurinn væri
stakur á eftir.
En svo var ekki.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
ÞINGÁS - VEL STAÐSETT EINBÝLI
Hér er um að ræða 177,3 fm einbýlishús ásamt 32,7 fm bílskúr og óskráðu
rislofti. Húsið skiptist þannig: Á neðri hæðinni er forstofa, hol, borðstofa og
stofa, eldhús ásamt vinnuherbergi og snyrtingu. Á efri hæðinni eru fjögur
svefnherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi. Í risi er eitt svefnherbergi. Lóðin er
malarborin fyrir framan bílskúr en fullfrágengin bakatil, afgirt og hellulögð ásamt
timburverönd með heitum potti. V. 39,9 m. 4741
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali