Morgunblaðið - 02.03.2005, Síða 35

Morgunblaðið - 02.03.2005, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 35 DAGBÓK 800 7000 - siminn.is Nú getur þú sent SMS úr heimasíma Stundum er betra að senda SMS! E N N E M M / S ÍA / N M 15 4 14 Hægt er að senda og taka á móti SMS. Númerabirting fyrir allt að 30 númer. Símaskrá fyrir 200 símanúmer og nöfn. Innbyggður hátalari fyrir handfrjálsa notkun. Dagsetning og tími og raddstýring á 20 númerum. 25% afsláttur úr heimasíma í 6 númer Skráðu þig á siminn.is SMS heimasími Panasonic KX-TCD300 Tilboð í vefverslun: 8.980 kr. siminn.is/vefverslun 980 Léttkaupsútborgun: og 750 kr. á mán. í 12 mán. kr. Tiboðsverð: 9.980 kr. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Góugleðin verður föstudaginn 4. mars kl. 13.30 bingó, Jóhanna Kristjónsdóttir talar um líf kvenna í arabalöndum. Gerðubergs- kórinn og Vinabandið leika fyrir dansi. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna kl. 9–16.30, heilsugæsla kl. 9.30–11.30, smíði/útskurður kl. 13–16.30, spil kl. 13.30 bridgekennsla, kl. 13.30, keila kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, böðun, hárgreiðsla, glerlist, spil- að bridge/vist, fótaaðgerð. FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, miðviku- dagur 2. mars, kl. 13–16. Oddný Krist- jánsdóttir hjá Þjóðbúningastofu kem- ur í heimsókn og fræðir um þjóðbúninga. Sigrún organisti tekur nokkur lög á píanóið. Spilað, teflt, spjallað. Kaffi að hætti Álftnesinga. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif- stofa í Gullsmára 9 er opin í dag kl. 10 til 11.30. Viðtalstími í Gjábakka kl. 15 til 16. Félagsvist spiluð í dag í Gjábakka kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík | Söngvaka kl. 14. Umsjón Helgi Seljan og Sigurður Jónsson, Þorlákur Frið- riksson leikur á harmonikku í kaffihléi. Söngfélag FEB, kóræfing kl. 17. Leik- sýning Snúðs og Snældu, sem vera átti í Iðnó á morgun, miðvikudag 2. mars, fellur niður vegna veikinda. Næsta sýning verður sunnudaginn 6. mars kl. 14. Miðasala í Iðnó og skrif- stofu FEB. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Lax- dæla í umsjá Arngríms Ísbergs heldur áfram á miðvikudögum kl. 16. Allir vel- komnir. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, kl. 10.05 og kl. 11, glerskurður kl. 13. Í Garðabergi er handavinnuhorn og spilað brids kl. 13, vöfflur með rjóma kl. 14.30. Vinsam- lega sækið miðana í leikhúsferðina. Gerðuberg, félagsstarf | Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar. Frá hádegi spilasalur opinn. Kl. 14.30 kóræfing. Veitingar í Kaffi Bergi. Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa- vinna/bútasaumur, útskurður, hár- greiðsla, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 11 banki, kl. 12 hádegismatur, kl. 13 bridge, kl. 15 kaffi. Hraunsel | Kaffi, rabb og moggi frá kl. 9, myndmennt kl. 10, línudans kl. 11, glerskurður og myndmennt kl. 13, píla kl. 13.30, Gaflarakórinn kl. 16. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl. 9–15; klippimyndir, keramik o.fl. um- sjón Sigrún, jóga kl. 9–12, námskeið í myndlist kl. 15–18, böðun virka daga fyrir hádegi, fótaaðgerðir/hársnyrt- ing. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll- um opið. Betri stofan og Listasmiðjan opin 9–16. Frjálst handverk og postu- línsmálun. Fótaaðgerðarstofa 897- 9801. Morgunkaffi, hádegismatur og síðdegiskaffi. Dagblöðin liggja frammi. Fundur í bókmenntahópi kl. 20–21.30. Upplýsingar í síma 568-3132. Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði, opin vinnu- stofa, kl. 10.45 bankaþjónusta, fyrsta miðvikudag í mánuði, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun, opin fótaaðgerðastofa. Sjálfsbjörg | Félagsvist í kvöld kl. 19. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–16, myndmennt, kl. 10–12 sund (Hrafnistulaug), kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 12.15–14 verslunarferð í Bónus Holtagörðum, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tré- skurður, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8. 45, bókband, handmennt og hár- greiðsla kl. 9, fótsnyrting kl. 9.30, morgunstund með séra Sigurði Páls- syni, kóræfing kl. 13, ferð í bónus kl. 12.30. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn kl. 10–12. – Kirkjuprakkarar (1.–4. bekk- ur) kl. 15.30–16.30. Föstuvaka kl. 20.30. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Kór Akureyrarkirkju syngur. Ein- söngur: Sigrún Arna Arngrímsdóttir mezzósópran. Áskirkja | Hreyfing og bæn kl. 11–12. Bessastaðasókn | Foreldramorgnar eru í Haukshúsum kl. 10–12. Opið hús eldri borgara í Haukshúsum kl. 13–16. KFUM&K-starf fyrir 9–12 ára börn í Haukshúsum kl. 17.30–18.30. Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Léttur málsverður eftir stundina. Kirkjuprakkarar 7–9 ára kl. 16.30, TTT 10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsfélag KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Bústaðakirkja | Starf aldraðra í Bú- staðakirkju. Samverur á mið- vikudögum frá kl. 13. Spil, föndur, handavinna, kaffi. Gestur: Guðrún Helgadóttir, rithöfundur og fv. alþing- ismaður. Öllum er velkomið að taka þátt í þessu starfi. Digraneskirkja | Barnastarf 6–9 ára kl. 17.15–18 á neðri hæð. Garðasókn | Foreldramorgnar hvern miðvikudag kl. 10 til 12. Fyrirlestur mánaðarlega. Allir velkomnir. Alltaf heitt á könnunni. Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í há- degi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Léttur hádegisverður á vægu verði að lokinni stundinni. Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari, orgelleikari Hörður Bragason Allir velkomnir. Æskulýðs- félag í Engjaskóla kl. 20–21 fyrir 8. bekk. „Á leiðinni heim“, helgistund kl. 18. Passíusálmur lesinn, í dag les Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra. Grensáskirkja | Hvern miðvikudag er samvera eldri borgara frá kl. 14 til 16. Boðið er upp á Biblíulestur, gott sam- félag og léttar veitingar. Allir velkomn- ir. Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. Tíu til tólf ára krakkar hittast kl. 16.30–17.30. Hallgrímskirkja | Morgunmessur kl. 8 árdegis. Hugleiðing, altarisganga. Morgunverður eftir stundina. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Fjöl- skyldusamveran hefst kl. 18 með léttri máltíð á vægu verði. Kl. 19 er Bibl- íulestur fyrir alla fjölskylduna. Jón Þór Eyjólfsson talar til okkar. Barna- og unglingastarfið er fyrir 1–2 ára, 3–4 ára, 5–7 ára, 8–9 ára, 10–12 ára og 13– 17 ára. Allir velkomnir. Kristniboðssalurinn | Samkoma í kvöld kl. 20. „Í borg vors Guðs“, sálm- ur 48. Ræðumaður er Salóme Huld Garðarsdóttir. Einsöngur: Ólöf Inger Kjartansdóttir. Kaffiveitingar eftir samkomuna. Allir eru velkomnir. Langholtskirkja | Kl. 12.10 hádeg- isbænagjörð með sálmasöng og org- elleik. Súpa og brauð (kr. 300) kl. 12.30. Starf eldri borgara kl. 13–16. Fjölbreytt og skemmtilegt starf. Kl. 19.30–20.15 Biblíulestur í umsjón sóknarprests. Markúsarguðspjall lesið. Allir velkomnir. Laugarneskirkja | Kl. 10 mömmu- morgunn. Allar mömmur og ömmur velkomnar með börnin sín. Kl. 10.30 leggur gönguhópurinn Sólarmegin af stað frá kirkjudyrum. Kl. 14.10–15.30 Kirkjuprakkarar (1.–4. bekkur). Kl. 19 fermingar-Alfa. Kl. 20.30 unglinga- kvöld Laugarneskirkju. Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10. Barnahjálp SÞ UNICEF. Stefán Ingi Stefánsson kynnir. Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Opið hús. Heimsókn i höfðustöðvar Krabbameinsfélagsins. Umsjón dr. Sig- urður Árni Þórðarson. 7 ára starf kl. 14:30. Kór Neskirkju, æfing kl. 19. Stjórnandi Steingrímur Þórhallsson. „NÝIR tímar í nýsköpun“ er yf- irskrift árlegs Nýsköpunarþings Rannsóknarráðs og Útflutningsráðs sem haldið verður á Grand hóteli á morgun kl. 8, en í ár er þinginu ætl- að að vekja athygli á þeim mik- ilvægu tengslum sem eru á milli aukinnar verð- mætasköpunar í atvinnulífinu og rannsókna og þekkingaröfl- unar. Markmið nýsköpunarþing- anna er að ýta undir skilning manna á samspili vísinda, tækni og þekkingar annars vegar og vöruþróunar og markaðs- starfi hins vegar. Nýsköpunarverðlaunin, sem veitt hafa verið á þessum þingum og nú í áttunda skiptið, eru veitt fyr- irtækjum sem þótt hafa skara fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og vís- indastarfi og náð hafa árangri á markaði. Lykilorðin í því samhengi eru rannsóknir og vísindastarf, ný- sköpun í vöru og þjónustu og árang- ur á markaði. Helstu fyrirlesarar á þinginu, sem verður í formi morgunverðarfundar, verða Sigríður Valgeirsdóttir frá NimbleGen, sem fjallar um flutning erlendrar líftækniþekkingar til Ís- lands, Vilmundur Guðnason hjá Hjartavernd, sem ræðir um þekk- ingaraukningu sem atvinnugrein og Helgi G. Sigurðsson hjá 3-plus, sem flytur erindið „Frá hugmynd til markaðar“. „Við erum hér að verðlauna það fyrirtæki sem við teljum að hafi skarað fram úr þetta árið, hvað varð- ar að koma vöru og þjónustu á mark- aðinn sem á bakgrunn í rannsóknum og nýsköpun,“ segir Jón Ásbergs- son, framkvæmdastjóri Útflutnings- ráðs Íslands. „Ef við lítum bara á út- flutning, hefur hlutur þeirra fyrirtækja sem eru að selja há- tæknivörur aukist frá því að vera ekkert árið 1990 upp í að vera um 8,5% af heildargjaldeyristekjum þjóðarinnar í ár. Þar er átt við fyr- irtæki sem eyða meira en 3% af sín- um tekjum árlega í rannsóknir og þróun. Hér er ég að tala um fyr- irtæki eins og líftækni- og lyfjafyr- irtæki, fyrirtæki sem framleiða tæki fyrir matvælaiðnað, eins og Marel og fleiri, stoðtækjaframleiðendur eins og Össur og hugbúnaðarfyr- irtækin. Það eru tæplega hundrað íslensk fyrirtæki sem eru að selja vöru og þjónustu sem tengist upp- lýsingatækni.“ Jón segir ljóst að rannsóknir auki verðmætasköpun. „Það er athygli- vert hvað þetta hlutfall nýsköpunar í útflutningi hefur vaxið hratt og það eru allar horfur á því að það haldi áfram að vaxa.“ Nýsköpunarverðlaun veitt á Nýsköpunarþingi á Grand hóteli Rannsóknir auka verðmætasköpun Jón Ásbergsson Morgunblaðið/Golli Gervihné Össurar er dæmi um út- flutningsvöru sem byggist á viða- miklum rannsóknum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.