Morgunblaðið - 02.03.2005, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLANDSBANKI
Sýnd kl. 4 og 6.
VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ
20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
I I I I Í L F
20 F L F I I
Frá framleiðanda
Training day
Miðasala opnar kl. 15.30
Yfir 32.000 mannsfir .
Ó.Ö.H. DV
S.V. Mbl.
CLOSER
JULIA ROBERTS
JUDE LAW CLIVE OWEN
NATALIE PORTMAN
2ÓSKARSVERÐLAUNATILNEFNINGAR
A MIKE NICHOLS FILM
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i.16 ára.
Ef þú trúir á ást við fyrstu sýn, hættir
þú aldrei að horfa
J A M I E F O X X
S.V. MBL. Ó.Ö.H. DV
Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna
jamie kennedyj i Alan cummingl i
Sýnd kl. 4 og 6 Ísl tal / kl. 4, 6, 8 og 10. Enskt tal
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
Mögnuð
spennumynd
um baráttu
upp á líf og
dauða
Frábær grínmynd
fyrir alla fjölskylduna
jamie kennedyi Alan cummingl i
jamie kennedyj i
Alan cummingl i
Sýnd kl. 10.10. Síðasta sýning
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
Kvikmyndir.is.
S.V. Mbl. Sýnd kl. 6 Ísl tal /
kl. 6 og 8. Enskt tal
JULIA ROBERTS JUDE LAW CLIVE OWEN NATALIE PORTMAN
CLOSERCLOSER
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára.
kl. 5.40, 8 og 10.20.
Ef þú trúir á ást við fyrstu sýn, hættir þú aldrei að horfa
Ó.Ö.H. DV
S.V. MBL.
“Frábær mynd í alla staði.
Þ.Þ.. FBL
M.M.J. Kvikmyndir.com
Frábær grínmynd fyrir
alla fjölskylduna
i
ll l l
Fr r rí y
fyrir l fj lskyl u
ATH! GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNA
ATH! GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNA
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Ó.H.T. Rás 2
Fráb r grín ynd fyrir alla fjölskylduna
GRÍMAN, eða Mask, var ein
af myndunum sem skópu
frægðarferil Jim Carreys,
gerðu hann að þeirri stór-
stjörnu sem hann er nú um
mundir. Það var því viðbúið að
gerð yrði framhaldsmynd – og
einnig að Carrey hefði annað
við sinn dýrmæta tíma að gera
en að leika í slíkum myndum.
En íslenskir bíóunnendur láta
það ekkert á sig fá þótt Carrey
sé fjarri góðu gamni og flykkt-
ust á framhaldið; Gríman 2:
Sonur grímunnar, sem frum-
sýnd var fyrir helgi í fimm sýning-
arsölum. Alls sáu myndina rúmlega
3.700 manns yfir helgina en með for-
sýningum er hún nú komin yfir 4 þús-
und.
Aron Víglundsson hjá Myndformi
bendir á að myndinni hafi vegnað
mun betur hér á landi en í Bandaríkj-
unum. „Á hin stórgóða íslenska tal-
setning stóran þátt í því,“ segir Aron.
„Einnig hefur verið skortur á fjöl-
skyldumyndum eins góðum og þessi í
þessu verðlaunamyndaflóði sem verið
hefur undanfarið. Við búumst því við
góðu gengi næstu vikurnar.“
Önnur ný mynd kemur beint inn í
annað sætið en það er vísindatryll-
irinn Constantine með Keanu Reeves
í aðalhlutverki. Hún var frumsýnd í
þremur sölum og laðaði að rúmlega
2.500 manns yfir helgina en er samt
farin að nálgast 4.500 manna markið
alls, með forsýningum sem gengu
mjög vel.
Einnig tóku Sambíóin frönsku
verðlaunamyndina Kórinn til al-
mennra sýninga um síðustu helgi, en
hún hafði verið frumsýnd við góðar
undirtektir á frönsku kvikmyndahá-
tíðinni sem haldin var á dögunum.
Myndin sú var tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna sem besta erlenda
myndin en nafnið Óskar er Christof
ofarlega í huga nú um mundir, eftir
að mynd þeirra Sambíó-manna Mill-
ion Dollar Baby tók helstu verðlaun-
in, var m.a. valin besta myndin.
„Já, þetta eru margir Óskarar og
það komu líka margir Óskarar – og
reyndar Óskir – í bíó um helgina en
við brugðum á leik og buðum öllum er
báru þessi nöfn tvo miða á verði eins í
Háskólabíói þar sem einvörðungu
voru sýndar myndir sem tilnefndar
voru til Óskarsverðlauna. Viðtök-
urnar voru góðar.“ Christof spáir því
að aðsóknin á sigurmyndina Million
Dollar Baby taki nú kipp eftir sig-
urinn en nú þegar hafi um 5 þúsund
séð myndina.
Kvikmyndir | Gríman 2: Sonur
grímunnar er vinsælust
Gríman býr enn
yfir töframætti
Gríman göldrótta lokkar ennþá íslenska
bíógesti – þótt Carrey sé víðs fjarri.
!" # $%
&%
'%
(%
)%
*%
+%
,%
-%
$.%
LN "" % "" 7 . ;%# .2"'/G
skarpi@mbl.is
HLJÓMSVEIT Alice Cooper kemur
til landsins í sumar og heldur tón-
leika í Kaplakrika 13. ágúst. Við hæfi
er að ræða við tónlistar- og töfra-
manninn Ingólf Geirdal við þetta til-
efni því hann er manna fróðastur um
Cooper.
„Ég er fanatískur safnari og aðdá-
andi hans og er búinn að sjá kallinn
sextán sinnum,“ segir Ingólfur og
bætir við að það sé fengur fyrir Ís-
lendinga að fá kappann til landsins.
„Alveg heldur betur. Hann er
nefnilega í toppformi á sviði og rödd-
in hefur aldrei verið betri,“ segir
Ingólfur sem hefur lengi verið aðdá-
andi.
„Ég er búinn að vera aðdáandi
hans síðan ég var ellefu ára en ég sá
hann fyrst 1989. Þá fór ég í píla-
grímsferð til London og Birmingham
og sá þrenna tónleika. Síðan hef ég
gert þetta öðru hverju og reyni að ná
allavega einum tónleikum á hverri
tónleikaferð.“
Leikhúshefð í tónlistina
Tónleikar með Alice Cooper eru
mikið sjónarspil. „Alice Cooper kom
með leikhúshefðina inn í músíkina.
Alice Cooper kemur fyrst fram á
hippatímabilinu, þetta var upp-
haflega fimm manna hljómsveit sem
hét Alice Cooper. Þá var stíllinn að
koma fram í gallabuxum og hippa-
mussu og bara spila en það skipti
ekki máli hvað fólk var að horfa á.
Þeir tóku hinn pólinn í þetta og voru
með mjög mikið „show“. Síðan hafa
menn eins og Kiss, U2 og fleiri tekið
þetta upp og viðurkenna að vera
undir áhrifum frá Alice Cooper,“
segir hann og má nefna fleiri sveitir
og nýrri til viðbótar. „Marilyn Man-
son er mjög sterkt dæmi og líka
Slipknot.“
Ingólfur ætlar sannarlega að vera
á staðnum í Kaplakrika í ágúst. „Ég
sá hann síðast í fyrra. Þetta verður
mjög gott, hann er í toppformi kall-
inn.“
Veglegt Cooper-safn
Ingólfur á veglegt safn af hlutum
tengdum Alice Cooper. „Ég á ein-
hver hundruð af árituðum hlutum,
skyrtur sem hann hefur notað, sviðs-
muni og fleira. Þetta hefur undið upp
á sig, ég byrjaði á því að safna plöt-
um og úrklippum um hann. Nú er
þetta orðið gríðarlegt safn, ætli það
sé ekki eitthvað um þrjú hundruð
vídeóspólur og mynddiskar og eitt-
hvað svipað af geisladiskum. Svo er
ég með tvö hundruð vínylplötur.
Þetta eru ekki allt opinberar út-
gáfur, þetta eru mikið ólöglegar tón-
leikaupptökur,“ segir hann.
„Í gegnum þetta hef ég verið svo
heppinn að fá að kynnast upphaflegu
meðlimunum í Alice Cooper-
hljómsveitinni og spilað heilmikið
með þeim,“ segir Ingólfur, sem hefur
gert tvær plötur með Michael Bruce,
gítarleikara úr upphaflegu Alice
Cooper-sveitinni. Önnur þeirra er
komin út og heitir Halo of Ice en
upptökum er lokið á hinni plötunni,
sem kemur út á þessu ári, en bróðir
hans, Silli, er með í þessu ævintýri.
„Við vorum með hljómsveit sem
hét Stripshow og það var í gegnum
hana sem við komumst í samband við
hann. Við gáfum út plötu 1996 sem
heitir Late Night Cult Show. Hún
kom út víða um heim og Michael
heyrði hana. Við höfum í leiðinni
fengið að hitta Cooper nokkrum
sinnum og spjallað við hann.“
Fleiri aðdáendur út en inn
Stripshow er ekki lengur til en
bræðurnir eru í hljómsveit sem heit-
ir Dimma. „Áhrif Alice Cooper eru
náttúrlega alltaf í blóðinu. Svo er ég
líka töframaður. Það er heldur ekk-
ert eins langt frá Alice Cooper og
fólk heldur. Hann hefur notað töfra-
menn á sviði og líka verið með sjón-
hverfingar sjálfur.“
Ingólfur er viss um að aðdáendum
Alice Cooper hérlendis fjölgi með
tónleikunum í Kaplakrika. „Ég efast
ekkert um það. Ég er sannfærður
um að margir komi til með að fara að
sjá hann út af þessu sjónarspili. Alice
Cooper er svo miklu meira en tón-
leikar, þetta er viðburður. Ég held að
það fari fleiri aðdáendur út en komu
inn. Ég fæ alltaf gæsahúð þegar
hann kemur fram á sviðið. Hann hef-
ur rosalega sterka nærveru á sviði.“
Tónlist | Alice Cooper til landsins í sumar
Morgunblaðið/Golli
Ingólfur með forláta byssu sem Cooper notaði á tónleikaferð sinni 2003. Ingólfur varð sér úti um hana í gegnum
umboðsmann Coopers. Á veggnum má sjá fjölda teikninga eftir Ingólf af Cooper og fylgdarmönnum hans.
ingarun@mbl.is
Aldrei í betra formi