Morgunblaðið - 17.03.2005, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2005 33
UMRÆÐAN
Í DAG verður kosið milli
tveggja mjög hæfra frambjóðenda
til embættis rektors
Háskóla Íslands. Há-
skóli Íslands stendur
á vissum tímamótum.
Innlend samkeppni
hefur aukist sem og
kröfur nemenda til
þeirrar þjónustu sem
þeim stendur til boða.
Við þessar að-
stæður þarf Háskóli
Íslands traustan
stjórnanda og sterkan
leiðtoga. Að okkar
mati er starf rektors
fyrst og fremst
stjórnunar- og leið-
togastarf. Reynsla af stjórnun er
því mikilvæg fyrir verðandi rekt-
or. Ágúst Einarsson hefur mjög
víðtæka stjórnunarreynslu, bæði
innan skólans sem utan. Sú
reynsla mun án nokkurs vafa
koma sér vel fyrir Háskóla Ís-
lands verði hann næsti rektor.
Ágúst hefur einnig þann ákjós-
anlega eiginleika að vera í senn
kröfuharður stjórnandi sem setur
sjálfum sér og öðrum skýr mark-
mið og farsæll leiðtogi sem drífur
aðra með sér. Sem leiðtogi er
Ágúst réttsýnn og sanngjarn í
garð þeirra sem hann vinnur með,
hann á auðvelt með að virkja
starfsmenn til þátt-
töku, er afar hvetjandi og er ein-
staklega laginn við að sætta ólík
sjónarmið. Hann leggur mikið upp
úr liðsvinnu og hvetjandi starfs-
umhverfi. Þetta eru eiginleikar
sem ekki eru mörgum gefnir en
eru að okkar mati mikilvægir fyrir
nútíma stjórnanda og leiðtoga.
Við sem þetta skrifum höfum
báðir langa reynslu úr atvinnulíf-
inu. Höfum báðir unnið undir
stjórn stjórnenda með mismun-
andi stjórnunarstíl og verið sjálfir
stjórnendur. Við höfum einnig
starfað undir stjórn Ágústar í rúm
fjögur ár. Ágúst hefur sýnt það og
sannað að hann er góður stjórn-
andi og sterkur leiðtogi. Hann
gerir miklar kröfur til sjálfs sín,
leggur sig fram við að setja sig
inn í mál, ber virðingu fyrir ólík-
um skoðunum og sjónarmiðum,
styður og hvetur samstarfsfólk
áfram, er fljótur að greina aðal-
atriði frá aukaatriðum og síðast en
ekki síst þá kemur hann hlutum í
verk.
Það er því ekki nokkur vafi í
okkar huga að Háskóli Íslands
myndi njóta krafta Ágústar verði
hann næsti rektor skólans.
Ágúst Einarsson næsti
rektor Háskóla Íslands
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson
og Þórhallur Guðlaugsson
fjallar um kjör rektors
við Háskóla Íslands
’Ágúst hefur sýnt þaðog sannað að hann er
góður stjórnandi og
sterkur leiðtogi.‘
Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson
Gylfi Dalmann er lektor
í viðskiptafræði. Þórhallur
er lektor í viðskiptafræði.
Þórhallur Guðlaugsson
AF LEIÐARA Morgunblaðsins
sl. þriðjudag að dæma er það stefna
íslensks skipaiðnaðar að tryggja
eigin hag með því að koma í veg
fyrir að verk séu unnin
þar sem það er hag-
kvæmast. Þess í stað
verði ástunduð sérstök
verndarstefna fyrir at-
vinnugreinina. Þessi
ályktun blaðsins er
dregin af viðbrögðum
skipaiðnaðarins við ný-
legri ákvörðun um að
semja við pólska
skipasmíðastöð um
endurbætur á Tý og
Ægi. Sem betur fer er
hér mikill misskiln-
ingur á ferðinni.
Meginmarkmið ís-
lensks skipaiðnaðar
er að standast alla
eðlilega samkeppni
en tryggja jafnframt
að greinin sitji í raun
við sama borð og er-
lendir keppinautar.
Enginn áhugi er á að
vernda greinina fyrir
erlendri samkeppni
umfram það sem
tíðkast meðal helstu
samkeppnisþjóða
okkar. Jöfn staða við
keppinauta okkar er
og verður sú krafa
sem gerð er til ís-
lenskra stjórnvalda.
Tæpast getur það
kallast verndarstefna
að fá að sitja við
sama borð og keppi-
nautarnir.
Þess vegna er það sérstakt um-
hugsunarefni þegar leiðarahöf-
undur Mbl. segir að íslenskur
skipaiðnaður vilji halda umræddum
verkefnum í landinu „burtséð frá
því hver býður best“.
Hér skjöplast leiðarahöfundi
hrapallega. Meginstef í viðbrögðum
við þeirri ákvörðun að færa þessi
verk til Póllands byggjast einmitt á
því að það sé hagkvæmast fyrir
þann, sem borgar brúsann, að vinna
þetta verk hér á landi. Leidd hafa
verið fram mjög sterk rök fyrir því
að kostnaður, sem af því leiðir að
fara með verkin út, sé
vanáætlaður og hafa
virtir og reyndir
útgerðarmenn tekið
undir þá skoðun.
Þess vegna er al-
deilis óþarft að flækja
þetta mál í orðalepp-
um eins og verndar-
stefnu og að menn séu
á villigötum. Stað-
reyndin er sú að ís-
lenskur skipaiðnaður
hefur verið að keppa
um stór og smá við-
gerðar- og viðhalds-
verkefni við erlenda
aðila og ennfremur
flutt skip út til ná-
grannalandanna með
fjölbreyttum búnaði
sem smíðaður er hér á
landi. Þessi verk hafa
borið hróður fyrir-
tækjanna og starfs-
manna þeirra víða og
enginn kvartað yfir að
þar færu aukvisar
heldur þvert á móti
kveða viðskiptavin-
irnir upp úr um að
þeir hafi fengið gott
verk, gæði sem stand-
ist ýtrustu kröfur og á
eðlilegu verði í al-
þjóðlegu samhengi.
Því er næsta broslegt
þegar leiðarahöfundur
hvetur menn í grein-
inni til meira sjálfstrausts enda þótt
frekar væri hægt að vara þá við of-
dirfsku við þær aðstæður sem
greininni er gert að lifa við í okkar
góða landi.
Skipaiðnaðurinn
sitji við sama borð
og keppinautarnir
Ingólfur Sverrisson
gerir athugasemd við
leiðara Morgunblaðsins
Ingólfur
Sverrisson
’Meginmark-mið íslensks
skipaiðnaðar er
að standast alla
eðlilega sam-
keppni en
tryggja jafn-
framt að greinin
sitji í raun við
sama borð og
erlendir keppi-
nautar.‘
Höfundur er deildarstjóri
hjá Samtökum iðnaðarins.
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Kanarí
29. mars í 12 daga
frá kr. 29.990
Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is
Þökkum ótrúlegar viðtökur. Nú
bjóðum við síðustu sætin í sólina til
Kanarí í 12 daga á hreint ótrúlegu
verði. Þú bókar ferðina og tryggir
þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Á Kanarí nýtur þú þjónustu reyndra
fararstjóra okkar allan tímann.
Bókaðu strax á
www.heimsferdir.is
Síðustu sætin
Tryggðu þér ferð til Kanarí á lægsta verðinu
Verð kr. 29.990
12 dagar
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna
og 2 börn 2-11 ára í íbúð. Innifalið flug,
gisting í 12 nætur og skattar.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800
Verð kr. 39.990
12 dagar
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð/stúdíó.
Innifalið flug, gisting í
12 nætur og skattar.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800
OPIÐ 9-18
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 16-18.30
FLÓKAGATA 49A - NÝL. PARHÚS
Í einkasölu nýlegt parhús á
þessum vinsæla stað, 270 fm
ásamt um 40 fm bílskúr eða
samtals um 310 fm. Eignin
skiptist m.a. í anddyri, gesta-
snyrtingu, stofu, borðstofu, sól-
stofu, sjónvarpshol, 4 svefn-
herbergi, eldhús og baðher-
bergi. Gott aukarými er í kjall-
ara sem mætti nýta á ýmsan
hátt, t.d. sem vinnuaðstöðu eða viðbótarherbergi með stiga á milli hæða.
Fallega gróinn garður með verönd í suður. Verð 48,0 millj. LAUS FLJÓT-
LEGA. Teikningar og nánari uppl. á staðnum í dag. Verið velkomin.