Morgunblaðið - 17.03.2005, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2005 37
MINNINGAR
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Inga Margrét, Helga, Kristín,
Ásta Jóna, Ólöf og Jónas.
Elsku amma mín.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Þú hefur gefið mér margt og þú
áttir hlut í að gera mig að þeirri
persónu sem ég er í dag. Fyrir það
er ég þér að eilífu þakklát, elsku
amma.
Sólveig Hrönn.
Elsku amma mín. Ég elska þig og
mun gera það. Ég veit að þú ert
alltaf hjá mér og ferð aldrei frá
mér. Ég sakna þín og mun sakna
þín að eilífu. En ég veit að þú munt
gera það sama og ég en viltu varð-
veita okkur.
Ég veit að þú munt gera það.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaður Jesú mæti.
(Höf. ók.)
Besta amma í heimi.
Ég elska þig.
Bjarndís Helga.
Elsku amma mín. Ég sakna þín
núna og mun alltaf muna eftir þér
og elska.
Takk fyrir allt það sem þú hefur
gert fyrir mig.
Guð blessi þig og alla uppi hjá
þér.
Ég sakna þín svo mikið, elsku
amma mín. Amma er langbesta
amma í heimi
Amma mín er falleg og góð.
Elska þig svo mikið.
Hafðu þetta hjá þér.
Indriði Hrannar.
Elsku amma, mín. Eftir löng og
ströng veikindi hefurðu loks fengið
frið. Ég sit og syrgi þig en innst
inni veit ég að þetta var þín ósk.
Ég held bara fast í minningarnar
og veit í mínu hjarta að þú hjálpar
mér í gegnum þennan missi.
Öll silkiblómin, blöðruföndrið,
púsluspilin, laufabrauðið, þú að
kenna mér að leggja kapal, allar
okkar kjaftastundir í eldhúsinu og
Dótakassinn, sem ég veit að enginn
gleymir.
Það er ótrúlegt að sjá sitt eigið
barn leika sér með jafn mikilli gleði
með sama dótið og ég lék mér með
þegar ég var lítil.
Enn man ég hversu hamingjusöm
þú varst þegar Viktor minn upp-
götvaði dótakassann og mundi svo
eftir honum næst þegar hann kom í
heimsókn.
Og eins þegar ég og Inga frænka
sátum með börnin okkar að skoða
dótið í síðustu heimsókn minni til
Íslands.
Þrátt fyrir kynslóðaskipti mun
enginn gleyma dótakassanum.
Við áttum yndislegar stundir síð-
ast þegar ég var á landinu og þær
minningar held ég fast í.
Ég vildi óska að okkar stundir
hefðu verið fleiri undanfarin ár en
símtölin urðu þeim mun fleiri í stað-
inn og það var gott að geta fylgst
með ykkar lífi á þann hátt og gefið
ykkur fréttir af okkar lífi.
Ég hugsaði líka til ykkar afa dag-
lega. Ég mun alltaf hugsa til ykkar
daglega.
Elsku afi minn, þinn missir er
mikill og ég bið Guð að veita þér
styrk til að komast í gegnum þenn-
an missi.
Elsku pabbi, Jónas, Arnþór, fjöl-
skyldur og aðrir aðstandendur, ég
sendi ykkur mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Elsku amma mín, takk fyrir allt
sem þú hefur gefið og kennt mér.
Ég mun aldrei gleyma þér.
Ég elska þig!
Elísabet.
Minningarnar um Ingu frænku,
eða Ingu Blöndal eins og ég kallaði
hana oftast, eru margar og
skemmtilegar. Þær voru ófáar
heimsóknirnar til hennar með
mömmu, oft eftir skóla og þá var
ekki verra að fá súkkulaðiköku
beint úr ísskápnum. Það var alltaf
gaman að koma og spjalla við Ingu
frænku, sem hafði alltaf mikinn
áhuga á því sem ég tók mér fyrir
hendur.
Fastur liður var að fara í Stóra-
gerðið á Þorláksmessu, annars
hefðu jólin ekki komið.
Þó að klukkan væri orðin margt
biðu þau alltaf með konfekt og jóla-
öl á borðum og hangikjötslykt ilm-
aði um húsið.
Ég kveð Ingu frænku mína og
þakka fyrir allar góðu stundirnar.
Hennar verður sárt saknað.
Helga Marín Gestsdóttir.
Hjónin Jónas Guðmundsson og
Ólöf Bjarnadóttir á Eiðsstöðum í
Blöndudal eignuðust níu börn. Þrjú
dóu í æsku en sex voru á lífi þegar
Jónas féll skyndilega frá haustið
1933, yngsta barnið sjö ára, það
elsta 24 ára. Heimilið leystist upp
og systkinin fóru hvert í sína átt.
Faðir minn, Ragnar, sem var
næstelstur, hélt til Danmerkur til
náms og kom þaðan haustið 1940.
Vorið eftir flutti hann til Siglufjarð-
ar og átti ríkan þátt í því að þrjú
systkina hans settust að í þessum
norðlenska athafnabæ.
Inga var í þeim hópi. Hún kom til
Siglufjarðar árið 1942 og giftist
Magnúsi Blöndal um sumarið. Þau
byggðu sér fljótlega hús við Hóla-
veg og hjá þeim hjónum var Ólöf
móðir Ingu í fimmtán ár, þar til hún
lést. Á Siglufirði fæddust synirnir
þrír og þar ólust þeir upp.
Þegar síldin brást flutti fjölskylda
Ingu og Magnúsar til Reykjavíkur.
Heimili þeirra var ávallt opið
bræðrabörnunum frá Siglufirði,
hvort sem var til lengri eða
skemmri dvalar í höfuðborginni. Sí-
fellt fleiri ættingjar komu til náms
og starfs í Reykjavík og þótti Ingu
þá ástæða til að afkomendur sæmd-
arhjónanna á Eiðsstöðum kynntust
betur og bauð öllum í þorrablót á
heimili sínu snemma árs 1974. Hún
hélt þessum sið um árabil, þar til
yngra fólk tók við. Þessi ættarmót
hafa verið ómetanleg til að efla
samheldnina í ættinni.
Inga ræktaði einnig samband við
Guðmund föðurbróður sinn á vest-
urströnd Bandaríkjanna og afkom-
endur hans, bæði með bréfaskrift-
um og heimsóknum.
Á miðju síðasta ári var þess
minnst í Eiðsstaðaættinni að hundr-
að ár voru síðan Jónas og Ólöf voru
gefin saman í hjónaband. Athöfn
var í Dómkirkjunni í Reykjavík og
síðan samkoma á kirkjuloftinu.
Þrátt fyrir erfið veikindi og þrótt-
leysi mætti Inga, gekk upp alla stig-
ana og gleðin skein úr andliti henn-
ar innan um allt skyldfólkið. Síðustu
vikur og mánuði hrakaði heilsu
Ingu frænku og nú hefur hún hitt
systkini og foreldra í eilífðarland-
inu. Blessuð sé minning hennar.
Jónas Ragnarsson.
Okkur varð snemma ljóst að hún
Inga föðursystir okkar var engin
venjuleg kona. Hún var ákveðin
kona með stórt hjarta og ótrúlega
mikinn viljastyrk. Reynsla Ingu af
föðurmissi og upplausn fjölskyld-
unnar á unglingsárunum hefur án
efa hert hana í lífsbaráttunni sem
framundan var. Hún var í okkar
huga þessi einbeitta persóna sem
hafði staðföst stefnumið, vílaði ekki
hlutina fyrir sér heldur hélt ótrauð
áfram vegferð sinni og glímu við
verkefni dagsins.
Innan stórfjölskyldunnar gegndi
Inga leiðtogahlutverki. Um árabil
hélt hún þorrablót á heimili sínu í
Stóragerði fyrir afkomendur og
tengdafólk hjónanna frá Eiðsstöð-
um. Hún stóð líka fyrir stórum ætt-
armótum í Blöndudalnum og hún
var hvatamaður þess að stórfjöl-
skyldan fengi land og byggði saman
sumarbústað á æskustöðvum sínum
og systkina sinna á bökkum Blöndu,
við rætur Auðkúluheiðar. Inga naut
sín vel í Blöndudalnum og þar fengu
dugnaður hennar og þrautseigja út-
rás í uppgræðslu landsins. Þær
voru ófáar plönturnar sem Inga var
búin að setja í jörðina í kringum
sumarbústaðinn og prýða landið við
heiðarræturnar til langframa við
erfiðar gróðurfarslegar aðstæður. Á
komandi árum munu trén fyrir
norðan bera vitni um dugnað og
atorku Ingu frænku.
Það var skarð fyrir skildi þegar
Eiðsstaðafjölskyldan hélt fjölmennt
ættarmót fyrir norðan á síðasta
sumri að Inga frænka treysti sér
ekki norður vegna heilsu sinnar.
Það var þó bót í máli að hún átti
þess kost að taka þátt í helgistund
og samveru í Dómkirkjunni um
sama leyti, í tilefni af hundrað ára
hjúskaparafmæli foreldra hennar.
Þar gafst kærkomið tækifæri til að
rifja upp erfiðar en mikilvægar
stundir í lífi fjölskyldunnar í krepp-
unni miklu og jafnframt að gleðjast
yfir gengi fjölskyldunnar á þeim
áratugum sem eftir fóru.
Við erum þakklát fyrir að hafa átt
slíka frænku sem Inga var. Alltaf
stóð heimili hennar okkur opið og
þar áttum við öruggt athvarf. Inga
var alltaf tilbúin að rétta okkur
hjálparhönd og við nutum væntum-
þykju hennar alla tíð. Hrakandi
heilsa hennar breytti þar engu um,
eins og t.d. á síðastliðnu hausti þeg-
ar hún, fársjúk, var að hafa áhyggj-
ur af heilsufari frænku sinnar. Inga
háði hetjulega baráttu í erfiðum
veikindum á liðnum árum. Þar
sýndi hún glöggt hvílíkri þraut-
seigju hún bjó yfir. En nú hefur hún
fengið hvíld frá þessari baráttu. Við
biðjum Guð að gæta hennar og gefa
Magnúsi, sonum hans og fjölskyld-
um þeirra huggun og styrk.
Arnfríður Guðmundsdóttir,
Jónas Guðmundsson.
Skemmuvegi 48, Kópavogi.
Simi 5576677
www.steinsmidjan.is
Helluhrauni 10, 220 Hf.
Sími 565 2566
www.englasteinar.is
Englasteinar
15% afsláttur
af öllum legsteinum
út þessa viku
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, stjúpföður,
tengdaföður, afa og bróður,
KJARTANS RUNÓLFSSONAR
bónda í Ölvisholti,
Hraungerðishreppi.
Guð blessi ykkur öll.
Arnleif Margrét Kristinsdóttir,
Sif Elín Kjartansdóttir, Tor Magne Nevestveit,
Anna Guðrún Kjartansdóttir, Bjørn Gjærum,
Halla Kjartansdóttir,
Berglind Sigurðardóttir,
Jónína Hulda Gunnlaugsdóttir, Steinn Þórarinsson,
Jón Elías Gunnlaugsson, Þórhildur Rúnarsdóttir
og barnabörn,
Ögmundur Runólfsson og fjölskylda,
Sveinbjörn Runólfsson og fjölskylda.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar elskulegrar eiginkonu, móður, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
SOFFÍU EINARSDÓTTUR,
Furugrund 54,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarþjónustunnar
Karitasar fyrir umönnun og vináttu.
Björn Helgason,
Helgi Björnsson,
Einar Björnsson, Alda Ásgeirsdóttir,
Björn Ragnar Björnsson, Gréta Mjöll Bjarnadóttir,
Soffía Björnsdóttir, Herbert Eiríksson,
Arndís Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HANSÍNA ÞORKELSDÓTTIR
frá Siglufirði,
sem lést miðvikudaginn 9. mars sl., verður
jarðsungin frá Digraneskirkju í Kópavogi föstu-
daginn 18. mars kl. 11.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Minningarsjóð hjúkrunarþjónustunnar Karitas, sími 5515606, eða Minn-
ingarsjóð krabbameinslækningadeildar LSH, sími 5431151.
Unnur Einarsdóttir, Rafn Baldursson,
Guðrún Einarsdóttir, Hjörtur Páll Kristjánsson,
Þorkell Einarsson, Rut Marsibil Héðinsdóttir,
Gerður Einarsdóttir, Þorsteinn Sveinbjörnsson,
Ólafur Hjalti Einarsson, Sólveig Victorsdóttir,
Sveinn Ingvar Einarsson, Karin Margareta Johanson,
Pálmi Einarsson,
Jóhanna Einarsdóttir, Gísli Guðmundsson,
Ari Einarsson, Berglind Jónsdóttir,
Snorri Páll Einarsson, Elín Lára Jónsdóttir,
Unnur Helga Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
BJÖRN ÓLAFSSON,
Krosseyrarvegi 9,
Hafnarfirði,
sem lést laugardaginn 12. mars, verður
jarðsunginn frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn
22. mars kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en bent er á hjúkrunarþjón-
ustuna Karitas og Líknarsjóð krabbameinsdeildar 11E á Landspítala.
Elín Jónsdóttir,
Gyða Björnsdóttir, Brynjar Viðarsson,
Jón R. Björnsson, Auður Erla Gunnarsdóttir,
Andri B. Björnsson,
Anna Helga Björnsdóttir
Elín Anna, Anna Margrét,
Birna, Andrea Helga og Rebekka.