Morgunblaðið - 17.03.2005, Síða 45

Morgunblaðið - 17.03.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2005 45 DAGBÓK Alvarlegar raskanir í þroska – helstu mis-munagreiningar“, er yfirskrift ráð-stefnu sem Greiningar- og ráðgjaf-arstöð ríkisins stendur fyrir á Grand hóteli á morgun kl. 9–16. Á ráðstefnunni verður farið yfir helstu mismunagreiningar alvarlegra þroskaraskana og þá þætti sem koma til aðgrein- ingar. Markmiðið er að veita þátttakendum meiri þekkingu á þeim ólíku þáttum sem þarf að átta sig á við greiningu og skipulagningu íhlutunar fyrir börn með alvarlegar þroskaraskanir. Íhlutun sem er byggð á nákvæmri og markvissri greiningu, getur skipt sköpum fyrir barnið og fjölskyldu þess og verið þjóðfélagslegur ávinningu til framtíðar. Á ráðstefnunni verður farið yfir helstu raskanir í þroska. Meðal annars verður fjallað um þroska- hömlun og raskanir á einhverfurófi auk umfjöll- unar um heilkenni óyrtra námserfiðleika. Stefán Hreiðarsson, barnalæknir og sérfræðingur í fötl- unum barna, mun fjalla um taugaþroska barna og tengsl hans við mismunandi frávik. Dr. Elín Þöll Þórðardóttir kemur frá Kanada og mun fjalla um málhamlanir barna. Einnig verður Ólafur Guð- mundsson, yfirlæknir á Barna- og unglingageð- deild, með umfjöllun um geðræna erfiðleika barna og tengsl við þroskafrávik. Að lokum fjallar dr. Tryggvi Sigurðsson um mikilvægi markvissrar greiningar sem forsendu fyrir íhlutun. Íris Böðvarsdóttir, sálfræðingur á Greining- arstöð, segir þekkingu á þroskafrávikum og þýð- ingu þeirra fyrir framtíð barna hafa aukist með auknum rannsóknum og betri greiningartækjum. „Við erum orðin betri í því að þekkja einkenni og áhættuþætti þroskafrávika. Stöðug aukning í fjölda tilvísana á Greiningarstöð segir okkur að sérfræðingar eru orðnir meðvitaðri um þroskafrá- vik og nauðsyn þess að framkvæma ítarlega og þverfaglega athugun á barninu sem grunn fyrir íhlutun. Í framtíðinni má búast við að þekking okkar eigi eftir að aukast enn frekar og þá horfi ég sérstaklega til þekkingar á tengslum þroska- frávika og geðraskana. En þetta gæti þá ekki bara þýtt að snemmgreiningar verði vandaðri heldur einnig líklegt að þeim fjölgi. Með þessu er verið að vinna mikilvægt forvarnarstarf til framtíðar.“ Hvað felst í hugtakinu mismunagreining? „Með mismunagreiningu á þroskafrávikum er átt við það að greina í sundur raskanir í þroska, sem geta haft svipuð einkenni að hluta. Mis- munagreining felst í því að fella einkenni barnsins að þekktum hópi þroskafrávika og fá þannig sem réttasta mynd af erfiðleikum barnsins, þörfum þess og framtíðarhorfum. Þetta er mjög mik- ilvægt fyrir rétta íhlutun og þjálfun. Mörg ein- kenni þroskafrávika skarast talsvert og því ekki alltaf auðvelt að setja nafn á hlutina en nákvæm þverfagleg athugun byggð á nýjustu þekkingu er það besta sem við höfum í dag.“ Þroskamál | Ráðstefna Greiningarstöðvar um mismunagreiningar á þroskaröskun  Íris Böðvarsdóttir er fædd á Eyrarbakka árið 1973. Hún lauk BA- prófi í sálarfræði frá Háskóla Íslands 1997 og Cand. Psych. í sál- arfræði frá Háskólanum í Árósum og embættis- prófi 2001. Hún hefur starfað sem sálfræð- ingur m.a. á Skólaskrif- stofu Austurlands, Miðstöð heilsuverndar Barna, Heilbrigð- isstofnun Suðurlands og á Greiningar- og ráð- gjafarstöð ríkisins auk þess sem hún starfar sjálfstætt fyrir barnaverndar- og félagsmála- yfirvöld. Íris er í sambúð með Karli Þór Hreggviðssyni sjávarútvegsfræðingi og á tvö stjúpbörn. Meiri meðvitund um þroskafrávik Árnaðheilla dagbók@mbl.is Áður fyrr á ullarfötum VÍSURNAR Áður fyrr á ullarfötum sem birtust í Velvakanda fyrir nokkru eftir fyrirspurn hefi ég aldr- ei séð fyrr. En við að lesa þær skaut upp í hug minn slitrum úr löngu gleymdum dönskum texta: För gik jeg med drengene í haven sing, sing, sing, með drengene í haven. Nu går jeg með börnene í maven sing, sing, sing det gör jo ingenting. För gik jeg með grever og baroner, sing, sing, sing með grever og baroner. Nu går jeg með byens lassaroner sing, sing, sing det gör jo ingenting. Lagið við þetta rifjaðist upp líka og hef ég verið að raula það und- anfarna daga. Edda. Að mála sig út í horn RÍKISSTJÓRNIN reiknar ekki með að verða endurkosin, ef marka má aðgerðir stjórnarflokka og ein- stakra ráðherra á þessu síðasta kjör- tímabili. Nú virðist vera um að gera að nota valdið til að koma ár sinni fyrir borð, í hvaða skilningi sem er. For- sætisráðherra, sem hefur haft sjö ár til að leggja fram frumvarp um að afnema allar gagnslausar þingskip- aðar nefndir, gerir ekkert til þess, en spyr á Alþingi: „Hvenær hefur einhver vitað til að nefndir kæmu einhverju í verk?“ til að afsaka það að ríkisstjórnin hafi ekki farið að lögum. Að lögum skal samt farið, þegar á að ráða fréttastjóra RÚV (nýta skal úreltu lögin, áður en þeim verður breytt, og ríkisstjórnarsetuna, sem ekki stendur til boða að eilífu), til að planta algjörlega óþekktum manni í ábyrgðarstöðu hjá RÚV. Menntamálaráðherrann hneyksl- aðist á hegðun starfsmanna RÚV, sem þótti sér misboðið. Hvað mundi hann (hún) segja, ef hún þyrfti að ráða í skólastjórastöður eftir um- sögn drukknaðra sjómanna? Þórhallur Hróðmarsson. Lyklar týndust BÍLLYKLAR og húslyklar týndust 5. febrúar sl. líklega á planinu við Kringluna, leikhúsmegin. Skilvís finnandi hafi samband við Rögnu í síma 564 3820. Silkitrefill týndist SILKITREFILL, vínrauður með kögri og munstri, týndist sl. föstu- dag, líklega í Firðinum Hafnarfirði, Smáralind eða á Seltjarnarnesi. Skilvís finnandi hafi samband í síma 464 3532 eða 696 0205. Fundarlaun. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 70 ÁRA afmæli. Föstudaginn 18.mars verður sjötugur Svavar Reynir Benediktsson, Asparfelli 6, Reykjavík. Af því tilefni bjóða hann og eiginkona hans, Sigríður Sigurð- ardóttir, vinum og vandamönnum til veislu í hátíðarsal hestamannafélagsins Fáks í Reiðhöllinni í Víðidal, kl. 20.30 föstudagskvöldið 18. mars. 50 ÁRA afmæli. 20. mars nk. verð-ur fimmtug Þórdís Ásgerður Arnfinnsdóttir, Miðhúsum. Af því til- efni tekur hún og fjölskylda hennar á móti gestum í Valfelli, Borgarhreppi, 18. mars frá kl. 20. SAUÐKINDIN, Leikfélag Mennta- skólans í Kópavogi, frumsýnir leik- ritið Kaffi Kash í dag, fimmtudag. Verkið er spunaverk unnið af leik- hópnum undir stjórn Gunnars I. Gunnsteinssonar, leikstjóra. Alls taka um 18 leikarar þátt í sýning- unni ásamt fjölda nemenda sem að- stoða við uppsetninguna. Verkið gerist á kaffihúsi í nú- tímanum og verða sýningargestir partur af sýningunni þar sem þeir eru auðvitað staddir á kaffihúsinu Kaffi Kash. Í verkinu fléttast nokkrar sögur saman en þær eiga allar eitthvað sameiginlegt. Per- sónurnar þurfa að grípa til ör- þrifaráða til þess að bjarga sér úr peningavandræðum og þá er spurt; hversu langt er manneskjan tilbúin að ganga fyrir peninga? Eða ást- ina? En kynlíf? Tilgangur verksins er ekki að svara þessum spurn- ingum heldur til að vekja fólk til umhugsunar. Verkið er sýnt í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2. Sýningar verða, auk frumsýningar, 18., 21., 22. og 31. mars og hefjast allar sýningar kl. 20. Sauðkindin frumsýnir Kaffi Kash Morgunblaðið/Ómar ��������� �� ��� ��������� � ���������� �� ��� ��������� ����� ��� ���� � ��������� F A B R IK A N ����������� �� ����������������� � ��������� ������ �������� ������� ������������� ���������������� ���������������������� ���� ����� ����� ����������� ����� �� ���������� �������������� �� ������ ������������� ��� ���������� ���� ���������� �� ���� ���������� ��� ����� ������� ��������� � ���������� ������ ��� ���������������� � ��� ����� ����� ����� �������� ��� ����� ������������������ ��� ����� �������� ����� ��������� � ���������� ��� ��������� � ��������� �� ���� ��� �������������� � ���������� ������������� ��� ���� ���� ������������� ������� �������� ������ �� ���������������� ��������� � ���������� ��������������� ��������� � ���������� ��������� �� ����������� ��� ���� ��� ����� ���� ����������� � ������������ ����� ����������� �� ����������������� � ��������� �������� ���������� �� ��������� � ��������� ������� HLJÓMPLATAN Áfangar – Stages inniheldur verk eftir Leif Þórarinsson, Jón Nordal, Pál Pampichler Pálsson, Áskel Másson og Atla Heimi Sveinsson. Hljómplatan er gefin út í samstarfi Íslenskrar tónverkamiðstöðvar og Smekkleysu, en hún inniheldur fimm verk fyrir klarinettu, selló, píanó og fiðlu, verk sem spanna tæpan aldarfjórðung í íslenskri tónlistarsögu. Verkin eru flutt af þeim Sig- urði Ingva Snorrasyni klarinettuleikara, Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara, Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara og Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara. Áfangar í klarinettutónlist

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.