Morgunblaðið - 17.03.2005, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2005 47
DAGBÓK
Brúðkaupssýningin Já
Textilline
Brúðkaup.is / Partýbúðin
Brúðkaupsvefur.is
Textílkjallarinn
Verið
Völusteinn
Ásmynd
Neto
Brúðarkjólaleiga Dóru
ISIS
Kristall og postulín
Iðnó
Líf og list
Seating Concept
Salka
Sony Center
Kokkur án bumbu
RS vín
Borð fyrir tvo
RB rúm
Konditori Copenhagen
Leonard
Ormsson Smáralind
Prima-Embla
Duka
Grand Hótel
Byggt og búið
Gréta ljósmyndari
Meba Rhodium
Unika
Hekla
Snyrtivörur
Föndurkofinn
Komdu og upplifðu
brúðkaupsævintýrið
í Vetrargarði
Smáralindar
helgina
18.-20. mars.
Allt á einum stað fyrir skipulagningu
draumabrúðkaupsins
Fatnaður • blóm • gjafavörur • matur
vín • kökur • ferðir • dekur
Keppendur
í Ungfrú Reykjavík 2005
sýna á tískusýningum á
Brúðkaupssýningunni 2005
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Kl. 9 vinnustofa, bað
og jóga, kl. 10 boccia, myndlist kl. 13,
vídeóhornið kl. 13.15, allir velkomnir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna
kl. 9–16.30, boccia kl. 9.30, helgistund
kl. 10.30, leikfimi kl. 11, smíði/útskurður
kl.13–16.30, myndlist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, hárgreiðsla, myndlist,
bókband, söngur, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag-
blöð, kl. 9–11 baðþjónusta, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin, kl. 10–14
handavinnustofan opin, kl. 11.15–12.15
matur, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Staf-
göngunámskeið hefst kl. 9. Mæting
Ásgarði, Glæsibæ. Leiðbeinandi Hall-
dór Hreinsson. Brids í dag kl. 13, fé-
lagsvist kl. 20.
Félag kennara á eftirlaunum | Bók-
menntaklúbbur í KÍ-húsi kl. 14.
Félagsmiðstöðin, Gullsmára 13 |
Bridsdeild FEBK, Gullsmára 13, spilar
mánu- og fimmtudaga. Skráning kl.
12.45 á hádegi. Eldri borgarar vel-
komnir. Þátttökugjald 200 kr.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Vatnsleikfimi og inni-golf á sama stað
kl. 11.30. Í Kirkjuhvoli spænska, 400, kl.
12, karlaleikfimi og málun kl. 13, trélist
kl. 13.30, spænska, byrjendur, kl. 18. Í
Garðabergi félagsvist kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30
helgistund, frá hádegi vinnustofur
opnar og spilasalur. Veitingar í Kaffi
Bergi.
Furugerði 1 | Kl. 9 aðstoð við böðun,
smíðar og útskurður, á morgun verður
messa kl. 14, prestur sr. Guðný Hall-
grímsdóttir, Furugerðiskórinn syngur.
Stjórn. Ingunn Guðmundsdóttir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna – bútasaumur, keramik, perlu-
saumur, kortagerð og nýtt t.d. dúka-
saumur, dúkamálun, sauma í plast.
Hjúkrunarfræðingur, hárgreiðsla, kl. 10
boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádeg-
ismatur, kl. 14 félagsvist, kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi frá kl.
9, pútt kl. 10, leikfimi í Bjarkarhúsinu
kl. 11.20, glerbræðsla kl. 13.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–13 bútasaumur o.fl í umsjón Sig-
rúnar, boccia kl. 10–11, hannyrðir hjá
Halldóru kl. 13–16.30, páskafélagsvist
kl. 13.30 kaffi og meðlæti, böðun virka
daga fyrir hádegi, fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Betri stofa og Listasmiðja 9–
16: Glerskurður og handverk. Aðstoð
við böðun 9. Sönghópur 13.30. Barna-
kór Hvassaleitisskóla syngur kl. 15
undir stjórn Kolbrúnar Ásgrímsdóttur.
Páskagleði í dymbilviku. Sýning, uppá-
komur, markaður og nýbökuð páska-
brauð. Uppl. í s. 568–3132.
Korpúlfar, Grafarvogi | Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á morgun, föstudag,
kl. 9.30.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 leir, kl. 9–
16.30 opin vinnustofa, kl. 10 ganga, kl.
13–16.30 leir.
Sjálfsbjörg | Skák í kvöld kl. 19.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–14 aðstoð v/
böðun, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl.
9–10 boccia, kl. 10.15–11.45 enska, kl.
10.15–11.45 spænska, kl. 13–14 leikfimi,
kl. 13–16 kóræfing, kl. 13–16 gler-
bræðsla. Kl. 13 verður farið í Þjóð-
minjasafnið í boði lögreglunnar o.fl.
styrktaraðila. Skráning í s. 535–2740.
Kl. 10.30 fyrirbænastund í umsjón sr.
Hjálmars Jónssonar. Þorvaldur Hall-
dórsson leikur á hljómborð.
Þórðarsveigur 3 | Bingó kl. 13.30.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyr-
irbænastund kl. 12. Léttur hádeg-
isverður á eftir.
Áskirkja | Opið hús kl. 14–17 í dag.
Samsöngur undir stjórn organista,
kaffi og meðlæti. Allir velkomnir. TTT-
starfið, samvera kl. 17–18 í dag. TEN-
SING-starfið, æfingar leik- og söng-
hópa kl. 17–20.
Breiðholtskirkja | Biblíulestur í um-
sjón dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar kl.
20. Viðfangsefni: Tilvist og trú.
Bústaðakirkja | Kl. 10–12 koma for-
eldrar saman með börn sín og ræða
lífið og tilveruna. www.kirkja.is.
Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl.
10 til 12. Umsjón Anna Arnardóttir.
Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl
12.10. www.digraneskirkja.is
Fella- og Hólakirkja | Helgistund í
Gerðubergi í umsjá presta Fella- og
Hólakirkju kl. 10.30. Stelpustarf 3–5.
bekkur, kl. 16.30–17.30. Foreldra-
morgnar kl. 10–12. Allir foreldrar, afar
eða ömmur sem eru heima með barn
eða börn eru velkomin.
Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í Vídalínskirkju kl. 22. Prestar og
djákni taka við bænarefnum. Boðið
upp á kaffi eftir stundina.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar
kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar
samverustundir, ýmiss konar fyr-
irlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús
og brauð fyrir börnin. Kirkjukrakkar í
Húsaskóla kl. 17.30–18.30 fyrir 7–9
ára. Kirkjukrakkar í Grafarvogskirkju
kl. 17.30–18.30 fyrir 7–9 ára. „Á leið-
inni heim,“ helgistund með Passíusál-
malestri kl. 18. Í dag les Jónína Bjart-
marz, alþingismaður.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, íhugun. Léttur málsverður
í safnaðarheimili.
Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 6–9 ára
börn kl. 16.30–17.30. Opið hús kl. 12–
14. Léttur hádegisverður og skemmti-
leg samverustund.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Sam-
vera eldri borgara kl. 15. Hugvekja,
syngjum saman og fáum okkur kaffi og
með því. Allir velkomnir. „Eldurinn“ kl.
21. Fyrir fólk á öllum aldri. Lofgjörð
vitnisburðir og kröftug bæn.
KFUM og KFUK | Ad KFUM heldur
hátíðarfund á Holtavegi 28 í kvöld.
Fundurinn hefst með borðhaldi kl. 19.
Dagskrá í höndum karla í stjórn KFUM
og KFUK. Nýir félagar boðnir vel-
komnir. Skráning í s. 588 8899 kl. 9–
16 í síðasta lagi á mið.
Langholtskirkja | Samvera kl. 10–12 í
samstarfi við Heilsuvernd barna.
Fræðsla annan hvern fimmtudag,
spjall, kaffisopi, söngur.
Laugarneskirkja | Kl. 12 Kyrrðarstund.
Léttur málsverður á eftir. Kl. 14 Sam-
eiginleg guðsþjónusta í Áskirkju.
Messukaffi. Kl. 17.30 KMS (14–20 ára).
Æfingar fara fram í Áskirkju og Fé-
lagshúsi KFUM & K.
Íslandsmótið.
Norður
♠65
♥ÁG953
♦K964
♣95
Vestur Austur
♠D9742 ♠108
♥86 ♥D102
♦D3 ♦10852
♣G1072 ♣8643
Suður
♠ÁKG3
♥K74
♦ÁG7
♣ÁKD
Sex hjörtu er fyrirtaks slemma í NS,
en drottningar varnarinnar eru vel fald-
ar og gera sagnhafa erfitt fyrir.
Spilið er frá fjórðu umferð Íslands-
mótsins. Slemma var sögð á 34 borðum
af 40. Tólf sagnhafar unnu sex hjörtu,
oftast eftir hagstætt útspil, til dæmis
spaða upp í ÁKG, en þeir sem fengu út
lauf fóru undantekningarlítið niður.
Hvernig myndi lesandinn spila með
laufgosa út?
Til að byrja með er eðlilegt að taka
hjartakóng og svína hjartagosa. Austur
fær þann slag og spilar til dæmis laufi.
Sagnhafi tekur þá þriðja trompið og
þarf síðan að velja á milli tveggja leiða:
(1) Taka ÁK í spaða og trompa spaða
í þeirri von að drottningin komi önnur
eða þriðja, en svína tígulgosa ef spaða-
drottningin fellur ekki.
(2) Taka ÁK í tígli og svína svo spað-
gosa ef tíguldrottningin er ekki þegar
fallin.
Síðari leiðin skilar tólf slögum, en ís-
lenskir spilarar eru nógu vel lesnir til að
velja þá fyrri, enda er hún um það bil
tvöfalt líklegri til árangurs.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Fréttir á SMS
TÓNLISTARMAÐURINN Phil Elverum, sem
áður starfaði undir heitinu The Microphones
en nú Mount Eerie, mun halda nokkra tón-
leika hérlendis næstu daga. Plötur hans hafa
verið lofaðar í hástert af gagnrýnendum og
þykir plata Microphones frá 2001, The Glow,
pt. 2, vera ein merkasta plata sem út hefur
komið í óháða geiranum undanfarin ár.
Í gær tróð Elverum/Mount Eerie upp í
matsal MH en í kvöld, klukkan 20.00, verður
hann í Frumleikhúsinu Keflavík, ásamt Þóri
og Woelv (sem er listamannsnafn konu hans,
Geneviève Castrée). Á morgun klukkan
17.00 verður hann í Smekkleysubúðinni,
Kjörgarði ásamt Woelv, Skakkamanage og Brite Light. Lokatónleikarnir verða svo í Klink
og Bank á laugardaginn. Þeir hefjast klukkan 20.00 og einnig leika Þórir, Woelv og Gavin
Portland.
Aðgangseyrir að tónleikunum í Keflavík og Klink og Bank er 500 krónur en frítt er á
Smekkleysutónleikana.
Mount Eerie á Íslandi