Morgunblaðið - 17.03.2005, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 17. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
KJALAR ehf., félag í aðaleigu Ólafs Ólafssonar,
stjórnarformanns Samskipa, hefur eignast 55,7%
hlut í Keri hf., sem er aðaleigandi Olíufélagsins
hf. Félagið átti áður 41% í Keri.
Kjalar keypti bæði mestan hlut Vogunar (áður
Hvals hf.) eða rúm 11% og allan 2% hlut Fisk-
veiðihlutafélagsins Venusar í Keri. Kristján
Loftsson og Árni Vilhjálmsson hafa farið fyrir
þessum félögum.
Mikil átök hafa verið um eignarhluti í Keri að
undanförnu eftir að Fjárfestingarfélagið Grettir
keypti 34,02% í félaginu. Fram kom í fréttaskýr-
ingu í Morgunblaðinu um seinustu helgi að Ólaf-
ur, Árni og Kristján ætluðu
að standa þétt saman inni í
Keri og halda meirihlutanum.
Eftir þessi viðskipti á Vogun
5% hlut í Keri, Kjalar 55,7%,
stjórnendur 4,4% og Grettir
rúm 34%.
Kaupverðið í viðskiptunum
er ekki gefið upp en Ólafur
sagðist í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi vera
ánægður. „Nú erum við búnir að gera alveg klár-
an meirihluta í félaginu,“ sagði hann. Í yfirlýs-
ingu í gær segjast Ólafur og Kristján vilja með
þessum viðskiptum styrkja stöðu Kers og
tryggja rekstrarlegan stöðugleika félagsins. Með
kaupunum hafi verið eytt þeirri óvissu sem skap-
ast hafi með nýjum eigendum sem komið hafa að
Keri að undanförnu.
„Meirihlutinn lá alveg fyrir. 66% hluthafa hafa
staðið saman og munu gera það áfram, en það er
einn með kláran meirihluta,“ segir Ólafur.
Spurður hvort áhugi sé á að eignast stærri hlut
í Keri segir Ólafur: „Við erum alveg tilbúnir til
þess, verði okkur boðið það og ef menn eru að
tala um einhverja skynsemi í þeim viðskiptum.“
Félag í eigu Ólafs Ólafssonar í Samskipum hefur eignast 55,7% í Keri
„Einn með kláran meirihluta“
Ólafur Ólafsson
FLUGFARGJÖLD til útlanda hafa hækk-
að um 4,4% milli ára, samkvæmt undirvísi-
tölu neysluverðs í mælingum Hagstofu Ís-
lands. Er þá
miðað við mars
árið 2004 og sama
mánuð í ár.
Hækkun frá febr-
úar sl. nemur
2,5% en hæst eru
gjöldin jafnan um
hásumarið og
lækka gjarnan að
hausti. Tekur
Hagstofan mið af
nokkrum algengum flugfargjöldum hjá Ice-
landair og Iceland Express.
Þegar leitað er skýringa á þessari hækk-
un hjá flugfélögunum benda þau á hækkun
eldsneytisverðs, en þotueldsneyti er nú 65%
hærra á heimsmarkaði en fyrir ári. Félögin
segja lækkun dollars síðan hafa dregið úr
hækkunarþörfinni en frá því í mars 2004
hefur gengi dollars lækkað um 17%./8
Flugfargjöld
4,4% hærri
en fyrir ári
N
2 , 2 N N O * G ) N
2
5-( 6
& ' 54$ (9/5(
:('L: $;7 H '
VEL VAR mætt á opnum fundi í BÚR-
húsinu við Grandagarð í gær þar sem
rammaskipulag Mýrargötu-Slippsvæðisins
var kynnt en þar er gert ráð fyrir um 500
nýjum íbúðum og 15 þúsund fermetra at-
vinnuhúsnæði. Reiknað er með 3–5 hæða
byggð að jafnaði en að á ákveðnum stöðum
yrði leyfð allt að 6–7 hæða byggð.
Íbúar á svæðinu gerðu ýmsar at-
hugasemdir við rammatillöguna, sér í lagi
við hæð bygginga, að ekki væri gert ráð
fyrir íbúðum í byggingum við höfnina o.fl.
Richard Briem verkefnisstjóri sagði at-
hugasemdir við hæð bygginga á svæðinu
ekki fyllilega réttmætar. Í tillögunni væri
útgangspunkturinn einmitt að sýna þeirri
byggð sem fyrir er tilhlýðilega virðingu.
Þannig væri gert ráð fyrir 2–3 hæða húsum
á Nýlendugötunni og á svæðinu ofan Mýr-
argötu sem væri í takt við hæð húsa sem
þegar væru þar. Byggingar hækkuðu síðan
þegar nær drægi sjónum þar sem landið
lækkaði, þannig gætu verið sex hæða bygg-
ingar neðst án þess að þær stæðu upp úr.
Þá benti Richard og á að á Slippsvæðinu
þyrfti að kaupa upp lóðir, rífa þar og
hreinsa til og byggðin þar þyrfti að bera
þessar aðgerðir.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hvert sæti var setið á kynningarfundinum þar sem kynntar voru helstu niðurstöður rammaskipulagstillögunnar.
Opinn fundur með íbúum um uppbyggingu á Mýrargötu-slippsvæðinu
Byggðinni sem fyrir er sýnd virðing
Áhyggjur/28
SAMNINGUR hefur verið gerður
milli líftæknifyrirtækisins Urðar,
Verðandi, Skuldar (UVS) og
Roche Diagnostics í Basel í Sviss
um samstarf á sviði krabbameins-
rannsókna, sem einkum mun bein-
ast að rannsókn á líffræðilegum
eiginleikum krabbameinsæxla.
Þórunn Rafnar, framkvæmda-
stjóri rekstrar hjá UVS, segir að
þessi samningur skipti miklu máli
fyrir fyrirtækið. Hún segir að á
undanförnum árum hafi fyrirtæk-
ið unnið að krabbameinsrannsókn-
um á Íslandi með samstarfsaðilum
sínum sem séu Landspítali há-
skólasjúkrahús, samstarfslæknar
og Krabbameinsfélag Íslands. Á
þessum tíma hafi tekist að byggja
upp rannsóknarefnivið sem sé
ómetanlegur fyrir þær rannsóknir
sem hér um ræði, enda sé hann
farinn að vekja töluverða athygli
erlendis. UVS sé þannig að verða
eftirsóttur samstarfsaðili í svona
alþjóðlegt rannsóknarverkefni.
Leita sameinda
Samstarfsverkefnið miðar að
því að leita sameinda sem geta
sagt fyrir endurkomu tiltekinna
krabbameina og staðfest gildi
sameinda sem áður hafa fundist.
UVS var stofnað árið 1998 og er í
eigu íslenskra fjárfesta. Hjá fyr-
irtækinu starfa um 25 manns.
„Í stórum dráttum gengur verk-
efnið út á að leita leiða til að bæta
meðferð við krabbameini. Það er
vel þekkt að ákveðin krabbameins-
lyf geta virkað vel hjá sumum
sjúklingum en haft lítil áhrif í öðr-
um tilfellum. Ástæður þess að lyfin
hafa svona mismikla virkun eru
ekki þekktar og það er meðal ann-
ars það sem við erum að skoða í
þessu samstarfi,“ sagði Þórunn.
Hún sagði að ef hægt væri að
finna líffræðilegar ástæður þess að
æxli svara lyfjameðferð misvel
yrði hægt að gera meðferð miklum
mun markvissari en áður. Þannig
yrði mögulegt að meta fyrirfram
hvaða lyf mundu gagnast hvaða
sjúklingi best, gefa strax þau lyf
sem væru líkleg til að verða árang-
ursríkust og hlífa sjúklingum við
meðferð með lyfjum sem kæmu að
takmörkuðu gagni. Þá gætu nið-
urstöður einnig leitt til þróunar
nýrra lyfja. „Við lítum á þetta sem
einstakt tækifæri til að leggja okk-
ar lóð á vogarskálarnar í barátt-
unni við krabbamein. Roche er öfl-
ugt rannsóknarfyrirtæki á sviði
krabbameins og það er talsverður
ávinningur bæði fyrir þá og UVS
af þessu samstarfi,“ sagði Þórunn.
UVS og Roche gera með
sér samstarfssamning
HARALD Andresen, forstjóri norræna lág-
fargjaldaflugfélagsins Sterling, er þeirrar
skoðunar að það sé hagkvæmt að sameina
Iceland Express og
Sterling.
Í samtali við Við-
skiptablað Morg-
unblaðsins í dag
segir Harald
Andresen m.a.
„Sterling er nú
þegar í mjög góðu samstarfi við önnur nor-
ræn lágfargjaldaflugfélög eins og Norwegi-
an og Fly Nordic og ég er þeirrar skoðunar
að niðurstaða nýrra eigenda verði sú að
sameina Iceland Express og Sterling. Það
er ekki þar með sagt að það gerist strax …
en ég tel einfaldlega að það séu svo miklir
möguleikar til hagræðingar fólgnir í slíkum
samruna.“
Fram kemur að aðrir fjárfestar hafi verið
að skoða Sterling. Félagið hefur vaxið mjög
ört undanfarin ár. Það hafi 16% markaðs-
hlutdeild í Evrópu meðal lágfargjaldaflug-
félaga og sé stærst á Norðurlöndum. Mark-
aðssókn félagsins hafi reynst því mjög
kostnaðarsöm, og því hafi félagið undanfar-
in þrjú ár tapað um 100 milljónum dönskum
á ári, eða um einum milljarði króna. Ekki
þurfi lengur að kosta jafn miklu til og áður,
heldur eigi menn nú að einbeita sér að því
að halda markaðshlutdeildinni./B4
Hagkvæmt að
sameina Ice-
land Express
og Sterling
VEÐURSTOFAN spáir fremur mildu
veðri í páskavikunni, ríkjandi austan- og
suðaustanáttum og hita fyrir ofan frost-
mark á láglendi. Úrkoma verður öðru
hvoru alla vikuna, en þó einna síst suðvest-
an- og vestanlands.
Spáin gildir frá pálmasunnudegi til
páskadags eða í heila viku
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að
þessi spá segi til um veðurútlit almennt
séð alla vikuna, en geri ekki greinarmun
milli einstakra daga. Hún sé fengin með
tölvuútreikningum frá evrópsku reikni-
miðstöðinni í Reading á Englandi, en þar
sé heildarútlit vikunnar fundið út með lík-
indadreifingu.
Milt veður í
páskavikunni
♦♦♦
♦♦♦