Morgunblaðið - 20.03.2005, Side 8
8 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
24. mars, skírdagur
21.00 Kvöldmessa í Minningarkapellu sr. Jóns Steingrímssonar. Prestur
sr. Bryndís Malla Elídóttir.
25. mars, föstudagurinn langi
10.00 Á slóðum Skaftárelda, í Minningarkapellu sr. Jóns Steingrímssonar.
Inngangur: Jón Helgason. Erindi: Hvenær gerir skaparinn kraftaverk?
Pétur Pétursson prófessor.
Upplestur úr Eldritinu og sögum Jóns Trausta; Jóna Sigurbjartsdóttir og Gunnar Jónsson.
Tónlist: Brian R. Haroldsson organisti.
Hádegishlé
13.00 Rútuferð frá Hótel Kirkjubæjarklaustri á útsýnisstað við Holt á Síðu og skyggnst
um yfir Skaftáreldahraunið. Ekið að Hunkubökkum og gengið austur brúnir Klausturheiðar
að Systrastapa og þaðan í gamla kirkjugarðinn við Minningarkapelluna, þar sem gangan
endar um kl. 16.00. Á leiðinni er litið yfir sögusviðið og Pétur Pétursson prófessor ræðir
um trú og náttúrusýn. Fararstjóri: Jón Helgason. Rútuferð kostar kr. 500 á mann,
frítt fyrir 14 ára og yngri. Fólki er bent á að vera vel búið í samræmi við árstíma
og taka með sér hressingu.
26. mars, laugardagur
12.30 Rútuferð frá Hótel Kirkjubæjarklaustri austur Síðu og Fljótshverfi.
Litið yfir sögusvið Skaftárelda og komið við í Bænhúsinu á Núpsstað. Komið til baka
að Kirkjubæjarklaustri um kl. 16.00. Rútuferð kostar kr. 1.500 á mann,
hressing innifalin. Frítt fyrir 14 ára og yngri.
16.30 Ljóð og hljóð, tónleikar í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri.
Frumflutt verður tónlist eftir Guðmund Óla Sigurgeirsson, við ljóð Finns Torfa
Hjörleifssonar. Flytjendur eru Anna Hafberg mezzósópran, Oddný Sigurðardóttir
mezzósópran, Gunnar Pétur Sigmarsson baryton og Brian R. Haroldsson píanó-
og sellóleikari. Aðgangseyrir kr. 1.500.
27. mars, páskadagur
9.00 Sigur lífsins: Morgunganga frá Minningarkapellu sr. Jóns Steingrímssonar
að Prestsbakkakirkju á Síðu þar sem gangan endar um kl. 10.30.
11.00 Hátíðarmessa í Prestsbakkakirkju. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir.
Skrá þarf þátttöku í rútuferðir á föstudegi og laugardegi
fyrir kl. 12.00 miðvikudaginn 23. mars.
Þátttaka í gönguferðum er öllum opin. Gönguferðir taka mið af veðri og aðstæðum
á þessum árstíma og er fólki bent á að vera vel búið.
Skráning og nánari upplýsingar fást í síma 487 4645, 892 9650
eða á netfanginu: kbstofa@simnet.is og olafiaj@centrum.is
Sigur lífsins - Á slóðum Skaftárelda
Kirkjubæjarstofa - Dagskrá á Kirkjubæjarklaustri
um bænadaga og páska 2005
Það var orðið tímabært að fá verndarengil að sukkinu.
Halldór Ásgrímssonforsætisráðherralýsti því yfir á
opnum stjórnmálafundi í
Reykjanesbæ fyrir
skemmstu að hann sæi
fyrir sér að Landhelgis-
gæslan flytti starfsemi
sína í framtíðinni í Reykja-
nesbæ, og hafa menn sett
ummæli ráðherrans í sam-
hengi við minnkandi um-
svif varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli. Benti
Halldór m.a. á að þar væru
fyrir hendi bæði góð hafn-
arskilyrði og flugvöllur.
Margir vilja Gæsluna
Ummæli ráðherrans
hafa vakið marga til umhugsunar,
en ljóst er að á undanförnum árum
hafa mörg sveitarfélög óskað eftir
að fá til sín Landhelgisgæsluna og
er Ísafjarðarbær eitt þeirra. Bæj-
arfulltrúi Frjálslyndra og óháðra
á Ísafirði, Magnús Reynir Guð-
mundsson, lagði fram fyrirspurn á
fundi bæjarstjórnar í síðustu viku
af þessu tilefni, þar sem hann
spurði hvort farið hefðu fram við-
ræður dómsmálaráðuneytisins
eða forsætisráðuneytisins á und-
anförnum mánuðum um mögu-
leika Ísafjarðarbæjar til að þjón-
usta Landhelgisgæsluna.
Halldór Halldórsson, bæjar-
stjóri á Ísafirði, segir að bærinn
hafi átt samskipti við dómsmála-
ráðuneytið vegna málsins, og að
þar hafi komið fram að ekki sé
áhugi á að færa verkefni stofnun-
arinnar út á land að sinni.
Kostir Keflavíkur
Þeir sem rætt var við segja að
jafnvel þótt engin ákvörðun hafi
verið tekin í þá veru að færa
starfstöðvar Landhelgisgæslunn-
ar út á land, geti verið kostur að
færa starfsemina síðar meir til
Keflavíkur, ef varnarliðið fer á
annað borð. Þá sé komin aðstaða
fyrir Landhelgisgæsluna að taka
yfir þyrlurekstur á Keflavíkur-
flugvelli og þar með fyrirsjáanlegt
að auka þyrfti þyrlurekstur og
annan rekstur Landhelgisgæsl-
unnar umtalsvert.
Bent hefur verið á að starfsemi
Landhelgisgæslunnar sé vel til
þess fallin að færa hana út á land,
en til þess þurfi góða hafnarað-
stöðu og góða aðstöðu fyrir flug-
vélar, eins og ráðherra benti raun-
ar á að væri hvort tveggja fyrir
hendi í Reykjanesbæ.
Skref aftur á bak?
Eins og staðan er í dag er Land-
helgisgæslan hins vegar að flytja
starfsemi sína frá Seljavegi í
Skógarhlíð og framundan eru stór
verkefni hjá Gæslunni, þ.e. end-
urnýjun skipaflota og flugkosts.
Á hinn bóginn eiga sumir bágt
með að sjá fyrir sér að um leið og
verið sé að byggja undir sameig-
inlega björgunarmiðstöð; vakt-
stöð siglinga, Neyðarlínu og lög-
reglu, séu vangaveltur um að færa
starfsemi Landhelgisgæslunnar
út á land. Með því væri hugsan-
lega stigið skref aftur á bak hvað
öryggismál varðar og nær að ræða
um að flytja starfsemina í heilu
lagi út á land.
Jákvæðir í garð breytinga
Heimildir Morgunblaðsins
herma að yfirstjórn Landhelgis-
gæslunnar sé almennt mjög já-
kvæð í garð þeirrar hugmyndar að
færa starfsemina í Reykjanesbæ,
þ.e. ef grundvallarbreyting verður
á stöðu varnarliðsins og verkefni
og rekstur Gæslunnar verða aukin
til muna. Heimildir blaðsins
herma ennfremur að þreifingar
séu í gangi milli bandarískra og ís-
lenskra stjórnvalda um hlutverk
Gæslunnar í þessu sambandi, en
enn sem komið er er ekkert komið
fram sem hönd er á festandi í þeim
efnum.
Flugsveit og þyrlusveit
hanga saman
Bent hefur verið á að meðan
flugsveit sé á Keflavíkurflugvelli
þurfi þyrlusveit varnarliðsins að
vera það líka. Fari flugsveitin fari
þyrlusveitin óhjákvæmilega einn-
ig, enda styðji hvort tveggja hvað
annað.
Það myndi aftur þýða að gjör-
breyting yrði á umsvifum þyrlu-
sveitar og rekstri Gæslunnar yf-
irhöfuð, sem fyrr segir.
Gæslan vel til þess fallin
að flytja út á land
Magnús Reynir, bæjarfulltrúi á
Ísafirði, spurði ennfremur á áður-
nefndum bæjarstjórnarfundi,
hvort flutningur Landhelgisgæsl-
unnar frá Reykjavík út á land
hefði ekki komið til tals sem liður í
byggðaáætlun. Þeir sem rætt var
við segja ekkert því til fyrirstöðu
að færa ríkisstofnanir eins og
Landhelgisgæsluna út á land og í
raun sé sú stofnun vel til þess fall-
in, svo fremi sem öryggismál verði
ekki fyrir borð borin með því að
skipta upp svonefndri Björgunar-
miðstöð í Skógarhlíð, sem Land-
helgisgæslan á aðild að og sem
unnið hefur verið að að treysta í
sessi. Varðandi Björgunarmið-
stöðina megi benda á að unnið hafi
verið að uppbyggingu öryggis-
mála á Akureyri, sem styður við
starfsemi hennar, og það út af fyr-
ir sig sé byggðarmál, að færa
starfsemina að einhverju leyti út á
land og þar með auka öryggi.
Fréttaskýring | Framtíðarstaðsetning
Landhelgisgæslunnar
Rætt um
aukin umsvif
Spurt hvað taki við ef varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli hverfur á brott
Þyrlur Gæslunnar og varnarliðsins.
Flutningur ríkisstofnana
er byggðamál
„Okkur væri hollt að líta til
reynslu Norðmanna í þessum
efnum og það væri eðlilegt að
ríkisstjórnin setti sér eitthvert
markmið í þessu máli, sér-
staklega ef nýjar stofnanir eru
settar á fót,“ segir Halldór Hall-
dórsson, bæjarstjóri á Ísafirði,
um flutning ríkisstofnana al-
mennt út á landsbyggðina, en
Ísafjörður er eitt þeirra sveitar-
félaga sem hafa falast eftir að
þjónusta Landhelgisgæsluna.
kristjan@mbl.is