Morgunblaðið - 21.03.2005, Side 10

Morgunblaðið - 21.03.2005, Side 10
10 MÁNUDAGUR 21. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SKIPULAGSBREYTINGAR tóku nýlega gildi hjá Sparisjóði Reykja- víkur og nágrennis, SPRON. Stofn- uð voru sex afkomusvið og þrjú stoðsvið, auk dótturfélaga. Meðal framkvæmdastjóra yfir þessum sviðum er Harpa Gunnarsdóttir, sem verður yfir þjónustusviði. Er hún fyrst kvenna til að hljóta svo háa stöðu innan SPRON og jafnframt eina konan í hópi 13 æðstu stjórn- enda sjóðsins. Þess skal þó getið að kona er í stóli stjórnarformanns SPRON, Hildur Petersen. Harpa hefur unnið hjá sparisjóðn- um í 22 ár, eða allt frá því hún var í Verslunarskóla Íslands og lauk það- an stúdentsprófi. Síðan hefur hún gegnt ýmsum störfum hjá sjóðnum og um leið aukið við menntun sína. Fyrir um tíu árum lauk hún við- skipta- og rekstrarnámi við Endur- menntunarstofnun Háskóla Íslands og sl. vor útskrifaðist hún úr MBA- námi frá Háskólanum í Reykjavík, með áherslu á mannauðsstjórnun. Áður en Harpa var á dögunum ráðin framkvæmdastjóri þjón- ustusviðs hafði hún um fimm ára skeið verið forstöðumaður starfs- mannaþjónustu SPRON. Þjón- ustusvið er eitt þriggja nýrra stoðsv- iða og annast alla bakvinnslu og umsjón þeirra þátta sem tengjast daglegum rekstri afkomusviða sparisjóðsins. Harpa segir nýju stöðuna leggjast vel í sig og vonandi sé þetta bara fyrsta skrefið í þá átt að fjölga kon- um í stjórnunarstöðum hjá SPRON. Almennt sé þörf á því í íslenska bankakerfinu, þar sem konur eru um 75% allra starfsmanna. Á síðustu árum hafi konum sem betur fer ver- ið að fjölga í efstu þrepum hjá fjár- málastofnunum. Harpa er gift Guðmundi Bald- urssyni, markaðs- og sölustjóra hjá útgáfufélaginu Fróða, og eiga þau þrjár dætur. Fyrst kvenna framkvæmdastjóri hjá SPRON Morgunblaðið/Árni Sæberg Harpa Gunnarsdóttir, fyrsta konan í framkvæmdastjórastöðu hjá SPRON. BRÚÐKAUPSSÝNINGIN Já stóð í Smáralindinni fjórða árið í röð. Meðal þess sem sjá mátti voru hlut- ir sem lúta að veislunni, undirbún- ingnum, skreytingum, kjólnum, brúðkaupsferðinni, boðskortum, gjöfum og fleira. Þá mátti líta brúð- kaupsfatnaðinn og veisluföt á tísku- sýningum. Hulda Birna Baldursdóttir og El- ín María Björnsdóttir hafa staðið að skipulagningu brúðkaupssýning- arinnar. Sýningin hefur að sögn þeirra farið sífellt vaxandi og gest- um fjölgað jafnt og þétt. „Það bætast náttúrlega ný brúð- hjón, fjölskyldur og vinir við á hverju ári,“ segir Hulda. „Og fólki þykir þægilegt að finna allt á einum stað. Það hefur loðað svolítið við brúðkaupin að konurnar ráða dálít- ið meira og karlarnir hafa stundum verið teymdir með og hafa lítið fundið við sitt hæfi. Núna ákváðum við að taka þetta alla leið fyrir karl- ana og Sony Center er hér með græjur fyrir karlana. Ég sé það að karlarnir brosa hringinn.“ Á sýninguna koma einnig helstu upprennandi brúðkaupssöngvarar þjóðarinnar, m.a. Jón Sigurðsson, Regína og Sessý og syngja á milli atriða. „Það finnst mörgum gott að heyra í söngvurunum áður en þeir ráða þá, sérstaklega ef þetta er fólk sem er ekki þekkt. Það er gríðarleg ásókn hjá tónlistarfólki að koma hingað og syngja hjá okkur. Þeir sem hafa sungið hjá okkur hérna hafa orðið þekktir í brúðkaups- bransanum árið eftir,“ segir Elín. Þess má geta að þær eru báðar giftar meðlimum í hljómsveitinni Í svörtum fötum. Elín María er kvænt gítarleikaranum Hrafnkatli Pálmarssyni og Hulda Birna er gift Einari Erni Jónssyni hljómborðs- leikara, en þeir eru báðir afar virk- ir í að hjálpa þeim vinkonum með sýninguna. „Þeir hjálpa okkur að sjá um tónlistina og fjármálastýr- ingu og þetta er afar gott fyrir hjónabandið að vinna svona hluti saman,“ segir Elín. Morgunblaðið/Eggert Allt fyrir brúðkaupið ELÍAS Jón Guðjónsson, fulltrúi Há- skólalistans, var kosinn formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands á skiptafundi ráðsins með tveimur at- kvæðum en 18 stúdentaráðsliðar sátu hjá við kosninguna. Sú staða kom upp eftir kosningarnar í febrúar að engin fylkinganna fékk hreinan meirihluta. Vaka og Röskva fengu níu menn í stúdentaráð og Háskóla- listinn tvo. Á skrifstofu Stúdentaráðs munu starfa starfsmenn frá bæði Vöku og Röskvu. Af fastanefndum Stúdenta- ráðs mun Vaka leiða þrjár nefndir, Röskva sömuleiðis þrjár og Háskóla- listinn eina nefnd. Elías Jón bendir á það að Háskólalistinn hafi ekki viljað fara út í meirhlutasamstarf, hvorki með Vöku né Röskvu. „Það er kom- inn svolítill þrýstingur á það að vinna málin saman, og komast að góðum og sameiginlegum niðurstöðum,“ segir Elías Jón sem hefur trú á að slíkt samstarf muni ganga upp. „Ég hef mikla trú á öllum sem sitja í ráðinu og þeir eru allir tilbúnir að leggja sitt af mörkum til að vinna í þágu stúdenta,“ segir hann. Í tilkynningum frá Vöku og Röskvu kemur fram að fylkingarnar hefðu viljað sjá aðra útkomu úr við- ræðunum. Báðar fylkingarnar eru þó sammála um nauðsynlegt hafi verið að virkja Stúdentaráð á nýjan leik með formlegum hætti og vinna málefnum stúdenta. Starfsemi ráðs- ins hafði legið niðri í um tvo mánuði. Elías Jón Guðjónsson formaður Stúdenta- ráðs HÍ Umræðan  Daglegt málþing þjóðarinnar á morgun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.