Morgunblaðið - 21.03.2005, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 21.03.2005, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 21. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF OPNUNARTÍMI MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA....... LAUGARDAGA..................................... SUNNUDAGA....................................... 14 - 18 11 - 16 13 - 16 Hægindastóll • Microfiber áklæði • Verð áður 42.600,- Ver› kr. 29.800 30% afsláttur Vaxtalaust í 3 mánuði eða aðeins 9.934,- á mánuði SETT EHF • HLÍ‹ASMÁRA 14 • 201 KÓPAVOGUR SÍMI 534 1400 • SETT@SETT.IS Einstakt tilboð Glæsileg húsgögn frá Brasilíu Kirkjulundi 17 (v/Vífilsstaðaveg) Garðabæ Sími: 565 3399 FYRIR HEIMILIÐ OG BÚSTAÐINN Þú flytur með okkur! Klettagarðar 1 • Sími: 553 5050 SENDIBÍLASTÖÐIN H.F sendibilastodin.is NÝSMÍÐI - BREYTINGAR - VIÐGERÐIR HLYNUR SF alhliða byggingastarfsemi Pétur J. Hjartarson húsasmíðameistari SÍMI 865 2300                   !"#$%&'()* +++,-.$-/-,% Kirkjulundi 13 - Garðabæ - s: 565 6900 - taeknisalan@simnet.is ÚR ÁLI, með eða án lóðréttra pósta Þ róunarverkefni við leikskóla Húsa- víkurbæjar fer nú að sigla af stað eftir talsverðan undirbúningstíma, en það ber yfirskriftina „Betri grunnur, bjartari framtíð“ og mið- ar að því að finna og greina börn á leikskólaaldri með frávik í hreyfiþroska og þau börn sem sýna merki þess að eiga á hættu að dragast aftur úr jafnöldum sínum svo að grípa megi inn í og bæta úr áður en börnin ná grunn- skólaaldri. Verkefnið er lið- ur í því sem kalla má snemmtæka íhlutun í þroska ungra barna, en fræðimenn telja nú að hreyfireynsla á unga aldri og áhrif hennar á þroska heilans hafi, sé henni rétt beitt, mikil áhrif til há- marks hreyfiþroska, há- marks greindarþroska og heildarþroska einstaklings- ins. Hugmyndasmiður verkefnisins er dr. Carola Frank Aðalbjörnsson, sérfræðingur í hreyfi- þjálfun ungbarna og vinnur samstarfsteymi fagaðila að því að hrinda hugmyndunum í fram- kvæmd. Haldin hafa verið tvö námskeið fyrir leikskólastarfsfólk, sem mun vinna verkefnið, og á þau námskeið var boðið íþróttakennurum og stuðningsfulltrúum úr Borgarhólsskóla á Húsavík. Stefnt er að stuttu námskeiði fyrir for- eldra og vinna er hafin við gerð kennsluáætlana. Húsvískt framlag Hreyfiþroski barnanna verður skimaður og prófaður í haust með prófum, sem samræmast aldri þeirra og í framhaldinu verður valinn hóp- ur, sem taka mun þátt í sérstakri þjálfun, sem standa mun yfir tvisvar í viku í tólf vikur. Að þeim tíma liðnum verður hreyfiþroski barnanna prófaður að nýju og framfarir metnar. Þegar þessu innleiðingarferli er lokið eiga leikskólarnir fjölda góðra þjálfunaráætlana, sér- sniðna að ákveðnum aldurs- hópum. „Við stefnum að því að markviss hreyfing fái aukið vægi í leikskólastarf- inu í framtíðinni og að hús- vískir leikskólar geti orðið fyrirmynd annarra í góðri og markvissri þjálfun. Sveitar- félagið er meðal þeirra sveit- arfélaga, sem þátt taka í verkefni Lýðheilsustöðvar „Allt hefur áhrif – einkum við sjálf“ og er hluti af húsvísku framlagi til þess að innleiða þekk- ingu og vinnubrögð, sem við lærum í þessu verkefni okkar,“ segir Erla Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Fjölskyldu- og þjón- ustusviðs Húsavíkurbæjar. Að sögn Erlu felur verkefnið í sér mikilvægt forvarnarstarf. „Sérstakur ávinningur fyrir Húsavík er að aukin þekking flyst inn í sam- félagið auk þess sem fyrr verður hugað að frá- vikum í hreyfiþroska sem oft geta verið ábend- ing um alvarlegri þroskafrávik. Þar sem hreyfiþroskinn er grunnur að öðrum þroska, má ef gripið er inn á helsta næmisskeiði barnanna draga úr eða koma í veg fyrir erf- iðleika vegna þroskafrávika í framtíðinni.“ Í eigin umhverfi Dr. Carola Frank verður faglegur ábyrgðaraðili verkefnisins og kemur til með að stýra því. „Það er einstakt tækifæri fyrir starfsfólk leikskólanna á Húsavík og aðra fagaðila í sveit- arfélaginu að eiga kost á að vinna að brautryðj- endastarfi eins og þessu og fá möguleika til að starfa með fagaðila, sem stendur í fremstu röð á heimsvísu í sínu fagi. Hugmyndin er sú að þeg- ar fyrsta verkefni er lokið, verði þjálfun sem þessi hluti af starfi leikskólanna á Húsavík og vonandi til fyrirmyndar öðrum leikskólum. Verkefnið er fjármagnað að miklu leyti með styrkjum auk þess sem Húsavíkurbær leggur myndarlega til þess. Nú þegar hafa fengist myndarlegir styrkir frá Menningarsjóði KEA, félagsmála- og heilbrigðisráðherrum, Heil- brigðisstofnun Þingeyinga, Íþróttasjóði, Vel- ferðarsjóði barna og Eignarhaldsfélagi Bruna- bótafélags Íslands. Við leitum enn eftir styrkjum til að ljúka þessum fyrsta áfanga. Framhaldið getur síðan orðið án teljandi viðbót- arrekstrarkostnaðar fyrir leikskólana þar sem þjálfun barnanna yrði eðlilegur hluti af starfi á leikskólunum. Sjúkraþjálfari og iðjuþjálfi gætu einnig fylgt slíkri þjálfun eftir vegna þeirra barna sem eiga rétt á þjónustu þessara aðila, viðvarandi eða tímabundið. Þau vinnubrögð sem við lærum varðandi þjálfun barna gera mögulegt að veita markvissa þjálfun á hag- kvæmari hátt en oft er raunin nú. Börnin njóta þess einnig að fá þjálfun í því umhverfi sem þau þekkja,“ segir Erla.  HEILSA Hreyfigeta á unga aldri undirstaða annars þroska Birta Guðlaug Sigmarsdóttir og Eyrún Björk Jakobsdóttir á leik- skólanum í Bjarnahúsi á Húsavík. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Erla Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjöl- skyldu- og þjónustusviðs Húsavíkurbæjar, og Carola Frank Aðalbjörnsson, sérfræðingur í hreyfiþjálfun ungra barna. Ólafur Jóhann Steingrímsson og Atli Bark- arson ætla að verða Völsungar. Húsvíkingar eru að hrinda af stað þróunarverkefninu „Betri grunnur, bjartari framtíð“, sem miðar að því að grípa inn í þroskafrávik leikskólabarna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.