Morgunblaðið - 21.03.2005, Side 23

Morgunblaðið - 21.03.2005, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2005 23 MINNINGAR ✝ Gylfi Haukssonfæddist í Reykja- vík 13. ágúst 1949. Hann lést á heimili sínu, Álfatúni 10 í Kópavogi, mánudag- inn 14. mars síðast- liðinn. Foreldrar hans eru Brynhildur Olgeirsdóttir, f. 19. janúar 1921, og Haukur Sigurðsson, f. 21. september 1918, d. 30. ágúst 1998. Systkini Gylfa eru: Ástríður, f. 4.10. 1945, maki Georg Tryggvason, Hjörtur, f. 8. ágúst 1951, d. 21. september 1999, Trausti, f. 11. desember 1952, maki Alda B. Marinósdóttir, Kjartan, f. 6. júlí 1955, maki Ás- gerður Jónsdóttir, og Ísak Sverr- ir, f. 25. okóber 1963, maki Guð- rún Bryndís Karlsdóttir. Gylfi kvæntist 27. maí 1972 Olgu Guðbjörgu Stefánsdóttur, f. 7. september 1952. Foreldrar hennar voru Steinunn Jó- hanna Jónsdóttir, f. 24. apríl 1919, d. 2. janúar 1998, og Stef- án Björnsson, f. 11. desember 1905, d. 1. september 1987. Systkini Olgu eru Ólöf, Þórunn, Birna, Sigríður, Jón og Björn. Börn Gylfa og Olgu eru Dagný, f. 10. október 1984, unnusti hennar er Árni Traustason, f. 5. janúar 1984, og Stefán Haukur, f. 8. ágúst 1987. Gylfi hóf störf hjá Eimskipa- félagi Íslands í febrúar 1967 og starfaði þar allan sinn starfsaldur, lengst af sem deildarstjóri tölvu- og hugbúnaðarsviðs fyrirtækisins. Útför Gylfa verður gerð frá Hjallakirkju í Kópvogi í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku besti pabbi. Núna ertu far- inn frá okkur í langt ferðalag á stað þar sem þér líður vel. Þaðan getur þú nú fylgst með okkur og vonandi hitt- umst við þar síðar. Það sem nú stend- ur eftir er minningin um góðan mann og frábæran pabba sem ég mun alltaf geyma í hjarta mínu. Núna þegar ég sit og skrifa rifjast upp svo ótal marg- ar minningar í huga mér. Allar þær góðu stundir sem við áttum saman, sundferðirnar sem við fórum í þegar ég var lítil og þú kenndir mér að synda og allar keppnirnar um það hvort okkar yrði á undan yfir laugina, þær urðu nú ansi margar. Einnig eru mér minnisstæðar allar ferðirnar sem við fórum upp í Skorra- dal. Þar fórum við á bátnum út á vatn að veiða, gengum á fjöll og fórum í stuttar gönguferðir um svæðið. Eitt af því skemmtilegasta sem við fjölskyldan gerðum var að ferðast og fórum við í margar ferðir saman, bæði innanlands og til útlanda. Sérstaklega er minnisstæð ferðin okkar seinasta sumar þegar ég, Árni og Lurkur komum keyrandi í Húnaver til þess að eyða verslunarmannahelginni með ykkur mömmu. Í þessari ferð gerðum við margt saman, við fórum í göngu- ferðir eins og þér þótt svo gaman og góðan bíltúr um sveitir landsins og á kvöldin grilluðum við saman og sátum svo inni í tjaldi og spjölluðum fram eftir kvöldi. Þú hafðir alltaf svo gam- an af því að segja frá og okkur þótti gaman að hlusta á þig lýsa einhverju sem þú hafðir upplifað. Ég á eftir að sakna þín mikið, pabbi, en minningin um þig mun alltaf lifa með mér og okkur hinum sem eft- ir erum. Elsku pabbi minn, takk fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Mér þykir vænt um þig, pabbi. Þín dóttir Dagný. Jæja, elsku pabbi minn, nú er þetta búið. Gott að vera kominn til himna- ríkis og vera búinn að snúa baki við erfiðum veikindum. Þú hefur staðið þig frábærlega í gegnum þessi veik- indaár, og við höfum brallað margt saman. Þú hefur aldrei látið veikindi þín trufla þig og stóðst alltaf við þitt. Mér eru ofarlega í minni allir veiði- túrarnir sem við fórum í. Við stóðum saman við Hallvík og reyndum að fá fisk, þú fékkst stundum fisk en sjald- an ég. Þetta voru yndislegir tímar og ég gleymi þeim aldrei. Ég var ánægður með að fara með þér á landsleikinn Ísland-Ítalía síð- asta sumar. Það var mikið fjör og mikill fögnuður. Við stóðum þarna og nutum þess að vera til og vera saman. Nokkrum mánuðum eftir leikinn fór- um við út að borða, bara við tveir, í þetta skipti fórum við á Hornið. Þú fékkst þér súpu, alveg týpískt þú og svo eitthvert gums í eftirrétt. Ég fékk mér lax, hann var góður, en langt frá því jafn góður og ef þú hefðir grillað hann. Ég man eftir því þú stóðst við grillið bæði heima og í útilegum, sama hvernig veðrið var. Alltaf grillaðirðu ljúffengan mat. Það voru mikil vonbrigði þegar þú greindist og maður áttaði sig ekki al- veg á því að þú værir orðinn veikur. Þú svona góður og yndislegur pabbi. Við allavega nutum þess að vera sam- an, ég og þú, líkt og mamma og Dagný gerðu. Það er svo margt sem þú hefur gefið mér og kennt mér í gegnum árin. Þú kenndir mér að synda löngu áður en ég fór í skóla- sund. Þú varst alltaf til staðar til að hjálpa mér og gerðir alltaf þitt besta. Þegar þú varst lagður inn stuttu eftir jól fann ég fyrir miklum kvíða. Eftir að þú komst heim varð allt ró- legt og gott, hlýtt og notalegt. Þín hlýja var komin í húsið. Stuttu eftir það sagðirðu okkur að þú værir hætt- ur í meðferð. Ég skildi þig ósköp vel. Ég vil bara að þú vitir það að ég styð þig í því sem þú gerir. Ég lofaði þér að passa að veiðidótið þitt fyrnist ekki og stend við það. Einnig sagðirðu mér að reyna að verða Valsari, en ég hef allt- af verið Valsari innst inni, það hef ég frá þér. Þú sagðir að ég væri hörku- kall, það eru orð sem ég mun aldrei gleyma. Mér þykir ofsalega vænt um þig og það er mikil sorg og sár sem gróa aldrei. En nú veit ég að það fer vel um þig og þú ert ánægður. Erfið veikindi að baki og þú orðinn heill aft- ur. Ég hef þig með mér hvert sinn sem ég fer í Hallvík að veiða og í öllu sem ég geri. Það er ekki hægt að eignast betri pabba, er það? Nei. Þú verður alltaf minn og ég verð alltaf strákurinn þinn. Sakna þín. Stefán Haukur. Nú er fallinn frá ástkær bróðir minn, Gylfi, eftir margra ára baráttu við illvígan sjúkdóm. Það var okkur öllum mikið áfall þegar við fréttum fyrir um sex árum að Gylfi, þá tæp- lega fimmtugur, hefði veikst og ætti jafnvel stutt eftir ólifað. Það kveikti því ætíð hjá okkur vonarneista að sjá hve Gylfi leit vel út, þegar við hitt- umst fjölskyldan við ýmis tilefni. Við vorum jafnvel farin að trúa því að hann hefði yfirunnið sjúkdóminn. Þegar við heyrðum, nú eftir áramótin, að honum hefði hrakað mikið þá var það okkur annað áfall. Lokastríðið var stutt og andaðist Gylfi á heimili sínu 14. mars síðastliðinn. Við yngri bræður hans litum upp til Gylfa stórabróður sem var alltaf fyrstur okkar að prófa spennandi hluti. Hann eignaðist myndavél og tæki til framköllunar og ljósmyndaði margar gleðistundir í lífi fjölskyld- unnar. Við fylgdumst með þegar hann framkallaði myndirnar sem var göldrum líkast í okkar augum. Þegar ég fletti í vikunni í mynda- albúmum hjá móður okkar rifjuðust upp margar stundir frá æskuárunum á Grettisgötunni. Mér þótti þó verra að Gylfi var ekki sjáanlegur á mörg- um myndum. Þannig er það oftast með myndasmiðinn að hann sést ekki en er þó aðalatriði myndarinnar. Við strákarnir lékum okkur oft í fótbolta á planinu fyrir aftan Stjörnu- bíó og á grasflötinni fyrir framan Austurbæjarskólann. Við kepptum við stráka í næstu hverfum og Gylfi var fyrirliðinn. Ein myndin í albúm- inu var af strákahópi uppi á Selfjalli fyrir ofan Lækjarbotna. Gylfi hafði drifið liðið í fjallgönguferð til þess að efla liðsandann og tók myndina. Margar myndir sem hann tók voru frá dvöl okkar í sumarbústaðnum, sem fjölskyldan átti við Lækjarbotna. Þar dvaldist móðir okkar með okkur börnin sumarlangt og eigum við systkinin margar góðar minningar þaðan. Sá staður var Gylfa kær og bað hann sérstaklega um að fá að skoða sig þar um síðustu dagana sem hann lifði. Gylfi fór fljótlega að vinna með skóla. Hann vann eitt sumar sem sendill og ók um bæinn á skellinöðru. Hann hafði því alltaf nokkurt fé á milli handa og gat veitt sér ýmsa hluti. Eitt sinn kom hann heim með plötuspilara og nokkrar plötur. Hann setti litla plötu á fóninn og spilaða nýjasta smellinn Dedicated Follower of Fash- ion með Kinks. Ætíð þegar ég heyri það lag síðan minnir það mig á Gylfa. Það er líka vel við hæfi því Gylfi var mikill smekkmaður í klæðaburði og snyrtimenni. Hann hafði gaman af tónlist og dansi og stundaði jazzballet á unglingsárum. Það má segja að Gylfi hafi innleitt unglingamenninguna í hverfið okkar. Það kom fyrir að hann, ásamt vinum sínum, stillti plötuspilaranum út í glugga og spilaði nýjustu plöturnar fyrir krakkana á planinu, okkur til mikillar ánægju en engum sögum fer af ánægju hinna fullorðnu. Gylfi lauk gagnfræðaprófi og inn- ritaðist í Kennaraskólann. Ekki líkaði honum þar og hætti fljótlega og fór að vinna sem skrifstofumaður hjá Eim- skipafélaginu. Þetta var í árdaga tölvubyltingarinnar og stóð til að tölvuvæða bókhaldið. Þegar á reyndi þá treystu reyndustu bókararnir sér ekki til að fást við þessa nýju tækni og nýgræðingurinn var settur í að reka tölvukerfið. Gylfi var sendur utan í læri hjá IBM og þannig æxlaðist það að Gylfi varð einn af fyrstu tölvunar- fræðingum á Íslandi og það nokkrum áratugum áður en það fag var fyrst kennt í skólum. Hann starfaði þar alla ævi og var síðast deildarstjóri hug- búnaðarþróunar. Gylfi kvæntist ungur Olgu Stefáns- dóttur og ættleiddu þau tvö yndisleg börn, Dagnýju, sem fædd er í Kalut- ara á Sri Lanka, og Stefán Hauk, sem fæddur er í Kalkútta á Indlandi. Börnin þeirra eru einstaklega mann- væn og falleg og sannast í þeim að fjórðungi bregður til fósturs því ást- úðlegt lundarfar þeirra og fas allt minnir svo mjög á Gylfa bróður minn og Olgu konu hans. Gylfi var mikill fjölskyldumaður og elskaði börn sín. Hann tók virkan þátt í uppeldi þeirra og varði mestum sín- um frítíma með fjölskyldunni. Þau hjónin voru einstaklega samrýnd og tókust á við veikindi Gylfa af skyn- semi og yfirvegun. Gylfi hafði gaman af ferðalögum eins og Olga. Þau nýttu tímann vel síðustu árin til ferðalaga til fjarlægra landa sem og innanlands. Á nokkurra ára fresti höfum við hist á fallegum stað úti á landi og haldið fjöl- skyldumót. Þá voru Gylfi og Olga og börnin þeirra ávallt í essinu sínu og nutu sín, því ferðalög í fallegri ís- lenskri náttúru voru þeim að skapi. Nú hefur Gylfi kvatt okkur og eftir standa harmi lostin eiginkona og börn þeirra tvö. Áfall þeirra er mest og sendum við Alda kona mín ykkur Olgu, Dagnýju og Stefáni Hauki inni- legar samúðarkveðjur. Trausti Hauksson. Við Gylfi mágur þekktumst kannski aldrei mikið umfram það að hittast reglulega og spjalla saman í fjölskylduboðum og á ættarmótum. Þessi kynni dugðu mér þó til að gera mér grein fyrir því, hve ágætur drengur hann var. Það var alltaf jafn gaman að tylla sér við hliðina á Gylfa, með kaffibollann og kökudiskinn og spyrja hvernig gengi hjá Eimskip. Ef vel áraði ljómaði hann allur og talaði hraðar en hann átti vanda til. En væri einhver mótbyr í rekstrinum vildi hann frekar tala um veiðiskap eða jólabækurnar. Engum manni hefi ég kynnst sem var vinnuveitanda sínum jafn trúr. Hann byrjaði að starfa hjá Eimskip hf. sem skrifstofumaður í af- greiðslu, þegar hann var enn bara unglingur. Var fluttur í tölvudeildina, þegar hún varð til, enda prýðilega töluglöggur eins og ættin. Tölvusalir þóttu á þeim tíma háværir vinnustað- ir og ekki mjög eftirsóttir. En það átti eftir að breytast. Nú eru þeir heilinn í flestum fyrirtækjum. Gylfi, sem aldr- ei hafði lært neitt um tölvur, náði tök- unum fljótt á þessari nýju tækni og varð með tímanum einn af stjórnend- um tölvudeildarinnar. Ég tel víst að Gylfi hafi aldrei íhugað það í nokkurri alvöru að ráða sig til starfa annars staðar. Trúmennska hans við fyrir- tækið, sem tók honum stráklingnum svo vel, var óbrigðul en þurfti þó eng- um að koma á óvart. Þannig var hans afstaða gagnvart öllum sem hann þekkti og umgekkst. Hann var alltaf trúr og heill, jákvæður og umhyggju- samur. Ég heyrði Gylfa aldrei hall- mæla nokkrum manni, eða yfirleitt ræða í neikvæðum tón um nokkurn hlut. Skapgerðina hafði hann líklega að vestan. Hún var létt og græskulaus og oftast stutt í kímnina. Honum var líka áskapað jafnaðargeð og æðru- leysi. Jafnvel í þeim stífa mótbyr sem hann mátti sigla, eftir að veikindin tóku að herða á honum tökin, stóð hann ávallt keikur. Kveinkaði sér aldrei en reyndi þess í stað ávallt að sýnast við betri líðan en raun var á. Það er sárt að þurfa að sjá á eftir svona vænum dreng, langt fyrir aldur fram. Sárast þó fyrir fjölskylduna, sem alla tíð var hans hálfa líf og hans helgidómur. Ég veit hve mjög hann hefði óskað þess að geta hlýtt á Stefán litla strjúka nokkra klassíska hljóma úr gítarnum til viðbótar, eins og hann gerði svo fallega í fjölskylduboðinu í haust. Eða Dagnýju spjalla smávegis við sig á spænsku. Einhver stjórnar því sjálfsagt þeg- ar svona fer. Við það verðum við hin að una. Þá er þó einhver huggun að vita, að alltaf birtir á ný um síðir og eldar af nýjum degi. Ég kveð Gylfa mág minn með virð- ingu og eftirsjá og þakka Olgu, svil- konu minni, fyrir óbugandi kjark og úrræðasemi á erfiðum tímum. Georg H. Tryggvason. Gylfi kom inn í fjölskylduna þegar Olga systir okkar var aðeins sautján ára og hann stóð á tvítugu. Margir hafa eflaust hugsað sem svo að þau væru fullung þegar þau þremur árum seinna stóðu fyrir framan altarið og hétu hvort öðru því að standa saman í blíðu og stríðu. En það fór nú svo að aldrei bar skugga á hjónaband þeirra sem alla tíð einkenndist af ást, vináttu og gagnkvæmri virðingu. Við systkini Olgu tókum Gylfa opn- um örmum enda vart hægt að hugsa sér betri mág. Gylfi var ljúfur og ein- staklega skapgóður, hann var höfð- ingi heim að sækja, hafði skemmti- lega kímnigáfu og kunni að segja sögu. Heimili þeirra stóð öllum opið og minnumst við margra skemmti- legra stunda þar sem mikið var hlegið og Gylfi tók þátt í samræðunum með glimt í auga. Gylfi las mikið og hafði unun af alls kyns tónlist. En aðalástríða hans var að ferðast. Hvenær sem færi gafst var fellihýsið sameinað fjölskyldu- bílnum og síðan var lagt út á þjóðveg- inn. Með í för var bók þar sem Gylfi skráði veðurfar, landslag, gróðurfar og fuglalíf. Einnig tók hann mikið af myndum, en Gylfi var liðtækur ljós- myndari. Með myndum og skemmti- legum ferðasögum gaf hann þeim sem heima sátu hlutdeild í ferðunum. Einnig var mikið ferðast út fyrir land- steinana og eftir að Gylfi greindist með krabbamein voru þau Olga stað- ráðin í því að nota tímann sem þau áttu eftir saman til þess að ferðast til fjarlægra landa. Gylfi var ekki síður í essinu sínu á þeim ferðalögum. Gylfi og Olga ferðuðust langa leið til þess að sækja tvö lítil kríli sem þau ættleiddu. Sjaldan höfum við orðið vitni að jafnfallegu sambandi á milli foreldra og barna enda þau hjónin bæði barngóð með afbrigðum. Gylfi var sannur vinur barnanna sinna; hann fylgdist af áhuga með öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur og var samband þeirra fallegt með eindæm- um. Þau Dagný og Stefán Haukur eiga eftir að búa alla ævi að þeim fal- legu samskiptum. Elsku Gylfi, við kveðjum þig með söknuði. Þú átt eftir að skipa stóran sess í hugum okkar svo lengi sem við lifum. Mágar og mágkonur. Á fallegu ágústkvöldi komum við saman í garðveislu í Kópavogi. Engin sérstök ástæða var fyrir samkomunni önnur en að okkur fannst gaman að vera saman. Hér var um að ræða hóp starfsmanna í hugbúnaðarþjónustu Eimskips. Flest höfðum við starfað saman um margra ára skeið undir dyggri og staðfastri stjórn Gylfa Haukssonar. Á þessu ljúfa ágúst- kvöldi áttum við ekki von á að Gylfi yrði farinn frá okkur svo fljótt. Dauði var ekki í huga okkar þetta yndislega kvöld. Á tímum þegar mannabreyt- ingar í fyrirtækjum voru tíðar var þessi hópur samheldinn og mörg okk- ar höfðu starfað hjá fyrirtækinu í tíu ár eða lengur. Eftir því var tekið hversu vel hélst á starfsfólki í deild- inni, og segja má að Gylfi hafi átt stærstan þátt í því. Aðeins tveimur vikum eftir þessa yndislegu kvöld- stund dreifðist hópurinn vegna skipu- lagsbreytingar. Við héldum áfram að fylgjast með hvert öðru, sérstaklega þeirri baráttu sem Gylfi stóð í og hafði þá staðið í um nokkurra ára skeið. Öll vissum við að hann gekk ekki heill til skógar. Sem samstarfsmaður og yfirmaður var Gylfi í sérflokki. Hann var alltaf jafn yfirvegaður, sama hvað á dundi. Ósjaldan kom hann augu á góðar lausnir á verkefnum sem var verið að glíma við hverju sinni. Hann hafði þróast með deildinni í gegnum örar breytingar, sem áttu sér stað frá því að hann hóf störf árið 1970 við þáver- andi Rafreiknideild Eimskips, og hann hafði því ómetanlega og yfir- gripsmikla þekkingu á tölvutækninni. Gylfi var sérstakur maður, nærgæt- inn, blíður og úrræðagóður. Hann hafði gott lag á að velja fólk í sinn hóp, og hann leiddi hópinn í gegnum marg- ar breytingar í gegnum árin með bjartsýnina að vopni og kom ávallt auga á ný tækifæri, frekar en að velta sér upp úr vandamálum. Ósjaldan fengum við að njóta gest- risni hans og Olgu í Álfatúni og ynd- islegt var að sækja þau heim. Sárt er að missa góðan félaga, en við þökkum fyrir alla góðu stundirnar í gegnum árin. Við sendum Olgu, Dagnýju, Stefáni og öðrum aðstandendum okk- ur innilegustu samúðarkveðjur í þeirra miklu sorg. Linda Kristjánsson. Traustur, samviskusamur, dugleg- ur og strangheiðarlegur eru orð sem lýsa eiginleikum Gylfa vel. Þegar við Gylfi kynntumst var hann yfirmaður upplýsingavinnslu eða tölvudeildar Eimskips og leiddi hann ákveðna þætti í upplýsingavinnslu félagsins alla tíð. Á þessu sviði fyrirtækjarekstrar hafa orðið hvað mestar breytingar á starfsævi Gylfa. Á tíma gataspjald- anna og nú í gjörbreyttu starfsum- hverfi var hann í fararbroddi. Mér hefur oft orðið hugsað til þess hve erf- itt hlutverk þetta raunverulega er og hve mikla aðlögunarhæfni þarf til að valda því. En Gylfi gerði það af ein- stakri prýði og samviskusemi og oft með mikilli vinnu og ósérhlífni. Gylfi veiktist árið 1999 og fékk meðferð við sjúkdómnum sem tók sig þó endurtekið upp aftur. Hann mætti veikindum sín af miklu æðruleysi og var staðráðinn í að láta erfiðleikana ekki buga sig. Hann tókst á við lífið og lifði því fram að hinstu stundar og gerði það vel eins og annað sem hann fékkst við. Ég þakka Gylfa góða samfylgd og sendi innilegar samúðarkveðjur til Olgu og barnanna. Ljúf minning um góðan dreng lifir. Blessuð sé minning Gylfa Haukssonar. Þórður Magnússon. GYLFI HAUKSSON  Fleiri minningargreinar um Gylfa Hauksson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höf- undar eru: Jóhann V. Ólafsson; Randy og Jón; Agnar og Björg; Guð- mundur Örn; Kristinn, Guðrún, Þóra Katrín og Tómas Kári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.