Morgunblaðið - 21.03.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2005 27
DAGBÓK
Umfangsmikil kórastefna verður haldinvið Mývatn dagana 9.-12. júní næst-komandi. Þangað mæta kórar víðsvegar að af landinu og einnig erlendis
frá. Þar má nefna Söngsveitina Fílharmoníu, Kór
Árnesingafélagsins í Reykjavík, Kór Dalvík-
urkirkju og Kór Stykkishólmskirkju auk Noorus
kórsins frá Tallinn í Eistlandi syngur með á kóra-
stefnunni. Hápunktur kórastefnunnar verður
flutningur óratóríunnar Messíasar eftir G.F.
Händel, sunnudaginn 12. júní í íþróttahúsinu í
Reykjahlíð, en þar stígur á svið rúmlega 150
manna kór þátttakenda, 5 einsöngvarar og um 50
manna hljómsveit undir stjórn Guðmundar Óla
Gunnarssonar.
„Þegar kórar koma saman myndast einstaklega
mikill samhugur og kraftur til að leggja sig allan
fram við verkefnið,“ segir Margrét Bóasdóttir,
skipuleggjandi Kórastefnunnar. „Það er óútskýr-
anlegt hve mikill árangur næst á skömmum tíma,
þegar söngfólkið stillir saman strengi sína. Mý-
vatnssveitin er svo alveg einstök umgjörð um
svona kórahátíð; það er auðvitað alltaf gott veður
þar!! Aðstaðan til tónlistarflutnings er góð og svo
er náttúrufegurðin og afþreying s.s eins og nýju
Jarðböðin sem eru opin fram til kl. 1 eftir mið-
nætti. Kórarnir munu örugglega líka taka lagið
þar, því það er t.d. mjög gott að syngja í gufu-
baði!“
Er alþjóðlegt samstarf mikilvægt fyrir kóra?
„Við erum auðvitað oft ansi ánægð með okkur
hér heima og það er okkur bæði hollt og gott að
kynnast og læra af kórum annarra þjóða. Í ár
kemur í fyrsta sinn erlendur kór, Noorus kórinn
frá Tallinn í Eistlandi. Ég bauð þeim vegna þess
að tónlistarmenn frá Eistlandi hafa lagt stórkost-
lega vinnu og metnað í störf sín að tónlistarmálum
í Þingeyjarsýslu og svo er kóramenning í Eist-
landi mjög sterk. Noorus kórinn hefur hlotið
fjölda verðlauna í alþjóðlegum kórakeppnum og
mun syngja opnunartónleika Kórastefnu, 9. júní,
auk þess að syngja með öllum hinum í Messías.“
Í hverju felst framlag Íslendinga til alþjóð-
legrar kóramenningar?
„Framlag okkar hér á Íslandi til alþjóðlegs
samstarfs getur verið margvíslegt. Við höfum
mikinn metnað og reynum að vanda okkur mjög
við það sem við gerum, bæði hvað varðar verkefni
og skipulagningu. Það er greinilegt að kórar vilja
mjög gjarnan koma hingað og t.d eru 2 kórar, frá
Finnlandi og Þýskalandi búnir að skrifa og biðja
um að fá að koma árið 2006, þó ég sé ekki farin að
auglýsa neitt. Góð kynning á landi og ferða-
mennsku er farin að skila sér og ég tel að staður
eins og Mývatnssveit sé kjörinn til að halda al-
þjóðlega kórahátíð. Við stefnum líka að því að á
næsta ári verði þátttakendur um 300, en í ár eru
það rúmlega 200 flytjendur sem taka þátt í Kóra-
stefnu. Og við bjóðum alla landsmenn velkomna
að hlýða á glæsilega kóra á Kórastefnu 9.-12. júní
2005.“
Tónlist | Íslenskir og lettneskir kórar mætast á kórastefnu í Mývatnssveit í júní
Mikill samhugur og kraftur
Margrét Bóasdóttir
er fædd árið 1952 og
uppalin í Mývatnssveit.
Hún sótti nám við
Laugaskóla í Reykjadal,
Kennaraskóla Íslands,
Tónmenntarkennara-
deild Tónlistarskólans í
Reykjavík og einsöngs-
nám í Tónlistarskóla
Kópavogs. Margrét hef-
ur starfað við tónlistar-
kennslu víða um land, en fluttist til Reykjavík-
ur árið 1999. Hún kennir nú við Söngskólann í
Reykjavík og stundar auk þess MBA nám við
viðskipta- og hagfræðideild HÍ.
Margrét er gift Kristjáni Val Ingólfssyni,
kennara við guðfræðideild Háskóla Íslands og
presti á Þingvöllum og eiga þau tvo syni.
Hrossakjöt
MIG hryllir við tilhugsunina um að
fólk skuli leggja sér hrossakjöt til
munns. Fyrir mig er það eins og að
borða hundinn minn. Ég ólst upp
með hestum og ég elska þessi ynd-
islegu dýr og ég hélt alltaf að Íslend-
ingar gerðu það líka. Svo virðist ekki
vera.
Mér varð óglatt þegar fjallað var
um folaldakjöt í sjónvarpsfréttum,
ég gat bara ekki horft á það.
Mér er með öllu óskiljanlegt af
hverju fólk sem hefur úr nógu að
velja vill endilega borða folaldakjöt.
Er Ísland ekki lengur hesta-
paradís? Ég hef áhuga á að vita hvað
hestafólk hefur um þetta að segja.
Helga Jóhannsdóttir.
Slæm þjónusta og
góð þjónusta
DÓTTIR mín, 14 ára, fór í símabúð
Símans í Smáralind síðastliðinn
föstudag og keypti sér gsm-síma,
Sony Ericson T-630, fyrir afmæl-
ispeningana sem hún fékk: Nema
hvað, hún byrjar að nota símann á
laugardeginum og á sunnudeginum
er síminn orðinn bilaður. Hún ákvað
að bjarga sér og fara með hann aftur
í símabúðina, því auðvitað var sím-
inn gallaður, nýr sími á ekki bila á
öðrum degi notkunar. Í símabúðinni
segir stúlkan við hana að síminn fari
í viðgerð og það geti tekið 7 til 8
daga vegna þess að það geti verið að
það vanti hugbúnað í símann.
Mér finnst þetta fyrir neðan allar
hellur. Ég sjálf lenti í svipuðu dæmi
og ég fékk nýjan síma á staðnum og
það var í versluninni Símabæ sem er
í Síðumúla og þar er þjónustan mjög
góð.
En allavega þá hafði ég samband
við Símann í Smáralind og fékk þau
svör að þetta kæmi fyrir, en það er
ekki nógu gott svar fyrir mig. Mér
finnst að þeir eigi að afhenda nýjan
síma og síðan var ég send manna á
milli og fékk enga niðurstöðu.
Finnst mér þetta mjög léleg þjón-
usta hjá Símanum.
Elín Inga Garðarsdóttir.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
fyrir hádegi, fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Í dag kl. 10. Morgunkaffi
og nýbakað páskabrauð. Szymon
Kuran leikur á fiðlu. Myndlistarfólk
málar hughrifin á striga. Fastir liðir
eins og venjulega. Námskeið hefst í
framsögn 4. apríl kl. 13. Kennari:
Soffía Jakobsdóttir. sími 568-3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Vatnsleikfimi
á morgun kl. 9.30 í Grafarvogslaug.
Sjálfsbjörg | Brids í kvöld kl. 19.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 9–10 boccia, kl. 11–12
leikfimi, kl. 13–16 kóræfing. Kl. 13.30
lesa leikkonurnar Birna Hafsteins,
Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Marta
Nordal og Sigrún Edda Björnsdóttir
upp úr bréfum og frásögnum af
vesturferðum og syngja vöggusöng
úr Hýbýlum vindanna. Vöfflur m/
rjóma í kaffitímanum.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, bókband, myndlist og hár-
greiðsla kl. 9, morgunstund og fóta-
aðgerðir kl. 9.30, boccia kl. 10, hand-
mennt, glerbræðsla og frjáls spil kl.
13.
Kirkjustarf
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa
2 kl. 19, síðasta skiptið. Gestakvöld
Alfa er 29. mars kl. 19 og eru nem-
endur hvattir til að bjóða með sér
gesti. Þátturinn „VATNASKIL“ frá
Fíladelfíu er sýndur á omega kl. 20.
www.gospel.is.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK
þriðjudagskvöld kl. 20 á Holtavegi
28. „Um dauðans óvissu tíma“ Mar-
grét Eggertsdóttir cand.mag. fjallar
um sálm Hallgríms Péturssonar: Allt
eins og blómstrið eina. Kaffi. Allar
konur eru velkomnar.
Kristniboðssalurinn | Samkoma
miðvikudagskvöld kl. 20 að Háa-
leitisbraut 58–60. „Lausnargjaldið“.
Ræðumaður er Skúli Svavarsson.
Kaffi. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 18 opinn 12
spora fundur í safnaðarheimilinu.
Vinir í bata. Sjá páskadagskrá:
laugarneskirkja.is.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bókabíllinn kl.
13.30, félagsvist kl. 14 vinnustofa og
leikfimi kl. 9, boccia kl. 10 allir vel-
komnir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa-
vinna kl. 9–16.30, söngstund kl.
10.30, smíði/útskurður kl. 13–16.30,
félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 10–13.45 leikfimi, kl.
11.15–12.15 matur, kl. 13–16 brids, kl.
13–16 samverustund með Guðnýju,
kl. 14.30–15.30 kaffi.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús kl. 13–
16. Spilað, teflt, spjallað. Handa-
vinnuhornið. Kaffi að hætti Álftnes-
inga.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin í
dag kl. 10 til 11.30. Félagsvist í kvöld
kl. 20.30 í Gullsmára 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids í dag kl. 13, kaffitár með ívafi
kl. 13.30. Leshringur kl. 1 umsjón Sól-
veig Sörensen. Línudanskennsla
byrjendur kl. 18, samkvæmisdans
framhald kl. 19 og byrjendur kl. 20.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Bridsdeild FEBK Gullsmára 13 spilar
mánu- og fimmtudaga. Skráning kl.
12.45 á hádegi. Eldri borgarar vel-
komnir. Þátttökugjald 200 kr.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Bókband kl.10 og postulín kl.13. Pílu-
kast og spilað í Garðabergi kl.12.30,
tölvur í Garðaskóla kl.17.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulíns-
málun, keramik, perlusaumur, korta-
gerð og nýtt t.d. dúkasaumur, dúka-
málun, saumað í plast, kl. 10
fótaaðgerð og bænastund, kl. 12 há-
degismatur, kl. 13.30 skrautskrift, kl.
15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb, kaffi og
prjónastund frá kl. 9, pútt kl. 10,
ganga kl. 10, tréútskurður í Lækjar-
skóla kl. 13, félagsvist kl. 13.30, Gafl-
arakórinn kl. 17.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu-
stofa kl. 9–16 glermálun o.fl. umsjón
Sigrún, jóga kl. 9–11, frjáls spila-
mennska kl.13–16, böðun virka daga
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
GERÐA Kristín Hammer
opnaði um helgina sýningu
á akrílmyndum og fleiri
listmunum í Menningarsal
á fyrstu hæð Hrafnistu í
Hafnarfirði. Á opnuninni
verður boðið upp á léttar
veitingar.
Gerða er fædd árið 1925
á Ísafirði, nú til heimilis á
Hrafnistu í Hafnarfirði, þar
sem hún hefur sótt nám-
skeið í handmennt. Þetta
er fyrsta einkasýning
Gerðu, en hún stendur til
12. apríl.
Gerða Kristín Hammer í menningarsal Hrafnistu
HRÍFANDI náttúrustemning ein-
kennir verk Leifs Þórarinssonar
sem ber heitið Áfangar. Það er fyrir
klarinettu, fiðlu og píanó og er á
nýjum geisladiski frá Smekkleysu.
Tærir, kaldir pí-
anóhljómar og
langar, íhugular
þagnir skapa í
huga manns víð-
áttu þar sem
ekkert ber fyrir
augu annað en
jökla í fjarska.
Að sumu leyti
minnir tónsmíðin
á Serenu, eitt
mesta snilld-
arverk Leifs;
allskonar hend-
ingar virka vissu-
lega handahófs-
kenndar, en er á
líður raðast brot-
in saman og út-
koman er magn-
aður tónaseiður,
sem í flutningi
Sigurðar Ingva
Snorrasonar,
Sigrúnar Eðvaldsdóttur og Önnu
Guðnýju Guðmundsdóttur er veru-
lega gaman að hlýða á.
Svipaða sögu er að segja um
Ristur eftir Jón Nordal, sem er fyr-
ir klarinettu og píanó. Tónlistin er
myrk, nánast dapurleg, en inn á
milli má greina allskonar geðbrigði
og einnig er auðfundin undiralda
sem erfitt er að skilgreina með orð-
um en er útfærð á aðdáunarverðan
hátt af þeim Sigurði Ingva og Önnu
Guðnýju.
Þrjár noktúrnur eftir Pál P. Páls-
son eru sömuleiðis áheyrilegar, tón-
listin er síbreytileg, full af allskonar
tilfinningum án þess að heildar-
myndin bjagist og er túlkun þeirra
Sigrúnar og Önnu Guðnýjar, auk
Bryndísar Höllu Gylfadóttur, sann-
færandi.
Svipaða sögu er að segja um són-
atínu fyrir klarinettu og píanó,
nema að hér er tónlistin mun til-
þrifameiri. Áskell segir frá á
dramatískari máta en Páll, alls-
konar andstæður einkenna verkið,
laglínur eru safaríkari, hrynjandin
hnitmiðaðri; það er meiri spenna,
meiri stígandi, meiri læti.
Síðasta verkið, Frekar hvítt en
himinblátt fyrir klarinettu, selló og
píanó eftir Atla Heimi Sveinsson,
sker sig frá öðru á geisladiskinum
að því leyti að tónskáldið virðist
láta framvindu, form og úrvinnslu
lönd og leið. Tónlistin saman-
stendur fyrst og fremst af áhrifs-
hljóðum og lengi velber fátt til tíð-
inda. Örlítið austurlenskur keimur
skapar í byrjun hugleiðslukennda
stemningu sem ánægjulegt er að
upplifa, og á óvart kemur þegar
píanóið tekur á sig mynd ásláttar-
hljóðfæris eitt augnablik, en að
öðru leyti ríkir að mestu friður og
æðruleysi í músíkinni. Ég er samt á
því að þetta sé skemmtilegasta
verkið á diskinum, stemningin er
ljúf og hún fær mann til að slaka á.
Upptakan, sem er í höndum
Bjarna Rúnars Bjarnasonar, er
prýðileg; í senn skýr og hljómmikil.
Helst má finna að því að píanóið er
ekki alltaf alveg hreint, hvernig
sem á því stendur, auk þess sem
það virkar á köflum einkennilega
flatt. Vekur það nokkra furðu;
flygillinn í Ými, þar sem upptök-
urnar fóru fram, er frábært hljóð-
færi og ætti að hljóma betur en
hann gerir hér.
Víðáttur
hugans
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Verk eftir Leif Þórarinsson, Pál P. Páls-
son, Áskel Másson og Atla Heimi Sveins-
son. Flytjendur eru Sigrún Eðvaldsdóttir,
Sigurður Ingvi Snorrason, Bryndís Halla
Gylfadóttir og Anna Guðný Guðmunds-
dóttir. Smekkleysa 2005.
Íslensk tónskáld
Jónas Sen
Leifur
Þórarinsson
Atli Heimir
Sveinsson
Villigötur.
Norður
♠ÁK1074
♥ÁD3 N/Allir
♦G6
♣KD4
Vestur Austur
♠93 ♠DG62
♥108752 ♥K96
♦K72 ♦ÁD103
♣763 ♣92
Suður
♠85
♥G4
♦9854
♣ÁG1085
Vestur Norður Austur Suður
– 1 spaði Pass 1 grand
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Vandvirkur sagnhafi reynir sífellt að
villa um fyrir vörninni, stýra henni í
þann farveg sem honum hentar í hvert
sinn. Þetta gerir hann með nokkurs
konar „feluleik“ – hann reynir að dylja
hið rétta eðli heimahandarinnar með
spilamennsku sinni.
Dæmið að ofan er einfalt, en lær-
dómsríkt. Suður spilar þrjú grönd og
fær út smátt hjarta. Hvernig á hann að
spila?
Þetta er vandalaust ef hjartakóng-
urinn liggur fyrir svíningu, en ef aust-
ur á kónginn blasir sú hætta við að
hann skipti yfir í tígul. Með svolitlum
feluleik getur sagnhafi afvegaleitt
austur og hvatt hann til að halda áfram
með hjartað.
Hvernig þá? Jú, hann setur hjarta-
drottninguna í fyrsta slaginn. Tveir
slagir á hjarta duga til að tryggja vinn-
ing, en ef austur drepur með kóng mun
hann draga þá ályktun að makker hans
sé með gosann og halda áfram með lit-
inn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is