Morgunblaðið - 21.03.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.03.2005, Blaðsíða 28
28 MÁNUDAGUR 21. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Ekki vera hissa þótt þú finnir þig knúinn til þess að ganga til liðs við félagasamtök eða hóp. Þig langar til þess að eignast nýja vini og leggja þitt af mörkum. Naut (20. apríl - 20. maí)  Metnaður þinn hefur verið vakinn og þú finnur til þarfar til þess að láta að þér kveða í samfélaginu. Þú vilt hreykja þér á hinum hæsta haug og njóta hylli. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Ferðalög eru líf þitt og yndi að mörgu leyti og í dag þegar framkvæmdaplán- etan Mars fer í merki vatnsberans, eykst þessi þörf þín til muna. Reyndu að fá út- þránni svalað. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Ágreiningur um sameiginlegar eigur eða forræði yfir einhverju virðist engan enda ætla að taka. Hertu upp hugann, þótt hann hafi verið langvarandi. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Framkvæmdaplánetan Mars er í merki beint á móti þínu og þér finnst kannski sem aðrir séu þér óvinveittir. Það er ekki þannig. Sýndu af þér þolinmæði. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú finnur til löngunar til þess að koma miklu í verk í vinnunni í dag. Brettu upp ermarnar og sinntu verkefnum sem krefjast mikillar fyrirhafnar. Þú ert í stuði. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin hefur mestan áhuga á daðri og skemmtunum þessa dagana. Hún vill lyfta sér upp. Einnig finnur hún sig knúna til þess að sækja listviðburði. Gerðu það sem gleður hjarta þitt. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Óreiða og misskilningur virðast ríkjandi á heimilinu, ástæðan er ef til vill standsetn- ing, endurbætur, flutningur eða stöðugur gestagangur. Þolinmæði er besta svarið. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú gætir selt snjó á norðurheimskautinu ef því væri að skipta þessa dagana. Geta þín til þess að hafa áhrif á aðra, sannfæra, skrifa, læra og markaðssetja er í há- marki. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Steingeitin er í miklum eyðsluham þessa dagana og á næstunni. Ástæðurnar eru ýmsar en gættu þess að rýja þig ekki inn að skinni. Fylgstu með útgjöldunum og geymdu kvittanir. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Framkvæmdaplánetan Mars er í vatns- bera núna. Hann þarf því að fá líkamlega útrás. (Mars hefur áhrif á vöðvastarfsemi og árásarhneigð.) Fiskar (19. feb. - 20. mars) Sýndu náunganum sérstaka þolinmæði núna. Þú ferð létt með að mistúlka allt sem sagt er, því það staðfestir allt sem þú óttast mest í eigin fari. Þetta eru bara blekkingar. Stjörnuspá Frances Drake Hrútur Afmælisbarn dagsins: Þú fæddist á fyrsta degi vorsins, á vorjafn- dægrum, og ert bæði draumóramanneskja og stríðsmaður í eðli þínu. Erfið verkefni og líkamleg áreynsla skipta þig miklu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 vitskertar, 8 væntir, 9 lækka, 10 mán- uður, 11 þróunarstig skor- dýra, 13 öngla saman, 15 svalls, 18 sanka saman, 21 kjöt, 22 suða, 23 í vafa, 24 himinglaða. Lóðrétt | 2 stendur við, 3 freka menn, 4 blóðsugan, 5 hryggð, 6 helmingur heilans, 7 betrunar, 12 fantur, 14 dveljast, 15 harm, 16 blóm, 17 háð, 18 fjárrétt, 19 holdugt, 20 kvenfugl. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 hugga, 4 múgur, 7 grund, 8 næpan, 9 att, 11 lygn, 13 erti, 14 ennið, 15 krús, 17 Asía, 20 ála, 22 aspir, 23 gamli, 24 tóman, 25 arðan. Lóðrétt | 1 hugul, 2 grugg, 3 alda, 4 mont, 5 gapar, 6 rengi, 10 tungl, 12 nes, 13 eða, 15 kjaft, 16 úlpum, 18 samið 19 al- inn, 20 árin, 21 agða. Myndlist Gallerí Skuggi | Anna Jóa og Ólöf Odd- geirsdóttir – Mæramerking II. Gallerí Sævars Karls | Magnea Ás- mundsdóttir – Augnablikið mitt! Innsetn- ing unnin með blandaðri tækni. Gallerí Tukt | Sýningaropnun í Galleríi Tukt 12/03, á ljós- og stuttmyndum hinna stórhuga og sískapandi nemenda í fornámsdeild Myndlistaskólans í Reykja- vík. Í fornáminu undirbúa nemendur sig fyrir frekara listnám á háskólastigi og gefur sýningin því góða nasasjón af vinnu þessa unga og upprennandi lista- fólks/hönnuða. Gerðuberg | Ljósberahópurinn – Hratt og hömlulaust. Gerðuberg | María Jónsdóttir – Gull- þræðir. Klippimyndir, verk úr muldu grjóti, olíumálverk og fleira í Boganum. Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir (Gugga) sýnir málverk í forsal. Hafnarborg | Jónína Guðnadóttir – lág- myndir og innsetningar í aðalsal. Barbara Westmann – Adam og Eva og Minnis- myndir frá Vestmannaeyjum. Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson – Sólstafir. Hrafnista Hafnarfirði | Gerða Kristín Hammer sýnir akrílmyndir og fleiri list- muni í Menningarsal á fyrstu hæð. Kaffi Sólon | Auður Inga Ingvarsdóttir form, ljós og skuggar. Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur Jónsson og samtímamenn. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían – Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs- dóttir – Myndheimur/Visual World. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í vest- ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson – Markmið XI Samvinnu- verkefni í miðrými. Yfirlitssýning á verk- um Kjarvals í austursal. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós- myndari – Heitir reitir. Stendur til 22. maí. Norræna húsið | Maya Petersen Over- gärd – Hinsti staðurinn. Thorvaldsen Bar | Ásta Ólafsdóttir – Hugarheimur Ástu. Söfn Þjóðmenningarhúsið | Hin fornu handrit geyma einstæðar sögur, kvæði og frá- sagnir sem varpa ljósi á samfélag, trúar- brögð og hugarheim hinna norrænu þjóða í öndverðu. Á meðal sýningargripa eru Konungsbækur Eddukvæða og Snorra Eddu, Flateyjarbók og handrit lagabóka, kristilegra texta og Íslend- ingasagna. Þjóðmenningarhúsið | Á sýningunni er leitast við að skapa það andrúmsloft sem ríkti á sýningu Þjóðminjasafns Íslands í risi Þjóðmenningarhússins þar sem það var til húsa á fyrri hluta 20. aldar. Þjóðmenningarhúsið | Á sýningunni er dregin upp mynd af þeim framförum, bjartsýni og stórhug sem einkenndi líf þjóðarinnar á tímum heimastjórnar og gerð grein fyrir aðdraganda hennar. Fundir Eineltissamtökin | Fundir eru á hverjum þriðjudegi kl. 20 í húsi Geðhjálpar, Tún- götu 7. Geðhjálp | Fundur fyrir fullorðin börn geðsjúkra (18 ára og eldri), alla þriðju- daga kl. 19 hjá Geðhjálp, Túngötu 7. Hvort sem þú átt eða hefur átt foreldra/ foreldri með geðraskanir þá ert þú vel- komin(n) í þennan hóp. Nánari upplýs- ingar í síma 570-1700 og á www.ged- hjalp.is. KFUM og KFUK | Aðalfundur Kaldársels, sumarbúða KFUM og KFUK, verður hald- inn 30. mars kl. 18, í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Venjuleg aðalfundarstörf. Velunnarar Kaldársels velkomnir. UBAA | Uppkomin börn og aðstandendur alkóhólista eru með 12 spora fundi öll mánudagskvöld kl. 20.30 í Tjarnargötu 20. Verið velkomin. Fyrirlestrar Askja – náttúrufræðihús Háskóla Ís- lands | Guðrún Gísladóttir, dósent við jarð- og landfræðiskor Háskóla Íslands, flytur erindi 21. mars sem hún nefnir: Áhrif ferðamanna á vistkerfi í Skaftafelli, Landmannalaugum og á Lónsöræfum. Fyrirlesturinn fer fram í Öskju, HÍ, kl. 17.15. Karuna Búddamiðstöð | Námskeiðið er opið bæði byrjendum og þeim sem hafa reynslu af hugleiðslu. Ani-la Nyingpo mun leiða hugleiðslurnar og gefa hagnýt ráð um hvernig nýta má hugleiðslu í dagsins önn. 7., 14. og 21. mars kl. 20– 21.15. Staðsetning: Háskóli Íslands, Lög- berg, stofa 204 www.karuna.is. Kynning Heilsustofnun NLFÍ | Baðhús Heilsu- stofnunar er opið á laugardögum frá kl. 10–18. Þar er sundlaug, blaut– og þurr- gufa, heitir pottar og víxlböð. Einnig leir- böð, heilsuböð og sjúkranudd sem þarf að panta fyrirfram. Matstofan er opin alla daga. Upplýsingar í síma 846-0758 virka daga kl. 8–16. Málþing Þjóðminjasafn Íslands | Málþing um nunnuklaustrið Kirkjubæ verður haldið í fundarsal Þjóðminjasafns kl. 13–17. Fræði- menn af ýmsum sviðum gera grein fyrir rannsóknum sínum sem á einn eða ann- an hátt tengjast klaustrinu og klaustur- lífi. Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Námskeið Gigtarfélag Íslands | Sex kvölda sjálfs- hjálparnámskeið fyrir fólk með gigt og aðstandendur þess, hefst þriðjudaginn 29. mars. Farið verður í þætti sem tengj- ast daglegu lífi með gigtarsjúkdóma og hvað hægt er að gera til að bæta líðan sína. Skráning á námskeiðið er á skrif- stofu félagsins í síma 530-3600. Þriggja kvölda námskeið fyrir fólk með vefjagigt hefst miðvikudaginn 30. mars kl. 19.30. Læknar, sjúkraþjálfari, iðjuþjálfi og félagsráðgjafi fjalla um sjúkdóminn, einkenni, meðferð, þjálfun og tilfinninga- lega og félagslega þætti. Skráning á skrifstofu félagsins í s. 530-3600. Norræna félagið | Nord-klúbburinn, ung- mennadeild Norræna félagsins, stendur að byrjendanámskeiðum í eistnesku, lettnesku, litháísku og rússnesku. Hvert námskeið stendur þrjú kvöld. Námskeiðin hefjast 7. mars á Óðinsgötu 7 með lettn- esku. Upplýsingar og skráning fyrir 7. mars á nordklubb@norden.is eða í síma 551-0165. Íþróttir Hellisheimilið | Stigamót Taflfélagsins Hellis verður haldið í fjórða sinn dagana 22.–26. mars. Mótið er nú haldið um páskana til að létta á skákþörf landans en ekkert Íslandsmót verður þessa páska. Mótið er opið öllum skákmönnum með meira en 1.800 skákstig. Nánari upplýsingar á Hellir.com. Útivist Ferðafélagið Útivist | Á mánudögum kl. 18 í Elliðaárdalnum. Farið frá Toppstöð- inni við Elliðaár og farinn hringur í Elliða- árdalnum. Gönguferðinni lýkur á sama stað og hún hófst rúmri klukkustund fyrr. Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald. Páskaferð í Bása 26.–29. mars. Brottför kl. 9. Farið verður í gönguferðir, skíða- ferðir og/eða sleðaferðir allt eftir veðri og færð. Verð 11.900/13.700 kr. Ferð til Ólafsfjarðar 24.–28. mars. Farið verður á Reykjaheiði, Burstarbrekkudal, upp á Lágheiði og Skeggjabrekkudal. Brottför ákveðin síðar, farið á einkabílum. Verð 16.200/18.500 kr. Fararstjóri Reynir Þór Sigurðsson. Farið verður á Esjufjöll í Vatnajökli 24.– 28. mars. Brottför á eigin bílum frá skrif- stofu Útivistar kl. 18. Verð 13.500/ 15.800. Fararstjóri Sylvía Hrönn Krist- jánsdóttir. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos  Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is ANNA Gunnarsdóttir textíllistakona og Sveinbjörg Hallgríms- dóttir grafíklistakona opnuðu um helgina nýjar vinnustofur sín- ar og sýningarsal að Brekkugötu 3a (bakhús við Ráðhústorg). Bjóða þær alla gesti velkomna í heimsókn, en opið verður um páskana alla daga frá kl. 13–17 nema á páskadag. Anna er menntuð frá hönnunar- og textílbraut VMA og einn- ig hefur hún sótt nám til Noregs og Danmerkur. Hún hefur hald- ið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði heima og erlendis. Heimasíða hennar er www.annagunnarsdott- ir.com Sveinbjörg er menntuð frá málaradeild og kennaradeild MHÍ og hefur starfað lengi að list sinni auk kennslu. Hún fékk 9 mánaða starfslaun listamanns Akureyrarbæjar á sl. ári. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölda sam- sýninga bæði heima og erlendis. Heimasíða hennar er www.svartfugl.is Opnar vinnustofur á Akureyri 1. d4 d5 2. Rf3 c6 3. c4 e6 4. Rc3 dxc4 5. a4 Bb4 6. e3 b5 7. Bd2 a5 8. axb5 Bxc3 9. Bxc3 cxb5 10. b3 Bb7 11. bxc4 b4 12. Bb2 Re7 13. Bd3 0-0 14. 0-0 Rd7 15. Rd2 Dc7 16. f4 a4 17. Hb1 f5 18. De2 Rf6 19. Hfc1 b3 20. Ba3 Hfe8 21. Hf1 Re4 22. Hbc1 Da5 23. Rf3 Rc6 24. Bxe4 fxe4 25. Re5 Dc7 26. Dh5 Ba6 27. h3 Hac8 28. Hf2 g6 29. Dh4 Rxe5 30. fxe5 Bxc4 Staðan kom upp í Flugfélagsdeild- inni í Íslandsmóti skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson (2.435) hafði hvítt gegn kollega sínum Jóni Garðari Við- arssyni (2.336). 31. Hxc4! b2 31. ... Dxc4 hefði ekki gengið upp vegna 32. Hf7! 32. Bxb2 Dxc4 33. Hf7! Dc1+ 34. Bxc1 Hxc1+ 35. Hf1 Hxf1+ 36. Kxf1 a3 37. De1 Ha8 38. Da1 a2 39. d5! Hvítur hefur nú gjörunnið tafl og leiddi það örugglega til lykta. 39. ... exd5 40. e6 Ha5 41. Kf2 h5 42. Kg3 g5 43. h4 gxh4+ 44. Kf4 Ha3 45. e7 Kf7 46. De5 og svartur gafst upp. Páskaeggjamót Taflfélagsins Hellis fer fram í dag í Mjódd. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á www.hellir.com. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.