Morgunblaðið - 06.05.2005, Side 34

Morgunblaðið - 06.05.2005, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN TILBOÐ Á PRENTLAUSNUM FYRIR FYRIRTÆKI OG STOFNANIR Lægri rekstrarkostnaður og hraði í fyrirrúmi ������� ��� � ���������� �� � ��� ��������� � ���� ��� ���� � �������������� Canon iR1210 Lítil og nett ljósritunarvél 12 eintök á mín. Afritar A4 - A5. Stækkar í 200%. Minnkar í 50%. 250 blaða pappírsskúffa. 100 blaða framhjámatari. Aukabúnaður: Prentaratengi. USB og Paralell. Matari. Tilboðsverð 64.900 kr. Listaverð 79.900 kr. Canon L400 Faxtæki fyrir stærri fyrirtæki Fax, ljósritunarvél og prentari. Prent- og ljósritunarhraði: 14 bls. á mín. Mótald: 33.6K bps (Super G3). Arkamatari: 50 bls. Blaðabakki: 250 bls. Prentbakki: 50 bls. Tilboðsverð 64.900 kr. Listaverð 79.900 kr. Canon BIJ1300 Hraður og hagkvæmur bleksprautuprentari A4 litaprentari. Mikil gæði: 2400 x 1200 punkta upplausn. Hraðvirkur: 20 síður svart, 12 síður lit (A4). Hagkvæmur - Stök blekhylki. Arkamatari: 100 bls. Bakki: 250 bls. Tilboðsverð 49.900 kr. Listaverð 69.900 kr. Söluaðilar um land allt. Síminn er 569 7700 og netfangið er prentlausnir@nyherji.is STEFNA menntamálaráðuneyt- isins er að stytta framhaldsskólann í þrjú ár. Helstu rökin eru þau að við viljum ekki vera öðru- vísi en allir aðrir í heiminum og að þjóð- félagslega sé hag- kvæmt að stytta nám- ið. En tvær hliðar eru á hverju máli. Skoðum þetta nú nánar. Þroski og frumkvæði Oft heyrum við út- lendinga segja hve ís- lensk ungmenni séu þroskuð, þau sýni frumkvæði, séu úr- ræðagóð og fram- takssöm. Í samanburði við þau eru skandinav- ískir frændur þeirra eins og smábörn sem hanga í pilsfaldi mömmu sinnar. Varla stafar þessi munur af erfðafræði- legum eiginleikum ein- um. Miklu frekar er það afleiðing þess að íslenskum unglingum er gefið tækifæri til að taka þátt í atvinnulífi frá unga aldri. Með at- vinnuþátttöku sinni læra þeir kannski margfalt meira en jafnaldrar þeirra í Evrópu, sem sitja bara á skólabekk og útskrifast úr háskóla hálfþrítugir, án þess nokkurn tímann að hafa ver- ið í launaðri vinnu. Grunnskóli versus framhaldsskóli Stytting framhaldsskólans í því formi sem fyrirhugað er mundi óhjá- kvæmilega lengja skólaárið enn. Með því skerðast möguleikar ung- linganna á atvinnuþátttöku og þeir fara á mis við þann þroska sem slík þátttaka veitir þeim. Óhjákvæmilegt væri einnig að sleppa mörgu sem nú er kennt í framhaldsskóla. En hug- myndir hafa verið uppi um að færa hluta námsefnisins yfir í grunnskóla. Þetta þykir mér varhugavert. Mjög fáir grunnskólakennarar eru með víðtæka sérhæfingu í einhverju fagi og því ekki útséð hvernig þeir geti kennt námsefni framhaldsskólanna. Ekki má heldur gleyma að nú þegar er hluti grunnskólanema í mestu vandræðum með námsefnið. Umbúðir eru ekki sama og innihald Lítið hefur reyndar verið rætt um innihald framhaldsskólanámsins og fullyrði ég hiklaust og Ísland hafi vinninginn fram yfir nágrannalönd- in. Hér læra nemendur miklu betur hvernig á að læra, þeim er leiðbeint í vísindalegum vinnubrögðum og gagnrýnni hugsun. Þeir stúdentar sem stundað hafa nám- ið vel eru því mjög vel undirbúnir fyrir fram- haldsnám á há- skólastigi. Háskólanámið sækist þeim vel ef þeir yfirleitt hafa áhuga á og hæfi- leika til framhalds- náms. Sömu sögu er að segja um iðnnámið. Ís- lenskir iðnaðarmenn fá mjög góða menntun og eru sérfræðingar hver á sínu sviði. Félagsþroski er allra mikilvægastur Að taka tillit til ann- arra, ljá sjónarmiðum annarra eyra er allri þekkingu æðra. Fjög- urra ára nám býður upp á möguleika á fjöl- breyttu félagsslífi sem er ómetanlegt fyrir þroska unglinganna og sem þeir búa að alla sína ævi. Í félagslífi lærast einnig fund- arsköp og ýmislegt annað sem er gott vega- nesti út í lífið. – Því mið- ur er erfitt að finna reiknilíkan þar sem fram kemur sá ávinn- ingur sem af þessu hlýst. Ef pólitísk ákvörðun er tekin um fækkun heildarfjölda skólaáranna fyndist mér nær að stytta grunn- skólann og það af mörgum ástæðum. – Mér er þó ljóst að vegna skiptingar kostnaðar er það auðveldara á blaðinu að stytta framhaldsskóla en grunnskóla. En kapp er best með forsjá. Betra er að undirbúa breyt- ingarnar vel og þurfa svo ekki að sjá eftir neinu. Ekki er allt gott sem útlent er Hér að lokum nokkur orð um sam- ræmdu stúdentsprófin: Þegar ég starfaði við menntaskóla í Finnlandi töldum við kennararnir að helsta hindrun á vegi skólaþróunar væri samræmdu stúdentsprófin. Þess vegna dáðist ég að íslenska kerfinu sem skapaði skólunum möguleika á að marka sér sérstöðu, auka skilning nemenda í staðinn fyrir ítroðslu á þekkingaratriðum. Nú hafa Íslend- ingar einnig kastað þessu á glæ. Rís enginn íslenska módelinu til varnar? Til varnar ís- lenska módelinu Marjatta Ísberg fjallar um íslenska menntastefnu Marjatta Ísberg ’Með atvinnu-þátttöku sinni læra þeir kannski marg- falt meira en jafnaldrar þeirra í Evrópu, sem sitja bara á skólabekk og út- skrifast úr há- skóla hálfþrí- tugir …‘ Höfundur hefur kennararéttindi á grunnskóla- og framhaldsskólastigi bæði í Finnlandi og hér á landi. SAMTÖK atvinnulífsins bentu nýlega á að IMD viðskiptaháskól- inn í Sviss telur Ísland samkeppn- ishæfustu þjóð Evrópu og spyrja hvort við viljum vera það áfram. Virtum hagfræð- ingum, eins og t.d. Paul Krugman dálka- höfundi hjá New York Times og John Kay dálkahöfundi hjá Fin- ancial Times, finnst þó mat á samkeppnishæfi þjóða lítilvægt. Þeir benda á að mat á samkeppnishæfni sé ónákvæmur mæli- kvarði. Tveir aðilar í heiminum gefa út slíkt mat, IMD sem Samtök atvinnulífs- ins vitna í og World Economic Forum, sem Iðntæknistofnun er í samstarfi við, og ber þeim ekki alltaf vel saman. T.d. er Ísland nú efst af Norðurlöndunum sam- kvæmt IMD, en neðst samkvæmt World Economic Forum. Áhersla á samkeppnishæfni get- ur einnig leitt til rangrar ákvarð- anatöku meðal ráðamanna því þjóðir keppa ekki á sama hátt og fyrirtæki. T.d. ef meira er drukkið af Kók eru líkur á því að minna sé drukkið af Pepsi. En ef lífskjör batna í Bandaríkj- unum eru ekkert meiri líkur á því að þau versni í Evrópu. Lífskjör miðast við hagvöxt, ekki hagvöxt miðað við aðrar þjóð- ir. Keppni í að hækka samkeppnishæfni hef- ur því oft miðað við að styrkja útflutnings- greinar á kostnað inn- lendra greina, en framleiðniaukning í innlendum greinum er ekkert síður mikilvæg til að byggja upp lífs- kjör. Þannig er t.d. framleiðni- aukning í byggingariðnaði jafnmik- ilvæg fyrir Íslendinga og framleiðniaukning í sjávarútvegi enda um svipað stórar atvinnu- greinar að ræða. Hagfræðingarnir hafa bent á að í raun sé mat á samkeppnishæfni aðallega mat á því hversu líkar þjóðir eru Bandaríkjunum, sem iðulega verma toppsætið. Þeir benda á að raunveruleikinn sé bestur við samanburð þjóða og besti mælikvarðinn sé þjóðarfram- leiðsla á vinnustund (hvað þjóðin hefur á tímann). Þar er Ísland í fallsæti meðal vestrænna þjóða (sjá mynd). Slæma stöðu Íslands má kannski rekja til næsthæsta hlutfalls ófag- lærðra á vinnumarkaði meðal EES-ríkja, lægsta hlutfalls há- skólamenntaðs ungs fólks meðal Norðurlandanna, einhverra skuld- settustu heimila í heimi og að hreinn sparnaður landsmanna er um einn tíundi af því sem hann var fyrir áratug. Líkja má mati á samkeppn- ishæfni við mat góðs íþrótta- fréttaritara á því hvaða lið muni vinna deildina, en þjóðarfram- leiðslu á vinnustund við hvaða lið hefur flest stig í lokin. Það er svo mat hvers og eins hvort er mikilvægara. Áfram í úrvalsdeild? Guðmundur Örn Jónsson fjallar um samkeppnishæfni þjóða ’Áhersla á samkeppn-ishæfni getur einnig leitt til rangrar ákvarð- anatöku meðal ráða- manna því þjóðir keppa ekki á sama hátt og fyr- irtæki.‘ Guðmundur Örn Jónsson Höfundur er verkfræðingur. Þjóðarframleiðsla á vinnustund miðað við Bandaríkin (%). Fagmennska í fyrirrúmi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.