Morgunblaðið - 06.05.2005, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Næring ekki
refsing
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
Nýjar
umbúðir
HÓPUR kvikmyndatökumanna
og dagskrárgerðarmanna frá
BBC 2 er staddur hér á landi til
að taka upp efni í þáttaröðina
Top Gear, sem fjallar um bíla og
bílamálefni.
Þátturinn hefur að meðaltali
áhorf um fimm milljóna manna í
Bretlandi og er auk þess sýndur
víða um heim í gervihnattasjón-
varpi. Hingað kom hópurinn til
að fjalla um þrjár gerðir sport-
bíla og fóru upptökur fram við
Bláa lónið, Nesjavelli og í Hval-
firði.
Þess má vænta að þátturinn
sem tekinn er upp hér á landi
verði sýndur um miðjan júní.
Top Gear tekur
upp á Íslandi
Með Top Gear/B2
LÍKUR eru á því að meðalraun-
ávöxtun eigna lífeyrissjóðakerfisins
í landinu hafi verið 10,5% á árinu
2004. Það er þriðja besta árið hvað
raunávöxtun á eignum lífeyrissjóð-
anna snertir frá upphafi, samkvæmt
upplýsingum Landssamtaka lífeyr-
issjóða.
Ávöxtun hefur einungis verið
betri árin 1999 þegar raunávöxtunin
var 12% og árið 2003 þegar hún var
11,3% hjá sjóðunum öllum að með-
altali. Þó að ávöxtun tveggja síðustu
ára sé jafn góð og raun ber vitni,
10,5% í fyrra og 11,3% árið 2003, er
meðalávöxtun fimm síðustu ára ein-
ungis 3,05%, sem er aðeins undir því
marki sem sett er í lögum um lífeyr-
issjóði, en þar er miðað við að sjóð-
irnir ávaxti fé sitt um 3,5% á ári.
Það stafar af því að árin þrjú þarna
á milli, 2000–2002, eru jafnframt
þau verstu í sögu lífeyrissjóðanna,
en þá var ávöxtun neikvæð öll árin.
Þó er mjög mismunandi eftir sjóð-
um hvaða ávöxtun þeir ná frá ári til
árs. Þannig eru sumir
sjóðirnir vel yfir þessu
3,5% marki þegar horft
er til síðustu fimm ára og
aðrir talsvert undir því.
Þannig er Lífeyrissjóður
sjómanna með bestu
ávöxtunina í fyrra af
þeim sjóðum sem birt
hafa ársreikninga sína
samkvæmt upplýsingum
Landssamtaka lífeyris-
sjóða eða með 16,3%
ávöxtun á síðasta ári og
5,65% þegar horft er til fimm síð-
ustu ára, en sjóðurinn sameinast líf-
eyrissjóðnum Framsýn um næstu
mánaðamót í Gildi lífeyrissjóði.
Samvinnulífeyrissjóðurinn var með
litlu lægri ávöxtun eða 15,5% í fyrra
og er meðalávöxtunin síðustu fimm
árin enn hærri eða 6,1%. Lífeyris-
sjóður verslunarmanna, næststærsti
lífeyrissjóður landsins, var með 12%
raunávöxtun í fyrra og 4,1% að með-
altali síðustu fimm árin.
Söfnunarsjóður lífeyris-
réttinda er með 4,55%
ávöxtun að meðaltali síð-
ustu fimm ár, Sameinaði
lífeyrissjóðurinn – en
báðir þessir sjóðir eru á
meðal stærstu lífeyris-
sjóða landsins – var með
6,7% raunávöxtun í fyrra
og meðalávöxtunin síð-
ustu fimm árin er nei-
kvæð um 0,1%.
Þegar horft er á ávöxt-
un lífeyrissjóðana enn lengra aftur í
tímann eða síðustu tíu árin þá er
hún hins vegar talsvert hærri en
umrædd 3,5% í lögunum. Síðustu tíu
árin er ávöxtunin þannig 5,63% og
ef horft er allt aftur til ársins 1991
er meðalávöxtunin 5,9%.
Raunávöxtun lífeyrissjóða var 10,5% árið 2004
Þriðja hæsta ávöxt-
un í sögu sjóðanna
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
%
'
%
'
3%
9 5 9'/
9'' 9'4
HAUKAR urðu Íslandsmeistarar í hand-
knattleik karla þriðja árið í röð og í fimmta
sinn á sex árum í gærkveldi þegar þeir báru
sigurorð af Vestmannaeyingum 28–24 og
unnu þar með viðureignina við þá 3–0.
Segja má að Haukar beri höfuð og herðar
yfir önnur lið í handknattleiknum í ár því
þeir urðu einnig Íslandsmeistarar í hand-
knattleik kvenna á dögunum.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Birkir Ívar Guðmundsson og Vignir Svav-
arsson fagna Íslandsmeistaratitlinum.
Haukar
Íslandsmeist-
arar þriðja
árið í röð
Haukar eru langbestir/C1, C2, C3
EINBÚINN sem vakti yfir Jöklu er
fallinn. Hann stóð á vesturbakka
árinnar og horfði til austurs yfir
ána neðan við Lindur í Hálsi, eins
og hann vekti yfir ánni og landinu í
kring. Hann varð landsþekktur í
þann mund er ákvörðun um virkj-
unina við Kárahnjúka var tekin og
var í augum margra táknrænn fyr-
ir baráttu náttúruverndarsinna
fyrir svæðinu og því að það yrði
látið óáreitt. Hann hefur nú látið af
varðstöðu sinni enda styttist í að
hann og landið í kring verði á botni
Hálsalóns.
Einbú-
inn er
fallinn
Morgunblaðið/RAX
Einbúinn hefur látið af varðstöðu sinni eftir að hafa staðið vaktina á bakka Jöklu í árhundruð ef ekki árþúsundir.
Einbúinn horfir hvössum augum til austurs yfir Jöklu fyrir þremur árum þegar myndin var tekin.