Morgunblaðið - 27.05.2005, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÁKALL TIL FRAKKA
Jacques Chirac Frakklandsforseti
skoraði í gær á Frakka að sam-
þykkja stjórnarskrársáttmála Evr-
ópusambandsins í lokaákalli til
landsmanna þremur dögum fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu um sáttmál-
ann. Hann varaði við klofningi og
óvissu í Evrópusambandinu felli
Frakkar sáttmálann.
Eiga rétt á leiðréttingu
Prófessorar sem hafa fengið út-
hlutað úr ritlauna- og rann-
sóknasjóði prófessora síðustu árin
eiga væntanlega rétt á leiðréttingu á
sínum kjörum í framhaldi af dómi
sem féll í Hæstarétti í gær. Í dóm-
inum segir að óheimilt hafi verið að
draga launatengd gjöld frá fjárhæð
sem prófessor við Háskóla Íslands
fékk úr sjóðnum.
Fjölmennt herlið í Bagdad
Írösk stjórnvöld tilkynntu í gær
að þau hygðust fela 40 þúsund
manna liðsafla að gæta öryggis íbúa
landsins og reyna að binda enda á
árásir skæruliða sem hafa myrt að
minnsta kosti 620 manns í mán-
uðinum. Í hópnum eru íraskir her-
og lögreglumenn og þeir eiga að
hefja störf í Bagdad í næstu viku.
Síldarævintýrið ekki úti enn
Norsk-íslenska síldin er líklega á
leið vestur eða suðvestur en hún er
komin inn fyrir íslenska fiskveiði-
lögsögu. Þetta gleður marga enda
var síldin í burtu í ein þrjátíu ár og
fór ekki að veiðast aftur fyrr en í lok
síðasta áratugar.
Fleiri sumarstörf í boði
15% fleiri störf eru í boði fyrir há-
skólanema hjá Atvinnumiðlun stúd-
enta þetta sumar en voru í fyrra.
Ungu fólki virðist ganga betur að fá
sumarstörf núna og hjá atvinumiðl-
unum ungs fólks eru almennt færri á
listum en á sama tíma í fyrra.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 34/35
Fréttaskýring 8 Minningar 36/45
Viðskipti 16 Brids 49
Erlent 20/21 Myndasögur 50
Minn staður 24 Dagbók 50/52
Höfuðborgin 26 Víkverji 50
Akureyri 26 Staður og stund 52
Austurland 27 Af listum 55
Landið 27 Leikhús 54
Daglegt líf 28/30 Bíó 58/61
Menning 31, 53/61 Ljósvakamiðlar 62
Forystugrein 32 Veður 63
Viðhorf 34 Staksteinar 63
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
SÍFELLT fleiri leita aðstoðar vegna
vandamála í samskiptum við stjórn-
endur innan aðildarfélaga Bandalags
háskólamanna (BHM).
Þetta kemur fram í nýjasta vefriti
BHM þar sem bent er á að málum
sem varða hugsanlegt einelti hafi
fjölgað og að jafnvel séu dæmi um að
mörg mál tengist sama vinnustað.
Gísli Tryggvason, framkvæmda-
stjóri BHM, segir að þarna sé um
fleiri en eitt aðildarfélag að ræða og
óttast að þetta sé vaxandi vandamál
eftir því sem vinnuálag eykst. „Þessi
mál koma ekki formlega inn til okkar
en við verðum vör við þau. Fæst
þeirra koma til úrlausnar hjá okkur
en við veitum lögfræðilega ráðgjöf,“
segir Gísli og bætir við að aðildar-
félög BHM séu 25 talsins.
„Stéttarfélögin glíma stundum
daglega við þessi mál en það má
segja að við – stjórnendur, stofnanir
og fyrirtæki og vinnueftirlitið – séum
að reyna að finna betra ferli til að
sinna þessum málum.“ Gísli segir að
því miður sé oft gripið of seint inn.
„Sem lögfræðingi finnst mér leið-
inlegt að koma ekki að borðinu fyrr
en vandinn er orðinn svo mikill að
það er eiginlega bara starfsloka-
samningur sem kemur til greina.“
Eldra starfsfólki sagt upp
Í vefritinu kemur einnig fram að
fleira eldra starfsfólki sé sagt upp en
áður og töluvert um tilefnislitlar
áminningar og uppsagnir. „Þetta
endar oft með óþægilegum og órétt-
látum málalyktum þar sem fólk sem
hefur starfað lengi í opinberri þjón-
ustu fær ekki boð um sveigjanleg
starfslok,“ segir Gísli og áréttar að
fólk þurfi ekki endilega að hætta þótt
það sé ekki upp á sitt besta lengur.
„Það er hætta á að einstaklingar beri
stóran hluta af þeirri byrði sem felst
í hraðara og harðara vinnulagi og
þar af leiðandi meira vinnuálagi.
Fólk sem á erfiðara um vik vegna
aldurs og annarra ástæðna lendir
svolítið úti í kuldanum.“
Gísli Tryggvason, framkvæmdastjóri Bandalags háskólamanna
Slæm samskipti við stjórn-
endur vaxandi vandamál
GUÐRÚN Jóna Jónsdóttir útskrif-
ast sem stúdent frá Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti í dag, 27. maí.
Guðrún Jóna er 26 ára gömul og
öryrki eftir alvarlega líkamsárás
sem hún varð fyrir 1993, þegar hún
var aðeins 15 ára gömul. Síðan hef-
ur Guðrún Jóna verið bundin við
hjólastól.
Hún segist þurfa aðstoð við flest
sem heyrir til daglegs lífs, svo sem
að borða, klæða sig og baða. Vilji
hún ferðast þarf hún tvo aðstoð-
armenn sér til fylgdar og aðstoðar.
Fyrir þá þarf hún að greiða flug og
gistingu úr eigin vasa. Tölvan er
henni ómetanlegt hjálpartæki og
byggðist gagnaöflun vegna þess-
arar fréttar m.a. á tölvusamskiptum
Guðrúnar Jónu og blaðamanns.
Stórum áfanga náð
Þrátt fyrir sína miklu fötlun hefur
Guðrún Jóna stundað námið í FB og
skilað hverjum áfanganum á fætur
öðrum. Stúdentsprófið er því stór
áfangi. Hún hefur mjög skert starfs-
þrek og úthaldið leyfir ekki að hún
sé lengur að en þrjár til fjórar
klukkustundir í senn. Stúdents-
námið hefur alls tekið hana um tíu
ár, með nokkrum hléum. Guðrún
Jóna segist ekki ætla að mæta við
útskriftina, né heldur að fá sér stúd-
entshúfu. Hún segist ekki vilja neitt
„formlegt vesen“, en hafa haldið
sína útskriftarveislu 14. maí síðast-
liðinn. Þar með sé það afgreitt.
Guðrún Jóna segist aldrei hafa
fallið á prófi, en vissulega þykja
henni námsgreinarnar misjafnlega
skemmtilega. Aðspurð segir hún að
sér hafi þótt stærðfræðin erfiðust.
Hún sé flókin, en samt ekkert leið-
inleg. Uppáhaldsgreinar Guðrúnar
Jónu eru tungumálin. Hún hefur
náð góðum tökum á ensku,
spænsku, þýsku, dönsku og sænsku.
Þar af eru enskan og spænskan í
mestu uppáhaldi. Guðrún Jóna á
franskan vin, sem býr á Spáni, og
það vekur áhuga á frönskunni. Hún
hefur lært svolítið í frönsku af þess-
um vini sínum. Tungumálakunnátt-
una segist hún nota helst til að lesa
sér til á Netinu. Guðrúnu Jónu lang-
ar að leggja stund á háskólanám.
Hún hefur hugleitt að læra spænsku
við Háskóla Íslands og hefja námið í
haust, þótt henni þyki skólagjöld
upp á 45 þúsund krónur nokkuð erf-
iður hjalli.
Guðrúnu Jónu líst ekkert á að
fara í fjarnám, segir að það henti ef-
laust sumum en ekki sér. „Þá kynn-
ist maður engum, en ég kynntist
fullt af góðu fólki í FB,“ segir ný-
stúdentinn Guðrún Jóna Jónsdóttir.
Varð öryrki eftir líkamsárás, lýkur nú stúdentsprófi
Enskan og spænskan
eru í uppáhaldi
Morgunblaðið/Árni Torfason
Guðrún Jóna Jónsdóttir hefur afrekað það að ljúka stúdentsprófi, þrátt
fyrir fötlun sína. Hún varð fyrir alvarlegri líkamsárás 15 ára gömul.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær
fjóra fyrrverandi starfsmenn Iceland Seafood Int-
ernational ehf. í Hafnarfirði af kröfum félagsins.
Krafist var viðurkenningar á að starfsmönnunum
væri óheimilt að ráða sig í þjónustu Seafood Union
ehf. eða halda við slíkri ráðningu, hvort heldur
sem launþegar, ráðgjafar, stjórnarmenn eða sjálf-
stæðir verktakar eða taka á nokkurn annan hátt
þátt í starfsemi þess félags til 30. júní 2005.
Iceland Seafood krafðist þess ennfremur að við-
urkennt yrði með dómi að mönnunum væri óheim-
ilt að hagnýta sér á nokkurn hátt atvinnuleynd-
armál og/eða trúnaðarupplýsingar í eigu félagsins
sem vera kynnu í vörslu þeirra eða kynnu að kom-
ast í þeirra vörslur.
Einnig að staðfest yrði með dómi lögbann er
sýslumaðurinn í Reykjavík lagði hinn 24. janúar
2005 við því að mennirnir réðu sig í þjónustu Sea-
food Union eða hagnýttu sér á nokkurn hátt at-
vinnuleyndarmál og/eða trúnaðarupplýsingar í
eigu Iceland Seafood. Héraðsdómur segir í dóm-
um sínum að ekki sé rétt hjá Iceland Seafood að
mennirnir hafi látið skyndilega af störfum hjá fé-
laginu heldur hafi þeir sagt upp störfum eins og
þeim hafi verið heimilt. Með því að Iceland Sea-
food hafi ekki greitt laun 15. janúar sl. né heldur
eftir það og þannig ekki efnt meginsamnings-
skyldu sína hafi félagið slitið ráðningarsamning-
inn við mennina og ætti því ekki frá því tímamarki
réttmæta kröfu til þess að þeir efni skyldur sam-
kvæmt samningnum. Ákvæði hans um að sam-
keppnishömlur, sem þar væru raktar, giltu eftir að
ráðningarsamningur væri slitinn skorti nauðsyn-
lega afmörkun og legðu óhæfilegt haft á atvinnu-
frelsi stefnda og yrði því metið ógilt.
Málið dæmdi Sigurður H. Stefánsson héraðs-
dómari. Baldvin Björn Haraldsson hdl. flutti málin
fyrir Iceland Seafood og Kristinn Bjarnason hrl.
fyrir stefndu.
Var heimilt að segja upp
AÐSÚGUR var gerður að heimili
manns í Reykjanesbæ á miðviku-
dagskvöld þar sem einhverjir íbúar
töldu manninn tengjast atvikum
þar sem maður á rauðri bifreið
hefur verið að reyna að lokka ung
börn upp í bifreiðina til sín, og var
m.a. eggjum hent í hús mannsins.
Lögreglunni í Keflavík hefur
undanfarið borist tilkynningar um
allt að fjögur tilvik á tímabilinu frá
19. maí til 25. maí þar sem maður á
rauðri bifreið hefur reynt að lokka
börn upp í bíl sinn. Börnin sem orð-
ið hafa fyrir þessu eru nemendur í
Holtaskóla og Myllubakkaskóla.
Lögreglan hefur nú staðfest að
maðurinn sem aðsúgurinn var
gerður að tengist málinu ekki.
Málið er óleyst, en lögreglu hef-
ur borist nokkuð af ábendingum
sem nú er verið að kanna. Hvetur
lögreglan foreldra til þess að
brýna það fyrir börnum sínum að
fara ekki upp í bifreiðar hjá
ókunnugum, og óskar jafnframt
eftir því að fólk tilkynni um grun-
samleg atvik.
Reynt að lokka
börn upp í rauðan
bíl í Keflavík
RATSJÁRSTOFNUN gerir ein-
staklingsbundna samninga við aðra
starfsmenn en rafiðnaðarmenn og
gerir engar kröfur um stétt-
arfélagsaðild þeirra. Hvorki að þeir
standi innan né utan stéttarfélaga,
að sögn Ólafs Arnar Haraldssonar,
forstjóra stofnunarinnar.
„Þessir starfsmenn ráða því sjálf-
ir hvort þeir ganga í verkalýðsfélag
eða ekki,“ sagði Ólafur Örn.
Í orðum Guðmundar Gunnars-
sonar, formanns Rafiðnaðarsam-
bands Íslands, í Morgunblaðinu í
gær, kom fram að stofnunin krefð-
ist þess að ófaglærðir starfsmenn
stæðu utan stéttarfélaga.
Frjálsir að
því að vera í
stéttarfélögum