Morgunblaðið - 22.06.2005, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 166. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Tvö hundruð
pör af skóm
Erla M. Helgadóttir er hrifin af rauð-
um, bleikum og svörtum skóm | 22
Úr verinu | Ein besta vertíð í mörg ár Saga Hull er samtvinnuð
Íslandssögunni ESB hafnaði OECD Íþróttir | Watford samþykkir
tilboð Wigan í Heiðar Ólafur Ingi semur Birgir Leifur bjartsýnn
BÓNDINN á Ytri-Sólheimum, Einar Guðni Þor-
steinsson, rak 35 fullorðnar kindur vestur yfir
Sólheimajökul að beitilandinu Hvítmögu í gær.
30 ár eru liðin frá því síðast var farið með fé yf-
ir jökul og segir Einar að þessi siður hafi lagst
af vegna breytinga á jöklinum. Í vor gekk Einar
á jökulinn og sá að leiðin var aftur orðin fær og
ákvað þá að nýta þessa fornu bithaga á ný.
Ferðin tók rúma klukkustund og gekk hún vel
að sögn Einars. „Ég smalaði þarna sem strákur
og man vel hvað föður mínum þótti gaman að
fara þarna inn fyrir, enda fegurðin engri lík.“
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sauðfé yfir Sólheimajökul
FRANSKA tímaritið Science et Vie (Vísindin
og lífið) segist geta fært sönnur fyrir því að
Tórínó-klæðið svokallaða sé falsað. Í klæð-
inu má greina mynd af blóði drifnum líkama
manns og var því trúað af mörgum, að þarna
væri komið líkklæði Krists.
Fékk tímaritið til liðs við sig listamann
sem bjó til lágskurðmynd af andliti Krists.
Votur líndúkur var lagður á og látinn þorna.
Því næst blandaði listamaðurinn saman járn-
oxíði og hlaupefni og myndaði með því það
sem líktist blóðförum. Listamenn á miðöld-
um notuðu oft hlaupefni
sem litfesti þegar þeir
máluðu á striga eða við.
Þrykkimyndin sem varð
til við þetta þolir vel þvott,
er ónæm fyrir hitabreyt-
ingum og var ósködduð
eftir að hafa komist í tæri
við sterk efni.
Talsmenn tímaritsins
segja þetta renna stoðum undir það að lík-
klæðið sé fölsun frá því á miðöldum en árið
1988 kom fram kenning þess efnis. Þá var
því víða haldið fram að klæðið gæti ómögu-
lega verið falsað vegna þess að förin í því
væru ekki máluð, þar væru engin strokför
að finna, blóðförin væru augljóslega eftir
þrívíðan hlut (andlit) og engin litarefni gætu
hafa staðið af sér hringrás tímans, hita, ljós
og reyk.
Nú síðast í janúar á þessu ári voru birtar
niðurstöður annarrar rannsóknar sem segja
að aldur klæðisins sé á bilinu 1.300 til 3.000
ár.
Segja Tórínó-klæðið falsað
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, gagnrýndi í gær harð-
lega Evrópuhugsjón Breta og
sagði velferðarkerfi og gildi álf-
unnar vera í hættu vegna þrjósku
Tonys Blair varðandi styrki til
landbúnaðar í álfunni.
„Með Evrópusamrunanum,
sameiginlegum markaði og mynt-
bandalagi höfum við náð að sigrast
á þeirri þjóðernishyggju sem eitt
sinn kallaði miklar þjáningar yfir
álfu okkar. Þeir sem vilja eyði-
leggja þetta af einskærri sjálfs-
elsku gera næstu kynslóð [Evrópu-
búa] mikinn óleik.“ Hann kennir
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, um það að fundi leiðtoga
ríkja Evrópusambandsins (ESB) í
Brussel lauk á föstudagskvöld án
þess að samkomulag næðist um
fjárlög sambandsins fyrir tímabilið
2007–2013. Blair segist ekki ætla
að gefa eftir afsláttinn sem Bretar
hafa af greiðslum í sameiginlega
sjóði ESB, nema niðurgreiðslur og
annar beinn stuðningur við land-
búnað í sambandinu verði afnum-
inn.
Schröder vændi Breta um að
stuðla að afturför í sambandinu en
ekki framför eins og leiðtogar ann-
arra Evrópuríkja sæktust eftir.
Schröder varaði einnig við því að
menn litu einungis á álfuna sem
stórt markaðssvæði þar sem ríkti
frjálst flæði vöru og þjónustu. Vel-
ferðarkerfinu í Evrópu væri ógnað
sem og „evrópsku gildismati“.
„Þetta er spurning um hvernig
Evrópu við viljum,“ sagði hann.
„Viljum við samhenta Evrópu sem
tekur af skarið, sannarlega póli-
tískt bandalag eins og kveðið er á
um í stjórnarskrársáttmálanum?
Eða viljum við einungis eitt stórt
fríverslunarsvæði? Viljum við fara
frá Evrópusambandinu aftur til
Evrópska efnahagssvæðisins
(EES)?“
Blair fær kaldar kveðjur
Gerhard Schröder vænir Tony Blair um þrjósku og sjálfselsku
Eftir Jóhönnu Sesselju Erludóttur
jse@mbl.is
Reuters
Tony Blair og Gerhard Schröder. Kanslarinn sendi Blair tóninn í gær.
Varsjá. AP. | Pólverjar hafa frest-
að fyrirhugaðri þjóðar-
atkvæðagreiðslu um stjórnar-
skrársáttmála Evrópusam-
bandsins um óákveðinn tíma að
því er Aleksander Kwasniewski,
forseti landsins, greindi frá í gær
en kosning var fyrirhuguð í októ-
ber.
Mikil óvissa er nú um sáttmál-
ann í Evrópu eftir að Frakkar og
Hollendingar höfnuðu honum og
sjá pólsk yfirvöld ekki ástæðu til
að kjósa um hann.
Þing Lúxemborgar samþykkti
í gær að þjóðaratkvæðagreiðsla
um sáttmálann færi fram 10. júlí.
Kannanir sýna að andstaða fer
þar vaxandi og hefur forsætis-
ráðherrann, Jean-Claude Junc-
ker, boðað afsögn verði sáttmál-
inn felldur.
Pólverjar
fresta
kosningu
BÆNDUR fá hvergi innan ríkja Efnahags-
og framfarastofnunarinnar (OECD) hærra
hlutfall af tekjum sínum frá ríkinu en á Ís-
landi, þar sem 69% af tekjum þeirra kemur
frá ríkinu í formi styrkja, tolla og niður-
greiðslna. Mjólkurbændur hér á landi hafa
að meðaltali 80% af tekjum sínum frá ríkinu
þegar allt er reiknað saman.
Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu sem
tekin var saman af OECD í samvinnu við
Matvæla- og landbúnaðarstofnun Evrópu-
sambandsins. Þar kemur fram að árlega
eyði Evrópusambandið sem samsvarar vel á
níundu billjón króna í styrki, niðurgreiðslur
og tolla til verndar landbúnaði innan aðild-
arlandanna. Þegar skoðað var hversu hátt
hlutfall tekna bænda í löndum Evrópusam-
bandsins kemur frá sambandinu eða aðild-
arlöndunum beint reyndist það um þriðj-
ungur.
Það er þó mun lægra en í EFTA-lönd-
unum Íslandi, Noregi og Sviss, hér á landi
hafa bændur um 69% af tekjum sínum frá
ríkinu með einum eða öðrum hætti en hlut-
fallið er 68% í Noregi og Sviss.
Þegar þetta hlutfall er borið saman við
önnur lönd OECD eru þessi lönd með hæsta
hlutfallið, en næst á eftir koma bændur í
Kóreu, sem hafa 63% af sínum tekjum frá
ríkinu, og þar á eftir bændur í Japan 56%.
Styrkirnir eru öllu lægri í Ástralíu, eða 4%,
og Nýja-Sjálandi, þar sem þeir eru 3% af
tekjum bænda.
Íslenskir bændur fá alls
69% tekna sinna frá ríkinu
Styrkir með
þeim hæstu
innan OECD
ÍSLENSKA loftþrýstifélagið hefur fengið
vilyrði fyrir framleiðslu- og söluleyfi á loft-
þrýstibílum á Norðurlöndunum, og hugs-
anlega einnig fyrir Eystrasaltslöndin. Á bak
við félagið standa þeir Ásgeir Leifsson hag-
verkfræðingur, Gestur Ólafsson, arkitekt og
skipulagsfræðingur, og Valdimar K. Jónsson
prófessor. Gestur telur raunhæft að hægt
verði að selja hér á landi á bilinu 200–300 bíla
eftir fimm ár en hann segir Íslenska loft-
þrýstifélagið stofnað í þeim tilgangi að
kynna hugmyndir um vistvæna orku í allar
mögulegar vélar.
Þeir vinna nú að því að fá íslenska fjár-
festa til þess að fjárfesta með sér á Norð-
urlöndunum og eru hugmyndir uppi að reisa
þar bílaverksmiðju eða í einhverju Eystra-
saltslandanna til að sinna þessum svæðum.
Loftbílarnir byggjast á gamalli tækni sem
hefur verið þróuð undanfarin 15 ár af frönsk-
um verkfræðingi, Guy Négere, en tæknin er
umhverfisvæn og orkan er ódýr.
Ásgeir segir ljóst að hagkerfi okkar sé af-
ar viðkvæmt fyrir hækkunum í olíuverði sem
fólk hafi ekki farið varhluta af. Slíkt myndi
breytast með tilkomu loftþrýstibíla sem nýta
raforku, sem er hrein orka, hér á landi.
Gestur segir ljóst að núverandi jarðefna-
eldsneyti muni klárast, spurningin sé ekki
hvort heldur hvenær. „Þessi tækni er hér og
nú. Það er hægt að nota þetta strax og það
hafa átt sér stað miklar framfarir.“ | 11
Undirbúa
framleiðslu
loftbíla
♦♦♦
Úr verinu og Íþróttir í dag