Morgunblaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF SÍMI 5 900 800 Borgartúni 22 Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali Barmahlíð 5 herb. íbúð á miðhæð Vorum að fá í sölu glæsilega 122 fm miðhæð í þessu húsi á besta stað í Hlíðunum. Um er að ræða 5 herbergja íbúð í þríbýlishúsi með sérinn- gangi. 3 svefnherbergi og tvær stórar stofur. Standsett baðherbergi og einnig eldhúsið sem er með svölum til norðurs. Stórt hjónaherbergi. Suðursvalir eru úr aðalstofu. Fallegt merbau-parket á flestum gólfum, fallegar glerhurðir í stofu og tvöföld hurð á milli stofa. Innangengt er úr íbúðinni niður í þvottahús og geymslu. Fallegur suðurgarður með hellulögn. verð kr. 28,5 millj. Sjón er sögu ríkari. Laugavegi 170, 2. hæð. Opið virka daga kl. 8-17. Sími 552 1400 ● Fax 552 1405 www.fold.is ● fold@fold.is Þjónustusími eftir lokun er 694 1401. Opið hús miðvikudag frá kl. 18-20 Bogahlíð - laus - 105 Reykjavík Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali. Falleg 98 fm íbúð á þessum vinsæla stað. Stór stofa og borðstofa með svölum, hægt að nýta borðstofu sem svefnherbergi. Rúmgott eldhús með borðkrók. Tvö svefnher- bergi og aukaherbergi á jarðhæð með möguleika á útleigu. Nýlegt parket. Frábært út- sýni yfir Perluna og miðborgina. Stutt í skóla og útivistarsvæðin í Öskjuhlíð og Naut- hólsvík. LAUS STRAX. Verð 18,9 millj. Böðvar tekur á móti gestum, sími 661 1120. TÍSKUVERSLANASAMSTÆÐAN Mosaic Fashions hf. varð í gær, fyrst breskra félaga, til að skrá hlutabréf sín í Kauphöll Íslands. Nokkuð lífleg viðskipti voru með bréfin á fyrsta viðskiptadegi og námu alls 270 millj- ónum króna í 83 viðskiptum. Fyrstu viðskipti með bréfin fóru fram á verðinu 14,4 við opnun markaðar og var það jafnframt lokaverð þeirra. Hæst fór verðið í 14,85 í byrjun dags. Verð bréfanna í útboðum sem haldin voru nýlega var 13,6 krónur og nemur hækkunin því 5,9%. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, bauð félagið vel- komið í Kauphöllina á blaðamanna- fundi í versluninni Karen Millen í Kringlunni fyrir opnun markaðarins í gærmorgun. Sagði hann félagið bæta markaðinn og litróf fyrirtækj- anna sem þar eru. Þórður sagði margt mæla með því að erlend fyrir- tæki skrái hlutabréf sín á Íslandi. „Fyrst og fremst fá þessi fyrirtæki alla athygli okkar á Íslandi, líkt og var með Mosaic Fashions. Auk þess hefur þróunin á íslenskum hluta- bréfamarkaði verið afar hagfelld undanfarin ár. Raunar hefur hann verið einn virkasti hlutabréfamark- aður í Evrópu til að útvega skráðum fyrirtækjum fjármagn.“ Derek Lovelock, forstjóri Mosaic Fashions, fagnaði einnig þessum áfanga. Hann sagði það líkt með tískubransanum og fjármálageiran- um að mikilvægt væri að finna eitt- hvað sem passaði. Kauphöllin hefði passað Mosaic fullkomlega þegar félagið kom hingað í leit að lang- tíma fjárfestum sem mundu deila framtíðarsýn þess um alþjóðlegan vöxt. Mosaic hækkaði um 5,9% á fyrsta degi Morgunblaðið/Þorkell Í tísku Derek Lovelock og Þórður Friðjónsson við opnun viðskiptanna. ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands námu í gær alls um 3.032 milljónum króna, mest með hlutabréf eða fyrir 1.736 milljónir króna en með íbúða- bréf fyrir 663 milljónir króna. Mestu hlutabréfaviðskipti voru með bréf FL Group eða fyrir 346 milljónir króna og lækkaði gengi þeirra um 1,9%. Mesta lækkun dagsins var hinsvegar með bréf Flögu, sem lækkuðu um 5,4%, í viðskiptum fyrir um 6 milljónir króna. Mesta hækkunin var aftur á móti á bréfum Marel, sem hækkuðu um 2,3% í viðskiptum gærdagsins. Þá hækkaði gengi bréfa Burðaráss um 1,9%. Úrvalsvísitalan hækkaði í gær um 0,29% og er nú 4.051 stig. Bréf Flögu lækkuðu um 5,4% LOKAVERÐ á Brent hráolíu í fyrra- dag var tæplega 57 Bandaríkjadalir/ tunnu og hefur nafnverð á hráolíu af Brent-svæðinu aldrei verið hærra. Þar með hefur verðið hækkað um 40% það sem af er ári en samkvæmt Morgunkorni Íslandsbanka er ástæðan sögð vera takmarkað fram- boð á unnum olíuvörum auk þess sem eftirspurn eftir olíu hefur aukist gríðarlega. Mun það helst vera vegna aukinna umsvifa í Kína og á Indlandi. Í Morgunkorni segir að hækkun olíuverðs auki kostnað innlendra fyr- irtækja og þar með verðbólguþrýst- ing. „Seðlabankinn ætti þó að horfa framhjá verðbólgu sem hlýst af hækkun olíuverðs þar sem hún er ut- an áhrifasviðs bankans,“ segir jafn- framt í Morgunkorni. Þess konar verðbólga ætti þó að leiða til aukinn- ar eftirspurnar eftir verðtryggðum bréfum sem myndi þrýsta á lækkun ávöxtunarkröfu þeirra að mati Greiningar Íslandsbanka. Lokaverð á Brent-olíu var í gær 56.8 dollarar per tunna. Nafnverð olíu aldrei hærra ● MORGUNBLAÐIÐ leitaði í gær við- bragða Guðmundar Sigurðssonar hjá Samkeppnisstofnun við gagnrýni þeirri sem kom fram í Morgunblaðinu í gær í samtali við Almar Örn Hilm- arsson, fyrrverandi forstjóra Iceland Express, um samruna Bláfugls og Flugflutninga við FL Group. Guðmundur vildi ekki tjá sig og var honum efnislega ókunnugt um smá- atriði viðtalsins við Almar Örn. Vildi ekki tjá sig ● FORMACO ehf. hefur formlega tekið við umboði fyrir Potain- byggingakrana. Samstarfssamn- ingur þess efnis var undirritaður ný- verið. Potain er með aðsetur í Frakk- landi og er í eigu bandaríska fyrirtækisins Maintowoc. Fyrirtækið var stofnað árið 1928 í La Clayette í Frakklandi og hefur selt yfir 100.000 krana um allan heim. Fyrirtækið á 10 verksmiðjur, 12 útibú og 150 sölu- aðila. Í tilkynningu frá Formaco segir að Potain hafi frá upphafi haft það að markmiði að vera leiðandi fyrir- tæki í tækni á sviði byggingakrana. Margar tækninýjungar eigi rætur sín- ar að rekja til Potain, t.d. sé tækni þeirra á sviði sjálfreisandi krana í hæsta gæðaflokki. Formaco tekur við Potain EYRIR Fjárfestingarfélag, sem er í eigu Þórðar Magnússonar og Árna Odds Þórðarsonar, stjórnar- manns í FL Group, hefur selt allan hlut sinn í FL Group, eða 3% alls hlutafjár í félaginu. Kaupendur eru stjórnarmennirnir Hannes Smára- son, Pálmi Kristinsson og eigendur Saxbygg. Um er að ræða 76,1 millj- ón hluti, sem Eyrir átti í FL Group, en þeir voru seldir á 15,8 krónur hver og var söluverðið því rúmir 1,2 milljarðar króna. Eignarhaldsfélagið Oddaflug, sem er í eigu Hannesar Smárason- ar stjórnarformanns FL Group, keypti 31,4 milljónir hluta af Eyri á 497 milljónir króna og á Oddaflug nú 30,54% hlut í FL Group. Saxbygg ehf. keypti 27,3 millj- ónir hluta á 432 milljónir króna en Saxbygg er í eigu Gylfa Ómars Héðinssonar stjórnarmanns, Jóns Þorsteins Jónssonar stjórnar- manns, Einars Arnar Jónssonar varamanns í stjórn og Gunnars Þorlákssonar sem einnig er vara- maður í stjórn. Hlutur Saxhóls er nú 26,53%. Þá keypti Mannvirki, sem er í eigu Pálma Kristinssonar stjórnar- manns í FL Group, tæplega 17,4 milljónir hluta á röskar 274 millj- ónir króna. Mannvirki átti engan hlut fyrir í félaginu en á nú 0,7% hlutafjár. Samanlagt á þessi hópur því 57,75% alls hlutafjár í félaginu. Auk þeirra og Árna Odds sitja í stjórn FL Group Hreggviður Jóns- son og Inga Jóna Þórðardóttir. Ekki fékkst staðfest hvort Árni Oddur víki úr stjórn félagsins í kjölfar sölunnar á hlut Eyris en þess má geta að hann tók upphaf- lega sæti í stjórnina án eignarhlut- ar auk þess sem Inga Jóna skipar stjórnina án eignar í félaginu. Stjórnarmenn FL Group kaupa 3% FRAMLEIÐNI á vinnustund hér- lendis hefur vaxið hratt undanfarin misseri og jókst á síðasta ári 5,1%. Þetta kemur fram í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka, sem byggir á tölum Hagstofunnar um hagvöxt, vinnustundafjölda og fjölda starfandi. Framleiðnivöxtur- inn er langt umfram meðaltal síð- ustu ára og umfram það sem við sjáum í flestum öðrum hagkerfum um þessar mundir. Um er að ræða framhald af afar jákvæðri þróun síðustu ára þar sem framleiðni hef- ur farið sívaxandi. Á tímabilinu frá 1994 til 2003 jókst framleiðni á vinnustund hér á landi um 2,1% ár- lega en um 1,4% árlega á tímabilinu frá 1985 til 1993. Segir í Morg- unkorninu að eftir að hafa verið eft- irbátur annarra hagkerfa hvað framleiðni varðar hafi hið íslenska hagkerfi nú færst upp fyrir með- altalið. Framleiðni eykst                         !!"       # $% &$'"                        () *  +,$-. /01 )$,! +,$-. /01 2 !! *3, +,$-. /01 2-,4 ,5 /01 6 7 +,$-. /01 8 +,$-. /01 96 ': '! /01  -.; '7 2 '! /01 37-' /01 8 ': '! 96 ' /01  ,"6 /01 7 0< ,! .) /01 =/",< /01 ), -=-, <5,0") '7 ,:1 /01 >-, /01     != ,! 4-, 96 ' /01 ?2 +, ' /01 ? =. 4< ' /01 & ,4:$, ' , /01 8@0)A!' <B4-, '' /01 $ (  / $' /01 C/",< /01 D )6 ') ( "),$6"-= 9 /01 36-= 4)1 /, 40,E) /1 /01 ,E77 '7 = 4)34 ' /01 F ''6-)34 ' /01 G$,=1 , == H A:",7 /01     !" -)-,: !! /01  !"6 E< 0< ,4 , /01 8 '@= 96 ' /01  65)-,0I6 7 -4-,6 ' *01 A! 0A, /01 ! #$  %  #J @4 ) * 4!1*",4                H      H H H H  H   H H H  H H H H H 2,"E) '7 0,5 0E,, * 4!1*",4 H  H  H H  H  H  H   H H H  H H H H H H H  H H H   H H H H H H H K H L H K L H K HL K HL H K L H K L K  L H H H K  L H H H H H H H K L H H H K  L H H H H H H H ?" 6 ,* 4! .)  7 '  6:$4 @ 6$!  7M  -. 6 1 1  1   1 1 1  1  1 1  1 1  H  1 1  1 H 1 H H H 1 H 1 H H H  1  H H H H                       H        H                         H              H   H   F 4! .) @ ;N1 !,1 ?1 O )/-7-' ,6 ) <36 * 4! .)       H    H H H H H  H H H  H H H H  ?1H P*  -= 50, =/ 6 ' 36- /6-) 0<5,1 ?1H !E6 ) 6 4 6"77< 0, = E0 ,)3!-) 6:1 /"0-, )$0' )1 ?1H F"7' 0E, ,* , -= 0<5,=37'-' 0I6 71 ?1H 4 :" 4' N)7"0"' 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.