Morgunblaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MAGNÚS Loftsson, framkvæmda-
stjóri Hvíta hússins, hefur farið fram
á að það verði leiðrétt sem fram kom í
frétt í Morgunblaðinu í gær að KB
banki væri meðal viðskiptavina Hvíta
hússins, hið rétta sé að Íslandsbanki
sé viðskiptavinur fyrirtækisins.
Morgunblaðið byggði þann hluta
fréttarinnar á umfjöllun breska
blaðsins Independent, þar sem fram
kom að KB banki væri meðal við-
skiptavina auglýsingastofunnar.
LEIÐRÉTT
Ekki KB banki
TRYGGINGAFÉLÖGIN VÍS
og Sjóvá hafa lækkað vexti af
verðtryggðum og óverðtryggð-
um bílalánum sínum.
Hjá VÍS eru vextir verð-
tryggðra lána nú 6,0% en voru 6,5%
áður. Vextir óverðtryggðra lána eru
nú 9,5% en voru 10,0%.
Segir í tilkynningu frá VÍS að
þessi vaxtalækkun sé í samræmi við
þá stefnu VÍS að bjóða viðskiptavin-
um félagsins upp á hagstæða fjár-
mögnun á bifreiðum sínum sem og
vandaða og hagstæða vátrygginga-
vernd. Með bílalánum VÍS getur
lánshlutfallið orðið allt að 100% og
lánstími allt að 7 árum. Þegar tekið
er bílalán VÍS verður að tryggja bíl-
inn með ábyrgðar- og kaskótrygg-
ingu hjá VÍS.
Þá lækkaði Sjóvá vexti á bílalán-
um í gær og munu vextir af
verðtryggðum bílalánum
lækka í 6,0% en voru áður
6,5%. Vextir af óverðtryggð-
um lánum munu jafnframt
lækka í 9,7% en voru áður 10,2%, að
því er fram kemur í tilkynningu frá
fyrirtækinu. Hjá Sjóvá er hægt er að
fá lánuð allt að 70% af verðmæti bíls-
ins í allt að 7 ár. Sjóvá setur það skil-
yrði að bifreiðin sé ábyrgðar- og
kaskótryggð hjá félaginu á lánstím-
anum.
Tryggingafélög lækka
vexti af bílalánum
VERÐBÓLGA á Íslandi er að-
eins 0,5% samanborið við 1,9%
verðbólgu í helstu viðskipta-
löndum samkvæmt samræmdri
vísitölu neysluverðs sem Hag-
stofan birti í gær.
Verðbólga á Íslandi er sú
næstminnsta í Evrópu. Segir í
Morgunkorni Greiningar Ís-
landsbanka að þetta sé athygl-
isvert í ljósi þess að hér eru
vextir umtalsvert hærri en í
Evrópu og helstu viðskipta-
löndum. Samræmd vísitala
neysluverðs taki þó ekki hús-
næðisverð með í reikninginn en
það hafi hækkað verulega að
undanförnu hér á landi.
Á Evrópska efnahagssvæð-
inu er nú 1,9% verðbólga sem
er hið sama og mælist fyrir
evrusvæðið í heild. Í Bandaríkj-
unum er 2,8% verðbólga en í
Japan mælist verðlag óbreytt.
Mesta verðbólga á Evrópska
efnahagssvæðinu er 6,5% í
Lettlandi og 3,7% í Lúxem-
borg. Minnst er verðbólgan
0,2% í Svíþjóð, 0,5% á Íslandi
og 0,6% í Finnlandi.
Næst-
minnsta
verðbólgan
á Íslandi
ROBERT Charpentier hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Kaupthing
Bank Sverige AB, dótturfélags
Kaupþings banka í Svíþjóð. Christer
Villard, fráfarandi framkvæmda-
stjóri, mun áfram sitja í stjórn Kaup-
thing Bank Sverige AB og gegna ráð-
gjafastörfum fyrir Kaupþing banka.
Robert Charpentier hefur undan-
farið gegnt starfi aðstoðarfram-
kvæmdastjóra Swedbank Markets í
Svíþjóð en áður starfaði hann um átta
ára skeið hjá Goldman Sachs í Lund-
únum. Stefnt er að því að Charpen-
tier hefji störf um eða upp úr næstu
áramótum og eigi síðar en fyrir aðal-
fund Kaupþings banka árið 2006.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
SVISSNESKI fjárfestingabankinn
UBS hefur selt meirihluta þeirra
hluta í norska bankanum Storebrand
sem hann keypti í
síðustu viku. Þá
var talið að KB
banki stæði að
baki kaupunum
en nú hefur UBS
selt 5 milljónir af
6 milljón hlutum
sem keyptir voru.
Frá þessu er
greint í Nettavis-
en en ekki er
greint frá því
hver kaupandinn er.
Nettavisen segir KB banka vera
hraðast vaxandi banka í heimi, meðal
annars vegna mikilla fjárfestinga á
erlendri grundu. Blaðið vitnar í
Hreiðar Má Sigurðsson, banka-
stjóra, sem lét hafa það eftir sér ný-
lega að bankinn hefði um 50 millj-
arða íslenskra króna til nýfjárfest-
inga.
UBS selur hlut
í Storebrand
Hreiðar Már
Sigurðsson
♦♦♦
♦♦♦
BANDARÍSKI lyfjaframleiðandinn
Pfizer, stærsti lyfjaframleiðandi
heims, hefur keypt keppinautinn
Vicuron Pharmaceuticals fyrir 1,9
milljarða dollara, samsvarandi tæp-
lega 124 milljörðum króna. Kaup-
verðið er greitt í einu lagi og í
reiðufé, samkvæmt Reuters.
Vicuron þróar bólgueyðandi lyf og
er nú með tvö lyf í skoðun hjá banda-
ríska lyfjaeftirlitinu. Einkaleyfi á
þessum lyfjum þykja vænleg fjár-
festing fyrir Pfizer.
Pfizer kaupir
Vicuron