Morgunblaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 33 Verkfræðingur — Tæknifræðingur Verkfræðistofa í Reykjavík óskar eftir að ráða verkfræðing eða tæknifræðing til starfa við hönnun burðarvirkja. Umsóknir sendist til augldeildar Mbl. eða á box@mbl.is merktar: „VT — 17284“ fyrir 26. júní nk. Allar upplýsingar skoðast sem trúnaðarmál. Utanríkisráðuneytið Íslenska friðargæslan Íslenska friðargæslan leitar eftir verkfræðingi til starfa í Suður-Súdan við vega- og brúarsmíð í samstarfi við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna. Viðkomandi verður staðsettur í Nairobi, Kenía, með tíðum ferðum til Súdan. Starfssvið viðkomandi verður m.a. eftirfarandi:  Hafa eftirlit með verktökum við gerð vega og brúa í Suður-Súdan.  Ráðgjöf vegna útboða.  Meta verkþætti er lúta að vega- og brúar- smíði, frárennslum og lendingarstöðum flugvéla og útbúa skýrslur og tillögur til úrbóta eftir atvikum.  Framkvæma gæðamat, úttektir á verkefnum, aðstoða við áætlanagerð.  Stjórna áætlanagerð og framkvæmd viðhaldsverkefna.  Vera tengill við stjórnvöld, stuðningsaðila og þjónustuaðila WFP í Súdan, þ.á m. vegna jarðsprengjueyðinga. Viðkomandi þarf að hafa:  Háskólapróf í verkfræði.  Reynslu af vega- og brúarsmíð. Reynsla í stjórnun verkefna æskileg.  Góða kunnáttu í munnlegri og skriflegri ensku ásamt einu öðru erlendu tungumáli.  Þægilegan og öruggan tjáningarmáta.  Góða tölvukunnáttu. Þarf að kunna skil á MAPINFO og ARCVIEW.  Geta notað FIDIC og útbúið útboðsgögn.  Geta notað GPS.  Vera sveigjanlegur, forsjáll og geta unnið við krefjandi aðstæður í stærri og smærri hópum.  Óflekkað mannorð. Ráðið verður í þessa stöðu til sex mánaða með möguleika á framlengingu. Launakjör og orlof eru samkvæmt launakerfi íslensku friðar- gæslunnar. Góðar tryggingar í boði. Umsóknarfrestur er 30. júní 2005. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknareyðublöð fást í utanríkisráðu- neytinu og á heimasíðu ráðuneytisins. Tekið er á móti umsóknum á skrifstofu friðar- gæslunnar, Þverholti 14, 3. hæð, s. 545 7972, eða með tölvupósti; fridargaesla@utn.stjr.is . Vinsamlegast leggið með ferilskrá. Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni. Í íslensku friðargæslunni eru þeir starfsmenn sem starfa að friðar- gæslu á vegum utanríkisráðuneytisins og allt að 250 einstaklingar sem gefið hafa kost á sér til að vera á viðbragðslista. Umsjón með Íslensku friðargæslunni er í höndum sérstakrar skrifstofu utanríkis- ráðuneytisins. Tískuvöruverslunin NÆS CONNECTION óskar eftir starfskrafti Lífleg og sjálfstæð, snyrtileg og stundvís, 30 ára og eldri. Vinnutími 14-18 aðra vikuna og hina 11-18 og annar hver laugardagur. Umsóknir sendist til augl.deildar Mbl. eða á box@mbl.is merktar: „T — 17277“. Sölumaður fasteigna Öflug og rótgróin fasteignasala á höfuðborgar- svæðinu óskar eftir að ráða harðduglegan sölu- mann/-konu til starfa nú þegar. Árangurstengd laun og góð starfsaðstaða. Æskilegt er að við- komandi hafi löggildingu í fasteignasölu. Mögulegt er að bíða eftir rétta aðilanum og farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Áhugasamir sendi umsóknir til auglýsinga- deildar Mbl. eða á box@mbl.is fyrir 25. júní nk., merktar: „F — 47279.“ Rekstrarstjórn í saltfiskverkun Rekstrarstjóri óskast fyrir saltfiskverkun úti á landi. Viðkomandi hafi tæknimenntun í fiskvinnslu/vélskóla/iðnaði/ auk annarrar menntunar og reynslu. Gott tækifæri fyrir áhugasaman einstakling. Þeir, sem hafa áhuga, sendi upplýsingar til augldeildar Mbl. eða á box@mbl.is, merktar: „Gott tækifæri — 06-2005.“ Framtíðarstörf Baader Ísland ehf. óskar að ráða starfsfólk. Við leitum helst að rennismiðum, vélvirkjum og vélsmiðum. Skriflegar umsóknir sendist í pósti til okkar á Hafnarbraut 25, Kópavogi. Bílstjóri með meirapróf Vantar mann til starfa á flutningabíl hjá Fóður- blöndunni hf. Skilyrði er að umsækjandi hafi meirapróf. Reynsla æskileg. Mikilvægt að hann geti hafið störf sem fyrst. Upplýsingar gefur lagerstjóri í síma 864 0115, sem einnig tekur á móti skriflegum umsóknum. Í umsókn komi m.a. fram upplýsingar um fyrri störf. Umsóknir sendist á netfangið runar@fodur.is eða í pósti á neðangreint heimilsfang. Fóðurblandan hf., Korngörðum 12, 104 Reykjavík. Sjá ennfremur: www.kopavogur.is og www.job.is KÓPAVOGSBÆR FRÁ DIGRANESSKÓLA • Vegna forfalla vantar umsjónarkennara að Digranesskóla á komandi skólaári. Meðal kennslugreina: Umsjónarkennsla í 6. bekk ásamt íslensku á elsta stigi. Laun skv. kjarasamningum KÍ og Launanefndar sveitarfélaga. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 554 0290 eða 868 4239. Starfsmannastjóri Raðauglýsingar 569 1100 Tilkynningar Vegur um Arnkötludal og Gautsdal í Hólmavíkur- hreppi og Reykhólahreppi Mat á umhverfisáhrifum — athugun Skipulagsstofnunar Leið ehf. hefur tilkynnt til athugunar Skipulags- stofnunar matsskýrslu um lagningu vegar um Arnkötludal og Gautsdal í Hólmavíkur- og Reykhólahreppum. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 22. júní til 3. ágúst 2005 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofum Hólmavíkurhrepps og Reykhólahrepps, í Þjóð- arbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Mats- skýrslan er aðgengileg á heimasíðum Leiðar ehf. og Náttúrustofu Vestfjarða: www. leid.is og www. nave.is. Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 3. ágúst 2005 til Skipulagsstofnunar, Lauga- vegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrif- um. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrif- um, nr. 106/2000. Skipulagsstofnun. Fyrirtæki Gott tækifæri Til sölu af sérstökum ástæðum ný og glæsileg verslun fyrir skyndibitamat og íssölu. Einstak- lega góð framlegð. Öll tæki ný og allar innrétt- ingar. Kaffiaðstaða og sæti fyrir marga. Stórt hverfi, mikill fjöldi fólks í nágrenninu og heilsu- ræktarstöðvar. Þúsundir manna. Frábært tæki- færi og verðið svo sanngjarnt að þú verður að koma til okkar og heyra okkur segja það til að trúa því. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. Ávallt mikið úrval af góðum fyrirtækjum fyrirtaeki.is Bergur Guðnason hdl. og lögg. fastsali.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.