Morgunblaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 23 MENNING Lárus Ingólfsson fæddist í Reykjavík 22. júní 1905. Hann var óvenjulega fjölhæfur lista- maður: einn vinsælasti gamanleikari og gam- anvísnasöngvari þjóðarinnar um árabil og helsti leikmynda- og búningateiknari sinnar tíðar. Hann var sérstæður persónuleiki, allt í senn fágaður fagurkeri, trúaður kaþólikki og frábær skemmtikraftur. Hann lést í Reykja- vík 22. september 1981. F oreldrar Lárusar voru Ingólfur Lárusson (1874–1963) og kona hans, Vigdís Árnadóttir (1880– 1976). Ingólfur var lengi skip- stjóri á skútunum, en eftir að tímabil þeirra leið undir lok gerðist hann skip- stjóri á strandferðaskipinu Skildi sem gekk á milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness. Þau hjón eignuðust fimm börn og var Lárus næstelstur. Hin voru Árni, skipstjóri, Örn, fulltrúi, og systurnar Rósa og Gyða, húsmæður í Reykjavík. Fjölskyldan bjó lengst á Berg- staðastræti 68 og þar bjó Lárus til dauðadags, í lítilli íbúð í kjallaranum, ókvæntur og barn- laus. Í íbúð sinni skapaði hann ævintýraheim sem gleymist ekki þeim sem þangað komu. Lárus hafði afar næmt listrænt auga, dró á ferðum sínum erlendis að sér marga sér- kennilega og fagra gripi, og innganginn niður í kjallarann skreytti hann sérstæðu flúri sem enn ber vitni um litagleði húsráðandans. Trúmál og myndlist Fyrstu tilsögn í myndlist hlaut Lárus Ing- ólfsson hjá þeim Guðmundi Thorsteinssyni, Muggi, og Ríkharði Jónssyni á árunum 1923– 25. Hann snerist ungur til kaþólskrar trúar og fór tvítugur að aldri ásamt Meulenberg bisk- upi í eins konar pílagrímsför til Rómar. Mun hann á þeim tíma hafa haft mestan áhuga á trúarlegri myndlist og kirkjuskreytingum og lærði á árunum 1926–27 sérstaklega helgi- myndagerð í klaustrinu St. Maurice de Cler- vaux í Luxemburg, sama klaustri og Halldór Laxness hafði dvalist í nokkrum árum fyrr. Þó að leikhúsið yrði aðalstarfsvettvangur hans hafði hann ávallt miklar taugar til helgimynda- listar og eru til frá hans hendi nokkur sérstæð verk þeirrar tegundar. Voru það ekki síst íkon- ar grísk-kaþólsku kirkjunnar sem heilluðu hann og kom hann sér með tímanum upp afar vönduðu safni íkona, næsta einstæðu hér á landi. Leikmynda- og búningagerð Lárus bjó að mestu í Kaupmannahöfn frá 1927 til 1933. Hann stundaði þar nám í tísku- teiknun, búningagerð og leiktjaldamálun, eins og fagið var gjarnan nefnt á þeim tíma, og frá 1929 var hann starfsmaður Konunglega leik- hússins. Hann var þó aðeins skrifaður fyrir leikmynd og búningum í einni sýningu þess, Galdra-Lofti Jóhanns Sigurjónssonar árið 1932. Hann vann við fleiri leikhús í Danmörku, þ.á m. Dagmar-leikhúsið, og var m.a. kvaddur til aðstoðar við sýningu þess á Fjalla-Eyvindi Jóhanns árið 1933. Þó að vegur hans sem lista- manns yrði ekki mikill í Danmörku lagði hann þar grunn að þeirri fagmennsku sem síðar ein- kenndi öll störf hans fyrir íslenskt leikhús. Lárus kom alkominn heim árið 1933 og gerð- ist þá aðalleikmynda- og búningateiknari Leik- félags Reykjavíkur. Þar starfaði hann til 1950, er hann réðst til Þjóðleikhússins. Lárus er því í raun og veru sá sem fyrst fullnægir faglegum kröfum til leikmynda- og búningagerðarmanns hér á landi: aflar sér bestu menntunar sem völ er á erlendis og starfar við fagið alla tíð síðan. Starfsbróðir hans og nemandi, Gunnar R. Bjarnason, sem starfaði við hlið hans í um tvo áratugi í Þjóðleikhúsinu, lýsti því svo í viðtali að hann hefði verið „afar vel að sér í stílsögu og hafsjór af þekkingu um allt sem varðaði eldri byggingarstíl, innréttingar, húsgögn og fata- hönnun“. Í sama streng taka allir aðrir sem unnu með Lárusi og enn eru til frásagnar. Leiklist og starfsskilyrði En Lárusi var fleira til lista lagt, eins og drepið er á að framan. Í Kaupmannahöfn naut hann einkatilsagnar Holgers Gabrielsen, eins fremsta leikara Dana á millistríðsárunum (hann var seinna kennari Lárusar Pálssonar), auk þess sem hann fékk mikinn áhuga á dansi, ekki síst ballett. Mun hann hafa komið talsvert fram á sviði á Danmerkurárum sínum og má sem dæmi nefna að hann starfaði, að sögn vin- ar hans Bjarna Guðmundssonar blaðafulltrúa, við dans- eða kabarettflokk landflótta Rússa í Höfn og ferðaðist með flokknum víða um land. Það var því engin furða að Lárus ætti eftir að slá eftirminnilega í gegn í revíunum sem urðu fastur liður í íslensku leikhúslífi á fimmta og sjötta áratugnum. Þar kom sér einnig vel hversu snjall gamanvísnasöngvari hann var, og er sumt af því besta raunar varðveitt í upp- tökum, t.d. makalaus túlkun hans á raunum Danans á Íslandi eða saumavísunum. Hann lék einnig þó nokkuð í almennum leiksýningum, bæði hjá LR og Þjóðleikhúsinu, oftast gaman- söm hlutverk, þó að alvarlegri hlutverkum brygði fyrir inn á milli. Því fór fjarri að starfsskilyrði fyrsta fullgilda búninga- og leiktjaldamálarans á Íslandi væru eins og best yrði á kosið. Þegar hann kom heim hafði LR aðstöðu til leiktjaldamálunar í kjallara Þjóðleikhússins sem var þá í byggingu. Eftir að í Þjóðleikhúsið kom urðu aðstæðurnar að sumu leyti auðvitað þægilegri, en Lárus hlaut þó að finna fyrir því að húsið var í reynd ekki byggt með þarfir nútíma- leikmyndagerðar í huga. Þar var – og er enn í dag – mjög erfitt að vinna með stærri einingar, eins og sjálfsagt þykir í nútíma leikhúsi, en innri til- högun hússins fremur miðuð við þann tíma þegar leikmyndir voru aðallega samsettar úr sléttum flekum og tjöld- um, hliðar- og baktjöldum, sem báru síðan „illusjónistíska“ sviðsmyndina uppi. Þetta átti ugglaust sinn þátt í því að Lárus hélt sig fremur innan marka hefðarinnar í leikmyndagerðinni, þó að hann þekkti vel módernískar hug- myndir frá námi og ferðum erlendis. Vinnuálag á hann var gríðarlegt, ekki síst fyrstu árin í Þjóðleikhúsinu; t.d. gerði hann leikmyndir fyrir 25 sýn- ingar á fyrstu þremur árum þess og búninga fyrir 20 sýningar. Allt þetta verða menn að hafa í huga þegar verk hans eru metin. Söguleg staða Því miður verður að segjast að tím- inn hefur farið nokkuð hörðum hönd- um um verk Lárusar Ingólfssonar. Þannig mun sviðslíkönum hans flest- um hafa verið fargað á sínum tíma, sjálfsagt fremur vegna plássleysis en sinnuleysis, þó að kannski hafi menn ekki fyllilega skilið þá hversu merkar leikminjar þau myndu talin síðar. Enn er þó mikið til í safni Þjóðleikhússins af fögrum búningum og búningshlutum frá hans hendi. En minning hans hefur sjálfsagt goldið þess að hann tengist viðhorfum og smekk sem hafa ekki verið í sérstökum hávegum höfð síð- ustu áratugi. Þrátt fyrir þetta er Lárus afar merkur mað- ur í íslenskri leiksögu og sem leikmynda- og búningahöfundur helsti fulltrúi þess sam- hengis sem má finna í þróun leikmyndlistar á fyrri hluta síðustu aldar. Leikminjasafn Ís- lands hefur því frá upphafi lagt sérstaka rækt við að ná saman heimildum um list hans og á orðið Á aldarafmæli Lárusar Ingólfssonar Þriðji þáttur Gullna hliðsins eftir Davíð Stefánsson, vatnslitamynd af sviðinu eftir Lárus. Lárus Ingólfsson í léttri sveiflu með Nínu Sveinsdóttur. Jón Viðar er forstöðumaður Leikminjasafns Íslands og Ólafur varaformaður stjórnar safnsins. eftir Jón Viðar Jónsson og Ólaf Engilbertsson LÁRUS Ingólfsson um sjálfan sig, lífið og listina í blaðaviðtölum: „Ég hafði löngun til að gerast munkur, en af því varð þó ekki. Heldurðu að það hefði verið huggulegt, ef ég hefði sungið gamanvísur fyrir hina munkana allt mitt líf? Ég hef allt- af haft sterka tilhneigingu til að gefa eitt- hvað af sjálfum mér, en það er ekki aðeins hægt með munkalífi, held- ur einnig í list- inni, leikhús- inu. Kirkjuna hef ég þó aldr- ei yfirgefið.“ (Mbl. 13.7. 1965.) „Ég var af- skaplega veim- iltítulegur og „pen“ með mig á þessum árum /námsárunum í Kaupmannahöfn/. Holger Gabrielsen, sem kenndi okkur við Konunglega, var vanur að segja, þegar ég kom inn í tíma: „Kommer vikingen.“ „Mér var sagt að ég yrði hungurmorða á Íslandi … og ég tala nú ekki um, þegar ég í fyrstunni ætlaði einungis að læra leiklist. En svo var mér ráðlagt að læra einnig leiktjaldateiknun og búningagerð, og þá urðu menn bjartsýnni á framtíð mína í mannheimi.“ „Að leika í revíu er svo frjálst og skemmtilegt. Þar má gera allar hunda- kúnstir og leyfa sér hluti, sem ekki eru taldir sæma á öðrum sýningum. Það var mér blátt áfram lífsfylling að fá landa mína til þess að hlæja hjartanlega á vor- in … “ „Umhverfis Þjóðleikhúsið var stóreflis gaddavírsflækja og varðturnar á stöku stað /á stríðsárunum/. Inn fékk ég ekki að fara nema ég sýndi soldátum vegabréf og óræka sönnun þess, að ég væri bara hann „Lassi“, óbreyttur leiktjaldateiknari og engu stórveldi skeinuhættur. Þetta var í sjálfu sér gott og blessað. En hitt var þó öllu verra, að á vinnustofunni stóð yfir okkur vörður með alvæpni og fylgd- ist með sérhverri hreyfingu eins og við værum vísir til skæruhernaðar, og vildum sprengja Þjóðleikhúsið, það er birgða- skemmuna, í loft upp. Ég hélt á fund her- stjórnarinnar og spurði, hvort þeim þætti líklegt að tauganæmir leikhúsmenn gætu málað falleg leiktjöld með köld byssu- hlaupin horfandi í hnakkann á sér. Jú, þeir viðurkenndu að margt gæfi betri „inspiration“ en byssuhlaup, og loks fengum við að vera einir á vinnustof- unni.“ „Yfirleitt hef ég unað mér vel við öll viðfangsefni, sem ég hef fengið, en verð þó að viðurkenna, að ég er síst hrifinn af þessum íslensku sveitamótifum, torfbæj- um, „fagurri“ fjallasýn og öðru slíku. Þau eiga ekki beinlínis við mig … Ég man til dæmis eftir einu verki þar sem leik- umgerðin verður nær alltaf hin sama, þótt hún eigi ekki að vera það. … Fjögur atriði þessa leiks fara fram á hlaðinu sitt á hvorum bænum. Nú, hlöð á þessum tíma voru ætíð nokkurn veginn eins í stórum dráttum svona. Hvernig á að skapa fjöl- breytni í leiktjöldum í slíku verki?“ „Leikumgerð á að vera einföld, en fal- leg. Til dæmis er hreinasti óþarfi að dengja inn á sviðið urmul af súlum, boga- göngum og alls kyns hallarpírpumpári, og hafa svo kannski fjarvíddarlandslag í bakgrunni. Slík leiktjöld eru einungis glepjandi. Þau draga athygli áhorfenda frá sjálfum leiknum, en eru síst til þess að auka skilning á sjálfu leikverkinu.“ (Tíminn 13.7. 1965.) Lárus í eigin orðum Lárus Ingólfsson við mál- arastörf í Þjóðleikhúsinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.