Morgunblaðið - 22.06.2005, Side 4

Morgunblaðið - 22.06.2005, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NOKKRAR breytingar urðu á stjórn Árvakurs hf., út- gáfufélags Morgunblaðsins, á aðalfundi félagsins sem haldinn var í gær. Koma þær í kjölfar breytinga á hlut- hafahópnum en Haraldur Sveinsson og börn og Johnson ehf. seldu fyrir nokkru öðrum hluthöfum eignarhluti sína. Stjórnarmenn hafa skipt þannig með sér verkum: For- maður er Stefán P. Eggertsson, varaformaður Kristinn Björnsson og ritari Halldór Þór Halldórsson. Meðstjórn- endur eru Hulda Valtýsdóttir og Finnur Geirsson og í varastjórn sitja Leifur Sveinsson, Hallgrímur B. Geirs- son og Björn Thors. Úr stjórninni gengu Haraldur Sveinsson og Friðþjófur Johnson, f.h. Johnson ehf. og í stað þeirra komu nýir í stjórnina þeir Kristinn Björnsson og Finnur Geirsson. Í skýrslu stjórnar Árvakurs, segir m.a. svo um breyt- ingarnar í hluthafahópnum: „Á yfirstandandi ári hefur sem kunnugt er fækkað í hópi hluthafa með sölu Haraldar Sveinssonar og barna og sölu Johnson ehf. á eignarhlutum sínum til annarra hlut- hafa. Báðir þessir hluthafahópar eiga rætur að rekja til stofnenda félagsins og hafa því starfað að málefnum Ár- vakurs hf. um margra áratugaskeið. Ekki síst hefur Har- aldur Sveinsson helgað Árvakri hf. og Morgunblaðinu starfskrafta sína sem framkvæmdastjóri félagsins í 28 ár og stjórnarformaður þar á undan og síðan nú aftur síð- ustu tæplega 9 árin. Stjórn og hluthafar Árvakurs hf. þakka fráfarandi stjórnarformanni og hluthöfum gott og ánægjulegt sam- starf og óska þeim jafnframt velfarnaðar í lífi og starfi.“ Þá færir stjórn Árvakurs starfsfólki Morgunblaðsins þakkir fyrir vel unnin störf, „einurð og staðfestu í þágu félagsins í óvægnu og erfiðu samkeppnisumhverfi,“ segir einnig í skýrslunni. Morgunblaðið/ÞÖK Stjórn Árvakurs og varastjórn að loknum aðalfundi í gær. Sitjandi eru Hulda Valtýsdóttir og Leifur Sveinsson. Aftan við þau standa (f.v.) Hallgrímur B. Geirsson, framkvæmdastjóri Árvakurs, Halldór Þór Halldórsson ritari, Kristinn Björnsson varaformaður, Stefán P. Eggertsson stjórnarformaður, Finnur Geirsson og Björn Thors. Breytingar á stjórn Árvakurs 29 RÍKI greiddu í gær atkvæði gegn tillögu Japana um að hefja aftur tak- markaðar hvalveiðar í atvinnuskyni. 23 ríki studdu tillöguna og fulltrúar 5 ríkja sátu hjá. Stefán Ásmundsson, formaður íslensku sendinefndarinn- ar, segir að atkvæðagreiðslan hafi farið eins og búist hafi verið við. „Þetta er tillaga sem þarf þrjá fjórðu meirihluta til að ganga í gegn og hún var á þeim nótum að það var úti- lokað að hún fengi það,“ sagði Stef- án. „Eins og atkvæðahlutföllin hafa verið á þessum fundi hérna hingað til voru held ég fáir sem bjuggust við því að hún fengi hreinan meirihluta.“ Hann gat þess að stuðningur við sjónarmið hvalveiðiþjóðanna væri að aukast. „Það er alveg ljóst að það er að draga saman með fylkingunum, þannig að meirihluti hvalfriðunar- sinna er að minnka. Hvort við náum okkar sjónarmiðum í gegn á næsta fundi eftir ár, skal ég þó ekki segja. En þróunin er augljóslega í þá átt að hlutfall þeirra sem styðja hvalveiðar er að aukast.“ Hann segir að þær tillögur sem Íslendingar hafa ásamt fleiri þjóðum verið að vinna að snúist um að ná breiðri fylkingu um hvalveiðar í at- vinnuskyni en ekki bara einföldum meirihluta. Að því hafi verið unnið og verði gert áfram. Málið gæti komið upp aftur í vikunni Árni Finnsson, framkvæmdastjóri Náttúruverndarsamtaka Íslands, segir að málið sé ekki endilega úr sögunni því það geti komið upp aftur í vikunni. „Ef það bætast við ríki, þá getur staðan breyst. Japanir lögðu fram flókna tillögu sem ekki var ætl- ast til að fæli í sér málamiðlun og það var vitað að hún yrði felld,“ sagði Árni. „Danir sátu hjá í at- kvæðagreiðslunni um japönsku til- löguna en sáttatillaga Dana hefur hvorki verið lögð fram til afgreiðslu né umræðu. Því er ólíklegt að það verði nokkur málamiðlun í þetta skiptið. En það getur verið að það myndist hópur ríkja sem vilji mála- miðlun.“ 66 ríki eiga sæti í Alþjóðahval- veiðiráðinu. Ráðið bannaði veiðar á hvölum í atvinnuskyni árið 1986. Al- þjóðahvalveiðiráðið hefur í rúman áratug unnið að gerð nýrra veiði- stjórnunarreglna, sem eru forsenda þess að hvalveiðar í atvinnuskyni verði teknar upp að nýju. Danir, sem eru í forsæti ráðsins, hafa undanfar- in misseri reynt að ná fram mála- miðlun um reglurnar en Japanir hafa ekki verið sáttir við þær hug- myndir sem Danir hafa sett fram og lögðu því fram eigin tillögu, sem þeir sögðu að væri raunhæf málamiðlun. Andstæðingar hvalveiða sögðu hins vegar að tillaga Japana gengi ekki nærri nógu langt og Chris Carter, umhverfisráðherra Nýja-Sjálands, sagði raunar að tillagan væri móðg- un. Ian Campbell, umhverfisráð- herra Ástralíu, sagði, að um væri að ræða veiðiáætlun, sem þjóðir sem taka sjálfbæra nýtingu alvarlega, myndu ekki einu sinni leggja fram um sardínur eða þorsk. Umhverfisverndarsinnar sögðu að tillaga Japana tæki ekki á málum á borð við þjáningar hvala þegar þeir eru veiddir og hvernig eftirliti með hvalveiðum verði háttað. Hvalveiðibann í atvinnuskyni enn í gildi Stuðningur eykst þó við hvalveiðar að sögn Stefáns Ásmundssonar FYRSTI torfæruhjólastóllinn er kominn til landsins og var hann prófaður á Hellisheiði í gær. Stóllinn hentar vel til ferða á stöðum þar sem ekki er greiðfært á venjulegum hjólastólum og gefur hreyfihömluðum ný tækifæri til útivistar. Heimir Karlsson og félagar á Stöð 2 unnu í getraun- um og vildu að Íþróttafélag fatlaðra nyti afrakstursins. Leitað var til Pauls Speight, sem meðal annars hefur framleitt vetraríþróttatæki fyrir fatlaða, og í fram- haldi af því var stóllinn pantaður. Heimir, með stuðn- ingi Stöðvar 2, Bylgjunnar og Landsbankans, fór síðan í söfnunarátak sem gerir kleift að panta sjö stóla til landsins. Stólarnir eru framleiddir í Bandaríkjunum og hingað komnir kosta þeir þrjú hundruð þúsund krónur með virðisaukaskatti. Þegar stóllinn var prófaður blés vel á viðstadda, en Þorgerður Ragnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sjónarhóls, benti á að það snerist þetta einmitt um. „Þetta gengur út á að geta tekið þátt í hverju sem er; að hafa aðstöðu og útbúnað til þess“. Göngugarpar fylgdust með Göngugarparnir Bjarki Birgisson, sem er hreyfi- hamlaður, og Guðbrandur Einarsson, sem er nær blindur, ganga nú umhverfis Ísland undir slagorðinu „Haltur leiðir blindan“. Þeir voru staddir á Hellisheið- inni í gær og fylgdust með prófun torfærustólsins. Gangan er skipulögð í samstarfi við Sjónarhól - ráð- gjafarmiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir. Frekari upplýsingar má finna á www.gangan.is. Fyrsti torfæru- hjólastóllinn kominn Bjarki Birgisson og Guðbrandur Einarsson, fylgdust með prófun torfærustólsins. Morgunblaðið/Rax Björn Friðrik Gylfason prófaði torfærustólinn og skemmti sér konunglega. Hann naut dyggrar aðstoðar Arnars Jónssonar Aspar, starfsmanns á Lyngási. Greiðir hreyfihömluðum leið til útivistarferða ÁÆTLAÐUR heildarkostnaður vegna slysa í umferðinni í Reykjavík er ekki undir 10 milljörðum króna árlega. Þetta er meðal þess sem fram kemur í samantekt Sjóvár vegna umferðarmála í fyrra. Samantektin náði til þeirra tjóna sem bætt eru úr ábyrgðartrygg- ingu bíla. Samkvæmt framreikningi fyrir- tækisins, sem miðast við markaðshlutdeild þess, voru um 9.200 umferðaróhöpp tilkynnt til tryggingafélaganna í fyrra. Segir í til- kynningu frá Sjóvá að auk þeirra megi reikna með að um 2.000 minniháttar óhöpp hafi orðið sem ökumenn hafi gert út um sín á milli. Metur Sjóvá það svo að rúmlega 1.100 einstaklingar hafi meiðst í óhöppunum og tæplega 18.600 bílar skemmst. „Ef sá fjöldi bíla yrði settur í eina bílalest, þá yrði hún um 84 km löng eða frá Reykjavík og upp í Reyk- holt í Borgarfirði,“ segir í tilkynningunni. „Tjónin í Reykjavík sem bætt voru úr ábyrgðartryggingu bíla námu um 3,6 millj- örðum króna. Við bætist tjón á ökutækjum tjónvalda sem áætla má að sé um 3,2 millj- arðar króna.“ Einnig kemur fram að um 54% allra tjóna á landinu hafi orðið í Reykjavík en auk þess hafi um 16% tjóna orðið í nágranna- sveitarfélögum Reykjavíkur. „Það er athyglisvert að gatnamót Miklu- brautar og Grensásvegar eru nú orðin tjóna- hæstu gatnamótin en gatnamót Kringlumýr- arbrautar og Miklubrautar hafa verið tjónahæst í mörg ár,“ segir í tilkynningunni. Þar slasast þó enn flestir eða 47 einstakling- ar, en áætlað er að 165 einstaklingar hafi slasast á Miklubrautinni einni í fyrra. Tjón þar voru að meðaltali tæplega tvö á dag. Umferðarslysin í Reykjavík kosta 10 milljarða króna Rúm 9 þúsund óhöpp tilkynnt á síðasta ári

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.