Morgunblaðið - 22.06.2005, Side 18
Eskifjörður | Þau Hlynur Ö. Kjartansson, Halla
M. Viðarsdóttir og Ragnheiður I. Einarsdóttir
voru að gróðursetja skrautleg sumarblóm á Eski-
firði og reyndu þannig að særa fram sumarblíðu
sem mönnum þykir nú tímabært að láti á sér
kræla á Austurlandi. Þau eru í bæjarvinnunni og
láta vel af sér þrátt fyrir heldur kuldalega úti-
vinnuna.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Særa fram sumarblíðu
Vinna
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Smíðavellir í Keflavík | Skátafélagið
Heiðabúar starfrækja smíðavelli í samstarfi
við Reykjanesbæ, eins og undanfarin ár.
Smíðavöllurinn verður eins og áður á mal-
arvellinum við Hringbraut í Keflavík.
Smíðavellirnir verða starfræktir frá 27.
júní til 27. júlí, samtals í fimm vikur. Þeir
verða opnir frá mánudegi til fimmtudags,
frá klukkan 13 til 16. Auk þess að smíða og
mála kofa verður ýmislegt brallað á smíða-
völlunum, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá Heiðabúum. Meðal annars
verður efnt til ratleiks og lokahófs.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Göngustígur | Vilji er fyrir því meðal yf-
irstjórnenda Fjarðaálsverkefnisins að leggja
upplýstan göngustíg milli starfsmanna-
þorpsins á Haga og Reyðarfjarðar. Nokkur
slysahætta verður þegar íbúar starfs-
mannaþorpsins ganga milli þorpanna
tveggja og myndi slíkur göngustígur minnka
hana. Lagt er til að gera framhald af núver-
andi göngustíg á Reyðarfirði. Göngustíg-
urinn yrði þá norðan vegar og myndi enda
vestan öryggishliðsins við starfsmannaþorp-
ið á Haga. Verði þessi tillaga að veruleika er
stefnt að því að klára stíginn í síðustu viku
ágústmánaðar og lýsinguna stuttu síðar.
Gönguleiðakort | Hólaskóli hefur gefið
út gönguleiðakort sem heitir „Gönguleiðir
á Tröllaskaga, Heljardalsheiði – Hóla-
mannavegur – Hjaltadalsheiði.“
Kortið nær yfir miðjan Tröllaskaga,
sem er svæði sem nýtur vaxandi vinsælda
sem útivistarsvæði og mun kortið nýtast
áhugafólki um útivist, hvort sem ferðast
er gangandi eða ríðandi um svæðið.
Margar leiðir sem merktar eru inn á
kortið eru þekktar reiðleiðir. Alls eru 19
leiðir merktar inn á kortið og meðal
þeirra eru gamlar merktar þjóðleiðir til
og frá Hólum.
Heimir bátaskipti, seldi
gamla sinn og keypti
Sómabát úr Grímsey og
hefur hann þegar hafið
róðra á honum. Þegar
ljósmyndari hitti á hann
var hann að landa í Húsa-
víkurhöfn. Aflinn þann
daginn var ríflega eitt
tonn. „Ég var við eyj-
arnar,“ sagði hann og átti
Þeir eru ekki margirkarlarnir semgera út á handfæri
frá Húsavík í dag miðað
við það sem áður var.
Einn þeirra fáu sem eftir
eru er Heimir Bessason
sem stundað hefur skakið
yfir sumartímann í ára-
tugi.
Fyrir skömmu hafði
við Mánáreyjarnar, Háey
og Lágey.
Nýi báturinn mun fá
nafnið Laugi og einkenn-
isstafina ÞH 29. „Ég nefni
hann eftir afa mínum sem
var fiskimaður mikill,“
sagði Heimir sem leggur
upp afla sinn hjá GPG-
fiskverkun þar sem hann
er verkaður í salt.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
„Ég var við eyjarnar“
Rúnar Kristjánssonfrá Skagaströndlas kveðskap
Hjálmars Freysteins-
sonar frá Golden Bay á
Krít. Af því spannst hjá
Rúnari:
Margir geta mikið ort,
magna lífsins hug.
Nota vel sitt Krítar-kort
og koma sér á flug!
Heyrðist um það sögnin
sönn,
send af fjarri slóð.
Hvíld frá heima akurs önn
er eflaust mörgum góð!
Sigldu um með seglin hvít
sólarlanda fley,
meðan Hjálmar kúrði á Krít
og kvað á Golden Bay!
Síðasta vísa Hjálmars
frá Golden Bay hljóðaði
svo:
Á barnum hjá bað-
ströndinni
bý ég við rúman kost,
hlæ þar að hugsun minni;
heima er næturfrost.
Meira af Krít
pebl@mbl.is
Kirkjubæjarklaustur | Hátíðin Jóns-
messubál 2005 verður haldin á Kirkju-
bæjarklaustri um næstu helgi. Hefst há-
tíðin á föstudagskvöldið, Jónsmessukvöld,
með sögustund í Minningarkapellu séra
Jóns Steingrímssonar, Jónsmessugöngu
umhverfis Hæðargarðsvatn og lýkur
göngunni um miðnætti með varðeldi og
brekkusöng. Einnig er miðnæturgolfmót á
golfvellinum í Efri-Vík í Landbroti og
opnuð verður málverkasýning Unnar Sæ-
mundsdóttur á veitingahúsinu Systrakaffi.
Á laugardagsmorgni gefst fólki kostur á
að slást í för göngugarpa sem ætla að
ganga á fjallið Lómagnúp í Fljótshverfi.
Gangan er tileinkuð 15 ára afmæli Skaft-
árhrepps en útlínur fjallsins mynda táknin
í bæjarmerki sveitarfélagsins, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá Skaft-
árhreppi. Eftir hádegið er opnað
markaðstjald á Kirkjubæjarklaustri og
margvísleg starfsemi og skemmtun á
staðnum og síðan tónleikar og dansleikur
um kvöldið.
Á sunnudeginum lýkur dagskránni með
handverkssýningu eldri borgara á
Klausturhólum og kynningu Fornleifa-
fræðistofunnar á ýmsum rannsóknum í
Skaftafellsþingi.
Ganga á
Lómagnúp liður
í Jónsmessubáli
á Klaustri
♦♦♦
ÞRJÚ orkufyrirtæki hafa sent Sambandi
garðyrkjubænda tilboð í raforku sem
notuð er við lýsingu í gróðurhúsum.
Stefnt er að gerð rammasamnings sem
allir garðyrkjubændur gætu notið góðs
af.
Fram kemur í Bændablaðinu að Sam-
band garðyrkjubænda hóf viðræður við
Rafmagnsveitur ríkisins sem selt hefur
garðyrkjubændum rafmagn til gróður-
lýsingar. Síðan var óskað eftir tilboðum
frá orkuveitum og bárust tilboð frá Hita-
veitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykja-
víkur, auk RARIK. Haft er eftir Þórhalli
Bjarnasyni, formanni Sambands garð-
yrkjubænda, að verið sé að fara yfir til-
boðin. Markmiðið sé að reyna að ná
rammasamningi við einn orkusala þann-
ig að allir garðyrkjubændur sjái sér hag
í að nýta hann.
Þrjú orkufyr-
irtæki bjóða í
gróðurlýsingu
Jónsmessuganga | Ferðafélag Svarf-
dæla stendur fyrir Jónsmessugöngu að
Skriðukotsvatni og verður lagt af stað frá
Hofsárkoti kl. 19.30 á morgun, fimmtudag.
Eftir göngu verður stefnan tekin að Tungu-
rétt í Svarfaðardal. Hestamannafélagið
Hringur verður með hópreið frá Hrings-
holti að Tungurétt og verður lagt af stað frá
Hringsholti kl. 20.
Jónsmessubál Ferðatrölla verður við
Tungurétt, kveikt verður í bálkestinum kl.
22 og Jónsmessusögur lesnar.