Morgunblaðið - 22.06.2005, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.06.2005, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Þ að eru um hundrað og níutíu skópör saman komin hérna á sólpall- inum í dag,“ segir Erla M. Helgadóttir, skó- safnari og hjúkrunarfram- kvæmdastjóri á Sólvangi. Erla á alla skóna sem eru til sýnis á pall- inum og segir þá ná yfir um tutt- ugu og fimm ára tímabil af skó- söfnunaráráttu. „Þegar ég lít til baka, til að komast að kjarna bil- unarinnar, þá staldra ég við mig um sjö ára aldur sprangandi um á allt of stórum amerískum hæla- skóm frá mömmu. Þannig að ég hef verið haldin þessari skóáráttu síðan ég man eftir mér. Svo byrj- aði ég ásamt vinkonum mínum á háum hælum strax um fermingu og síðan hefur ekki verið slakað á í þeim efnum.“ Þegar blaðamaður spyr Erlu hvað hún kaupi að meðaltali mörg skópör á ári þá er eina svarið; „Úbbs! Þetta er viðkvæm spurning en við skulum segja að það séu nokkur pör.“ Hún kaupir sér oft- ast skó í Bandaríkjunum en þang- að fara þau hjónin reglulega. „Í hverri ferð kaupi ég nokkur pör í einu en þar fær maður líka tíu pör á verði tveggja hérna heima.“ „Um daginn hitti ég bandaríska konu sem á við sama skó- kaupasjúkdóm að stríða og ég. Hún sagði að læknirinn hennar hefði sagt að það væri miklu betra að kaupa sér skó við og við en að leggjast í rúmið eða éta pillur við vansæld. Skókaup hafa að mínu viti mikinn og góðan lækningamátt og hvert par hækkar ham- ingjuskalann heilmikið hjá mér.“ Á stóran kjallara fyrir skóna Erla á við það vandamál að stríða að nota stærra skónúmer en margar konur. „Ég nota skó núm- er fjörutíu og tvö og hef gert það síðan ég varð fullvaxta. Það eru vandræði að finna á sig flotta og kvenlega stóra skó hérna heima, yfirleitt panta búðirnar ekki inn stærra en fjörutíu til fjörutíu og eitt sem er náttúrlega fáránlegt því íslenskar konur eru stórar og ekki óalgengt að þær þurfi stóra skó. En í Bandaríkjunum er hægð- arleikur að finna stórar stærðir í kvenlegum skóm.“ Þar sem Erla er ekki með sólpall heima hjá sér bauðst sam- starfskona hennar, Anna Guðnadóttir, til að halda partíið enda með fullkom- inn sýningarpall fyr- ir slíka samkomu. Í skópartíinu eru sam- an komnir vinnu- félagar og vinkonur Erlu til margra ára af Hjúkrunarheimilinu Sólvangi. „Við höfum unnið saman í fjölda- mörg ár og erum samheldinn hóp- ur um tuttugu kvenna sem hittist reglulega. Ég sjálf hef unnið í tutt- ugu og sjö ár á Sólvangi.“ Erla var svo heppin að skó- partíið lenti á afmælisdegi hennar. Spurð út í aldurinn segist hún vera fimmtíu plús. En hvar geymir Erla alla þessa skó? „Já, það er nú það, eigum við nokkuð að ræða það? Við skulum segja að ég eigi stóran kjallara. Ég og maðurinn minn, Gunnar Geir Vigfússon, búum tvö saman í stórri íbúð þannig að það er nóg pláss.“ Sönn pæja Erla er hrifnust af rauðum, bleikum og svörtum skóm. Hún hefur aldrei verið hrif- in af brúnum skóm, enda er aðeins einu slíku pari boðið í partíið og virðist það ekki vera mikið notað. „Ég hef ekki notað öll þessi pör, í flest þeirra hef ég stungið tánum einhvern tíma en notkunin á þeim er misjafnlega mikil. Ég vil hafa skóna dömulega og með hæl. Töskurnar eru líka kapítuli út af fyrir sig, ég á svolítið af þeim, enda verður maður að eiga töskur í stíl við skóna sína,“ segir Erla og hlær. Aðspurð segir hún eiginmann sinn vera mjög um- burðarlyndan gagnvart þessari söfnunaráráttu frúarinnar. „Sumir safna styttum en ég safna skóm, þó fólki finnist þetta kannski meiri klikkun en hitt. Ég er ekki nógu dugleg að henda pör- um en ætla að fara í það að grisja úr safninu eftir þessa sýningu. Skósöfnuninni ætla ég svo að halda áfram, því auðvitað þarf maður alltaf skó. Þótt ég kæmist alveg af með minna þá er þetta bara svo gaman,“ segir Erla um leið og hún tiplar á bleikum sand- ölum aftur inn í vinkvennahópinn. Blaðamaður sér að þarna er sönn pæja á ferð.  SAFNARI | Erla M. Helgadóttir er hrifin af rauðum, bleikum og svörtum skóm og á um tvö hundruð pör „Sumir safna styttum en ég safna skóm.“ Erla M. Helgadóttir innan um brot af þeim skóm sem voru til sýnis á sólpallinum í skópartíinu fræga. Það var óvenjuleg sam- koma sem fór fram í Hafnarfirði eitt fallegt sumarkvöld í síðustu viku. Þá kom þar saman í heimahúsi hópur kvenna ásamt um tvö hundruð skópörum og einu afmælisbarni. Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon „Við erum um tuttugu konur sem hittumst reglulega og erum allar gamlar vinkonur og vinnufélagar frá Hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði.“ Erla er hrifnust af kvenlegum skóm; helst rauðum, bleikum og svörtum. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Hvert skópar eykur hamingjuna Þessa rauðu pæjuskó heldur Erla mest upp á af þeim tvö hundruð skó- pörum sem hún á.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.