Morgunblaðið - 22.06.2005, Side 31

Morgunblaðið - 22.06.2005, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 31 MINNINGAR Helgi Hallgrímsson, húsgagnasmiður, hús- gagna- og innanhús- arkitekt og fyrrum yf- irkennari við Iðnskól- ann í Reykjavík, hefur nú kvatt okkur hér á jörð eftir langt og farsælt líf. Helgi hóf kennslu við Iðnskólann árið 1942 en hafði níu árum áður lokið sveinsprófi í húsgagnasmíði. Hann stundaði framhaldsnám í Danmörku og Þýskalandi á árunum 1935 til 1938 og lauk prófi frá Kunsthandværker- skolen í Kaupmannahöfn. Hann var virkur í húsgagnahönn- un og starfrækti teiknistofu á því sviði um nokkurt árabil. Einnig rak hann ásamt öðrum húsgagnavinnu- stofu á stríðsárunum. Hann var einn af fyrstu húsgagna- arkitektum okkar og kom með nýjar hugmyndir inn í húsgagnafram- leiðslu Íslendinga sem á þessum ár- um tók stórstígum framförum. Það var mikið happ fyrir Iðnskól- ann og iðn- og starfsmenntun hér- lendis þegar Helgi réðst til starfa við skólann og kennsluferill hans spann- aði fjörutíu ár. Síðari áratugina tvo var hann yfirkennari í tré- og bygg- ingargreinum. Hann tók einnig virk- an þátt í skipulagningu, stjórnun og kennslu í tækniteiknaraskólanum. Hann var mjög áhugasamur um fræðslu- og félagsmál starfsmennta- greina og beitti sér á þeim vettvangi. Í kennararafélagi skólans var hann góður liðsmaður og samstarfsmenn hans gerðu hann að heiðursfélaga þar. Helgi var sérlega elskulegur mað- ur og einstakt prúðmenni í allri fram- göngu. Gott var að leita til hans og alltaf var hann fús til að ráða fram úr vanda þeirra er til hans leituðu. Hann var góður kennari og miðlaði mikilli þekkingu sinni af hlýhug og nær- gætni. Þegar húsnæði skólans á Skóla- vörðuholti var stækkað á árunum rétt fyrir 1970 gafst möguleiki á því að koma á fót verknámsdeildum í grunndeild tréiðna og húsgagna- smíði. Helgi stjórnaði því verki og naut dyggrar aðstoðar samstarfs- manna sinna en sá samhenti hópur er nú allur fallinn frá. Við félagar Helga úr Iðnskólanum þökkum fyrir þann tíma sem við fengum að starfa með honum og vott- um dóttur og öðrum aðstandendum samúð okkar. Samstarfsmenn við Iðn- skólann í Reykjavík. HELGI HALLGRÍMSSON ✝ Helgi Hallgríms-son fæddist á Patreksfirði 4. nóv- ember 1911. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Eir 2. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fossvogskirkju 21. júní. Helgi Hallgrímsson, húsgagna- og innan- hússarkitekt, hóf kennslu við Iðnskólann í Reykjavík árið 1940, fyrst sem stundakenn- ari þar sem hann tók við þeirri kennslu sem skólastjóri, Helgi Her- mann Eiríksson, hafði haft með höndum og frá árinu 1944 sem einn af þrem fyrstu fastráðnu kennurum við skólann. Hinir voru Sigurður Skúlason og Eiríkur Áki Hjálmarsson. Helgi hafði er hann kom heim frá námi stofnað teiknistofu, þá fyrstu sem sérhæfði sig í hönnun húsgagna og innréttinga, í samvinnu við Þór Sandholt arkitekt, seinna skólastjóra Iðnskólans, en hann sá um hönnun mannvirkja á teiknistofunni. Helgi var einnig virkur félagi í Iðn- aðarmannafélaginu í Reykjavík. Einn þáttur í starfsemi Iðnaðarmanna- félagsins var og er kynning á hand- verki og iðnaði. Í því skyni hefur það staðið fyrir mörgum iðnsýningum, bæði eitt sér og í samvinnu við aðra, allt frá árinu 1883. Þátttaka Helga Hallgrímssonar í störfum Iðnaðar- mannafélagins hófst með því að hann ásamt Guðbirni Guðmundssyni og Jónasi Sólmundssyni tók að sér að sjá um hluta Iðnaðarmannafélagsins í mjög yfirgripsmikilli sýningu á veg- um Reykjavíkurborgar í Þjóðminja- safninu árið 1949. Frá því kom Helgi að öllum sýn- ingum sem Iðnaðarmannafélagið hef- ur haldið eða tekið þátt í. Árið 1926 innréttuðu iðnaðarmenn baðstofu í Iðnaðarmannahúsinu við Lækjargötu. Hún var glæsilegur minnisvarði um íslenskt handverk. Eins og kunnugt er varð eldur laus í húsinu í júní 1986. Þar gjöreyðilagð- ist baðstofan. Borgarráð tók þá ákvörðun að end- urbyggja húsið eftir brunann og vann Iðnaðarmannafélagið að uppbygg- ingunni og gaf m.a. forsögn um upp- byggingu baðstofunnar. Helgi var einn af mörgum félögum í Iðnaðar- mannafélaginu sem lögðu á sig ómet- anlegt starf við endurbyggingu bað- stofunnar. Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík þakkar Helga störf í þágu félagsins, störf sem unnin voru bæði af smekk- vísi og alúð. F.h. Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík, Ásgrímur Jónasson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, DÓRA F. JÓNSDÓTTIR, Bjarmalandi 13, Reykjavík, andaðist á Grensásdeild Landspítalans fimmtudaginn 16. júní. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 23. júní kl. 13.00. Sigurður Sigurðsson, Jón Magni Sigurðsson, Guðjóna Ásgrímsdóttir, Sigurður Pálmi Sigurðsson, Anna Jóna Lýðsdóttir, Guðný Dóra Sigurðardóttir, Gísli Rafn Guðfinnsson, Rannveig Sigurðardóttir, Albert Páll Sigurðsson, Magndís María Sigurðardóttir, Kjartan Steinsson, Ágúst Orri Sigurðsson, Gerður Rún Guðlaugsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, MINNU ELÍSU BANG, Aðalgötu 19 (gamla apótekinu), Sauðárkróki. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Sauðárkróks. Aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, BJÖRN GUÐMUNDUR ERLENDSSON fyrrum bóndi í Skálholti, Merkilandi 2c, Selfossi, verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju föstu- daginn 24. júní kl. 14.00. Jarðsett verður í Selfosskirkjugarði. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Sjúkrahús Suðurlands. María Eiríksdóttir, Kristín Björnsdóttir, Ólafur Sigurðsson, Jóhanna Björnsdóttir, Jón Rúnar Bjarnason, Kolbrún Björnsdóttir, Gunnar Már Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð við andlát og útför bróður okkar, LEIFS EINARSSONAR frá Geithellum. Sérstakar þakkir til allra sem önnuðust hann. Systkini hins látna og fjölskyldur. Ástkær sonur okkar, stjúpsonur, bróðir og barnabarn, ARENT PJETUR EGGERTSSON, Sindragötu 4, Ísafirði, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugar- daginn 25. júní kl. 14.00. Minningarathöfn fer fram í Friðrikskapellu að Hlíðarenda fimmtudaginn 23. júní kl. 17.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Umhyggju, félag langveikra barna. Berglind Sveinsdóttir, Pálmi Ó. Árnason, Kristrún Sif Gunnarsdóttir, Jóna Sigurlína Pálmadóttir, Sveinn Jóhann Pálmason, Ingibjörg Kristjánsdóttir, Sveinn Jóhannsson, Eggert Hjartarson, Gríma Huld Blængsdóttir, Lára Ósk Eggertsdóttir, Gunnar Smári Eggertsson, Laura Claessen. Nærvera ykkar, hjálpsemi ýmiskonar og kærleikur á sér varla hliðstæðu. Sérstakar þakkir til sr. Ólafs Odds Jónssonar, sr. Baldurs Rafns Sigurðssonar og Richards Woodhead, útfararstjóra, fyrir þeirra ómetanlega stuðning. Kæru vinir og samstarfsmenn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Mig skortir orð til að lýsa hve sannir vinir þið eruð í raun. Glæsilegar kaffiveitingar á útfarardegi bera ykkur gott vitni, tár og þúsund faðmlög gefa til kynna hve mikils þið mátuð góðan mann. Ykkur verður seint fullþakkað. Kæru nemendur, gamlir og nýir. Samverustundin í Kirkjulundi gleymist seint. Kærleikurinn sem streymir frá ykkur er okkur meira virði en orð megna að tjá. Hundruð skeyta og kveðja hvaðanæva úr heiminum lýsa því betur en annað hvað sorg ykkar og eftirsjá er einlæg. Einn gamall nemandi orðaði kveðju sína m.a. á þessa leið: ,,Við fráfall Gísla hætti FS hjartað að slá.“ Það er varla hægt að hljóta fegurri eftirmæli. Kæru bridgefélagar og veiðifélagar Gísla. Enn og aftur megna orð lítils. Hjartahlýja ykkar er einstök. Félagar úr íþróttahreyfingunni í Keflavík. Hugheilar þakkir fyrir hve fallega þið heiðruðuð minningu Gísla. Dökkt ský hefur birgt okkur sólarsýn um stund, en það væri í anda Gísla Torfasonar að við gengjum öll á vit ljóssins á ný, því lífið heldur áfram. Guð umvefji ykkur öll kærleika sínum fyrir einstakt hjartaþel. Fyrir hönd okkar Torfa og fjölskyldu okkar, Magnúsar Torfa- sonar og fjölskyldu, Rósa Sigurðardóttir. Kæru vinir og samferðarmenn nær og fjær. Hjartans þakkir til ykkar allra, sem heiðruðu minningu okkar ástkæra Gísla Torfasonar og sýndu okkur samúð og vinarhug við sviplegt fráfalls hans í maí sl. Innilegar þakkir til ykkar allra, sem sýndu okk- ur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamömmu, ömmu og langömmu, RÓSU EINARSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 3-B á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir alúð og góða umönnun. Dagný Guðmundsdóttir, Jón E. Ingólfsson, Helga Bára Bragadóttir, Karl Elí Þorgeirsson, Sigurjón G. Bragason, Sigrún Einarsdóttir, Haukur Bragason, Hanna Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðs- ins: mbl.is (smellt á reitinn Morg- unblaðið í fliparöndinni – þá birt- ist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Co- unt). Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.