Morgunblaðið - 22.06.2005, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í dag er fullt tungl og hrúturinn er ekki
viss um hvert hann á að beina orku sinni.
Á hann að snúa sér að heimili og einkalíf-
inu, eða einbeita sér að starfsframanum?
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sýndu öðrum þolinmæði og farðu gæti-
lega bakvið stýrið. Á fullu tungli má bú-
ast við álagi í samskiptum og akstri hjá
nautinu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn veit ekki í hvorn fótinn hann á
að stíga í peningamálum. Þarfir hverra á
hann að láta ganga fyrir. Sínar eigin eða
annarra? Kannski á hann að setja sjálfan
sig í öndvegi núna?
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nú eru blikur í lofti í parsambandinu og
nánum vinasamböndum hjá krabbanum.
Ástæðan er fullt tungl. Þolinmæði og
skilningur eru besta leiðin á meðan, ekki
kröfuharka.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið þarf að fá að vera í einrúmi, en er
samt með fullt af verkefnum á sinni
könnu. Ef vel ætti að vera þyrfti það að
láta sig hverfa, en ef það er ekki hægt
skaltu gera þitt besta miðað við aðstæð-
ur.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Vinur er ósammála meyjunni í dag, eða
öfugt. Ágreiningur magnast á fullu
tungli. Bíddu aðeins, andrúmsloftið á
eftir að batna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Samband vogarinnar við stjórnendur,
foreldra, kennara eða verði laganna gæti
verið undir sérstöku álagi á fullu tungli.
Vandamálin minnka um leið og tunglið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Forðastu rifrildi um stjórn- og trúmál.
Andstæðurnar skerpast þegar tunglið er
fullt. En í raun er ekkert svart og hvítt í
lífinu. (Kannski grátt.)
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ekki reyna að skipta niður veraldlegum
eigum um þessar mundir. Þú átt ekki
gott með að gæta hlutleysis. Bíddu fram
yfir fullt tungl, þá batnar yfirsýnin.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Rétt fyrir fullt tungl og meðan á því
stendur er eins og vandamálin magnist
og hrannist upp. Að því búnu gerist hið
gagnstæða. Sýndu maka og nánum vin-
um þolinmæði!
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn er fullur af orku í vinnunni
um þessar mundir. En hugsanlegt er að
einhver veiti þér mótspyrnu. Ef það ger-
ist skaltu bíða átekta og reyna aftur síð-
ar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Foreldrar eiga að sýna börnum sérstaka
þolinmæði þessa dagana. Á fullu tungli
langar fiskinn að lyfta sér upp. Reyndu
að gera það með smáfólkinu.
Stjörnuspá
Frances Drake
Krabbi
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert rómantísk og tilfinningasöm
manneskja sem er kleift að gefa sig
ástríðum sínum á vald. Nánustu sam-
bönd þín eru þér næstum allt og ímynd-
unaraflið kemur þér til góða á vinnusvið-
inu. Að sama skapi getur þú verið
skynsöm, ef á þarf að halda.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 stór að flatar-
máli, 8 tími, 9 reiður,
10 munir, 11 aflaga,
13 fífl, 15 draugs,
18 lægja, 21 glöð,
22 skjögra, 23 kross-
blómategund, 24 saurlífi.
Lóðrétt | 2 óhóf, 3 stór
sakka, 4 synja, 5 snaginn,
6 reykir, 7 vex, 12 ber,
14 hnöttur, 15 næðing,
16 þungbær reynsla,
17 sjófugl, 18 vísa,
19 beindu að, 20 tómt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 SPRON, 4 herma, 7 tásan, 8 gömul, 9 díl, 11 stal,
13 brot, 14 jullu, 15 skrá, 17 roks, 20 emm, 22 Papey,
23 játar, 24 rorra, 25 rúman.
Lóðrétt | 1 sætis, 2 rispa, 3 nánd, 4 hagl, 5 rúmar, 6 atlot,
10 íslam, 12 ljá, 13 bur, 15 súpur, 16 rípur, 18 ostum,
19 sárin, 20 eyða, 21 mjór.
Tónlist
Grand Rokk | War On Self 2005, Sole Pe-
destrian (USA), Telephone Jim Jesus
(USA), Bent og 7berg. Kl. 22.
Myndlist
101 gallery | Ólafur Elíasson til 1. júlí.
Árbæjarsafn | Þorvaldur Óttar Guðlaugs-
son sýnir íslensk fjöll úr postulíni í List-
munahorninu.
Café Karólína | Hugleikur Dagsson – „I see
a dark sail“ til 24. júní.
Eden, Hveragerði | Ólöf Pétursdóttir til
26. júní.
Energia | Sigurður Pétur Högnason.
Feng Shui Húsið | Diddi Allah sýnir olíu– og
akrýlverk. Opið kl. 10–18 virka daga, kl. 12–
18 um helgar.
Gallerí 100° | Dieter Roth til 21. ágúst.
Gallerí Gyllinhæð | Berglind Jóna Hlyns-
dóttir með sýninguna Virkni Meðvirkni Ein-
lægni.
Gallerí I8 | Lawrence Weiner til 6. júlí.
Gallerí Sævars Karls | Kristín Blöndal sýn-
ir málverk.
Gerðuberg | Sýningin Stefnumót við safn-
ara II er opin virka daga frá kl. 11–17. Lokað
um helgar í sumar. Kaffikönnur, bangsar,
gosdrykkjamiðar, dúkkulísur, munkar, lista-
verk úr brotajárni og herðatrjám og margt
fleira skrýtið og skemmtilegt! Sjá
www.gerduberg.is.
Götur Reykjavíkur | Margrét H. Blöndal til
1. ágúst.
Hafnarbakkinn í Reykjavík | Kristinn
Benediktsson „Fiskisagan flýgur“ ljós-
myndasýning til 31. ágúst.
Hafnarborg | Wilhelm Sasnal, Bojan Sarce-
vic, Elke Krystufek, On Kawara til 21 ágúst.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju. Guðbjörg Lind
Jónsdóttir sýnir myndverk í forkirkju og
kór Hallgrímskirkju. Sýningin stendur til 14.
ágúst.
Hallgrímskirkja | Þórólfur Antonsson og
Hrönn Vilhelmsdóttir sýna ljósmyndir í
Hallgrímskirkjuturni.
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi | Auð-
ur Vésteinsdóttir.
Hrafnista Hafnarfirði | Rúna (Sigrún Guð-
jónsdóttir) sýnir í Menningarsalnum á
fyrstu hæð.
Hönnunarsafn Íslands | Circus Design í
Bergen. Til 4. sept.
Kaffi Sel | Ástin og lífið. Gréta Gísladóttir
sýnir á Kaffi Seli við golfvöllinn á Flúðum.
Sýningin stendur til 3. júlí.
Kaupfélag listamanna | KFL-group er með
hressandi myndlist í Gamla Kaupfélaginu í
Hafnarfirði að Strandgötu 28, 2. hæð.
Myndlist 27 listamanna leikur um alla hæð-
ina, í herbergjum, í sal, á klósettum og
dregur sig einnig út úr húsinu. Sýningin
stendur til 23. júní og er opið alla daga frá
14–18. Aðgangur er ókeypis.
Kling og Bang gallerí | John Bock til 26.
júní.
Leonard | Mæja sýnir út júnímánuð. Sjá
nánar á www.maeja.is.
Listasafn ASÍ | Ólafur Árni Ólafsson, Libia
Pérez de Siles de Castro til 3. júlí.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið er alla
daga nema mánudaga frá kl. 14–17.
Listasafnið á Akureyri | Matthew Barney,
Gabríela Friðriksdóttir til 26. júní.
Listasafn Íslands | Dieter Roth til 21.
ágúst.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Gabríel
Kuri, Jennifer Allora og Guilliermo Calza-
dilla, Brian Jungen, Hekla Dögg Jónsdóttir,
John Latham, Kristján Guðmundsson til 21.
ágúst.
Listasafn Reykjanesbæjar | Á sumarsýn-
ingu má nú sjá sænskt listgler. Um er að
ræða rúmlega 60 verk eftir 50 helstu gler-
listamenn Svía, úrval hins besta úr heimi
nytjaglers og skúlptúrglers. Sýningin kem-
ur frá Hönnunarsafni Íslands.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Dieter
Roth, Peter Fischli, David Weiss, Haraldur
Jónsson, Urs Fischert til 21. ágúst..
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sumarsýning Listasafns Íslands.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sumar-
sýning – Aðföng, gjafir og lykilverk eftir
Sigurjón Ólafsson. Safnið er opið milli
klukkan 14 og 17.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg 5 | Haf-
steinn Austmann
Norræna húsið | Andy Horner til 28.
ágúst.
Norska húsið í Stykkishólmi | Ástþór Jó-
hannsson.
Nýlistasafnið | Thomas Hirschhorn til 24.
júlí.
Safn | Carsten Höller til 10. júlí.
Vatnstankarnir við Háteigsveg | Finnbogi
Pétursson sjá nánar www.or.is.
Við Fjöruborðið | Inga Hlöðvers.
Þjóðminjasafn Íslands | Mynd á þili í Boga-
sal. Sýningin er afrakstur rannsókna Þóru
Kristjánsdóttur á listgripum Þjóðminja-
safnsins en munirnir eru frá 16., 17. og 18.
öld. Sýningin er liður í Listahátíð í Reykja-
vík 2005.
Þjóðminjasafn Íslands | Skuggaföll. Port-
rettmyndir Kristins Ingvarssonar. Margir
þekkja stakar ljósmyndir Kristins en með
því að safna úrvali af þeim saman birtist ný
og óvænt mynd.
Þjóðminjasafn Íslands | Story of your life –
ljósmyndir Haraldar Jónssonar. Sýningin
varpar ljósi á margbrotið eðli ljósmyndar-
innar, náin og um leið flókin tengsl hennar
við einstaklinginn, raunveruleikann, um-
hverfið, tímann, frásögnina og minnið.
Listasýning
Árbæjarsafn | Samsýning á bútasaumi,
Röndótt – Köflótt, í Kornhúsinu. Opið í
sumar frá kl. 10–17.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning á
efni sem tengist ferðamönnum í Reykjavík,
svo sem póstkortum, útgefnu efni og skjöl-
um sem varpa ljósi á sýn ferðamanna á
Reykjavík og það hvernig Reykjavík hefur
kynnt sig ferðamönnum frá 18. öld til dags-
ins í dag. Aðgangur er ókeypis.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Á Borgar-
skjalasafni Reykjavíkur stendur yfir sýn-
ingin Through the Visitor’s Eyes, þar sem
fjallað er um þróun ferðaþjónustu í Reykja-
vík og hvernig ferðamenn upplifðu borgina.
Textar á íslensku og ensku. Sýningin er á 1.
hæð Grófarhúss, Tryggvagötu 15, og er op-
in alla daga. Aðgangur er ókeypis.
Bókasafn Kópavogs | Sýning á ljósmynd-
um úr fórum Kópavogsbúa af börnum í
bænum í tilefni af 50 ára afmæli Kópa-
vogsbæjar í samstarfi Bókasafns og Hér-
aðsskjalasafns Kópavogs.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Hljóðleið-
sögn um húsið, margmiðlunarsýning og
skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu.
Jagúarinn í hlaðinu. Opið alla daga í sumar
frá kl. 9 – 17.
Lindasafn | Lindasafn er opið alla daga
sumar. Mikið úrval af ferðahandbókum og
garðyrkjubókum. Safnið er opið mánudaga
frá kl. 11–19, þriðjudaga til fimmtudaga frá
kl. 13–19, föstudaga 13–17.
Ráðhús Þorlákshafnar | Á sýningu í Ráð-
húsi Ölfuss gefur að líta margar tegundir
uppstoppaðra fiska, bæði vel þekktar teg-
undir og furðufiska.
Þjóðmenningarhúsið | Sýningar í Þjóð-
menningarhúsinu eru opnar alla daga frá
kl. 11 til 17. Helstu sýningar eru; Handritin,
Fyrirheitna landið og Þjóðminjasafnið –
svona var það. Á veitingastofunni Matur og
menning er gott að slaka á og njóta veit-
inganna og útsýnisins yfir Arnahólinn og
höfnina.
Þjóðmenningarhúsið | Norrænt bókband
2005. Á sýningunni er áttatíu og eitt verk
eftir jafnmarga bókbindara frá Norður-
löndunum. Sýningin fer um öll Norður-
löndin og verður í Þjóðmenningarhúsinu til
22. ágúst. Opið frá kl. 11–17.
Þjóðminjasafn Íslands | Opið alla daga í
sumar kl. 10–17. Fyrsta fimmtudag hvers
mánaðar er opið til kl. 21. Ókeypis aðgang-
ur á miðvikudögum. Kaffistofa og spenn-
andi safnbúð.
Fréttir
Al-Anon | Aðalþjónustuskrifstofa Al–Anon
er opin: Mánudaga kl. 10–13. þriðjudaga kl.
13–16 og fimmtudaga kl. 10–13. http://
www.al–anon.is.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar–
og fataúthlutun kl. 14–17. Tekið við fatnaði
og öðrum gjöfum þri.–mið. kl. 11–16. Sími
551 4349. Netfang mnefnd@mi.is.
Fundir
Al-Anon | Nýliðafundir í Reykjavík. Mánu-
dagur, Kirkja Óháða safn. kl. 20. Þriðjudag-
ur, karlafundur Seljavegi 2 kl. 18.30. Árbæj-
arkirkja kl. 20. Miðvikudagur, Seljavegur 2
kl. 20 og Tjarnargötu 20 kl. 20. Neskirkja
kl. 20. Fimmtudagur, Áskirkja kl. 20. (Mælt
er með ca 6 fundum í röð).
Geðhjálp | Félagsfælnihópur Geðhjálpar
heldur vikulega fundi í húsi Geðhjálpar alla
miðvikudaga kl. 20–22 og eru þeir vel-
komnir sem eiga við félagsleg vandamál að
stríða, t.d kvíða, ótta og óöryggi innan um
hóp fólks, eiga í erfiðleikum í samskiptum
við aðra vegna fælni, t.d. í námi eða á
vinnustað.
Fyrirlestrar
Verkfræðideild Háskóla Íslands | Robin
Thomas heldur fyrirlestur í netafræði í
boði ICE–TCS, rannsóknaseturs um fræði-
lega tölvunarfræði. Fyrirlesturinn ber heit-
ið „Large 6–connected graphs with no K_6
minor“ og verður í stofu 132 í Öskju kl.
15.30.
Reiðhöll Gusts | Nýstofnað fyrirtæki á
sviði Íslenskrar hestamennsku boðar til
kynningarfundar 23. júní kl. 16, í veitingasal
Reiðhallar Gusts í Kópavogi. Kynntar verða
áætlanir og hugmyndir um stofnun nýs
reiðskóla hér heima og í Bandaríkjunum.
Auk þess verða nýjar upplýsingar af at-
vinnumöguleikum fyrir reiðkennara, tamn-
ingamenn og þjálfara í N-Ameríku.
BSRB-húsið | Hans Engelberts, fram-
kvæmdastjóri PSI, Alþjóðasamtaka starfs-
manna í almannaþjónustu, heldur fyr-
irlestur á vegum BSRB í BSRB-húsinu,
Grettisgötu 89, fimmtudaginn 23. júní kl.
9.30. Hann fjallar um framtíðarsýn PSI á
þróun almannaþjónustunnar í ljósi al-
þjóðavæðingar og markaðsvæðingar. Fyrir-
lesturinn er á ensku og er öllum opinn.
Börn
Brúðubíllinn | Brúðubíllinn verður í Safa-
mýri kl. 10 og kl. 14 í Gerðubergi/Miðbergi.
Íþróttir
Göngugatan í Mjódd | Mjóddarmót Hellis
fer fram laugardaginn 25. júní í göngugöt-
unni í Mjódd kl. 14 og er mótið öllum opið.
Skráning fer fram í netpósti hellir@hellir.is
og í síma 866 0116. Nánar á hellir.com.
ICC | Þriðja mótið af tíu í nýrri Bikarsyrpu
Eddu útgáfu og Taflfélagsins Hellis verður
haldið sunnudaginn 26. júní og kl. 20.
Verðlaun eru í boði Eddu útgáfu. Nánari
upplýsingar á Hellir.com.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
S.L. 7 ár hafa verið
miðnæturmessur á
Jónsmessunótt í
Hallgrímskirkju. Árið
1998 var fyrsta
prestastefna núver-
andi biskups og þar
sem Jónsmessan var
einmitt í þeirri viku
var ákveðið að vera
með miðnæturmessu
með þátttöku presta
og djákna.
Að þessu sinni
verður messan með
hefðbundnum hætti
fimmtudaginn 23.
júní, kl. 23. Biskup Ís-
lands, Karl Sigur-
björnsson, hefur hug-
vekju og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Jóni
Dalbú Hróbjartssyni,
sr. Maríu Ágústsdótt-
ur, sr. Guðlaugu Helgu
Ásgeirsdóttur og
djáknunum Magneu
Sverrisdóttur, Rósu
Kristjánsdóttur,
Kristínu Axelsdóttur
og Halldóri Elíasi
Guðmundssyni.
Mótettukór
Hallgrímskirkju syng-
ur undir stjórn Harðar
Áskelssonar sem
jafnframt verður
organisti.
Við lok athafnar-
innar gengur kór og
söfnuður syngjandi út
í nóttina og ef veður
leyfir mun kórinn
syngja nokkur vorlög
úti á torgi. Morgunblaðið/Jim Smart
Jónsmessan í Hallgrímskirkju
Fréttasíminn
904 1100