Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 2

Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 2
Ljósmynd/Unnsteinn Ingason Fornleifafræðingarnir Petra Möblein, James Taylor, Bruno Berson og Howell Roberts að störfum í rústunum í Þingey í Skjálfandafljóti. FORNLEIFARANNSÓKNIR eru hafnar í Þingey í Skjálfandafljóti á vegum Fornleifastofnunar og Hins þingeyska fornleifafélags. Fjórir er- lendir fornleifafræðingar verða þarna að störfum á næstu dögum ásamt fleirum og leiðangursstjóri er Bret- inn Howell Roberts, sem starfar hjá Fornleifastofnun. Með honum verða starfsbræður hans frá Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi og Íslandi. Grafa á í tvennar meintar búða- rústir í Þingey, þessum vorþingsstað til forna. Eyjan er í miðju Skjálfanda- fljóti, norðan Goðafoss og skammt norður af bænum Fljótsbakka. Rústir eru við svonefndan Þinghól, skammt sunnan Þingvalla. Einnig verða grafnir könnunarskurðir gegnum garðlög sem umlykja rústasvæðið. Tilgangur rannsóknarinnar er sá helstur að fá hugmynd um aldur og þykkt mannvistarlaga í eynni. Auk þinghalds á þjóðveldisöld er vitað um byggð í Þingey á síðari tímum, allt fram á 19. öld. Gröftur á byrjunarstigi Rannsóknin í Þingey er hluti af verkefninu „Þinghald til forna“, sem miðar að því að kanna aldur, skipulag og ástand þingstaða, staðsetningu þeirra og þróun. Rannsóknirnar hafa m.a. verið styrktar af Kristnihátíð- arsjóði en Hið þingeyska fornleifa- félag lagði einnig til fjármagn ásamt Fornleifastofnun. Þegar samband náðist við formann Hins þingeyska fornleifafélags, Unn- stein Ingason, var hann einmitt staddur úti í Þingey. Ásamt fleirum tók hann þátt í að koma köðlum frá Glaumbæjarseli yfir kvíslar Skjálf- andafljóts og út í eyna til að auðvelda mönnum vaðið. Unnsteinn sagði gröftinn vera á byrjunarstigi. Búið væri að opna nokkra prufuskurði og greinilega væru góð skilyrði í eynni til að aldursgreina mannvistarleifar með aðstoð gjóskulaga. Rannsaka meintar búðaleifar í Þingey                                                 2 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÁTT Í 4 ÞÚSUND BEIÐNIR Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík, sem þjónar öllum lög- regluembættum landsins, bárust 3.662 verkbeiðnir á síðasta ári, en um áramót var aðeins 31 óafgreidd. Mörg stór mál bárust deildinni; manndrápsmál, kynferðisbrotamál, stórbrunar og fjöldi smærri mála. Barátta um dómarasæti Bæði repúblikanar og demókratar í Bandaríkjunum hefja nú harða pólitíska baráttu um dómarasæti Söndru Day O’Connor í hæstarétti Bandaríkjanna. Bandaríkjaforseti hefur tækifæri til að velja hæstaréttardómara og hafa þannig áhrif á réttinn sem er æðsta dómsstigið og jafnframt er hlutverk hans að túlka stjórn- arskrána. 20 farast í sprengjuárás Allt að tuttugu manns fórust í sprengjuárás í höfuðborg Íraks í gærmorgun. Svipaður fjöldi manna var færður slasaður á sjúkrahús. Vatnsskortur eykur nú á eymd íbúa Bagdad auk þess sem rafmagn fer oft af borginni, eldsneyti er af skornum skammti, miklar umferð- arteppur eru algengar, almennings- þjónusta hefur minnkað til muna og óttinn við sprengjuárásir og mann- rán er mikill. Þrjú fíkniefnamál Þrjú fíkniefnamál komu upp hjá lögreglunni á Snæfellsnesi í gær auk þess sem grunur leikur á að stúlku hafi verið nauðgað. Mikil ölvun var í Ólafsvík í fyrrinótt og mikið um drukkna unglinga og erill hjá lög- reglu vegna ofbeldis- og skemmd- arverka. Talið er að 5–6 þúsund manns hafi lagt leið sína á Færeyska daga sem fram fara í Ólafsvík um helgina. Fornbýli á Öxnadalsheiði Fundist hafa leifar af fornu bæj- arstæði á Öxnadalsheiði skammt vestan Grjótár í Skagafirði. Rúst- irnar eru í 480 metra hæð yfir sjáv- armáli og er það hæsta bæjarstæði sem fundist hefur í Skagafirði. Ekki eru til ritaðar heimildir um að búið hafi verið á Öxnadalsheiði. Björk á Live 8 Björk Guðmundsdóttir var á með- al þeirra sem fram komu á stærsta tónlistarviðburði sögunnar, Live 8- tónleikunum, sem fram fóru víða um heim í gær. Björk steig á svið í ná- grenni Tókýó ásamt innlendum tón- listarmönnum. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Í dag Fréttaskýring 8 Myndasögur 46 Hugsað upphátt 28 Dagbók 46/49 Menning 28, 50/51 Víkverji 46 Forystugrein 30 Staður og stund 48 Reykjavíkurbréf 30 Leikhús 50 Umræðan 32/36 Bíó 54/57 Bréf 35 Sjónvarp 58 Minningar 38/42 Staksteinar 59 Hugvekja 40 Veður 59 * * * LANDGRÆÐSLA Íslands hefur látið vinna deili- skipulag fyrir svæði þar sem gert er ráð fyrir 40– 45 sumarhúsalóðum, austan við Gunnarsholt í Rangárþingi ytra, austan við Hellu. Lóðirnar verða stórar og á fremur illa förnu svæði með litlum gróðri og er þeim sem reisa sér sumarhús á lóðunum ætlað að græða þær upp. „Það hefur lengi verið ásókn í land hjá Land- græðslunni til uppgræðslu, og hafa menn alltaf viljað halda þeim möguleika opnum að geta byggt á landinu,“ segir Ásgeir Jónsson, sviðsstjóri land- upplýsingasviðs hjá Landgræðslu Íslands. Hann segir að skipulagt hafi verið svæði með sama hætti árið 1997 á svipuðum stað, nú sé það allt farið og því þurfi að skipuleggja nýja sumarhúsabyggð. „Þetta eru svæði sem voru illa farin, þó það sé komið gras í þetta aftur. Við látum menn hafa stórar lóðir, 5–10 hektara, og gerum þetta með það að markmiði að aðstoða þá sem vilja aðstoða okkur við að græða upp landið,“ segir Ásgeir. „Menn borga litla leigu þar til þeir fara að byggja, en þá hækkar verðið aðeins yfir það sem venjulegt er fyrir sumarhúsalóðir til þess að við séum ekki í einhverri samkeppni.“ Spurður hvort ekki hafi verið hægt að selja einkaaðila landið og fá hann til að skipuleggja það segir Ásgeir að ekki sé hlaupið að því að selja rík- island, það þurfi t.d. að fara fyrir Alþingi. Hann segir að helst hafi Landgræðslan viljað fá einka- aðila til að sjá um þetta skipulag, en með því að sjá um það sjálf geti hún sett skilyrði um notkun á landinu í leiguskilmála, t.d. að það verði ekki notað til beitar. Einnig sé einfaldlega lítið um að einka- aðilar skipuleggi svo stórar lóðir á jafn illa grónum svæðum. Hann segir að lóðirnar verði trúlega lítið aug- lýstar, þær séu aðallega hugsaðar til þess að þeir sem hafi samband við Landgræðsluna, sem séu um tugur manns á ári hverju, geti fengið einhverja fyrirgreiðslu. Deiliskipulagstillagan var samþykkt á síðasta fundi skipulags- og byggingarnefndar og verður auglýst fljótlega. Í framhaldinu fá áhugasamir 6 vikur til að skila inn athugasemdum, segir Sig- urbjartur Pálsson, oddviti hreppsnefndar Rang- árþings ytra. Ójafn leikur Sigurbjartur segir að hreppsnefndin hafi ekki sett sig upp á móti áformum Landgræðslunnar, þó honum þyki skjóta skökku við að opinber stofnun sé að koma að skipulagningu sumarhúsabyggðar á þennan hátt, í samkeppni við einkaaðila. „Það eru margir einkaaðilar á þessu svæði sem eru að skipuleggja lönd til sumarhúsabyggðar. Manni finnst það kannski svolítið ójafn leikur að opinber stofnun eins og Landgræðslan sé að taka þátt í þeim dansi. Sjálfum finnst mér að ef Land- græðslan hefur undir höndum land sem hún hefur ekkert við að gera sé skynsamlegt að selja það land og nýta fjármunina til uppgræðslu fremur en að standa í þessu. Mér finnst að það væri eðlilegri leið,“ segir Sigurbjartur. Landgræðslan skipuleggur sumarhúsalóðir fyrir á fimmta tug bústaða Áhugasamir græði upp lóðir Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is VÖLDUM hópi grunnskólanema er á hverju sumri boð- ið í ferð með varðskipi Landhelgisgæslunnar og fær hópurinn þar að kynnast hinum ýmsu störfum um borð. Á dögunum lauk einni slíkri ferð með varðskipinu Tý. Nemarnir Magnús H. Harvey, Andrés Ægir Ragn- arsson, Sara R. Ellertsdóttir, Þórður Steinar Pálsson, Andrés Elí Olsen og Steinunn D. Högnadóttir stilltu sér upp fyrir Jón Pál Ásgeirsson stýrimann uppi í brú Týs. Ljósmynd/Jón Páll Ásgeirsson Kátir varðskipsnemar FYLGI flokkanna breytist nánast ekkert frá síðasta mánuði og eru breytingar á fylgi allra flokkanna innan við eitt prósentustig. Þetta kemur fram í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn heldur for- ystu og fengi tæplega 38% fylgi. Næst kemur Samfylkingin með rúmlega 34%, þá Vinstrihreyfingin – grænt framboð með naumlega 16%, Framsóknarflokkurinn fengi tæplega 9% og Frjálslyndi flokk- urinn naumlega 4% ef kosið væri til Alþingis í dag. Ríkisstjórnin mælist með 50% stuðning en fylgi stjórnarflokkanna mælist samanlagt rúmlega 46%. Umtalsverður munur er á afstöðu kynjanna þar sem ríkistjórnin nýt- ur stuðnings 56% karla en rúmlega 43% kvenna. Tæplega 21% tók ekki afstöðu eða neitaði að gefa hana upp og rúmlega 6% sögðust ekki myndu kjósa eða skila auðu ef kosningar færu fram í dag. Könnunin var gerð dagana 26. maí til 28. júní. Úrtakið var 3.063 manns á aldrinum 18 til 75 ára. Svarhlutfall var 62% og vikmörk 1-3%. Lítil breyt- ing á fylgi flokkanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.