Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 17
einhverjum hefndum á móti KR þeg-
ar þú skoraðir og varst í sigurliði?
,,Nei, alls ekki. Ég hugsaði aldrei í
þá veruna. Aðalmálið fyrir okkur
Valsmenn var að komast á sigur-
braut eftir tvo tapleiki í röð og KR
var fínn andstæðingur til að ná að
rífa sig upp. Það er ávallt mikill rígur
á milli KR og Vals og það virðist vera
þannig að það er auðvelt fyrir lið að
undirbúa sig fyrir leiki á móti KR.“
Hugsa bara til næstu æfingar
Hvernig hugsar leikmaður sem
hefur gengið í gegnum svona mikil
og erfið meiðsli eins og þú?
,,Það eru nokkur ár síðan ég lærði
að hugsa ekkert fram í tímann. Ég
hugsa varla um næsta leik heldur
bara næstu æfingu. Ég nýt hins veg-
ar hverrar mínútu inni á vellinum út
í ystu æsar. Ég hef svo óskaplega
gaman af því að spila fótbolta og
vera í þessum félagsskap,“ segir
Guðmundur og þegar hann er spurð-
ur hvort blundi í sér hræðsla vegna
meiðslanna segir hann: ,,Nei, en þeir
segja það nú oft sjúkraþjálfararnir
að vandamálið hjá mér sé að ég sé
ekki nógu varkár inni á vellinum.
Það er ósjálfrátt hjá mér. Þegar
dómarinn flautar leikinn á hverf ég
inn í ákveðinn heim og er ekkert að
spá í meiðsli eða vera hræddur við
mótherjann.“
Hefur þú átt þér einhverja fyrir-
mynd í boltanum?
,,Nei, en þegar maður var ungur í
Þór voru fyrirmyndirnar í meistara-
flokki Þórs. Halldór Áskelsson og
Bjarni Sveinbjörnsson voru menn
sem maður leit mikið upp til. Þór var
hörkulið í kringum 1985 þegar ég
var að alast upp og Þór er mitt upp-
eldislið sem ég ber miklar og hlýjar
tilfinningar til, eins og KR og Vals í
dag.“
Gummi segir ómögulegt að segja
til um það hve lengi hann eigi eftir að
endast í boltanum. ,,Ég tek eina æf-
ingu í einu. Ef ég næ að klára þetta
tímabil án þess að meiðast verð ég
ofboðslega ánægður. Ég er ekkert
farinn að spá lengra.“
Guðmundur var aðstoðarmaður
Willums hjá KR þegar hann var frá
vegna meiðsla 2003 en skyldi hann
hafa áhuga á að hella sér út í þjálfun
þegar ferlinum lýkur? ,,Mér finnst
þjálfunin nokkuð heillandi en maður
veit samt ekki hvað verður. Mér sýn-
ist þetta ekki vera þakklátasta starf í
heimi. Þú ert annaðhvort hetja eða
aumingi. Það er ekkert þarna á milli.
Ég hef áhuga á að skoða þjálfunina
en svo getur alveg farið svo að mig
langi að taka mér frí frá boltanum.
Prufa að taka sumarfrí og vera bara
í stúkunni og gagnrýna,“ segir Guð-
mundur.
Guðmundur á tíu A-landsleiki að
baki og í þeim hefur hann skoraði tvö
mörk. Hann lék sinn fyrsta landsleik
á móti Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum árið 1991 á Laugardals-
velli sem Ísland hafði betur í, 1:0.
Guðmundur skoraði sigurmarkið –
kom inn á sem varamaður og skoraði
eina mark leiksins 20 mínútum síðar.
Guðmundur skoraði svo í 2:1 sigur-
leik á móti Kýpur á Akranesi 1996 en
síðast lék hann með landsliðinu í leik
á móti Chile í janúar 2001 þegar Ís-
lendingar töpuðu, 2:0, á móti sem
haldið var á Indlandi. En skyldi
hann eiga afturkvæmt í landsliðið?
,,Satt best að segja þá efast ég
stórlega um það. Ég hef ekkert spáð
í landsliðið enda hef ég nóg með
minn líkama. Ef það kæmi hins veg-
ar upp þá myndi ég bara skoða það
en ég á ekki von á að fá hringingu frá
landsliðsþjálfurunum.“
Fótboltinn fyrirferðarmikill
á heimilinu
Fótboltinn er fyrirferðarmikill á
heimili Guðmundar. Sambýliskona
hans, Kristbjörg Ingadóttir, er af
miklum fótboltaættum. Hún er dótt-
ir Inga Björns Albertssonar sem
gerði garðinn frægan á árum áður á
knattspyrnuvellinum. Ingi Björn á
enn markametið í efstu deild, 126
mörk. Afi Kristbjargar var Albert
Guðmundsson, einn besti knatt-
spyrnumaður þjóðarinnar fyrr og síð-
ar, en sonur þeirra Guðmundar og
Kristbjargar, Albert, 8 ára, er skírður
í höfuðið á honum. Yngra barn þeirra
er Karen sem er tveggja ára. Krist-
björg hefur spilað með Val og KR og
á fjóra leiki að baki með A-landsliðinu
en hún lagði skóna á hilluna fyrir
nokkrum árum og þjálfar nú lið
kvennalið Fylkis sem leikur í 1. deild.
Gæfuspor fyrir mig
,,Fótboltinn er í aðalhlutverkinu á
okkar heimili. Svo mikið er víst.
Konan er á fullu að þjálfa, ég að spila
svo það er talsvert púsluspil að koma
börnunum fyrir. Við höfum hins
vegar bæði svo gaman af boltanum
að þess vegna leggjum við þetta á
okkur. Svo er guttinn byrjaður á
fullu með KR. Það er mikið rætt um
boltann þegar tengdó kemur í
heimsókn. Ingi Björn tengist Val
sterkum böndum og hann var fyrsti
maðurinn sem sagði við mig þegar
ég var kominn í Val að þetta væri
gæfuspor fyrir mig og Val. Ég sé al-
veg fram á það að ég næ ekki þessu
markameti sem hann á og satt best
að segja þá held ég að enginn eigi
eftir að taka þetta met frá honum. “
Albert litli Guðmundsson. Kippir
hann ekki í kynið?
,,Jú. Fótboltinn á hug hans allan.
Hann er nánast alinn upp hjá KR.
Hann fylgdi mér jafnan á æfingar og
það þarf ekkert að hvetja hann til að
fara í fótbolta. Hann hringdi í mig
fyrr um daginn þegar við spiluðum
við KR. Hann sagðist ætla að fara
með mér á leikinn og þegar ég náði í
hann heim þá var hann tilbúinn í
KR-peysunni. Ég spurði hann með
hverjum hann ætlaði að halda og
hann svaraði: „Með þér, pabbi“. Ég
bað hann vinsamlega um að fara úr
KR- treyjunni þar sem hann ætlaði
að vera með inni í klefa fyrir leikinn.
Hann samþykkti það en hann fór
bara í KR-utanyfirgallann yfir treyj-
una. Hann er bæði KR-ingur og
Valsari. Hann fór oft með mömmu
sinni á æfingar þegar hún var í Val
og núna skilst mér að hann haldi
með þremur liðum, KR, Val og
Fylki.“
við rússíbana“
gummih@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 17
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Ka
na
rí
27.530kr.
á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn, 2ja-11 ára.
Innifalið: Flug, gisting á Paraiso í 7 nætur 4. eða 11. janúar.
39.530 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Flugáætlun í vetur:
31. október
16. og 30 nóvember
7. 17. 19. 20. og 27 desember
Alla miðvikudaga í janúar,
febrúar, mars og apríl 2006.
Netver› frá
Í boði eru okkar allra vinsælustu gististaðir:
Rouque Nublo, Las Orkideas og Hótel Neptuno.
Ennfremur glæsilegar nýjungar á borð við
Amazonas, Beverly Park, Paraiso og Andalusia
Park - nýtt hótel. Allt frábærir gistimöguleikar á
besta stað á Ensku ströndinni.
Bókaðu strax besta verðið!
Frá
bæ
r t
ilb
oð
í a
lla
n v
etu
r!