Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 19
endurvinna og leysist ekki upp í
náttúrunni, auk þess sem það getur
verið skaðlegt heilsu manna.“
Öll orka sem notuð er í Sesselju-
húsi er úr endurnýjanlegum orku-
gjöfum. Unnt er að fylgjast með
orkunotkun og -framleiðslu á staf-
rænni töflu sem sett hefur verið upp
í setustofu. „Við notum raforku frá
vatnsaflsvirkjunum og varmaorku
frá hitaveitu Sólheima, auk þess
sem við erum að setja upp sólarsell-
ur á þakinu. Það verður gaman að
sjá hvernig það gengur, en við von-
umst til að sólarsellurnar geti séð
húsinu fyrir nægri orku þegar lítil
notkun er á því.
Síðan er gert ráð fyrir að vind-
mylla til raforkuframleiðslu verði
sett upp í framtíðinni.“
Guðmundur bendir á að það skipti
ekki aðeins máli hvað sé notað í
bygginguna, heldur einnig hverju sé
sleppt. Loftið sé til dæmis óklætt,
enda ekki mikil hagnýt þörf á
klæðningu, og þannig sparað í vinnu
og efni. „Síðan mun þessi bygging
auðvitað einhvern tímann verða tek-
in úr notkun og þá skiptir máli hvort
hægt er að fjarlægja hana auðveld-
lega og jafnvel nýta efnið í annað.
Það er ógjörningur að endurnýta
steinsteypu og því er reynt að lág-
marka hana í umhverfisvænum
byggingum. Í Sesseljuhús er aðeins
notað timbur og það verður hægt að
skrúfa í sundur og taka niður þegar
líftími byggingarinnar er á enda.“
Prufukeyra nýjungar
Stjórnvöld lögðu fram 75 milljónir
króna til byggingar hússins og Guð-
mundur segir reksturinn fjármagn-
aðan með tvennum hætti. Annars
vegar með styrk frá Alþingi til að
ýta starfseminni úr vör og hins veg-
ar með liðsinni Hitaveitu Suður-
nesja, en samstarfssamningur þess
efnis verður undirritaður í dag.
Guðmundur kveðst vonast til þess
að umhverfissetrið geti orðið mið-
stöð þar sem fólk á öllum aldri muni
sækja fróðleik um umhverfismál.
„Ég vona líka að það muni verða
okkur hér á Sólheimum hvatning til
að gera enn betur í umhverfismálum
og prófa nýja hluti.
Einn kosturinn við lítið samfélag
eins og þetta er að við getum prufu-
keyrt ýmsar nýjungar, sem stærri
byggðarlög geta síðan tileinkað sér.
Við höfum til dæmis sýnt fram á
það með fráveitukerfinu okkar að
unnt er að hreinsa skólp með mjög
góðum árangri hér á landi án þess
að nota kemísk efni.“
taki þátt
Morgunblaðið/ÞÖK
Íbúar önnum kafnir við rakstur. Gert er ráð fyrir að um 150 manns verði búsettir á Sólheimum eftir tíu ár. Gefst þeim,
fötluðum sem ófötluðum, kostur á að vinna við ýmis þjónustustörf, skógrækt, smíðar og listiðn.
adalheidur@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 19
Ármúla 44, sími 553 2035.
Hafðu það gott!
- Mismunandi stærðir
• Allir hlutar STRESSLESS eru vandlega
hannaðir til að tryggja þér
hámarksþægindi
• Sjálfvirk hnakkapúðastilling
• Sérstakur mjóbaksstuðningur
• Þyngdarstýring
• Sterk fjaðrandi stálgrind
• Kaldsteyptur svampur
• Úrvals nautaleður - yfir 50 litir
• Öflug viðargrind - fæst í 6 litum
• Borð fyrir fartölvur
• Sjálfvirk hnakkapúðastilling
veitir bestu mögulegu þægindi
- þú velur þína stærð
Sjálfvirk hnakkapúðastilling
veitir bestu möguleg þægindi
®
Sérstakur hæðarstillanlegur
hnakkapúði
360° snúningur
með fullkomnum
stöðugleika
19. ágúst - Sæludvöl í Þýskalandi
1. sept. - Króatía - Slóvenía - Ítalía - Uppselt
23. sept. Tyrkland fyrr og nú - nokkur sæti laus.
3. okt. - Tékkland - Þýskaland - Austurríki -
nokkur sæti laus.