Morgunblaðið - 03.07.2005, Síða 24

Morgunblaðið - 03.07.2005, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Ég fæ sting í hjartað þegarég heyri víetnömsk ung-menni segja frá draumumsínum um að ljúka fram-haldsskólanámi þegar ég veit að núverandi kerfi gerir þeim mjög erfitt að láta drauma sína ræt- ast,“ segir Anh-Dao Tran mennt- unarfræðingur og verkefnisstjóri rannsóknar á áhrifaþáttum í mennt- un asískra nemenda á Íslandi og verkefnis undir yfirskriftinni Fram- tíð í nýju landi. Verkefnið er að hluta til rannsókn sem nær til flestra víetnamskra ungmenna í landinu á aldrinum 16 til 25 ára. Ungmennin, sem eru í kringum 60 talsins, eru fædd í Víetnam og til- heyra því fyrstu kynslóð innflytj- enda á Íslandi. Rétt eins og ungmennin í rann- sókninni flutti Anh-Dao frá heima- landi sínu til annars lands á ung- lingsárunum. Á meðan hún hellir upp á könnuna í eldhúskróknum á heimili sínu og Jónasar Guðmunds- sonar eiginmanns síns í Bakka- smáranum fellst hún á að segja svo- lítið frá sjálfri sér og reynslunni af því að flytjast 16 ára frá Víetnam til Bandaríkjanna. „Pabbi hafði verið foringi í víetnamska hernum. Eftir að Saigon féll átti hann á hættu að verða settur í svokallaða endur- menntun,“ segir hún og ber kaffið og súkkulaði á borð í bjartri borð- stofunni. „Endurmenntun þýddi í rauninni 10 til 15 ára fangelsisvist. Margir af félögum pabba úr hernum voru fangelsaðir og sumir komu aldrei aftur til baka. Hann hefði trú- lega fengið sérstaklega slæma út- reið því að hann var upprunalega frá Norður-Víetnam.“ Allslaus á flótta – Hvernig stóð á því að ykkur bauðst að flytja til Bandaríkjanna? „Pabbi var farinn að vinna fyrir bandarískan flugvélaframleiðanda í Saigon undir lok stríðsins. Eftir að ljóst varð að borgin myndi falla bauðst fyrirtækið til að flytja hann og fjölskyldu hans til Bandaríkj- anna,“ svarar Anh-Dao og rifjar upp að hún hafi ásamt foreldrum sínum og yngri systir yfirgefið Saigon með síðustu Bandaríkjamönnunum hinn 30. apríl árið 1975. Eldri bróðir hennar hafði nokkru áður haldið til náms í Bandaríkjunum. „Ég man að við pökkuðum niður farangri í nokkrar töskur til að taka með okk- ur til Bandaríkjanna en þegar við komum að þyrlunum þurftum við að skilja þær eftir til að hægt væri að koma fleira fólki í þyrluna. Við gát- um ekki farið með flugvél því búið var að eyðileggja flugvöllinn. Þarna á þyrlupallinum varð ég að skilja eftir verðmætustu eigur mínar, m.a. allar dagbækurnar frá unglingsár- unum.“ Anh-Dao rennir kaffi í tvo bolla og rifjar upp að annan hluta leiðarinnar hafi fjölskyldan farið á herskipi. Þann síðasta með flutningaskipi með yfir 7.000 öðrum til bandarísku eyjarinnar Guam í Kyrrahafinu. „Við áttum ekkert nema fötin utan um okkur þegar við komum til Bandaríkjanna. Pabbi átti ekki einu sinni skó við komuna til Guam. Hann hafði blotnað í fæturna, lagt skóna frá sér til þerris og gripið í tómt þegar hann ætlaði að ná í þá aftur.“ Anh-Dao fluttist til bandarískrar fjölskyldu eftir að hafa dvalið einn mánuð á Guam og annan í flótta- mannabúðum í Flórída. „Pabbi hafði kynnst nokkrum Bandaríkjamönn- um þegar hann var við þjálfun í Bandaríkjunum. Ég fluttist til kunn- ingjafólks hans og var eins konar au-pair stúlka á heimilinu, þ.e. hjálp- aði við heimilishaldið og gæslu þriggja barna hjónanna á aldrinum 2 til 10 ára gegn fríu fæði og hús- næði og með því skilyrði að ganga í skóla.“ – Hvernig gekk þér að aðlagast nýjum siðum og tungumáli? „Ég átti dálítið erfitt til að byrja með – sérstaklega af því ég talaði enga ensku. Hins vegar hjálpaði mér að ég hafði gengið í franskan skóla og tala frönsku því mörg orð eru lík í frönsku og ensku. Fleira í franskri menningu hjálpaði mér að aðlagast bandarísku menningunni, t.d. borðuðum við ólíkt flestum Víet- nömum talsvert af mjólkurvörum,“ segir Anh-Dao og viðurkennir með bros á vör að stundum hafi komið upp misskilningur vegna tungu- málaörðugleika fyrstu mánuðina. „Ég man að einu sinni spurði kunn- ingi pabba mig hvort börnin þeirra hjónanna trufluðu mig þegar þau vöknuðu eldsnemma á morgnanna. Ég hafði ekki hugmynd um hvað hann var að segja, brosti bara kurt- eislega eins og mér hafði verið kennt og sagði – já, já. Maðurinn áttaði sig sem betur fer á því að ég hafði ekki hugmynd um hvað hann var að segja. Ég var hjá hjónunum þegar ég fékk ákveðna upphæð eins og allir flóttamenn í Bandaríkjunum til að kaupa mér helstu nauðsynjar. Ég man enn hvað ég var ánægð þegar konan á heimilinu hafði fatað mig upp fyrir peningana enda hafði ég aldrei átt eins mikið af fötum á æv- inni.“ Fyrsti Víetnaminn í Dartmouth Í framhaldsskólanum kynntist Anh-Dao konu sem átti eftir að verða áhrifavaldur í lífi hennar. „Þessi kona átti tvo stráka í háskóla og var sjálf aðstoðarkennari í sjálf- boðavinnu í skólanum. Hún var fengin til að hjálpa mér með námið – sérstaklega enskuna. Á endanum bauð hún mér að flytja til sín. Skýr- ingin sem hún gaf mér var að hana hefði alltaf langað að eiga dóttur,“ segir Anh-Dao og hlær. Hún segir að þessi velgjörðarkona sín hafi ver- ið mjög metnaðargjörn og lagt áherslu á að hún færi í góðan há- skóla. „Hún varð því mjög ánægð þegar ég komst inn í Dartmouth College í New Hampshire. Hann er einn af þessum svokölluðu Ivy- League-háskólum í Bandaríkjunum ásamt Harvard, Yale, Columbia og fleiri góðum háskólum.“ – Þú hefur greinilega verið frá- bær námsmaður? „Ég hafði gengið í góðan fram- haldsskóla og lagt mig fram við námið þessi tvö ár. Svo hjálpaði mér að skólinn var með minnihlutakvóta. Ég var fyrsti víetnamski nemandinn í þrjúhundruð ára sögu skólans. Annars er athyglisvert að þegar ég hóf háskólanám í Dartmouth höfðu konur aðeins verið teknar inn í skól- ann í þrjú ár,“ segir Anh-Dao sem innritaðist í BA-nám í frönsku árið 1977. „Ég man alltaf eftir því hvað mér fannst ég öðlast mikið frelsi við að flytjast á heimavistina. Ég kunni mér ekki læti þar til ég fékk yfirlit frá skólamálayfirvöldum þar sem kom fram að til viðbótar við há- skólastyrkinn minn þyrfti ég 700$ dollara á ári til framfærslu. „Ég á ekki 700$,“ hugsaði ég og áhyggj- urnar af því hvernig ég gæti nálgast peningana héldu fyrir mér vöku þar til ég fór á skólaskrifstofuna og komst að því að ég þyrfti ekki nauð- synlega að útvega peningana. Að- eins væri gert ráð fyrir að ég þyrfti á þeim að halda sem vasapen- ingum.“ Dálítið dimmt Í skólanum kynntist Anh-Dao eig- inmanni sínum Jónasi Guðmunds- syni. „Ég kynntist Jónasi í al- þjóðlegu stúdentafélagi í skólanum. Hann sagðist vera frá Íslandi og ég vildi ekki opinbera fávisku mína með því að segja honum að ég hefði ekki hugmynd um hvaða land hann væri að tala. Þegar ég var aftur komin upp á herbergi flýtti ég mér að fletta Íslandi upp í víetnamskri orðabók en þar var ekki minnst á það einu orði. Ég þurfti því að leita annarra leiða til að fræðast um landið.“ Anh-Dao kom fyrst til Íslands í janúar árið 1980. „Ég man að mér fannst dálítið dimmt,“ segir hún kurteislega. „Ég var líka hissa á ýmsum hlutum eins og að sjá gam- aldags svarta skífusíma í fullri notk- un. Annars leið mér vel þessa tvo mánuði á Íslandi. Við leigðum litla risíbúð með systur Jónasar. Ég kunni ekkert að elda íslenskan mat og Jónas lét sér það í léttu rúmi liggja þótt ég notaði óvenjulegar að- Ég fæ sting í hjartað Hún kom sem flóttamaður frá Víetnam til Bandaríkjanna 16 ára gömul og tókst með þrautseigju að ljúka háskólanámi í einum virtasta háskóla Banda- ríkjanna nokkrum árum síðar. Nú vinnur Anh-Dao Tran m.a. að því að hjálpa asískum ungmennum að fóta sig innan íslenska framhaldsskólakerfisins. Anna G. Ólafsdóttir forvitnaðist um verkefnið og sögu Anh-Dao í Bakkasmáranum á dögunum. Morgunblaðið/ÞÖK „Eftir að hafa lokið háskólanámi var líka mikið áfall fyrir mig að átta mig á því hvað ég var ósjálfbjarga án tungumálsins — skyndilega var ég aftur orðin ólæs og nánast ósjálfbjarga í samfélaginu,“ segir Anh-Dao Tran kennslufræðingur. Feðginin Anh-Dao og Cu við útskrift Anh-Dao úr Columbia-háskóla. Anh-Dao með Xoan, systur sinni, við Dartmouth-háskóla 1979. ’Rétt eins og Íslendingareru Víetnamar að mörgu leyti hjátrúarfullir, þeir eru líka vinnusamir og gera sér ekki óþarfa rellu yfir smáatriðum. Víetnamar eru líka frem- ur afslappaðir gagnvart trúarbrögðum og láta sér yfirleitt í léttu rúmi liggja þó börnin þeirra taki þátt í kristindóms- fræðslu og ýmsum trúar- legum uppákomum í íslenskum skólum. ‘

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.