Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 29
FRÉTTIR
Acidophilus
FRÁ
Fyrir meltingu og maga
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Úlfljótsvatn | Landsmót skáta verð-
ur haldið dagana 19.–26. júlí nk. á
Úlfljótsvatni.
Þema mótsins er „Orka jarðar“
og er þar vísað til þeirrar orku
sem er allt í kringum okkur, bæði
innra með okkur og í ytra um-
hverfi.
Landsmót skáta eru haldin á
þriggja ára fresti og er ein
stærsta útisamkoma ungs fólks á
Íslandi og er vímulaus hátíð.
Mótið er einkum ætlað skátum
11 til 18 ára en einnig sækja mótið
ylfingar sem eru 9 til 10 ára, eldri
skátar og fjölskyldur.
Fjölbreytt dagskrá er í boði fyr-
ir mótsgesti, svo sem vatns-
bardagi, tae kwon do, klifur, list-
sig, kynningar á ýmsum friðar- og
hjálparsamtökum ásamt verk-
efnum sem tengjast alheims-
samtökum skáta og alþjóða-
samfélagi.
Upplýsingar er að finna á vef
mótsins, www.skatar.is/landsmot.
Orka jarðar á
landsmóti skáta
Ljósmynda-
námskeið fyrir
stafrænar
myndavélar
verður á vegum
www.ljosmynd-
ari.is dagana 4.,
6. og 7. júlí og 8.,
10. og 11. ágúst.
Kennt er mánu-
daga kl. 18–22,
miðvikudaga kl.
18–22 og fimmtudaga kl. 18–22.
Námskeiðin eru haldin að Völuteigi
8 í Mosfellsbæ og er leiðbeinandi á
námskeiðunum Pálmi Guðmunds-
son.
Námskeiðinu er skipt niður í 5
hluta: Myndavélin, myndatakan,
ljósmyndastúdíóið, tölvan og
Photoshop. Verð á námskeið er
14.900 kr. Nánari upplýsingar um
námskeiðin er að finna á www.ljos-
myndari.is.
Ljósmynda-
námskeið
UNDIRRITAÐUR hefur verið verk-
samningur við Ax hugbúnaðarhús
um nýtt upplýsingakerfi fyrir
RARIK. Um er að ræða lausn sem
byggist á Microsoft Axapta-
hugbúnaðarkerfi. Heildartilboðs-
fjárhæð án vsk. er 24,7 m.kr. og
gert er ráð fyrir að verki verði að
mestu lokið um næstu áramót.
Síðastliðinn vetur ákvað RARIK
að innleiða upplýsingakerfi sem
veitir skilvirkari aðgang að upplýs-
ingum og framsetningu þeirra og
nýta til þess nýjustu lausnir á sviði
upplýsingatækni. Jafnframt var
ákveðið að nota skyldi staðlaða
hugbúnaðarlausn en ekki sér-
sniðna.
Fjögur tilboð bárust í verkefnið,
frá Skýrr hf., Nýherja hf., Land-
steinum Streng og Ax hugbún-
aðarhúsi. Tilboð voru frá 25 til 100
milljóna króna. Kostnaðaráætlun
nam 78,9 milljónum. Við mat á til-
boðum var mest áhersla lögð á gæði
lausnar, faglega getu bjóðenda og
að lokum verð, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Á myndinni eru Tryggvi Þór
Haraldsson rafmagnsveitustjóri og
Sigríður Olgeirsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Ax hugbúnaðarhúss
hf.
Nýtt upplýsinga-
kerfi fyrir
RARIK