Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 35
UMRÆÐAN
Síðumúla 27 108 Reykjavík
sími 534 4040, fax 5340 4044
Erlendur Davíðsson, lögg. fasteignasali og verðbréfamiðlari
Mjög góð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í
lyftuhúsi, með inngangi af svölum. Hús og
sameign eins og best verður á kosið.
Eignina má aðeins selja 67 ára og eldri.
Mikil þjónusta tengist íbúðum hússins.
Verð kr. 19.900.000.
VESTURGATA - REYKJAVÍK
Snyrtistofa - Kópavogi
Hraunhamar fasteignasala hefur tekið í sölu rót-
gróna snyrtivöruverslun og snyrtistofu í fullum
rekstri, vel staðsetta miðsvæðis í Kópavogi. Verslun-
in er í eigin 141 fermetra húsnæði sem skiptist í
verslun, snyrtistofu, eldhús, snyrtingu, lager og
geymslu. Gott viðskiptatækifæri fyrir rétta aðila.
Upplýsingar veita Helgi Jón eða Þorbjörn.
Skútuvogur 1E - Til leigu/sölu
Skrifstofuhúsnæði til
leigu/sölu. Um er að ræða
mjög gott skrifstofuhús-
næði. 354 fm á annarri
hæð (efstu) í góðu húsi.
Afhending strax. Upplýs-
ingar gefur Helgi Jón á
skrifstofu.
Lyngás - Garðabæ - skrifstofuhúsnæði
Nýkomið í einkasölu sér-
lega vel staðsett atvinnu-
hús (skrifstofur) í góðu
húsi, samtals ca 400 fm,
að hluta til í leigu, frábær
staðsetning, útsýni.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Tvíbýlishús óskast
Traustur kaupandi óskar eftir tvíbýliShúsi með tveimur góðum íbúðum í
Reykjavík. Nánari upplýsingar veita Hákon og Jason.
Kópavogur - lyftublokk
Óskum eftir 110-135 fm íbúð á 2. hæð eða ofar í lyftuhúsi í Kópavogi.
Verðbil 22-30 millj.
Sérhæð eða rúmgóð íbúð
Leitum fyrir fjársterkan aðila að 150 fm hæð á góðum stað eða góðri
íbúð í fjölbýli. Verðbil 40-80 millj.
Raðhús í Fossvogi
Leitum að raðhúsi í Löndunum í Fossvoginum, 150 fm og stærra.
Bílskúr skilyrði.
101 Skuggahverfi
Vönduð eign í 101 Skuggahverfi óskast. 160 fm eða stærri. Fjársterkur
aðili - staðgreiðsla fyrir réttu eignina.
Sérbýli í vesturbæ
Rað-, par- eða einbýlishús í 107 Reykjavík. Þarf að vera 200 fm eða
stærra. Verðbilið er 40-80 millj. Húsnæðið má þarfnast standsetningar.
Einbýli óskast
Garðabær/Fossvogur - einbýli á einni hæð, 180 fm eða stærra, auk
bílskúrs. Verðbil 35-70 millj.
Garðabær
Einbýli í Garðabæ óskast. Höfum ákveðinn kaupanda að 250-350 fm
einbýlishúsi í Garðabæ.
Íbúð við Espigerði óskast - staðgreiðsla
Traustur kaupandi óskar eftir 110 fm íbúð við Espigerði.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir.
Íbúð við Hæðargarð eða Sólheima óskast - rýming eftir 1 ár
Traustur kaupandi óskar eftir 3ja-4ra herb. íbúð við Hæðargarð eða í
háhýsi við Sólheima. Staðgreiðsla í boði. Eignin þarf ekki að losna fyrr
en eftir 1 ár. Nánari upplýsingar veitir Sverrir.
Atvinnuhúsnæði á svæðinu milli Rauðalæks og Skeifunnar
(svæði 104 og 105) þarf að vera 200-250 fm verslunarrými
(jarðhæð) auk 100 fm lagerrýmis.
Iðnaðarhúsnæði í Garðabæ óskast
250-400 fm iðnaðarhúsnæði með góðri
lofthæð í Garðabæ óskast.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Sverrir Kristinsson,
löggiltur fasteignasali.
Upplýsingar veita Sverrir Kristinsson
og Hákon Jónsson.
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur flestar stærðir raðhúsa
og einbýlishúsa víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu - einnig vantar
flestar stærðir og gerðir íbúða - traustir kaupendur.
Dæmi úr kaupendaskrá:
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Vorum að fá í sölu mjög fallegt 245 fm einbýlishús á tveimur hæðum við Arnarhraun í
Hafnarfirði. Góður bílskúr. Húsið skiptist m.a. í tvær stofur, sólstofu og fimm herbergi.
Sérstaklega fallegur garður til suðurs. Úr sólstofu er gengið út í garð á timburverönd.
Húsið er mjög vel staðsett, en þaðan er örstutt í skóla, íþróttahús, miðbæinn, Lækinn o.fl.
Nánari upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir fasteignasali í síma 861 8511.
Arnarhraun - Hafnarfirði
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17:30.
Sími 588 4477
Skipti á Pickup-bifreið möguleg
fyrir hluta kaupverðs eða öllu.
Um er að ræða 4800 fm
leigulóð á frábærum
útsýnisstað í skógi vöxnu landi.
Á landinu í dag er rétt um 20
fm gestahús með hitaveitu sem
er tengd. Heitt og kalt vatn.
Falleg, frágengin lóð með
bílastæði. Viðurkennd rotþró.
Heitur pottur. Til viðbótar við
gestahúsið má reisa á landinu
annan góðan bústað en samtals mega þeir vera 300 rúmmetrar að stærð.
Hagkvæmt fyrir þá sem vilja byggja sinn bústað sjálfir og geta búið í
gestahúsinu á meðan. Hagstætt verð, kr. 2.950 millj.
Upplýsingar veitir Bárður á Valhöll fasteignasölu í síma 896-5221.
Sumarhús rétt við Húsafell
EFTIR lestur greinar Arnar S. Ár-
mannssonar, tel ég það skyldu mína,
að senda honum samhljóm í hans
áhyggjum um skemmdir á svæðinu
við Arnarfell. Þar sem gaurar, sem
kalla sig kvikmyndatökumenn og
„fjöldans heimska“ hefur gert að
fölskum guðum, telja sig endilega
þurfa þetta svæði til myndatöku.
Þarna er einhver annarleg ákvörðun
þeirra manna, sem réttlæta, að
Hollywood-mafían geti komið til
landsins og gert þar usla á gróðri og
öðrum náttúrulegum gersemum.
Ótrúlegt er, að þessir framleiðendur
myndarinnar, „Flag of our Fathers“,
þurfi endilega að nota þetta tiltekna
svæði, þar sem tæknin, sem nú er til
staðar, virðist geta útbúið flest það,
sem til þarf við framleiðslu kvik-
mynda. Þessi falska frægð sumra
manna er þegar komin út fyrir alla
skynsemi og á ekki að láta þá kom-
ast upp með að eyðileggja okkar fal-
lega land, fyrir eigin frægð. Hvernig
þætti landanum, ef Ameríkumenn
færu fram á, að fá að sprengja atóm-
sprengju á hálendinu, í tilrauna-
skyni? Það er óhugnanlegur fnykur
af þessu öllu saman! Lifið heil!
BJÖRN B. SVEINSSON,
Hamarstíg 23, 600 Akureyri.
Holly-
wood-
busar
Frá Birni B. Sveinssyni
UNDANFARIN ár hefur verið auk-
in umræða um einelti. Í þeirri um-
ræðu gerði ég mér ljóst að hafi ég
ekki beinlínis verið beinn gerandi í
slíkum málum hef ég a.m.k. verið
meðsek með því að gera ekki neitt.
En ég hef getað fyrirgefið sjálfri
mér vegna þess að ég var barn þegar
þetta var og vissi ekki betur. En þeir
sem leggja sóknarprestinn okkar í
Garðabæ í einelti um þessar mundir
eru ekki börn og ég efast um að þeir
geti einu sinni falið sig á bak við að
vera illa gefnir. Þetta eru fullorðnir
einstaklingar sem beita slíku einelti
að fólki með vott af velsæmiskennd
verður illt við tilhugsunina. Við get-
um ekki lengur staðið aðgerðalaus
hjá, eineltið er fyrir framan nefið á
okkur Garðbæingum. Ekki einasta
að þetta fólk sendi hótanir með smá-
skilaboðum úr fyrirtækissímum,
heldur dregur það fána að húni til að
hlakka yfir prestinum á sorg-
arstundu í lífi hans. Í mínum huga
hafa sóknarnefnd og djákni Garða-
sóknar saurgað kirkjuna mína,
kirkjuna þar sem ég var fermd, gifti
mig í og börnin mín voru skírð og
fermd í.
Sóknarnefnd og djákni ættu að sjá
sóma sinn í að segja störfum sínum
lausum og biðja séra Hans Markús
og Garðbæinga alla afsökunar op-
inberlega. Mér og öðrum sem kusu
séra Hans Markús er sýnd geysileg
vanvirðing með því að ætla að láta
hann víkja án þess að við höfum
nokkuð um það að segja. Við þetta
fólk er bara eitt að segja: Skammist
ykkar.
SÓLRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
Bæjargili 78, Garðabæ.
Einelti í
Garðabæ
Frá Sólrúnu Sigurðardóttur
BRÉF TIL
BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1,
103 Reykjavík Bréf til blaðs-
ins | mbl.is